Archive for July, 2003
Svo bregðast krosstré….
Wednesday, July 30th, 2003Ókei, ég er í bobba… sjálfsmynd mín er í molum. Mér finnst þekktur söngvari í plebbahljómsveit sætur… oó.. hann blikkaði mig og tókst þannig að sjarmera. Ekki er unnt að greina frá nafni hins þekkta að svo stöddu vegna tillitssemi við sjálfsmynd mína.
Af skipulagi helgarinnar
Annars er komið snilldarskipulag fyrir helgina!! Ég og náttúrulegi ferðafélagi minn leggjum í hann annað kvöld eftir móður hjá fóður minni. Ferðamáti okkar mun verða á þumalputtanum og finnst okkur það hin mesta stemmning. Gerum ráð fyrir að massa tjaldgistingu einu sinni á leiðinni (ekki innandyra þó). Svo verður lent á Ísafirði og þar tekur á móti okkur sjálfstæðismaðurinn ógurlegi. Hann mun halda okkur félagsskap yfir daginn en svo mun frítt föruneyti (Fífa, Gunnhildur, Einar og Hans) mæta á staðinn á föstudagskveld. Ef ég þekki okkur rétt munum við í það minnsta gera tilraun til að verða okkur úti um einn öl áður en þessi annars heilbrigða áfengislausa helgi hefst. Sjálfstæðismaðurinn mun skaffa húsnæði fyrir fólkið en mig grunar að þar verði líflegar umræður þar sem gönguhópurinn samanstendur af miklum róttæklingum (ég minni á að mæta í bolum við hæfi, aðeins anarkista-, femínista- og kommúnistabolir verða samþykktir!)
Á laugardegi, kl. 14:00, siglum við yfir í Hranfsfjörð, göngum þaðan í Furufjörð og förum með gúmmíbáti þaðan yfir í Reykjafjörð. Í Reykjafirði munum við dvelja í tvær nætur og þaðan verður svo flogið á mánudag og yfir á Ísafjörð. Þaðan verður svo brunað sem leið liggur aftur í ómenninguna í Reykjavík.
Eins og gefur að skilja er ég að kafna úr spenningi og á mjög erfitt með að sitja kyrr! Vinkona mín kom sterk inn með milljón lánshluti enda er hún mikil útivistarmanneskja.
Sjálf fjárfesti ég í gönguskóm í dag og í bakpoka sem mun vera ætlaður fyrir asíutúrinn sem verður að veruleika fyrr eða síðar!
Þangað til held ég í vonina um byltingu og að með árunum verði starfskonur Stígamóta atvinnulausar og Neyðarmóttaka vegna nauðgana óþörf.
Með gleðina að vopni!
Utanlandsplön
Tuesday, July 29th, 2003Fór í snilldar hjólreiðartúr með Diljá í dag! En ótrúlega gaman. Enduðum í lauginni. Tali tali tali tali…
Get ekki hætt að hugsa um útlönd! Er að hugsa um að fara til svíþjóðar með dótið mitt, fara svo til tælands, vera á Supan Buri Sport School í mánuð og þjálfa og svona, fara svo til Víetnam og svo til Malasíu. Kannski ekki landfræðilega heppilegt en löndin sem mig langar mest að heimsækja. Kannski ég komi líka við í Laos. Er að hugsa um að vera í þessum pakka fram að áramótum. Koma svo aftur til Svergie og finna mér vinnu… Myndi sem sé vera í Asíu í þrjá mánuði. Í fullri hreinskilni þá óttast ég að það sé of stutt!!
Gott plan??
ég trúi ekki að ég
Tuesday, July 29th, 2003ég trúi ekki að ég hafi hringt aftur í Stebba Hilmars og sagt Stefán… Eins öllum aðdáendum hljómsveitarinnar Eineltis er kunnugt þá var Stebbi spurður um þetta mikilvæga atriði í viðtali á vegum myndbandsgerðarfólks bandsins. Það hljómaði svo:
Fífa: Hey, eitt að lokum, ef við hringjum í þig… Er það Stefán eða Stebbi?
Stebbi: Stebbi (og blikkaði hana og kyssti báða míkrafónana (sem voru hendur okkar))
ég er að fara yfirum!!
Tuesday, July 29th, 2003ég er að fara yfirum!! Búin að fá að vita að ég mun ekki starfa á mogganum í vetur… Þá tekur spennan við… Hvert á ég að fara? Gera hvað? Ég er að hugsa um að fara til asíu fram að áramótum og massa svo svíþjóð eftir það í góðum félagsskap… vinna í einhvern tíma og sjá svo til með frekari ferðalög…!!!
