Archive for June, 2003

Monday, June 30th, 2003

Hvað er málið?!

ókei! Svar óskast: Hvers vegna í ósköpunum ætlar Hannes Hólmsteinn að rita ævisögu Halldórs Laxness??????? Á hvaða trippi er maðurinn? Þegar ég verð stór er ég að hugsa um að rita ævisögu Davíðs Oddssonar… það væri vel við hæfi!

Annars massaði ég Ísland í bítið í morgun. Ég er hæstánægð með Þóreyju Eddu. Hún veit hvað hún syngur og sannar það enn og aftur að Allt er vænt sem vel er vinstri grænt.

Örn Arnars var hins vegar ekki á sama báti… já eða ekki á sömu miðum… kannski af því að hann synti… Hvernig er hægt að vera ógisslega mikið á móti vændi og mansali en vera samt alveg sama um vændi og mansal?!?! Tvískinnungur?? Eða hvað?

Margar eru spurningarnar sem brenna á mér í dag. Þaldégnú.

Lex minnist á það á blogginu sínu að ágætir menn hafi verið látnir fara á Útvarpi sögu… en Arnþrúður látin vera! Nú fagna ég því að sjálfsögðu að “konan” hafi ekki verið rekin en eftir að hafa heimsótt hana í gærmorgun get ég nú ekki sagt að slík þáttagerð sé upp á marga fiska… Oft finnst mér lítið gert úr siðmenningu kvenna að halda því fram að svona þættir höfði til þeirra. Kannski ætti ég ekki að vera að hrópa hátt þar sem ég hef einungis orðið vitni að 20 mínútum af þættinum hennar… þar af talaði ég í fimm.. en jæja…

…. Le blað du morgun þarfnast krafta minna núna…

Ég vona svo sannarlega að byltingin lifi! já og rokkið að sjálfsögðu.

Hetjan Fúll á móti hefur

Monday, June 30th, 2003

Hetjan Fúll á móti hefur hjálpað mér til að gerast bloggari með bloggurum! Ég er komin með Shout out og er að rifna úr stolti.

Verð að halda áfram að vinna…

Erfiður daga á enda! Við

Sunday, June 29th, 2003

Erfiður daga á enda! Við femínistar stóðum okkur eins og hetjur í gær! RÚV missti 1500 stig (af 1400) við að sýna aðallega myndir af konunum sem gengu inn á staðinn! Fengu samt prik (1) fyrir að sýna leigubílinn sem keyrði í burtu eftir að innihald hans sá myndavélina.

Annað hvort eru femínistar hátt settir á öllum fjölmiðlum landsins eða þá mikil gúrkutíð í bransanum. Við höfum alla vega fengið alveg þvílíka umfjöllun svoleiðis að ég er að nálgast það að vera heimsfræg á Íslandi! Stöð 2 fréttir í gær, Bylgjan í dag (frekar lamað en jæja), RÚV fréttir í kvöld, mogginn á morgun og Ísland í bítið í fyrramálið! Heimsyfirráð!!! (til að koma í veg fyrir misskilning er rétt að taka það fram að þetta er sprell)

Það var alls konar fólk sem leit við í gær. Mest stakk mig konan sem tjáði okkur að 6 ára dóttir hennar ætlaði að gerast nektardansmær og að mamman væri bara stolt af stelpunni sinni. Mamman sagðist þekkja bransann inn og út og vita að þarna væri fínasta starfsumhverfi……………

Karlinn sem veifaði peningabúntinu, kallaði sig fyrirmyndarfaðir 5 barna, og bað svo um að sjá á femínista tussuna svo hann gæti ákveðið hvað hann vildi borga mikið.

Ingólfur Guðbrandsson í Heimsferðum kallaði okkur ómerkilegar þegar við buðum honum merki. Stormaði svo stoltur inn á nektardansstaðinn í fráhnepptri silkiskyrtu.

En… það voru nú líka margar hetjurnar sem litu við, ræddu málin og sýndu framtakinu stuðning. Ungir strákar í leit að svörum við spurningum… Fóru sumir hverjir sannfærðir í burtu í bol sem á stóð Vændi er ofbeldi. Svo sannarlega batnand veröld!

Jæja.. Heim að sofa!

Laugardagur! Kl. 08.00 og ég

Saturday, June 28th, 2003

Laugardagur!

Kl. 08.00 og ég mætt til vinnu. Ætlaði að fara á bílnum en hann var rafmangslaus! Hæstánægð með veðrið í dag, sé fram á að skella mér í sund eftir vinnu. Ef e-n langar með mér þá vinsamlega látið í ykkur heyra!

