Category Archives: Trú

Hvað er skrímsli? 0

Hvað er skrímsli? Sé íslenska orðinu slegið upp í Google finnur maður myndir úr skrímslabókum Áslaugar Jónsdóttur og Disneymyndinni Monsters Inc., en einnig koma fram myndir af einni ófreskjunni úr myndinni El laberinto del fauno og meintu skrímsli sem skolaði upp í fjöru í Montauk fyrir fjórum árum sem ég fæ ekki betur séð en [...]

Fræðileg útgáfa Biblíunnar 0

Ég fór óvart að fantasera á Facebook um að eignast fræðilega útgáfu á Biblíunni. Best væri ef Hið íslenzka bókmenntafjelag stofnlegði ritröðina Erlend fornrit að fyrirmynd Íslenzkra fornrita. Þess í stað höfum við þýðingar Lærdómsritanna, sem að ósekju mætti gera að hardkor fræðilegri útgáfu án þess að almennir lesendur yrðu nauðsynlega fældir frá.
Og nógu déskoti [...]

Um yfirnáttúrlegar verur í Íslendingasögum 0

Ferming 1

Amma mín á Akureyri sagði alltaf við mig áður en við fórum að hátta: „Nú skulum við hvíla lúin bein.“ Það brást ekki að mér fannst ég finna fyrir því hversu lúið hvert bein í líkama mínum var í hvert sinn sem hún sagði þetta og syfjan seig fljótt á. Stundum virkar þetta ennþá ef [...]

Hans og Grétu syndrómið 9

Ég var óskaplega stoltur af sjálfum mér í dag. Mér nefnilega tókst að klára nærri heilt páskaegg nr. 4. En svo áttaði ég mig á því að hér búa fleiri og því er líklegra að einhver annar hafi étið eitthvað af þessu. Þegar ég var lítill gat ég étið þrjú svona en það er liðin [...]

Ögn um uppdiktuð djöflafræði 0

Í rannsóknum á yfirnáttúru á miðöldum kemst maður í tæri við ýmislegt. Mörkin milli hins yfirnáttúrlega og þess djöfullega verða óskýrari því trúarlegri sem textinn er, og eitthvert mest hrollvekjandi dæmið um slíka frásögn er í Jóns sögu, þar sem segir frá því þegar heilt kirkjufylli af uppvakningum réðist á Guðrúnu „kirkjukerlingu“ á 12. öld.
Ýmis [...]

Aðlögun í skugga óreiðu 3

Eyrarsundskollegíið á Amager er fyrir löngu alræmt meðal íslenskra námsmanna í Kaupmannahöfn. Þegar ég kom þangað fyrst í janúar á síðasta ári var þar íslendingapartí auk eins Færeyings sem fékk að fljóta með sökum skyldleika og kannski þess að Íslendingum þykja Færeyingar fyndnir. Það er stærsta kollegí í Kaupmannahöfn, ef ekki það stærsta í Danmörku. [...]

Kúltúrsjokk 7

Fyrirsögnin er kannski fullyfirdrifin miðað við tilefni en þó er vel hægt að upplifa kúltúrsjokk í Danmörku. Stærsta kúltúrsjokkið, sem kann að koma lesendum þessarar síðu á óvart, var að fólk vílaði ekki fyrir sér að snýta sér lon og don undir miðjum fyrirlestri. Í fyrstu þótti mér ógeðfellt að ekki aðeins Spánverjinn í hópnum [...]

Zeitgeist Addendum 4

Þrátt fyrir hallærislega dramatískan áróður fyrir einni tiltekinni heimssýn þá er myndin vel þess virði að horfa á. Það er margt þarna sem þarf að takast á við, með voninni um að hægt sé að breyta því hvernig heimurinn virkar, og hvernig við hugsum.
Þið getið séð myndina hér.

Gott stöff 0

Prestastefna hófst með messu í Dómkirkjunni í kvöld klukkan sex. