Hæ og hó á laugardegi
Saturday, April 26th, 2003Hæ og hó á laugardegi
ég sit enn uppi í skóla. Tók eftir að kominn væri tími á að uppfæra blogg…..
Ég er með hríðir. 9 mánaða meðganga brátt að baki….. Á föstudag er svo fæðingin….
Já, dömur mínar og herrar… ég er að verða búin með lokaverkefnið mitt við Kennaraháskóla Íslands. Að vísu er kominn ágætis tími síðan ég var að verða búin en það er ótrúlegt hvað það er mikið snurfus í kringum svona verkefni. Ég hangi við tölvuna frá morgni til kvölds en alltaf er eitthvað sem vantar upp á!
Mánudaginn 5. maí fer ég í próf í stærðfræðigreiningu. Eftir það er þessu lokið og ég hætti formlega að vera námsmaður, alla vega um sinn. Miklar blendnar tilfinningar það. Leiðinlegt hvað þessir skólar þurfa alltaf að sparka manni út.
Ég var að uppgötva hvað greiðslubyrði námslána er þung… oó… ég hlakka ekki til !!
Það styttist óumdeilanlega í kosningar. Femínistafélagið setur mark sitt á baráttuna. Hver flokkurinn á fætur öðrum spjallar um jafnrétti o.fl. Ég er ekki enn búin að ákveða hvaða flokkur verður fyrir valinu en eins og flest vita er núverandi meirihluti ekki í uppáhaldi hjá mér !!
Vinstri grænir fá plús fyrir að skilgreina sig sem femínískan flokk. Frjálslyndir fá plús fyrir stefnu í heilbrigðis- og skólamálum, það er gott að það er til hægri flokkur sem gerir sér grein fyrir að SAMkeppni er ekki hið eina heilaga svar við öllum heimsins vanda. Ingibjörg Sólrún er í mínu kjördæmi….. Hún er búin að hleypa miklu lífi í kosninabaráttuna með sínum ræðum. Samfylkingin er eina almennilega vopnið gegn núverandi meirihluta… Ótti sjálfstæðismanna er meiri en nokkru sinni áður !! Nýtt afl á ekki upp á pallborðið hjá mér. Ástæðan er einföld: Allt of margir kallar. Ég hef ekki enn heyrt konu tala fyrir þeirra hönd…. Auk þess eru þeir allir úr framsókn eða sjálfstæðis….
Jæja, nóg um kosningar í bili. Næst tek ég kannski á því af hverju kyn er breyta sem skiptir máli í stjórnmálum, það er mikið ritað og rætt um það þessa dagana.
Lifi rokkið
ps. 5. maí vil ég gjarnan endurheimta allar mínar vinkonur og vini. Ég ætla að vera dugleg að mæta á æfingar og harkast fyrir Femínistafélagið!!