Another Breath - hljómsveit

thegodcomplex.jpg

Too punk for the hardcore kids, too hardcore for the punk kids, too mainstream for the thrash kids, too thrashy for the mainstream kids, too droney for the straight forward kids, too straight forward for the droney kids, too depressing for the posi kids, too posi for the depressed kids. We are a bastardized version of everything you love and everything you hate. We are everything we love and everything we hate.

Tekið af myspace síðu sveitarinnar.

Mér hefur alltaf þótt Another Breath áhugavert band. Sérstaklega fyrir það hversu ákveðnir og thought-out þeir virðast vera á öllum sínum verk sem þó eru mis-spennandi, þótt öll séu þau spennandi á sinn hátt.

Þegar ég heyrði Not Now Not Ever, plötuna þá fannst mér komin fram á sjónarsviðið besta hardcore sveitin sem var að spila svona neo-straightedge metallic eitthvað… svona eins og öll böndin í kjölfar Carry On/What Feeds The Fire og fannst mér AB á þeim tíma bestir í þessum geira. Framarlega á þessu sviði voru svo auðvitað Killing The Dream og svo síðar Have Heart (þegar þeir döðruðu hressilega við mid 90’s fílinginn og urðu því ögn metallic).
Mill City platan þróar þetta sánd, hljómar meira organic og hlý og MLIW áhrifin farin að blæða inn í þá eins og öll bönd þá og síðan. Þó í mun hóflegra magni en hjá t.d. Dead Hearts o.fl. Mill City er frábær og engann filler á henni að finna.
Síðan heyrðist lítið frá þessum gaurum. Sumir sögðu þá hætta en aðrr sögðu þá vera fávita o.s.frv. Á meðan tóku Have Heart frammúr og sama má segja um Verse og jafnvel Go It Alone. Modern Life Is War (vatnið á millu allra) kom og fór og Killing The Dream komu svo inn í blálokinn með fínni skífu. Þetta skeið var afar blómlegt og þessi bönd voru á hvers manns vörum. En eins og gefur að skilja var þegar hér er komið við sögu búið að blóðmjólk metallic-drama-kúnna.
Mér finnst sem svo að Another Breath hafi einmitt notað tímann í þessar fjarveru sinni - á meðan allt var á suðupunkti - til að uppfæra hljóm sinn og bæta inn nýjum áhrifum og kynna nýjarog lúmskar áherslur. Útkoman er The God Complex. Hef ekki heyrt hana alla en það sem ég hef heyrt á netinu lofar býsna góðu.

http://www.myspace.com/anotherbreath
www.abgodcomplex.blogspot.com

0 ummæli við “Another Breath - hljómsveit”


  1. Engin ummæli

Svaraðu færslunni