Archive for May, 2003

Föstudagur og lífið gengur sinn

Friday, May 16th, 2003

Föstudagur og lífið gengur sinn vanagang. Litla systir er 10 ára í dag. Svo sannarlega stórafmæli!! Ég er nú ekki búin að gleyma því hvað mér fannst það mikill áfangi að verða 10 ára.

Í gær hitti ég Palla gamla félaga á kaffihúsi. Við áttum snilldarkvöldstund. Ég fór að velta fyrir mér gildi vináttu. Við Palli höfum ekki hist í bráðum tvö ár. Samt var allt eins og það átti að vera. Bara aðeins meira að tala um en áður. Mér finnst líka svo gott að eiga samtal við fólk sem er meira eða minna sammála mér. Þannig æfi ég mig nefnilega í að tala við fólk sem er ósammála. Sammála vinirnir koma með snilldarkomment og alls konar sem ég svo get nýtt mér í samræðum síðar. Þannig kom Palli t.d. með snilldarpælingu varðandi hægri femínista sem ég ætla strax að gera að minni. Hægri femínistar hafa nefnilega vafist eilítið fyrir mér. Sérstaklega eftir öll greinaskrif þeirra með fullyrðingum um að kyn sé breyta sem engu máli skiptir í stjórnmálum. Femínísku gleraugun byggja hins vegar á því að það sé misskipt í upphafi á meðan hægri stefnan boðar að öll höfum við sömu tækifæri. Þarna er nefnilega meginmunur á. Mér þætti hins vegar gaman að heyra hægri femínista tjá sig um þetta mál.

En ég er alla vega búin að gera þá uppgötvun að vinir mínir eru það besta sem ég á (að sjálfsögðu fjölskyldan líka…). Kannski svolítil klisjuuppgötvun en engu að síður… :)

Sumarið er komið!!!! Ég hef reyndar alltaf haft svolítið vonda tilfinningu gagnvart vorinu. Vorið hefur nefnilega öllu jafna verið tími áfalla hjá mér. Fyrsta (satt best að segja eina) ástarsorgin var að vori, afi dó að vori og svo eru nú sum áföll sem eiga ekki heima hér. En nú hef ég ákveðið að taka nýjan pól í hæðina og líta frekar á vorið sem tíma breytinga en ekki áfalla. Breytingarnar geta verið ýmist jákvæðar eða neikvæðar og ég finn að það eru margs konar breytingar í aðsigi hjá mér, stórar og litlar. Stærsta breytingin er væntanlega það að vera búin með háskóla á leið út á vinnumarkaðinn. Minni breytingar eru að kuldaúlpan fer niður í geymslu :)

Jæja, nóg af röfli

Hrós:

Palli að sjálfsögðu fyrir skemmtilegt kvöld

Edda fyrir frábær samtöl, sí og æ!!

Daði fyrir að kenna 5. flokki kvenna Þraukaralagið!! Að vísu skipti hann “Drekkum danskan bjór” út fyrir ” Syngjum saman í kór”. Nokkuð gott rím hjá stráknum

Úffpúff Þvílík helgi!! Spenna, freistingar,

Monday, May 12th, 2003

Úffpúff Þvílík helgi!! Spenna, freistingar,

Monday, May 12th, 2003

Jæja, þá er síðasta verkefninu

Friday, May 9th, 2003

kkk

Friday, May 9th, 2003

Prufa prufa

Friday, May 9th, 2003

Það er margt sem brennur

Tuesday, May 6th, 2003

Ja hérna!! Þvílíkt spennufall. Og

Monday, May 5th, 2003