Ég er mikill stjórnmála- og hagfræðingur. Þar liggur kunnátta mín, sérþekking, viska. Ég analæsa pólitískt landslag þjóðarinnar og efnahagsmálin er eins og Teletöbbís í mínum huga - einfalt og gay. Ríkisstjórnin er á kaf í því þessa dagana að taka ábyrgð á glataðri “byggðarstefnu” síðustu áratuga og nú síðast kvótaskerðingunni. Þetta eru riddarar heilindanna. Stríðsmenn réttlætis og jöfnuðar. Bolvíkingar sérstaklega, ríða spikfeitum hesti frá kvótaskerðingunni. Bolvíkingar þurfa ekkert fisk. Þeir þurfa bara að slaka á núna því að mótvægisaðgerðirnar voru virkilega rausnarlegar.Samkvæmt 24 Stundum þá veitti ríkisstjórnin Bolvíkingum heilar 2 MILLJÓNIR….. 2VÆÆÆÆÆÆR MILLJÓNIR “…til viðhalds opinberra bygginga í eigu ríkisins, en það var liður í mótvægisaðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna niðurskurðar þorskkvóta. Þar fékk Bolungarvík 2 milljónir.”
Þetta eru gríðarlegar upphæðir og Bolvíkingar eiga að hætta að væla. Ég fór á heimasíðu Heklu og komst að því að Bolvíkingar gæti ekki keypt 2005 árgerðina af Skoda Octavia Combi með mótvægisaðgerðarpeningunum ægilegu. En ég meina… ég er viss um að ef Bolvíkingar halda almennilega tommbólu þá geta þeir verslað svona bifreið. Kostar 2.140.000. Menn hafa nú eyt peningum í meiri vitleysu en Skoda. Þvagsýnatökumálið fræga. Konan kærir lögguna fyrir kynferðislegt ofbeldi. Málinu var að sjálfsögðu vísað frá. Hún var full og með stæla, þess vegna má beita hana ofbeldi. Nei auðvitað ekki. Nú er Mannréttindarskrifstofa Íslands komin í málið og hefur sent eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna upplýsingar um málið. Vonandi fer að komast einhver botn í þetta mál. Það má ekki líðast að konur sem eru með kjaft og mögulega ölvaðar undir stýri þurfi að sæta kynferðislegu ofbeldi og mögulega glíma við andlega og líkamlega áverka alla sína ævi í kjölfarið. Það er samt íslenski stíllinn. Vonum að hann deyji drottni sínum strax í gær.
Recent Comments