„Æji, aumingja Baggalútur”

Nei.
Orð hafa afleiðingar.
Fólk er að setja út á textann í þjóðhátíðarlaginu þar sem þeir flippa við hvern sinn fingur og segjast í leiðinni veita þjóðfélagsrýni, ef ég skildi textahöfundinn rétt í Kastljósinu í gær.
Þar sem ég er annálaður fyrir að vera leiðinlegi og alvarlegi gaurinn, þá hef ég verið spurður hvort mér finnist textinn hvetja til nauðgunar. Það finnst mér alls ekki.
Mér finnst hann hins vegar illa athugaður, ónærgætinn, asnalegur og tilvalinn til misskilnings og leiðinda. Hefði höfundur talið upp á tíu áður en hann ákváð að þetta væri snjall þjóðhátíðartexti, er ég viss um að hann hefði hent honum í ruslið og byrjað upp á nýtt því það eru til milljón aðrar leiðir til að nálgast viðfangsefnið og vera í leiðinni hnittinn, sniðugur og raunsær. Maður lætur bara ekki svona rugl frá sér. Hvað voruð þið að hugsa?
Talsmaður NEI átaksins (sem er átak sem ég styð 100%) finnst mér einnig hafa átt að telja upp á tíu áður en hann málaði skrattann á vegginn. Vissulega undirstrikar textinn karllægt verslunarmannahelgarviðhorf að konur eru kjöt sem skal veiða með öllum helstu trixunum í bókina, þessa helgi, en hann hvetur ekki til nauðgana. Kommon. Texti þessi (sem örugglega á sinn líkan í öðrum lögum, gömlum og nýjum) er tilvalinn til umræðu þar sem tímasetningin er góð (árshátíð nauðgara er á næsta leiti) og þá hefði verið fínt að skoða þessi mál frá ýmsum hliðum og velta fyrir sér „svona textum” og stemmningunni í þjóðfélaginu þessa vafasömu helgi. En að hrópa Baggalút sem stuðningsmenn nauðgana er ekki snjallræði.
Þessir Baggalútar eiga væntanlega maka og börn - þess vegna hefðu þeir átt að vanda sig betur og setja textann í samhengi; að hann yrði tekinn úr samhengi og settur í önnur miður falleg samhengi hvort sem það er af vel meinandi NEI-liðum eða sveittum og siðblindum up-and-coming kynferðisafbrotamönnum.

Baggalútur - hendið út ruslinu og brettið upp ermar og komið með einhvern eðal í staðinn
NEI talsmaður - fight the good fight! þetta er svo sannrlega ekki einn af þeim.

5 Responses to “„Æji, aumingja Baggalútur””


  1. 1 Svalsína

    Þessi texti þeirra er vibbi vibbanna. Það ætti að taka þessa baggalúta og slappa þá svolítið til.

  2. 2 Andri Áka

    Mér finnst að það ætti frekar að taka baggalút í gegn fyrir að spila einhverja leiðinlegustu tónlist sem ég hef nokkurntímann heyrt. Af því að ég skipti máli.

    Þessi texti er karllægur… ekkert meira um það að segja. Röflari feministafélagsins er að halda áfram gamalgrónni hefð feminista, eyðileggja málstaðinn með bjánaskap.

  3. 3 birkirfjalar

    Ég hef reyndar ekki kynnt mér hvað „röflari” feminsistafélagsins hefur sagt um málið.

  4. 4 Kristinn

    Það sem Baggalútar gerðu (þrátt fyrir að hafa afneitað því sjálfir) var að setja verslunarmannahelgina í ákveðið samhengi, sýna hana út frá ákveðnu sjónarhorni. Því nákvæmlega svona er verslunarmannahelgi. Nákvæmlega svona er þjóðhátið. Fallegt? Nei. En er eitthvað að því að segja frá því?

    ,, illa athugaður, ónærgætinn, asnalegur og tilvalinn til misskilnings og leiðinda”

    Vissulega er textinn ónærgetinn og asnalegur, enda veit ég ekki til þess að Baggalútar séu þekktir fyrir annað en að vera ónærgætnir og asnalegir. Enda væri annað gjörsamlega fáránlegt, guð forði veröldinni frá nærgætnum og hræddumviðaðverasnalegum listamönnum.

    En er hann illa athugaður? Er hann tilvalinn til misskilnings og leiðinda? Ó, hve þeir hlutir væru nú leiðinlegir sem ekki væru tilvaldir til misskilnings og leiðinda fyrir blygðunarsamar þurrkuntur okkar veraldar. Hvort hann sé illa athugaður sé ég ekki, ekki nema markmiðið sé að gera öllum til geðs.

    Undir skörpu stækkunargleri spéspegilsins má oft finna nýjan flöt á gömlum málum. Þeim örfáu hræðum sem vissu það ekki fyrir hvílíkar svall og viðbjóðshátíðir verslunarmannahelgarhátíðir eru, ætti að vera það fulljóst nu.

    1ta persónan í þjóðhátíðarlagi baggalúts er ekki siðprúður maður. Hann er hégómagjarn ruddi. Það er það sem lagið lýsir, hugsunarhætti hégómlegs rudda. En bíddu, má það ekki? Má ekki búa til listaverk út frá sjónarhóli hins vonda? Eiga listaverk eins og Godfather og Guernica ekki rétt á sér því þau sýna siðferðislegan hrunadans mannskepnunnar?

    Er það ekki einmitt það sem gerir þau að þvílíkum listaverkum? Eða eigum við kannski að hafa aðvörun á þesskonar listaverkum eins og á sígarettupökkum. ,,Það sem sést bókstaflega í þessu listaverki er siðferðislega rangt og endurspeglar á engan hátt lífsviðhorf listmannsins. Það sem þetta listaverk lýsir er brengluðu hugarástandi meirihluta þjóðhátíðargesta í flokki karlmanna 16-26 ára.”

  5. 5 Birkir Stagedive

    Góður flötur, Kristinn.
    Mér finnst hins vegar umræddur spéspegill ekki vera nægilega skarpur. Sitt sýnist hverjum.

    Nota bene þá má auðvitað skapa listaverk frá snjónarhorniruddans.

    Baggalútur gera út á flipp og stemmara. Það verður flippað með þetta innihald. Mér finnst þessi nálgun alls ekki vænleg til flipps. Eins og ég hef áður sagt þá veit ég að þeir hefðu geta komið sama sjónarmiði á framfæri á ábyrgari máta. Mér er minnistætt þegar nýnasistar og öfgasinnaðir þjóðernissinar gerðu lag Bubba, „Nýbúann” að sínu.

    Það er önnur saga.

Leave a Reply