Forstjóri sagði mér í gær að hlutfall kvenna í ákveðinni stétt í fyrirtæki hans væri mjög hátt, alveg hátt í 40%! Ég spurði hvernig gæti staðið á því að það næði ekki helmingi en væri samt mjög hátt?!?! Hlutfall kvenna í leikskólakennarastétt er hins vegar mjög hátt…..

7 fréttamönnum var sagt upp hjá Norðurljósum í gær. Athugið að þessir fréttamenn eru jafnframt konur. Nú hallar enn meira á konur í stétt fréttamanna sem hlýtur að hafa einhver áhrif á mig þar sem ég er fréttamaður (og er kona). Ég velti því fyrir mér hvert hljóðið yrði í fólki ef meirihluta karlmanna í Álftamýrarskóla yrði sagt upp störfum vegna skipulagsbreytinga… Hvernig myndi það leggjast í almenning? Jú, það er nú bara þannig að konurnar eru að standa sig betur en kallarnir o.s.frv….

Ég skal næstum veðja upp á að þá yrði veigamikil endurskoðun á skólakerfinu þar sem skólarnir væru taldir alltof “kvenvænir” vinnustaðir. Að eiginleikar karla nytu sín ekki nóg…

En hvernig er það þegar konum er sagt upp: Þær eru einfaldlega ekki nógu hæfar

Spáið í því að laun kennara hríðlækkuðu eftir að konur gengu í stéttina… um 1950 voru laun alþingismanna miðuð við laun kennara. En svo þegar sást að karlarnir hurfu úr þessu starfi þurfti að sjálfsögðu að hækka launin. Saki mig hver sem vill um oftúlkun en hefðu stjórnvöld ekki séð mikilvægi þess að börnin hafi karl- og kvenkynsfyrirmyndir, og að hæft fólk sæki í störfin (hæfasta fólkið er oftast karlmenn í þessu samfélagi, sbr. fréttamenn hjá Norðurljósum og forsætisráðherrar í gegnum tíðina) þá var drifið í að hækka launin. Að vísu gleymdist að hækka laun ungra kennara (ég er ekkert bitur!) en skólastjórar fengu einhvern pott til þess að gefa úr… Þannig geta þeir jafnað hlut þeirra sem þeir vilja helst fá í vinnu….

Jæja, vinna sminna. Minni á aðgerðir femínstafélagsins. Ef ykkur langar með, verið þá í bandi! Það verður mikið fjör…

Lifi byltingin!

Góðan dag í dag á

Thursday, June 26th, 2003

Góðan dag í dag á fimmtudagi

Dagurinn í dag er ekki góður. Einn af þessum leiðinlegu dögum. Einhvern veginn komin með það á hreint að ég sé veik en samt er ekkert að líkamanum!

Gunnar Smári fer mikinn í ritstjórnarpistlum í dag og í gær. Hann komst að þeim ótrúlegu sannindum að konur geti leitað orsakanna fyrir launamisréttinu hjá sjálfum sér. Einhvern veginn tekur fólk þessum fréttum eins og þetta sé eitthvað nýtt! Það er nákvæmlega þetta sem hefur verið viðkvæðið í hvert einasta skipti sem þetta er rætt!!!!!!!

Enginn hefur sagt að launamisréttið sé stjórnendum að kenna… Enda væri það jafnmikil fásinna og að skella skuldinni á konur.

Mér leiðast svona staðhæfingar af því að þær draga athyglina frá því sem raunverulega skiptir máli… Af hverju er launamisrétti? Af hverju biðja konur um lægri laun? Af hverju fá konur lægri laun? Af hverju finnst stjórnendum allt í lagi að hafa konu á margfalt lægri launum en karl bara af því að hún bað ekki um neitt annað?! Af hverju eiga karlar mikið greiðari leið að föstum yfirvinnutímum?

Svarið við öllum þessum spurningum liggur í kynmótuninni. Þegar litlum strákum er kennt að taka sé olnbogarými og vera sjálfstæðir. En stelpum kennt að láta lítið fyrir sér fara og að þær hafi nú ekki beint vit á hlutnum (nema þá kannski að setja í þvottavél…)

Ég held að allar konur geti sagt sögur af vantrúnni sem þær hafa mætt þegar þær tjá sig um málefni. Þegar ég þjálfaði 4. fl. kk var ég oftar en ekki spurð hvort stelpur gætu virkilega þjálfað stráka (ath. orðalagið var nákvæmlega svona í eitt skiptið, annars var það stundum prúðbúnara…)

Þetta er svolítið eins og að setja tvo einstaklinga í kapphlaup, halda svo fast í mjaðmirnar á einstaklingi A en leyfa B að hlaupa án takmarkana. Segja A svo að hann geti sjálfum sér um kennt!

