Archive for August, 2003

Allt tekur enda…

Friday, August 29th, 2003

Þá er veru minni á Morgunblaðinu lokið í bili. Það þýðir að sumrinu er lokið sem að ég er ekkert neitt sérlega hrifin af! Þá er nú tími til að líta yfir farin veg og hugsa hvað var gott og hvað var miður. Og niðurstaða mín er sú að þetta sumar er búið að vera eitt það besta. Þrátt fyrir miklar og erfiðar breytingar á persónulegum högum og tilheyrandi tilfinningaflakki í kringum það þá hef ég verið svo ofsa ofsa dugleg að gera skemmtilega hluti í sumar að það nær engri átt!

- fór á námskeið til Svíþjóðar í vor

- Útskrifaðist úr kennó (ok, kannski ekki beint gaman en fínt teiti og merkur áfangi)

- Útilega á Úlfljótsvatn

- Massaði alls kons skemmtilegt með Femínistafélaginu

- Hveragerðisgangan + stofnun Feðgana

- Helgarferð til Gautaborgar

- Kíkti á Akureyri á litla sætasta frændann minn (já og móður hans, systur mína)

- Vestfirðir 2003 - held bara ein besta ferð lífs míns

- Gay Pride

- Menningarnótt

- Austfirðir 2003 - massaði Hólmatind á kíkti á Fáskrúðs

- Ætla í bústað um helgina

Ég er ekki af baki dottin því að í næstu viku fæ ég Svíastráka í heimsókn og mun rokka með þeim. Svo er meira og meira skemmtilegt framundan svo að ég er bara alveg vaðandi hamingjusöm.

Og þá kemur upp í mér þakklætið. Fyrir vinina mína, fjölskylduna, fólkið í kringum mig, velgengina og síðast en ekki síst: Að hafa öll þessi tækifæri :)

Á mánudag byrja ég að vinna í Barnaskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ. Það verður örugglega dúndurgaman!

Mér finnst svo gaman að lifa!

Megi byltingin jafnframt lifa!

Fréttablaðið er nú meira helv. draslið

Friday, August 29th, 2003

Hvaða áhrif hef ég?

Thursday, August 28th, 2003

Ég er í fýlu

Thursday, August 28th, 2003

Félagsskapur óskast!

Wednesday, August 27th, 2003

Væntumþykja er lélegasta mögulega afsökun

Wednesday, August 27th, 2003

Hvers vegna vinstri?

Tuesday, August 26th, 2003

RUGGL

Monday, August 25th, 2003

Moggalesarahugtakið kemur frá hr. Hilmari

Monday, August 25th, 2003

Ég stel aldrei!

Friday, August 22nd, 2003