Það er Birkir Fjalar sem talar frá Halifax, Kanada

Sælt veri pakkið.

Kallinn  búinn að vera rúma viku í Halifax og allt gengur framar vonum - geðheilsustatusinn á áður óþekkt góðum slóðum og akademíski hlutinn óðum að taka á sig mynd.

Eftir nokkuð erfiða kveðjustundir með mínum heittelskuðu var ekki laust við að ég hugsaði “hvern andskotann ertu að gera maður… alltaf eitthvað flandur?”.  Með hnút í maganum og undarlega hjartsláttskippi annað veifið (varði í tæpa tvo daga) flaug ég yfir þetta blessaða haf, leit niður á Grænland, Nýfundnaland (killer nafn á landssvæði) og lenti á alþjóðlega flugvellinum í Halifax. Flugvöllurinn leit út eins og gamli Egilsstaðarflugvöllur nema á tveimur hæðum og þó nokkuð lengri. Starfsfólkið þar var heltjillað á því og það gekk vel að tsjilla með útlendingaeftirlitinu sem komst í fíling með mér og veitti mér inngöngu ásamt námsleyfi sem heimilar mér að hanga hart í landinu fagra í a.m.k. 11 mánuði. Þegar þeir svo líða get ég skroppið til Maine fylki Bandaríkjanna, komið til baka yfir landamærin og þannig fengið 6 mánaða leyfi til sprkls sem ferðamaður.

nova-scotia-map.gif
Dröslaði mér í flæböss og lét droppa mér út hjá hóteli einu sem var nálægt hardcore tónleikum sem ég vissi af. Hringdi í hardcore dúddann Ian sem náði í mig ásamt fríðu föruneyti. Ég sem ætlaði að taka mér frí frá pönkinu og hardkorinu en það er bara ekki hægt. Makalaust helvíti. Fórum svo beint á kareókíbar. Kanadísk ungmenni hafa gaman af því að syngja í fóninn og vinir þeirr hópast út á gólf, syngja með og tjútta. Það var kúl. Ég var samt bissí við að horfa á ofbeldisfullar bardagaíþróttir á stóra skerminum og smakka bjóra. Fékk mér þrjá litla bjóra - þrjár tegundir. Allar voru þær ögn fyrir neðan meðallag eða vondar þannig að það er ekkert… Já. Nei nei. Var slakur á því enda ekki kominn til Hali til að fokka mér upp á búsi.

halifax-aerial-11.jpg
Þess má til gamans geta að íbúar Halifax kalla sig Haligonians. Já já, gaman af því. Einnig er Halifax oft nefnd Tree City vegna þess hversu, já… þið vitið. Sérlega gaman fyrir mig að vera að labba endalaust undir trjám og í gegn um gróðurgöng hér og þar. Kann að meta það. Einnig hefur margur útlendingurinn nefnt Halifax, Litlu Boston. Mikið til í því. Báðar liggja við sjóinn, nánar tiltekið Atlantshafið og báðar veiða slatta af því sama og hafa gert í gegn um árin. Gömlu hverfin í kring um miðbæinn og skammt frá sjávarsíðunni minna um margt og gamal grónar hverfisgötur Boston. Vei? Það held ég nú. Ég elska að dröslast um gamaldags götur þar sem allt iðar af mannlífi og framtaksemi borgaranna.

90450_logo1.gif
90450_photo1.jpg

Annars er ég í þessum rituðu orðum að hlusta á PROUDFLESH. Það kemur málinu ekkert við en ef þú fílar þá ekki þá getur þú fokkað þér. Jebb. Áfram með smjörið…

slate141.JPG
Ég var svo lánsamur að Ian og félagar hans leyfðu mér að sofa á sófanum hjá þeim þessar þrjár nætur þangað til ég átti að fá inn á nýja heimilið mitt í Fenwick Place. Ian og co. eiga heima í druslulegri en rúmgóðri íbúð á götu sem heitir Quinpool Road. Ég hafði helvíti gaman af því að ganga hana þvera og endilanga - mikið af veitingastöðum, sérhæfðum verslunum og mannverum -  kíkja í hliðargötur og nálæg hverfi. Einnig keypti ég mér nauðsynjar af ýmsum toga. Spennandi? Nei. Hins vegar, kvöldið eftir að ég kom til Halifax fór ég á tónleika í bænum Truro, sem er um klukkutíman norður af Halifax. Þið getið lesið um það hérna: http://halifaxcollect.blogspot.com  Ég veit fyrir víst að Páll er sérlegur áhugamaður um þennan tiltekna texta…