Þarna liggur orsök launamisréttisins. Og gegn þessu þurfum við að vinna. Hættum að röfla um hverjum það er að kenna og hvers vegna en tökum til hjá okkur!

Baráttukveðjur!

Thursday, June 26th, 2003

Vá mar! Ég er nýbúin

Monday, June 23rd, 2003

Vá mar! Ég er nýbúin að komast að því hvernig farið er að því að setja teljara á síðuna. Ekkert smá stolt en það kom mér á óvart hversu mörg líta við…. Ég ætti kannski að hætt að röfla um að enginn lesi bloggið mitt…

Helgin var snilld. Húrra fyrir frábærum krökkum úr Æskulýðsstarfi Þjóðkirkjunnar, frábærum leiðtogum og góðu veðri! Ekki húrra fyrir fólki á ættarmóti sem sér ekki sóma sinn í að koma almennilega fram við unglinga o.fl!

Femínismi var mikið ræddur í útilegunni. Eins og gefur að skilja var unglingahópurinn í nokkurri geðshræringu yfir því að ég skyldi hafa verið að þvælast þetta í Fólki með Sirrý. Yngstu strákarnir tilkynntu mér að ég væri rugluð eins og allir aðrir femínistar en þegar líða fór á útileguna breyttust viðhorfin smám saman og hef ég hér eftir einum þeirra þegar ég spurði hann hvers vegna hann væri femínisti: ,,Af því að ég vil réttlæti og fólk á ekki að þurfa að sjá brjóst nema það vilji það sjálft. Og ef ég vil sjá brjóst get ég bara fundið þau sjálfur!” (þarna eignaðist ég nýtt uppáhald!)

Þarna held ég að hann hafi náð að orða það sem við eldri eyðum miklum tíma í að koma frá okkur!

Eldri hópurinn var enn opnari fyrir femínisma og það gladdi mig svo sannarlega hversu fordómum fer minnkandi. Batnandi heimur svei mér þá…

Mesta snilld ferðarinnar var að sjálfsögðu leiðtogasleikjukeppnin en hún varð ansi hörð á tímabili. Þetta gerði allt starf okkar leiðtoganna margfalt auðveldara og ekki spillti fyrir að við fengum þetta fína egópúst! Að heyra stöðugt talað um eigið ágæti virkar sem hið besta vítamín.

Enn eina ferðina enn sannfærðist ég um hvað unglingar eru miklir snillingar!

Hrós: Að sjálfsögðu hinir títtumræddu unglingar

Leiðtogarnir fyrir klassa nafnagrín og rímgrín. Ótrúlega gott að starfa með hæfum hópi fólks!

Guðni Már fyrir skemmtileg endurkynni. Ferlega leiðinlegt hvað gamlir félagar hverfa með tímanum en ofsa gaman að geta endurnýjað kynnin!

Góðan dag á föstudegi Mikið

Friday, June 20th, 2003

Góðan dag á föstudegi

Mikið var ég glöð allan gærdaginn. Lifi femínisminn!! Eignaðist nýjan uppáhaldsfemínista sem hringdi eitt sinn í skattstjóra og svo í dómsmálaráðuneytið til þess að forvitnast um hvernig hún ætti að telja fram vændi á skattaskýrslu og hversu mikið vændi hún mætti stunda án þess að teljast sakhæf!! Hver segir svo að femínistar séu ekki fyndnir?

En talandi um það þá hef ég verið að velta þessu meira og meira með húmorinn fyrir mér. Hvernig femínistar geta notað húmor til að koma skilaboðunum sínum áleiðis. Jú, það er nú hægt að hlæja að ýmsum fáránleika en samt finnst mér meirihluti baráttumála femínista ekkert aðhlátursefni. Ég sé t.d. ekkert fyndið við launamismun, ekkert fyndið við harða kynmótun og ALLS EKKERT fyndið við kynferðislegt ofbeldi!

Spurning um að ég haldi áfram að gera grín af því sem ég tel eðlilegt að gera grín að……..

