Færslusafn fyrir nóvember 2008

… Og Einar Már ritaði meðal annars

„… Við erum ekki í góðum málum. Nema í Færeyjum. Þeir eru umburðarlyndir og vorkenna okkur því við eigum svo vond yfirvöld. Á meðal okkar eru menn sem tekið hafa sjálfsvirðingu okkar og fleygt henni útbyrðis.”

„… nú erum við Íslendingar aftur komnir á tíma Íslandsklukkunnar, þegar snærisþjófum er refsað, en hinir stóru sleppa, og sjálfstæðið er komið í hendurnar á hrægömmum og orðin góðu heima er best verða brátt öfugmæli.”

Einar virðist innblásinn af kreppunni þessa daga eins og svo mörg okkar og hefur verið að lesa upp og birta ansi öflugar greinar undanfarið. Ég veit ekki hvar þær er hægt að nálgast eða hvort ég sé að birta þetta í hans óþökk. Að því sögðu þá fékk ég greinin „Land norðurljósanna: upprifjun til heiðurs Færeyingum.” (sem tilvitnanirnar hér að ofan koma úr) senda til mín ásamt fleiri greinum hans sem ömmu Eddu hafði áskotnast.

Ef einhver hefur áhuga á að lesa meira þá skal ég glaður áframsenda þessar greinar. Þær eru án nokkurs vafa æskilegri fyrir toppstykkið en þessir jólasveinatónleikar sem á að halda í Laugardagshöllinni. Þvílík sturlun.

Fréttir frá Kanada - samt ekki

Framtíðin er björt