Næsta kvöld fórum við á strönd eina sem var í jaðrinum á miklu skóglendi og þar störtuðum við varðeld, drukkum veigar og grilluðum ýmist sykurpúða, kjöt eða hommakjöt. Moskítóflugur landsins sáu sér leik á borði og átu Birki sinn. Það gerist… alltaf. Ég grét í sálinni en hnykklaði vöðvana og skallaði elg til að sýnast þéttur á kantinum.

Sunnudaginn sem Fenwick var opnað fyrir mig ákvað ég að fara snemma á fætur og finna slotið án alls undirúnings og auðvitað án korts. Fílaða. Tók mig klukkutíma og djöfull var ég sveittur á endanum, bölvaður hiti, sól og raki. En það stöðvaði mig ekki í því að versla nokkrar Alice Munro bækur í leiðinni.

2492501477_4698d3e25f1.jpg
Fenwick er 33 hæða blokkardurgur sem er hæsta bygging norðan Toronto og stingur harkalega í stúf við restina á Halifax. Stendur upp í loft eins og eitthvað fífl og ekkert áþekkt hús í næsta nágrenni. Byggingin er ljót og illa úr sér gengin. Good times. Einnig er deilt um ágæti hennar frá slysahættulegu sjónarmiði. Í byggingunni býr hafsjór af fólki, nemendur Dalhousie Háskólans, erlendir skiptinema sem og hérlendir nemar sem eru að klára nám sitt, m.ö.o. eldri og þroskaðari nemendur. Já, takk. Sökum þess hversu margir nemar búa í Fenwick, hefur skapast nokkuð líflegt samfélag í kring um bygginguna með góðri þjónustu, verslun og almennu hangsi í kring. Til að lesa smellnar sögur um þetta ferlíki tékkið á þessari wikipediafærslu: http://en.wikipedia.org/wiki/Fenwick_Place
Ég var svo lánsamur að fá stærsta herbergi allra skiptinemanna. Það er reyndar svo stórt að það skiptist í tvær einingar, þannig að ég er með stofu og fínerí. Öfund allra. Ég er einnig á 33. hæð og er venjulega í fíling.

lunenburg.jpg

Gott ef það var ekki á mánudeginum að skiptinemarnir voru hrisstir saman í út-á-land ferð sem var helvíti góð. Í Lunenburg heimsótti ég t.d. besta safn sem ég hef fengið að njóta http://museum.gov.ns.ca/fma/

mahone-bay.jpg
Kíktum líka á lygilega sjarmerandi bæ sem heitir Mahone Bay. Bæði Mahone Bay og Lunenburg hafa verið notaðir í ýmsar Hollívúdd myndir og til að sjá þetta umhverfi liggur beinast við að benda á ræmur á borð við Dolores Claiborne (góð) og K 19: The Widow Maker (ekki sérlega góð).

dalhousie.JPG

Svo tók við tímabil alls kyns funda og mini ráðstefna til að gera okkur reiðubúin fyrir námið í Dalhousie. Ég hef nú ekki mikla reynslu af skólum, nokkrir menntaskólar á Íslandi ásamt HÍ sem hafa verið þess heiðurs aðnjótandi að hafa mig sem nemanda en fjandinn hafi það, þjónustustigið við nemendur hérna er svo hátt að mig svimar. Möguleikarnir eru endalausir og það er hægt að gera allt hérna og ef mann vantar eitthvað, sama hversu langsótt það kann að vera þá reynir Dalhousie að græja mann. Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa þessu.Tilfinningin er mögulega eins og hvernig Pétri Pan hefði liðið hefði hann fengið að ríða. Í öðru samhengi þá er munrinn á HÍ og Dal svona álíka mikill og Blossi / Gemsar vs. Shawshak Redemption / Lord Of The Rings (allar). Skólinn hófst svo á fimmtudeginum og ég arkaði á milli bygginga, fíling í.