Annar fannst mér bleiki liturinn rokka í gær. Jákvæðnin var greinilega í fyrirrúmi og ég fann enga neikvæða strauma frá fólki. Húrra fyrir því!

Í dag fer ég á Úlfljótsvatn hopp og hí Æskulýðsfélagi Hafnarfjarðarkirkju, er nú líka að fara í riverrafting í fyrsta sinn í dag. Hlakka bara til!

Lifi byltingin!

Heil og sæl og til

Thursday, June 19th, 2003

Heil og sæl og til hamingju með daginn öll sömul!

Ég er svo agalega hamingjusöm í dag. Mér finnst svo gaman hvað öll eru bleik og hvað allt er fínt. Ég fékk líka leyfi til þess að taka að mér öll verkefni dagsins sem snúa að femínisma og er alveg hæstánægð! Fyrir þau sem ekki sáu fólk með Sirrý í gær þá er það endursýnt í kvöld og á morgun!! Vinsæll þáttur sjáiði. Kemur mér stöðugt á óvart hversu mörg horfa á hann… ólíklegasta fólk en öll taka það fram að vanalega horfi þau ekki á hann….!!!!!

Ég er hæstánægð með þá innreið sem femínismi hefur hafið íslensk samfélag. Sátt við hvað fólk er að verða meðvitað og hvernig fordómarnir minnka dag frá degi. Í dag eru 3 búin að spyrja mig um bleika boli! Þ.e. fólk sem ég þekki ekki neitt!! Þetta gleður litla femínistahjartað mitt.Ég var rétt í þessu að fá senda mynd af fullt af köllum í bleikum bolum. Hver ákvað að bleikur ætti að vera stelpulitur? Þeir eru algjörir hönkar!

Ég heyrði um daginn að félag frjálshyggjumanna hefði einsett sér að knésetja femínistafélagið. Ég veit nú ekki hvort þessar fréttir eru sannar en mér finnst alveg ótrúlegt hvað talsmenn tjáningarfrelsis eiga alltaf erfitt með að hlutir séu gagnrýndir!

Mér finnst líka merkileg mýtan um að femínistar séu húmorssnauðir. Skil ekki alveg hvaðan hún kemur. Sjálf hlæ ég sjaldan eins mikið eins og í félagsskap femínista! Að vísu eru það oft brandara sem ég myndi ekki segja á öðrum stöðum því þeim gæti verið tekið á röngum forsendum.

Mig dreymir um heim þar sem þetta grín okkar á erindi við öll. Að vera á móti femínistum væri álíka spaugilegt og að hata homma! (sem er náttla uppáhalds grínið mitt).

Sjálf gef ég mig út fyrir að hafa mikinn húmor. Ekki þar með sagt að allir skilji hann en hann er alla vega til staðar!

jæja, verð að fara að skrifa meira um allt sem er bleikt bleikt

Njótið dagsins og sjáumst á Prikinu í kvöld!

Góðan miðvikudaginn Ætlaði bara að

Wednesday, June 18th, 2003

Góðan miðvikudaginn

Ætlaði bara að minna ykkur á að horfa á Fólk með Sirrý í kvöld. Þemað verður femínismi og ég að sjálfsögðu í eldlínunni.

Nett stressuð fyrir beina útsendingu.

Annars eyddi ég deginum í gær í að æsa mig yfir nýföllnum dómi yfir manni sem var kærður fyrir tvær nauðganir. Hann var að sjálfsögðu sýknaður en það er nú ekki öll sagan. Ég nenni ekki einu sinni að hafa eftir fréttina í mogganum í gær enda fannst mér þessi dómur svívirðilegur frá A til Ö. Hvet ykkur til að kíkja á hann og taka afstöðu til þess hversu eðlilegt það er að taka fram að konurnar hafi verið ölvaðar o.s.frv.

Mótmælendur bara reknir af Austurvelli í gær. Dabbi ekki alveg að rokka. Ég botna ekkert í þessum ráðamönnum þjóðarinnar og heræði þeirra! Ég segi nú bara í eitt skipti fyrir öll HERINN BURT!! Ég skil ekki alveg af hverju við verðum að hafa her ef kannski ef til vill einhver myndi kannski vilja ráðast á okkur. Það er eins og ég gengi alltaf með hníf þegar ég færi niður í bæ!

En jæja, vinnudagur að hefjast.

Minni ykkur enn á aftur á að byltingin verður að lifa í hjörtum okkar. Það er ekkert sorglegra heldur en ungt fólk sem heldur að það geti engu breytt (hallelúja)