Nóg á seyði. Lunga á Seyðisfirði…. Heeeeiiii!

Fyrst ber að nefna að Fannar nokkur var að uppfæra vandað mp3 blogg sitt, Orð Öskursins heitir það. Endilega staldrið við hjá honum.

Aðalfréttin er hins vegar sú að jafn-besta hljómsveit Íslands, GAVIN PORTLAND er búinn að semja heila plötu sem þeir munu taka upp í hinu víðfræga GOD CITY hljóðveri í Salem í Bandaríkjunum. Sá sem sér um upptökur er ekki ómerkari maður en Kurt Ballou sem hefur m.a. tekið upp stórkostlegar plötur hljómsveita á borð við CONVERGE, MODERN LIFE IS WAR, HOPE CONSPIRACY, BLACKLISTED, MISERY INDEX o.fl. Má því segja að sveita piltsins draumur sé að rætast.
Ég vænti þess að þetta verði plata ársins, árið sem hún kemur út.
Eins og áður segir þá eru GAVIN PORTLAND menn í bænum eins og er að æfa fyrir upptökur og ætla að nota tækifærið og halda nokkra tónleika áður en þeir halda utan, sem verður seint í ágúst.
Til að vera með á nótunum í GAVIN PORTLANDfræðum þá er ykkur hollast að heimsækja bloggsíðu sveitarinnar og myspace.
Ég hlakka til.

Meðlimir hinnar goðsagnakenndu og réttlætanlega dýrkuðu REFUSED (Svíðþjóð) hafa greinilega saknað hardkorsins og hafa snúið aftur í og stofnað hljómsveitina AC4.
Þetta er STÓR tíðindi. Það eru Dennis Lyxzén (söngur) og David Sandströ (bassi) sem leiða hér saman hesta sína með einhverjum hressum félögum. Klárlega hafa þeir séð á eftir veseninu sem fylgir því að vera í jaðarbandi en það má glögglega heyra á AC4 sem spila óþétt hc/punk af gamla skólanum með tilheyrandi söng- og sjónáreiti af hálfu Sandströ. Þessir mikilsmetnu listamenn gerast því óþægir með AC4.

ZACK DE LA ROCHA, söngvari RAGE AGAINST THE MACHINE (að mig grunar eini maðurinn sem er með öllum mjalla í því bandi… og þó) er búinn að henda saman í alvöru band sem heitir ONE DAY AS A LION. Fyrr í sumar gáfu þeir út þröngskífu sem er samnefnd hljómsveitinni og hljómar virkilega vel. Þið getið hlustað á eitt lag á mæspeisinu þeirra.

Konungar draslins, hinir óhemju sjarmerandi meistarar hardcore punk lagasmíðanna CAREER SUICIDE(Kanada) voru að freta út nýrri sjötommu á no-name útgáfunni SEWERCIDE records. Tomma þessi heitir Cherry Beach og af titillaginu að dæma (sem þið finnið hér) verður hér um algera snilld að ræða. Þvílíkt helvítis lag. Andskotinn hafi það. Eruð þið að spekka sándið á þessu?
Þeir eru of miklir drulluspaðar fyrir myspace: http://www.careersuicide.net/

Orðsending frá TRASH TALK. Þetta stendur aftan á sérstakri Sound and Fury (hardcore punk hátíð í Santa Barbara) útgáfu af nýjustu plötu þeirra sem ég skrifaði um á’ur í blogginu (skrollið niður). Þeir eru ekki sáttir. Gott hjá þeim.
AC4 lofar góðu, Refused er ein af mínum eftirlætis hljómsveitum!
Hlakka til að heyra þetta nýja stöff
mikid er tetta fonguleg mynd af gavin portland. hver hefur slika haefileika?!?
það mun vera ég