Færslusafn fyrir júní 2008

Creed shreds myndböndin

Það er alveg svínslega yndislegt þegar interneteinkahúmor virkar og öðlast vinsældir. Nú ert stútfullt af misheppnuðum húmoristum en feður shred-myndbandanna gerðu eitthvað stórkostlegt. Fyrsta shred-myndbandið sem ég sá var Santana shreds en það er nú þegar orðið að nútíma klassík sem önnur shred-myndbönd eru borin saman við og yfirleitt láta þau í minni pokann fyrir Santana.Þessi kímni er töluvert þróuð og hún hefur jafn oft flogið hátt yfir markið og hún hefur smollið í möskvanum þegar ég held sýningu fyrir fólk.Ég man glögglega hvar ég var þegar ég sá Santana syrpuna. Ég var í Odda að læra, með heddfónana á hausnum og ég þurfti að yfirgefa bygginguna því ég var orðinn rauður í framan, svitinn glansaði á enninu, ég frussaði og í mér brakaði og fólk var farið að glápa á mig. Þegar ég náði mér á nýjan leik kom ég aftur inn og sýndi námssystrum mínum. Þær eiga það sameiginlegt að vera ekkert sérstaklega djúpt þenkjandi þegar kemur að tónlist og því fór sem fór, þeim fannst þetta ekkert sérstaklega smellið.Vinir mínir í tónlistinni ráða sér vart yfir kæti þegar við horfum á þessi myndbönd í hinum og þessum youtube-partíum (já, skjótið okkur!). Við erum sammála um það að Santana myndbandið er auðvitað það mikilvægasta en hin nýlegu Creed shreds myndbönd er þau best heppnuðustu og lang fyndnust.Það ævintýri hófst með þessari unaðslegu klippu: Þetta myndband kom á netið í október 2007 og höfundurinn er einhver Brady sem er sá besti í þessu - hands down.Það var síðan 6. júní, 2008 - eftir óralanga bið óþreyjufullra aðdáenda fyrsta myndbandsins að Brady skellti inn öðru Creed Shreds myndbandi sem er jafnvel betra en það fyrra:

Þvílíkur andskotans meistaraskapur!

Blátt hnossgæti

Næsta hæp

Plötugagnrýni, 24. júní 08

Kráka sem tekur kött upp á sína arma

Náttúra // Ísbjarnablús