Category Archives: Óflokkað

Annáll Bloggsins um veginn 6

Árið 2009 hófst á sleik.
Stefnt er að því að ljúka því með sleik.

Gleðileg jól 3

Tilvitnun dagsins 1

Þú ert nú ljóti andskotans beinasninn [...] Ef þú værir sæmilega læs hefðirðu kannski komið auga á þetta strax og sleppt því að gera þig að algjöru fífli og opinbera hversu mikill formyrkvaður helvítis bjáni þú ert, höfuðsóttargemlingurinn þinn.
- Ásgeir Berg Matthíasson, þýðandi með meiru, anno domini 2009.

Blogg 1

Það er ekki vegna þess að ég hafi ekkert að segja sem ég blogga ekki. Ég blogga ekki vegna fyrirframhugmynda minna um hvað lesendum kann að þykja áhugavert.
Flest blogg eru meira eða minna eitthvert krepputuldur og strámannapandemóníum. Þetta blogg verður ekki þannig. Til hvers að öskra í hófi þarsem allir eru meira eða minna öskrandi? [...]

Þetta … 0

… er bara fyrir þig Gunni minn!

Nýtt útlit 0

Hún er kannski svolítið ókennileg núna en ég ætla að prufa mig áfram með þetta.

Stílæfing 4

Oft hefur verið sagt að pólitíkin sé hverful og það má svo sannarlega segja að eigi við í þessu tilviki. Þegar stjórnmálmenn verða uppvísir að rangfærslum með þeim hætti sem svo berlega hefur komið í ljós undanfarna daga er ekki laust við að maður verði hugsi um hvað knýi menn áfram til slíkrar ósannsögli með [...]

10 árum seinna 0

Unglingurinn sem fiktaði við reykingar og skrópaði í leikfimi staðnæmdist framan við spegilinn einn morgun tíu árum seinna. Þar sá hann sjálfan sig með sömu hárgreiðsluna og tíu árum áður, kominn niður í 15 sígarettur á dag, sýnilega tíu árum eldri. Þó var hann orðinn allt það sem hann vildi hugsa sér að hann myndi [...]

Vingjarnleg ábending 0

Það er rétt að árétta að síðuhaldari vill halda því til haga sem sannara reynist. Ef það eru einhverjar umkvartanir, grunsemdir kvikna um annarlegar hvatir er búi að baki skrifum síðuhaldara eða efasemdir um ásetning hans, þá er honum bæði ljúft og skylt að svara öllum fyrirspurnum, séu þær rétt fram settar.
Síðuhaldara líka þó hvorki [...]

Snjór í apríl 0

Einhverjum lesendum þessarar síðu þætti kannski áhugavert að vita að núna í ár, í fyrsta sinn síðan þessi síða var stofnuð, snjóaði hvergi í Reykjavík í apríl. Í gær brast hinsvegar á með örfárra sekúndna slydduéljum hér í Hafnarfirði, en það telst nú varla með.
Niðurstaða: Fimm ár í röð snjóaði í Reykjavík í apríl. Það [...]

Höfrungar 2

Tók enginn eftir því í fréttunum að af þeim skepnum sem standa veiðimönnum til boða í Faxaflóa voru nefndar hrefnur, hnúfubakur og höfrungar? Mikið af höfrungi þarna, sem ég stend hérna, seiseijá.
Það skyldi þó aldrei vera að menn væru eitthvað að pæla með það?

Fyrirsagnir 2

Allir góðir menn hljóta að fagna því að hugrenningar moggabloggara séu aðgengilegar öllum stundum gegnum Blogggáttina. Það losar okkur sem höfum safnað moggabloggurum einsog hráviði inn á fésbókina okkur undan þeirri kvöð að þurfa að skoða status þeirra allra með fimm mínútna fresti – Blogggáttin bætir um betur, því allir góðir og gegnir moggabloggarar birta [...]

Föstudagurinn langi 1

Jú, hann var ansi langur. Er hann ekki ennþá í gangi annars?

Nennir einhver að útskýra þetta fyrir mér? 4

Nördinn hann Matti má t.d. alveg gera heiðarlega tilraun.
Fyrst rek ég augun í þetta. Svo þetta.
Elías Halldór má líka spreyta sig.

Er þetta ekki orðið gott? 1

Ég var bara fyrst áðan að fatta að Jónas Kristjánsson er Jón Gnarr í dulargervi. Í alvörunni, er þetta ekki orðið gott, Jón?

Koníak 1

Ligg hálfslappur heima í dag og langar í koníak. Koníak fer afskaplega vel með rigningu og veikindum. En ég á ekkert koníak, hef ekki efni á því og þyrfti þar fyrir utan að fara úr húsi til að verða mér úti um það. Það kemur ekki til greina Auk þess finnst mér koníak ekkert gott. [...]

