Creed shreds myndböndin

Það er alveg svínslega yndislegt þegar interneteinkahúmor virkar og öðlast vinsældir. Nú ert stútfullt af misheppnuðum húmoristum en feður shred-myndbandanna gerðu eitthvað stórkostlegt. Fyrsta shred-myndbandið sem ég sá var Santana shreds en það er nú þegar orðið að nútíma klassík sem önnur shred-myndbönd eru borin saman við og yfirleitt láta þau í minni pokann fyrir Santana.Þessi kímni er töluvert þróuð og hún hefur jafn oft flogið hátt yfir markið og hún hefur smollið í möskvanum þegar ég held sýningu fyrir fólk.Ég man glögglega hvar ég var þegar ég sá Santana syrpuna. Ég var í Odda að læra, með heddfónana á hausnum og ég þurfti að yfirgefa bygginguna því ég var orðinn rauður í framan, svitinn glansaði á enninu, ég frussaði og í mér brakaði og fólk var farið að glápa á mig. Þegar ég náði mér á nýjan leik kom ég aftur inn og sýndi námssystrum mínum. Þær eiga það sameiginlegt að vera ekkert sérstaklega djúpt þenkjandi þegar kemur að tónlist og því fór sem fór, þeim fannst þetta ekkert sérstaklega smellið.Vinir mínir í tónlistinni ráða sér vart yfir kæti þegar við horfum á þessi myndbönd í hinum og þessum youtube-partíum (já, skjótið okkur!). Við erum sammála um það að Santana myndbandið er auðvitað það mikilvægasta en hin nýlegu Creed shreds myndbönd er þau best heppnuðustu og lang fyndnust.Það ævintýri hófst með þessari unaðslegu klippu: Þetta myndband kom á netið í október 2007 og höfundurinn er einhver Brady sem er sá besti í þessu - hands down.Það var síðan 6. júní, 2008 - eftir óralanga bið óþreyjufullra aðdáenda fyrsta myndbandsins að Brady skellti inn öðru Creed Shreds myndbandi sem er jafnvel betra en það fyrra:

Þvílíkur andskotans meistaraskapur!

15 Responses to “Creed shreds myndböndin”


  1. 1 Hanna goosemom

    Sæll. Kíktu á þessa færslu og kommentaðu. Mér finnst þetta snilldar færsla hjá henni systur minni
    http://www.reykjalin.com/blog/archives/2008/06/framtiin_byggir.html
    see ya
    Hanna

  2. 2 Gussi

    þetta er andskotans djöfullsins snilld !! seinna vídeóið ætti að fá fokking verðlaun !

  3. 3 BB

    Takk, Birkir, takk.
    Ég ÖSKRAÐI af hlátri þegar ég horfði á þessi clip! :D
    Það getur bara ekki verið að sé til fólk sem finnst þetta ekki fyndið.

    “Hrrrrrrgh, MASTRUBATIOOOOONAAAAAAH!!!!” :D Snillingur!!!

  4. 4 Svala

    AHAHAHAH! pissaði næstum á mig úr hlátri! Góð upplyfting á mánudagsmorgni skal ég segja þér ;)

  5. 5 Alda Rose

    Hvad er shred vidjo, minn ekki svona hip og cool og inn a hlutunum.

  6. 6 birkirfjalar

    Alda: Shred myndbönd eru eins og þessi Credd myndbönd sem ég var að kynna til leiks. Mynbandið er eins og listamennirnir létu þau frá sér en svo eru einhverjir nördar heia búnir að að taka upp nýja tónlist yfir… sem er svo helluð að það er dásamlegt. Eitt megineinkenni shred-myndbandsins er að yfirleitt heyrist aðeins í þeim hljóðfærum sem eru í mynd. Það er þroskaheft.

  7. 7 Ásdís

    oooog hvar er anorakkurinn??

  8. 8 Hanna

    Hahaha þetta er algjör snilld. Ég frussaði næstum því morgunmatnum á skjáinn þegar startaði þessu! ég er sammaála gussa að seinna myndbandið ætti að fá einhver verðalaun :D

  9. 9 Óskar P. Einarsson

    Úff, það lá við að ég missti getuna til að hlæja (eins og Cartman einu sinni), þetta var svo viðurstyggilega fyndið. Öll þessi litlu töttsj, eins og “kríkk, kríkk” hljóðið á turninum (bandið ekki í kameru) og mismunandi gítar eftir því hvort heddbangað er eða ekki…þetta er instant klassík.

    Ef þetta verður ekki væral vídeó ársins 2008, þá má alveg eins henda þessu interneti í ruslið…

  10. 10 Anna Rut

    hallo birkir
    hvernig voru útlönd að tríta þig?
    ekki gleyma austó…aldrei!

  11. 11 Heiða og Elvar

    …takk fyrir okkur. Erum í kasti á leið inní draumalandið! Ótrúlega fyndið!!!

  12. 12 isar

    æði

  13. 13 Páll Ragnar Pálsson

    Sjitt hvað þetta ógjeðsslega fyndið… alger snilld.

  14. 14 Doddi

    Já, þetta var besta shred-video sem ég hef séð. Gamla uppáhaldið mitt var þetta: http://www.youtube.com/watch?v=1JBzWZq4fXg Klappið hjá Ozzy er best.

  15. 15 Haukur Skinkuorgel

    http://youtube.com/watch?v=Nb_HODzNhrQ

    Fannst Santana alltaf fyndnast en þessi Malmsteen klippa stytti ævi mína um nokkur ár sökum andnauðar úr hlátri

Leave a Reply