Kampusinn inniheldur fjölmargar byggingar, kennsluhúsnæði, ráðstefnusali, verslanir, matsölustaði, heilsugæslu, lögreglustöð, heimavistir o.fl. Campus-lífið er einnig gríðarlega öflugt. Það er alltaf einhver andskotinn á seyði þannig að maður festist stundum á campus í einhverjum bláeygðum fíling.

Ég er búinn að vera mikið í því að fara í tíma, skrá mig í námskeið og skrá mig úr öðrum svona til að fá tilfynninguna hvað ég ætti að nema. Tók mig líka langan tíma að átta mig á skráningarkerfinu. Bölvaðar tölvur. En þetta er allt að skríða saman.

Ég grimmur í því að hlusta á útvarp og hef haldið því áfram í Hali. Mæli með að þið kynnið ykkur þessa: www.ckdu.ca,  ýtið á hi-fi blöðruna efst á síðunni.

Í millitíðinni er ég hægt og blíðlega að gera herbergið mitt sem heimilisegast. Aukinheldur keypti ég mér notað fjallahjól á 60 bökka, fékk mér síðan hjálm, pumpu og fínerí enda er besta leiðin til að skoða Halifax, á hjóli og svo ætla ég að hjóla í sem flesta tíma í vetur.

hillier_ryan_mooseheads_260.jpg

Kíkti á opnunarleik Háskólafótboltans (lesist: Bandarískur fótbolti) ásamt félaga mínum frá Svíþjóð. Hlógum við mikið enda var tilstandið og vitleysisgangurinn í kring um leikinn slíkur að við hlógum bara. En hrikalega gaman af þessu, mikil stemmning. Pæla í að kíkja á einhvarja heimaleiki Husky í vetur. Alla vega einn. Hins vegar ætla ég á alla heimaleiki Halifax Moosheads. Ég hef mjög gaman af íshokkí og mun auðveldlega öðlast dýpri skilning og skemmtan af leiknum hér í fæðingarlandi ís-hokkísins. Er að sjálfsögðu búinn að kaupa mér miða á fyrsta heimaleik Moosheads í vetur sem spilast mun 15. september.

Það er eins og sést, ýmislegt á seyði og frá mörgu að segja en ég efast um að ég muni gera svona langar færslur undir eðlilegum kringumstæðum - það er bara svo langt síðan ég hef látið heyra í mér og nánast ekkert eftir að ég kom til Hali. Annríkið gott fólk - breytingarnar -aðlögunin. Tekur á. En þetta lítur afar vel út og ég er staðráðinn að gera mitt besta hérna, ráðast gegn intertfíkninni, læra eins og maður (eins langt og það nær), reyna að vera ekki 24/7 í helvítis tónlistarbraski, labba um strendur og firnindi o.s.frv. Kemur í ljós síðar.

A.T.H.

PRAKTÍSK ATRIÐI

Ég veit að mörg ykkar hafa verið að senda mér textaskilaboð með símum sínum yfir í símann minn (les: sms). Hættið því endilega - ég mun ekki geta lesið þau fyrir síðsumars 2009. Brátt fæ ég mér nýtt símkort sem gerir mér kleypt að senda og lesa sms. Læt ykkur vita.

Þið megið hins vegar hringja í heimasímann minn í slotinu: + 3442161

Póst og fíkniefni sendist til:

Fenwick Place
5599 Fenwick Steet
Room 3312
Halifax, Nova Scotia
B3H 1R2
Canada

“Love many, trust few. Always paddle your own conoe”

Og að endingu, ef ske kynni að ömmur og afar og mögulega pabbi (ex sjóari) skyldu vera að lesa þá snúum við oss að veðrinu. Jú, það er búin að vera hitamolla yfir Halifax alveg síðan ég kom, sól og léttskýjað til skiptis, örlitlir skúrir en ekkert til að tala um. Almennt er það heitt að kallinn er á stuttbuxum og stuttermabol. Það er mikill raki í loftinu þrátt fyrir sól og hitann - vegna stöðu borgarinnar landfræðilega séð. M.ö.o. móðir jörð finnst kúl að hér sé raki í lofti dögum saman og þá er undirritaður búinn að vera að svitna meira að segja innan dyra, og mér finnst það ekki kúl. Nenni ekki að vera endalaust að skipta um bol og allt það. Hins vegar er fellybilstíkin Helena mætt á svæðið í mýflugu mynd með tillheyrandi roki og rigningu sem minnir á heimahagana.