Bókmenntafræði fyrir byrjendur. 0

“Sexuality is part of the genre of language,” says Baudrillard; however, according to Prinn, it is not so much sexuality that is part of the genre of language, but rather the rubicon of sexuality. In a sense, many sublimations concerning the dialectic, and some would say the fatal flaw, of neoconceptual class may be found. [...]

Glitnir 1

Ég legg til að hann taki nýtt nafn: Íslandsbanki.

Svyturys Ekstra 0

Þau eru farin að selja hann aftur í ríkinu. Kaupið hann. Þetta er besti bjór í heimi.

Tenglar 0

Þeir voru allir komnir í rugl svo ég setti þá saman í eina undirsíðu sem sjá má á spássíu.

Tilgerð 0

Mér finnst eins og fólki hætti í auknum mæli til að rugla saman tilgerð og ranghugmyndum um eigið ágæti. Niðurstaðan er sú að það verður einhvern veginn afskaplega tilgerðarlegt og tilgangslaust að ásaka aðra um tilgerð.

Gesundheit macht frei! 2

Reykingar þurfa enga óvini þegar þær eiga hálfvita eins og Kim Larsen að vini.

Kópavogur 6

Áðan var ég staddur á McDonald’s við Smáratorg. Þar sá ég konu hella sér yfir starfsmann vegna þess að hún fékk hamborgarann sinn í venjulega brauðinu á myndinni, en ekki í kornóttu brauði eins og mynd af einhverjum öðrum hamborgara sýndi. Fyrir sumum er ekkert vandamál of lítið.
Á leiðinni heim tók ég eftir því í [...]

Samfélag í nærmynd 2

Hér gerast merkilegir hlutir á hverjum degi, a.m.k. hlutir sem teljast merkilegir innan þess afmarkaða veruleika sem bókasafnið og -bíllinn er. Fastagestirnir hérna eru betri en nokkurt sjónvarpsefni. Ef mér þætti ekki vænt um óstaðlaðan veruleika væri hér komin prýðileg hugmynd að þáttum handa Skjá einum.
Ég fæ stundum á tilfinninguna að fólk trúi ekki á [...]

Sveitti maðurinn Comments Off

Hann getur samt haft ánægju af því að flörta á feisbúkkspjallinu í vinnunni, vitandi að hún finnur ekki lyktina af honum þar sem hún er, að manneskjan sem þó finnur fnykinn hinumegin við afgreiðsluborðið veit ekki að hann er með holdris, og það að lesandinn veit ekki hvað er satt og logið þegar sveitti maðurinn [...]

Flottur Comments Off

Þú svafst of lengi til að ná morgunsturtunni, og það var ekki fyrr en þú varst kominn í vinnuna að þú fannst dauninn sem lagði upp af þér.

Eeva Comments Off

Hvorugt vissi hvernig það myndi fara. En þegar óskirnar standa uppfylltar, ljóslifandi fyrir framan mann, er erfitt að kveðja. Leiðin til Keflavíkur hefur aldrei verið eins stutt, og bakaleiðin gegnum rigningarsuddann aldrei eins löng. Þannig er nú það. Þetta hefur verið æðisleg vika. Sé þig í Jyväskylä, Eeva-Maija.

Nýtt útlit 11

Það er vesen með þetta, t.d. sjást ekki athugasemdir. En við sjáum hvað setur.

Breytingar 6

Þeir sem vilja sjá gamla Sólheimasafn – þ.e. eins og bókasafn en ekki eins og plasthylki – hafa mánuð til að gera það núna, upp á dag. Eftir það verður því breytt til hins verra.
Þessari síðu verður sömuleiðis breytt, líklega í kvöld, en ég veit að þær breytingar verða til hins betra. Enda er ég [...]

Skyndilegar vinsældir 3

Mér var boðið í tvö partí í kvöld. Á morgun er mér boðið í þrjú partí og eina óvissuferð. Smáskilaboðin hrynja eins og vestmanneyskar ær ofan í höfn síma míns (myndlíking í boði Vodafone). Hvar var allt þetta fólk í vetur?

Sækjast sér um líkir 8

Áður en ég verð beðinn að hætta að sífra vil ég fjalla um nokkra hluti sem mér líkar. Það eru helst einfaldir hlutir, rétt eins og ég.
1. Fallegt landslag, helst ferðalög um slík og gisting á ókunnum stöðum. Fátt er betra en ferð án fyrirheits.
2. Popparar sem þora að vera bara það. The Cure, R.E.M. [...]

Fjaðrir ýfðar 0

Ég er farinn að hallast að því að sívaxandi gremjan og sárindin í fólkinu kringum mig eigi talsverða rót í minni eigin andfélagslegu afstöðu til allra hluta. Í það minnsta er ég ýmist ánægður með allt eða ekkert, og hallar á það fyrra. Það speglast prýðilega í almennu skilningsleysi á hvort ég sé að koma [...]

Snjór í apríl 6

Kom snemma í ár. En kom þó, eins og alltaf.
Mér skilst að Al Gore sé farinn. Hvort kuldinn stafi af því veit ég ekki.

