Archive for September, 2003

Í dag er ég píslarvottur

Tuesday, September 30th, 2003

Já, ég vorkenni mér ferlega mikið í dag. Ég bjóst við að það myndi rigna yfir mig fótboltatilboðum eftir síðustu færslu en allt kom fyrir ekki! Ég sit ein og yfirgefin og get bara æft mig í að halda á lofti!
Og það versta er að ég get ekki einu sinni æft mig í því í ljósi þess að ég er sárlasin heima :/ Í þarsíðustu viku var ég veik heima í tvo daga og nú er ég búin að vera heima í tvo daga og það stefnir ekki í að ég komist til vinnu á morgun! Auk þess er sérlega strembið að sinna 150% vinnu liggjandi veik heima.
Ekki nóg með það heldur fæ ég engin sms né símhringingar. Það er eins og ég sé bara ekki til! (ótrúlega bitur)

Nú og auk þess er ég í fýlu út í menntamálaráðherra sem vill stytta framhaldsskólana. Hann segir að stúdentsprófin verði alveg með sömu gæðum því að það verði bætt 10 kennsludögum við á ári…! Hvernig getur það verið? Var ég þá bara að grínast í heilt ár í framhaldsskóla? Það liggur náttla í augum uppi að þetta er bara sparnaðarráðstöfun!
Mér finnst óþolandi þegar það er verið að bera okkur saman við norðurlöndin þar sem stúdentsprófið er þrjú ár. Vinir mínir í DK eru svo sannarlega ekki tilbúnir í háskólanám að loknu þessu þriggja ára menntaskólanámi. Þá var frændur vorir nebbla í höjskole eða hafa farið í efterskole eða bara eitthvað annað nám áður en ráðist er til atlögu við háskólann!
Ef eitthvað á að gerast í menntamálum hér á landi þá á að lengja kennó (grunnskólabraut) upp í 4 ár.
En jæja, ég nenni ekki að röfla meir. Alltof upptekin við að vera píslarvottur.

Fótbolti óskast!

Sunday, September 28th, 2003

Ég óska hér með formlega eftir innanhúsfótboltafjöri. Ég fer í innanhúsfótboltafjör einu sinni í viku núna en þrái að spila oftar enda að farast úr hreyfingarleysi. Það er rosalega gaman að spila fótbolta með mér!

Annars held ég að ég sé að verða lasin :/ það er ekki gott. Sérstaklega þar sem ég var veik tvo daga í síðustu viku og er núna að vinna eins og mad woman ! úff…
Byltingin mun bjarga þessu…

Pítsubrandarar

Saturday, September 27th, 2003

Góðan dag
Ég auglýsi hér með eftir öllum bröndurum sem hafa eitthvað með pítsur að gera! Vinsamlega tjáið ykkur gegnum kommentakerfið…

Börn í dag…

Friday, September 26th, 2003

Já, það er fyndið að uppgötva að sömu brandararnir og sama sprellið helst kynslóð fram af kynslóð.
Á ég að segja þér brandara?
Keyptu þér brjóstahaldara!
er ennþá alveg klassagrín hjá yngri kynslóðinni.
Þegar við Fífa vorum með skátanámskeið á Fáskrúðsfirði í fyrrasumar fengum við lítið áfall. Við vorum í rútu með barnahóp og í rútunni var að sjálfsögðu sungið
Áfram áfram áfram bílstjóri o.s.frv.
Við vorum tilbúnar að öskra af öllum lífs og sálarkröftum
Allir strákar pissa í kopp
allar stelpur borða popp!
Já og bæta jafnvel við að stelpur dansi hip hop sem þykir öllu betra hlutskipti en að pissa í kopp. En í lok lagsins hrópuðu börnin ÁFRAM! !
Við veltum því lengi fyrir okkur hvers vegna kynjarembingurinn hefði horfið úr þessu annars ágæta lagi en kenningar okkar voru svo slappar að ég ætla ekki að birta þær hér.
Í dag kom hins vegar í ljós að þetta var ekki kynslóðabil heldur í mesta lagi landshlutabil eða hópabil.
Börnin sem ég flakkaði með í strætó í dag skipuðu sér strax niður á að borða popp og einn bætti meira að segja skemmtilega við:
Og dansa rokk með eyrnalokk!
Sem er nú ekki alveg alrímað við popp en engu að síður….