Af ráðríkum konum, hundum og öðru fjöri
Monday, July 28th, 2003Við Bjarni fórum á pítuna á laugardag. Hann tjáði mér að konan hans væri að fara frá honum. Hún flutti víst út sama dag…. Þá fór hann heim, datt íða, reykti í eldhúsinu og passaði sig að safna upp uppvaskinu! Allt þetta hafði umrædd kona hans komið í veg fyrir að hann gerði…..!!!!
Sjálf er ég orðin fósturmóðir hunds að nafni Grettir. Ég komst að því í dag að ég er helst til hjákátleg þegar ég reyni að skamma hund…. Hann horfði líka bara á mig eins og ég væri fíbbl! Enda finnst mér fibblalegt að horfa á hund og segja SESTU! STEINÞEGIÐU! eða eitthvað í þeim dúr…!
Í augnablikinu bý ég í 4 fermetra herbergi… verið að parketleggja mitt tilvonandi herbergi… Ég kvarta svo sem ekki.
Fór á Draum á Jónsmessunótt í Elliðarárdalnum á laugardag. Hr Bjarni var með í för en hann hefur almennt ekki gaman af leikhúsum. Þetta þótti okkur báðum hins vegar hin besta skemmtun! Þvílíkt gaman að sjá leikið úti í guðsgrænni náttúrunni… Ekkert nema gleði!
Skipulag helgarinnar er orðið ansi flókið… Puttaferðalag, bíll, bátur, flug.. allt í rugli. Hins vegar hlakka ég til að leggja land undir fót enda landið okkar það fallegasta fallegasta…
Hneykslast enn á rotnun þessa samfélags en borðaði nokkra pylsubita áðan… steingleymdi mér og skráði mig í mat í mötuneytinu…!
Lifi byltingin
Grænahlíð
Sunday, July 27th, 2003Já símaöt eru bara fyndin. Íris flotta á svo sannarlega hrós skilið!
Í gær flutti ég og hef nú sætt mig við nafnið Halla í Grænuhlíð. Ég vil minna ykkur á að þessum flutningum mínum á eftir að fylgja mikill einmanaleiki sem þýðir að ég stóla á að vinir mínir hugsi vel um mig!
Hjartað slær ávallt vinstra meginn
Ég hitti í fyrsta skipti áðan sjálfstæðismann sem ég var sammála í ýmsum atriðum. Mann þennan var ég að sjálfsögðu löngu búin að dæma úr leik í minni veröld en hann kom svo sannarlega á óvart. Það hlýtur að vera sjálfstæðisflokknum til framdráttar að fólk sé tilbúið að gagnrýna flokk sinn…. (munum að gagnrýni getur verið jákvæð og neikvæð).
Mér finnst óþolandi, hvort sem það eru sjálfstæðimenn eða aðrir, þegar fólk hefur einhvern flokk á bak við sig og fylgir honum í blindni. Tileinkar sér svo hugmyndafræðina og lifir í teoríunni án þess að setja nokkurn tíman spurningamerki við hvort hún passi við veruleikann….
Já, ég geri þetta stundum, engin spurning. Tek upp hanskann fyrir hitt og þetta sem að ætti kannski ekki að eiga hanska. Hins vegar hef ég algjörlega neitað að flokksbinda mig þar sem ég lít ekki svo á að einn flokkur hafi rétta svarið við öllum mínum spurningum. Enda breyti ég um pólitískar skoðanir reglulega þó ég muni eflaust aldrei flækjast yfir á hægri vænginn….. Ég hef hins vegar kennt mig við miðjumoð, kommúnisma, anarkisma og sósíalisma. Í dag er ég anarkisti og mun eflaust vera það einhvern tíma!
Í dag er ég líka enn hálfgrænmetisæta og það er kannski gaman að segja frá því að ég hef ekkert svína-, nauta- eða kjúklingakjöt lagt inn fyrir mínar varir síðan síðast…..
Af nauðgunum og prósentum
Tilkynntum nauðgunum hefur fjölgað um 40% hjá löggunni í reykjavík. Það er sama fjölgun og hjá Stígamótum. Áðan talaði ég við mann sem hélt því fram að kærum sem ekki leiða til neins (þ.e. rannsókn lýkur ekki) hafi fjölgað. Þegar ég spurði hvers vegna vildi hann meina að það væri eflaust vegna þess að stúlkur hættu við kæruna af því að þær föttuðu að þeim hefði kannski ekkert verið nauðgað! Þetta er ótrúlega lífseigt viðhorf! Að konur vakni með einhvern óljósan grun, rjúki og kæri og fatti svo bara að þetta var ekkert rangt. Viðkomandi maður vildi ekki meina að neitt í kæruferlinu hefði áhrif! Ónei, það að segja söguna aftur og aftur og mæta tortryggni yfirvalda og jafnvel samfélagsins breytir ekki nokkru!!!!