Gúgl dagsins 1

Sjá hér.

Clarke 3

Þegar ég vaknaði í morgun fannst mér sem meðalgreind í heiminum hefði hríðlækkað. Þá komst ég að því að Arthur C. Clarke er látinn. En Mogginn segir auðvitað ekki frá því fremur en nokkru öðru sem talist gæti fréttnæmt.

Í anda páskanna 1

Kætist meðan kostur er 2

Af fiðurfénaði #3 1

Þegar ég bjó hjá mömmu fannst mér alltaf vera kjúklingur í matinn, og alltaf neitaði ég að borða hann. Í eitt skiptið þá reyndi ég að finna hentuga leið til að losna undan þessu harðræði. Svo ég lýsti því yfir við matarborðið að það væri með öllu óferjandi að bera þennan viðbjóð inn á heimilið [...]

Af fiðurfénaði #2 1

Í þau skipti sem kjúklinganeysla mín berst í tal er fólk gjarnt á að spyrja mig hvað sé eiginlega að mér, að kjúklingur sé svona og svona og hann geti þess vegna bragðast eins og ávöxtur skilningstrésins ef maður vildi. Fólk gerir almennt ráð fyrir að ég þurfi að eiga mér málsbætur, eða að því [...]

Af fiðurfénaði 2

Ég er orðinn þreyttur á að útskýra fyrir fólki að ég borði ekki kjúkling. Það má allt eins útskýra fyrir mér hvers vegna ég eigi að borða kjúkling. Í langflestum tilfellum finnst mér hann viðbjóðslegur á bragðið, en ég er ekki endilega viss um að það sé fuglinum að kenna. Alvarlegri hlutir geta þó farið [...]

Bókalistinn Comments Off

Ég hef enn á ný uppfært bókalistann og einfaldað flokkakerfið. Að þessu sinni hverfast breytingarnar sérstaklega um flokkinn fornrit/miðaldabókmenntir og svo ævisögur, þótt einhverjar viðbætur megi finna í hverjum flokki, ekki síst ljóðunum. Ef eitthvert ykkar á eitthvað af þessu á reki – þótt sérstaklega sé það hæpið um miðaldabókmenntirnar, enda hreint ekki ókeypis bækur [...]

Get víst ekki kvartað Comments Off

Ég get víst ekki sagt annað en að það sé talsvert fremdarástand hér heima í kvöld.
Annars um hverfandi frumspeki hlutanna: Ég er ekki frá því að kaffið mitt hafi hér áður fyrr haldist heitt í bollanum lengur en tvæmínútu. Það mun ekki lengur svo. Ég krefst svara.

Genginn í það heilaga 8

Aldrei fór það ekki svo að ég gifti mig í bríaríi. Það var Kristján Ketill, skipstjóri, sem gaf okkur saman á barnum Barnum við mikinn fögnuð viðstaddra. Hringar voru fengnir af nærliggjandi lyklakippum, svaramenn voru til halds og trausts, og nálægt 60 vottar. Mér skilst að athöfnin hefði verið lögleg um borð í skipi.
Eftir það [...]

Elfa Björk Comments Off

Í dag var ég í hópi þeirra starfsmanna Borgarbókasafns sem fylgdu Elfu Björk Gunnarsdóttur, fyrrum borgarbókaverði og útibússtjóra Sólheimasafns, til grafar. Hún lét af störfum árið 2000 eftir að hún greindist með krabbamein, og því kynntist ég Elfu Björk aðeins sem lánþega og vini félaga minna á safninu, en okkur kom ætíð vel saman. Hún [...]

Ad hominem Comments Off

Ég hef heyrt margstaðar frá að Aron Pálmi hafi varla stigið fæti út af öldurhúsinu síðan hann kom hingað. Fólk virðist almennt hissa á því. Það bjóst kannski við að hann yrði skipaður héraðsdómari?

Pareidolia 6

Hvás harka firka.

Konudagur Comments Off

Ekki gaf ég rós frekar en fyrra árið.

Skype Comments Off

Talandi um banka, þá er hér ókeypis hugmynd: Að þjónustuver banka og kreditkortafyrirtækja bjóði ferðalöngum erlendis upp á þjónustu gegnum skype. Nema fjármálafyrirtækin eigi í samráði við fjarskiptafyrirtækin um að gera það ekki, þá myndi ég skilja hvers vegna þeim þætti það ófýsilegur kostur.

Mér er spurn 10

Hver er munurinn á félagi gegn Pólverjum og stjórnmálaflokki gegn gyðingum? Sannast sagna þá hryggir það mig að lifa á tímum þegar reductio ad Hitlerum er hætt að vera rökvilla.
Pólverjar eru 38.5 milljónir talsins, Íslendingar eitthvað um 300.000, þannig að Pólverjar búsettir hér á landi þyrftu að hlaupa á tug- ef ekki hundraðþúsundum til að [...]

6

Freaks of Nature: Self Inflating Fish