Verið spök og rök gott fólk. Enga helvítis vitleysu.

p.s. Smellið á hlekkin að sjá útsýnið af 33. hæð Fenwick Place  (ef myndin er lítil smellið aftur á hana og þá fáið þið stóru útgáfuna) þar sem ég bý. Magnaður andskoti, Halifax.

14 Responses to “Það er Birkir Fjalar sem talar frá Halifax, Kanada”


  1. 1 Linda

    Frábært hvað þú ert duglegur að prófa nýja hluti.

    Hafðu það gott þarna úti og það var virkilega gaman að lesa þessa færslu.

  2. 2 skotta

    Spennandi. Allt saman, spennandi!

    Hlakka mikið til að heyra fleiri ævintýri frá Halifax.

    Og frábært hvað þér líður vel þarna, þú átt það skilið.

  3. 3 pallih

    GUÐ MINN GÓÐUR!!!

  4. 4 Litla

    jess. skemmtileg færsla. virkilega gott í þessu

  5. 5 Backstabber in Quartzzzz

    Gangi þér vel, “bra” - uuurah!?

  6. 6 Vanda

    Magnað útsýni! Gaman að heyra frá þér.

  7. 7 Viktor Kaldalóns

    Gott að vita að einhver er að gera eitthvað að viti!

    Hafði mjög svo gaman af því að lesa þetta, enda við engu öðru að búast; með skemmtilegri pennum sem ég þekki.

    Be smart dude, be well. Hlýjar hugsanir.

  8. 8 Hanna goosemom

    Djöfull var þetta skemmtileg færsla. Myndi lesa hana aftur ef ég nennti því ;) Úr Hjálminum er gott að frétta. Fór með Heru að hitta hundaþjálfara í kvöld og ætla að æfa hana fyrir Bronspróf (http://www.dobermann.is/index.php?option=com_content&task=view&id=214&Itemid=149) og vera dugleg að mæta með hana á ýmsar æfingar bara til að sitja og fylgjast með. Hún var alveg tryllt þarna á svæðinu - 5 husky hundar að æfa á sama svæði og hún var gjörsamlega í Party Mode!
    Jæja, Þetta er efni í e-mail. Aldrei að vita nema ég smelli einum á þig við tækifæri. Takk fyrir sms-in sonur, Ég hugsa til þín oft oft á dag… sérstaklega á kvöldin,.. nakin…
    nei djók!
    Farðu vel með þig og ekki villast!

  9. 9 Hössi

    ertu búinn að fá þér season ticket…awesome

    Kveðjur

  10. 10 Hössi

    djöfull getur maður verið lesblindur…..tékkaðu allavega á þeim kosti

  11. 11 Ari

    gríðarepízk færzla og skemmtileg. Kann að meta hana. Gangi þér vel hvað sem svo þú ert að gera þarna.

    Þess má til gamans geta að Halifax er á nánast sömu breiddargráðu (ca. 44.5°N) og Bologna á Ítalíu þar sem ég var að stikna í sumar á Gods of Metal.

    Er kannski góð hugmynd að… þegar þú ert að verzla þarna… að segja EKKI að þú sért íslendingur… þú gætir hérna móðgað verslunarmennina með því að kaupa lítið því íslendingar eru þekktir að fara þarna í geðveikislegar kaupæðisferðir ;)

  12. 12 Gussi

    ertu að friggin grínast með útsýnið ??? fokk !!!

    skemmtileg lesning, hlakka til að lesa næsta blogg

  13. 13 Ægir

    farðu vel með þig kall.
    gaman að lesa þessa færslu

  14. 14 gudny

    wicked útsýni! Hafðu það gott í Kanda.