Ég viðurkenni vanmátt minn gagnvart…

Wednesday, September 24th, 2003

Ég fékk símtal í gær frá mínum fyrri vinnustað (þeim er ég vann hamingjusöm á í sumar) þar sem mér var boðin ca. 50% vinna í tvær vikur. Verkefnið að sjálfsögðu mjög skemmtilegt… ég sagði já!
Ég sem er orðin svo þreytt á því að hafa ekki tíma til að setja í þvottavél (hvað þá til að taka úr henni) eða taka til í litla herberginu mínu (sem ég reyndar er aldrei í).
Já, ég er alki! Vinnualki!
En einu sinni hafði ég allan tímann í heiminum og þá fyrst var lífið erfitt. Þá náði eirðarleysið tökum á mér og ég nennti engu. Þá kýs ég nú frekar vinnualkalífið

Auk þess er Hafnarfjarðarkirkja á eftir mér… bara kannski eina helgi og 4 þriðjudagskvöld? (líka mjög skemmtilegt). Ég hef neitað um kvöldin en ekki varðandi helgina… Úff!

Nú mun ég leyfa móður minni að fóðra mig. Það er gott!
Lifi byltingin

Landsfundur UVG

Monday, September 22nd, 2003

Landsfundur Ungra vinstri grænna var tærasta snilld og lít ég svo á að ég hafi fundið minn stað í lífinu. Byltingarandinn sveif yfir vötnum þó að fólk væri að sjálfsögðu misróttækt. Unnið var með nokkrar ályktanir sem voru samþykktar. Sjálfri tókst mér að koma mínum helstu baráttumálum að þó að ég hefði að sjálfsögðu viljað ganga skrefinu lengra í þeim efnum…
<

Kaup á vændi

Monday, September 22nd, 2003

Á landsfundinum fannst mér jafnframt eðlilegt að styðja við bakið á þingmönnum vinstri hreyfingarinnar græns framboðs hvað varðar baráttu þeirra fyrir að jöfnum rétti kynjanna. Eftir nokkrar rökræður var rituð ályktun um jafnrétti kynjanna þar sem sérlegri ánægju var lýst yfir með baráttu þingflokksins fyrir að kaup á vændi verði gerð ólögleg (vísa hér í sænsku leiðina, ef þið þekkið hana ekki skrifaði Hildur Fjóla Antonsdóttir fína grein í Moggann um hana þarsíðustu helgi).
Nokkur umræða spannst um það hvort ályktunin væri í raun um jafnrétti kynjanna þar sem hún fjallaði mestmegnis um kaup á vændi. Þetta tel ég ákveðinn misskilning þar sem algengt er að fólk tengi ekki vændi við jafnrétti kynjanna. Kynferðislegt ofbeldi er grófasta birtingarmynd þess valdaójafnvægis sem er á milli kynjanna og vændi er einn angi kynferðislegs ofbeldis. Vændi snýst um vald og peninga og ekkert annað!
Þegar jafnrétti kynjanna verður náð þá heyrir kynferðislegt ofbeldi sögunni til. Að byltingu lokinni mun ofbeldi að sjálfsögðu ekki vera til hvort eð er en það er nú önnur og lengri saga…
þangað til: Lifi byltingin!!!!