En hvað er málið?! Af hverju lifum við í samfélagi þar sem þriðju hverri konu er nauðgað?? (ég vil reyndar meina að þær séu fleiri….) Er það eðlilegt?? Eru ofbeldismennirnir allir hreint út sagt vondir og siðferðislega brenglaðir menn?? Hvað er það í samfélaginu sem býr til þessa menn?!?!! Já mér er spurn!
Af hverju eiga svona ljótir hlutir sér stað og af hverju leggjumst við ekki öll á eitt og útrýmum þessu í stað þess að setja þolendur undir smásjá og reyna að sannfæra okkur sjálf um að þolendur ljúgi? Skýringin er sú að við reynum að uppfæra lygar á þolendur til þess að halda áfram að lifa í okkar ljósbleika heimi þar sem ekki finnast svona vondir menn………. HÆTTUM ÞVÍ!
Ég held trúnni á byltinguna enda er hún það eina sem getur bjargað þessu samfélagi frá algjörri rotnun!
Patreksfjörður desperat!
Friday, July 25th, 2003Það hringdi í mig kona áðan frá Patreksfirði og bauð mér starf. Ekki nóg með að vantaði kennara á staðinn heldur var laus staða aðstoðarskólastjóra en helst vildi skólinn unga og drífandi manneskju. Mælt hefði verið með mér í Kennaraháskólanum. Ekki fannst mér úr vegi að hún hefði náð sambandi við lektorinn sem ég aðstoðaði fyrir áramót en sú hin sama hefur miklar mætur á mér og mælt með mér í annað eins.
Grunlaus ræddi ég við konuna sem ólm vildi bjóða mér á Vestfirði með flugi í fyrramálið en aðeins í fyrramálið! Mér fannst ákefð hennar helst til undarleg en mundi þó að skólastjórinn í Patreksfirði er alkunnur fyrir óhefðbundnar leiðir í kennaraleit.
Eftir langt spjall brustu út mikil hlátrasköll að baki konunnar svo að ég velti því fyrir mér hvort hún væri að kenna í þessum töluðu orðum enda veit ég ekki alveg hver tímamunurinn er á milli Íslands og Patreksfjarðar (hver veit nema þar sé skólinn enn í fullu fjöri….?). Ég fylltist óneitanlega gleði þegar hópurinn bak við hana hrópaði HÆ HALLA! ótrúlega sætt af konunni að kenna þeim nafnið mitt áður en ég hef svo mikið sem birst þeim sjónum…..
Mér fannst líka hið skemmtilegasta að hópurinn skyldi vera staddur í Laugardal og á leið í pizzupartý með tilheyrandi látum….. ætli ég fljúgi ekki bara með þeim vestur í fyrramálið…!
Danir ekki að rokka
Friday, July 25th, 2003Þá hefur danska stjórnin (nánar tiltekið jafnréttisráðherra) stutt þá tilfinningu mína að Danmörk sé ekki lengur gott land að búa í.
Ég var stödd í þessu landi þegar hægri stjórnin tók við og ég sá þessu hraka smám saman…..
Vonandi eru einhverjir Danir enn með byltingarblóð í æðum!
Forvitni og jakkagallar
Friday, July 25th, 2003Ég gleymdi gallajakkanum mínum í Svíþjóð um daginn. Jakki þessi hefur verið í Danmörku í tvo mánuði og var greinilega ekkert á því að láta plata sig heim til Íslands. Thomas vinur minn sendi hann aldrei frá Danmörku (þrátt fyrir ítrekaða beiðni mína) en eitthvað virðist Alexander hinn sænski vera öflugri því að jakkinn er nú á leið yfir Atlantshafið. Ég heyrði í svíanum um daginn þar sem hann sagði að ég ætti von á einhverju óvæntu með jakkanum. Hvort það er gott eða vont veit ég ekki. Áðan tjattaði ég svo við sænskan sveittan rokkara sem spurði mig hvort ég væri búin að fá jakkann??
Svona tal á hreinlega að banna! Mér finnst argasti dónaskapur að láta mig vita að eitthvað óvænt fylgi með! Ég verð einfaldlega allt allt of forvitin! og fer að ímynda mér hitt og þetta!
Jakkinn kemur væntanlega eftir helgi… ég reyndi að halda ró minni.