Archive for June, 2004

Ris og hnig

Wednesday, June 30th, 2004

Þegar líða tók á kvöldið fór hún að senda fleiri og fleiri sms. Til allra vinkvenna og vina, bara svona að tjékka á stemmningunni. Augun voru fljótandi og það var orðið óþægilega grunnt á allar gleymdu tilfinningarnar.
Hún fékk mörg sms til baka. Hvernig var næturlífið eiginlega fyrir gsm símana?
Það var eitt sms sem gladdi hana sérstaklega. Hann vildi hitta hana.
Þau hittust á reykmettuðum bar þar sem tónlistin er lág, svona miðað við bar. Hún þekkti fólk hvert sem litið var og það fór óneitanlega vel með egóið. Eftir stutta stund var hann farinn að halda í hönd hennar undir borðinu. Þau komu inn á staðinn hvort í sínu lagi, en yfirgáfu hann saman.
Augngotur og maginn fullur af fiðrildum. Sumarnóttin var þeirra.
Hann talaði um tilfinningar sínar til hennar. Ölið gerir allt léttara. Það kom henni á óvart. Einlægni hans hitti hana beint í hjartastað.
Næsta dag beið hún við símann. Við hvert sms kipptist hún við og vonaðist til að heyra frá honum. Honum sem í gær leit á hana sem gyðju. Hún varð leið á að bíða og vitandi að nú eru tímar jafnréttis ákvað hún að ríða á vaðið. Það leið og beið en ekkert svar.
Tveimur dögum síðar var hún enn að hugsa um hann og ákvað að prófa að hringja. Hann skellti á.
Þá var komið að næsta kafla.

ARG

Wednesday, June 30th, 2004

Hugleiðsla

Wednesday, June 30th, 2004

Dauðafæri

Tuesday, June 29th, 2004

The dramaqueen

Tuesday, June 29th, 2004

Hnig - þegar flækjan leysist

Sunday, June 27th, 2004

Að senda sjálfri sér meil

Friday, June 25th, 2004

Að gefnu tilefni

Friday, June 25th, 2004

Brjálað að gera

Thursday, June 24th, 2004

Ég mun eignast barn

Thursday, June 24th, 2004