Samræmd próf og Aðalnámskrá

Monday, September 22nd, 2003

Í ályktun um menntamál spannst nokkur umræða um valfrelsi innan menntakerfisins. Hægri öfl þessa lands virðast líta sem svo á að það teljist frelsi til að velja ef þú getur keypt menntun fyrir barnið þitt og því sé einkavæðing svarið við öllum þeim vandkvæðum sem skólastig landsins hafa við að glíma. Ég vil svo sannarlega að skólastjórar hafi frjálsar hendur en það skal vera innan hins opinbera kerfis, án skólagjalda, svo að valfrelsið sé raunverulegt. Það helsta sem stendur í vegi fyrir því að við getum boðið upp á einstaklingsmiðað nám og sveigjanleika innan skólakerfisins eru samræmd próf. Samræmd próf eru nú í 4.,7. og 10. bekk grunnskóla auk þess sem verið er að taka þau upp í framhaldsskólum. Aðalnámskrár skólastiganna eru svo uppfullar af háleitum markmiðum sem kennarar streða við að uppfylla en velja að sjálfsögðu þau til forgangs sem geta bætt útkomu samræmdra prófa. Þetta er helsti akkilesarhæll skólakerfisins!
Ef við raunverulega viljum einstaklingsmiðað nám þar sem hinar ólíku greindir fá að njóta sín hvernig getum við þá samt rökstutt það að allir nemendur þreyti sömu próf sem prófa ekkert nema ákveðnar greindir. Auk þess er mikið ósamræmi milli samræmdra prófa og Aðalnámskrár. Í aðalnámskrá erlendra tungumála er mikil áhersla lögð á talað mál en í samræmdum prófum er ekkert prófað úr töluðu máli!
Ég er því talsmaður þess (og fullyrði að margir kennarar eru mér sammála) að samræmd próf verði lögð niður með öllu. Við lifum í sérfræðingaþjóðfélagi og það er ekkert sem segir að allir einstaklingar þessa þjóðfélags þurfi að hafa nákvæmlega sömu þekkingu. Þar að auki eru próf meingallað námsmat þar sem stór hluti nemenda ná ekki að sýna fram á hæfni sína í viðfangsefninu.
Þar að auki vil ég helst henda Aðalnámskrám þessara skólastiga enda skil ég engan veginn hvernig íþróttakennara á að takast að gera nemendur hæfa um tjáskipti!

Ha?

Friday, September 19th, 2003

Ég skil ekki hvernig Ísraelsstjórn getur komið með yfirlýsingar um að hún sé að spá í að ráða Arafat af dögum. Hmmm… ég er að pæla í að myrða bara gaur sem er fyrir mér! (best ég nefni engin nöfn…)!
Nú og svo greiða SÞ jakkafatakallar atkvæði um málefni Ísrael og USA hetjurnar (eða undarlega samsettir andskotar… hver orti svo?) nota sitt neitunarvald eins og ekkert sé. Og ég botna bara ekki neitt í neinu en finnst við hæfi að vitna í eftirfarandi og spyrja um leið hver orti svo??
Fyrir heiminum fara hetjur
sem vita ekki
að ég get betur.
Ætla að kíkja á þingmenn VG í kvöld, og kannski að tjékka bókmenntafræði- og íslenskunema… Annað kvöld á lokahóf Þróttar. Nóg er af plönum.
Ég hlakka svo ógisslega til að fara til útlanda! (fékk meil frá london í dag þar sem mér var boðin gisting… BRA!)
Byltingu takk!

Strætó..!

Thursday, September 18th, 2003

Lögð hefur verið fram tillaga um að framhaldsskólanemar fái frítt í strætó tvisvar á dag á álagstímum. Á morgnana og svo á milli 15 og 17. Þetta er fínasta hugmynd þó að ég myndi náttla vilja meina að það ætti að vera ókeypis fyrir okkur öll í strætó! Hins vegar held ég að ef framhaldsskólanemar eiga að fá frítt í strætó ætti það bara að vera þannig alla virka daga, ekki bara á þessum tímum. Framhaldsskólanemar eru oft á leið heim til sín á öðrum tímum en milli 15 og 17! Sjálf hefði ég ekki fengist til að taka strætó á þeim tímum þegar ég var í kvennó (þ.e. eftir að ég eignaðist bíl).
En mér fyndist eðlilegast að strætófargjöld yrði lækkuð allsvakalega til að það borgi sig virkilega fyrir fólk að ferðast með strætó styttri vegalengdir. T.d. gæti það verið kostur að fara með fjölskylduna í strætó á laugardegi niður í bæ… Í dag kostar það mun meira en að fara á heimilisbílnum.
Sjálf keypti ég mér græna kortið um daginn en það hef ég ekki átt síðan í kvennó um árið! Ég er á því að strætó rokkar!

Eftir stórgóðan pistil Hilmars um flokksbindingu hef ég skráð mig í Vinstri Græn, þó aðallega til þess að taka þátt í Landsþingi Ungra vinstri grænna um helgina og hafa þannig áhrif á þjóðlífið :)

Ég heyri byltinguna nálgast…