Á þessa síðu mun ég telja fram þær stöðvar sem ég hlusta á mér til skemmtunar þegar ég er að eyða tíma mínum á netinu.

Blandspólan
http://www.myspace.com/blandspolan
: Þessi þáttur er í minni umsjón og á tilveru sinni, Reykjavík FM að þakka. Blandspólan er óskilgreindur tónlistarþáttur. Ég spila allt milli himins og jarðar. Ef það er mjög nálægt okkur í tíma eða að “gerast” í dag þá ræður jaðarinn ríkjum en svo spila ég einnig óþekktari lög eldri og frægari listamanna. Ég fæ gjarnan gesti í hljóðstofuna til mín og þeir spila það sem þeim sýnist og við spjöllum um valið á lögunum. Einnig hef ég gerst svo djarfur að vera með myndasöguumfjallanir þar sem teknar eru fyrir bækur sem gíraðar er að þroskaðari lesendum.
Þátturinn er á hverju mánudagskvöldi á milli átta og tíu. Bylgjulengd 101.5 FM. Það er einnig hægt að hlusta á hann í beinni á netinu hér www.rvkfm.is
Ég vil enn fremur benda á að þið getið litið yfir lagalistann, sótt þáttinn eða spilað hann á straumi á heimasíðu Blandspólunnar www.myspace.com/blandspolan ATH: þið þurfið ekki að vera skráð myspace til að geta sótt þáttinn eða lesið lagalistana. Endilega hlustið á einhverja þætti á meðan þið eruð að vinna í tölvunni. Afar fjölbreyttur alveg hreint.

MaximumRockNRoll Radio
http://maximumrocknroll.com
: Þessi stöð varð til sem verkefni þess fólks sem staðið hefur af Maximumrocknroll blaðinu í gegn um árin. Það kemur ýmist fólk að stjórnun þáttarins og því eru paunkið og rokkið sem hér er í boði afar fjölbreytt og frá hinum og þessum tímabilum tónlistarsögunnar. Einnig hrynur hinn fínasti fróðleikur af vörum fólksins.
Farið á heimasíðu MRR og til vinstri finnið þið Radio-hnappinn

Dissonance
http://dissonance.libsyn.com
: Þessum þætti er haldið úti af einum manni en hann fær gesti í heimsókn sem eru mis gáfulegir eins og gengur og gerist. Þessi stöð er tilvalin fyrir þau sem vilja hlusta á hardcore í harðiri kantinum sem og nýrra og grófara hardcore punk og hann er helfur ekki feiminn við metalinn.

Sonic Overload
http://sonicoverload.moocowrecords.com
: Þetta er hágæða alhliða punk/hardcore/rock þáttur undir stjórn hins skelegga reynslubolta, Al Quint. Þættirnir hans eru afar fræðandi og hann spilar allt milli himins og jarðar, þekktar hljómsveitir sem og óþekktar og gamli tíminn fær sín notið í Sonic Overload.
Recent Comments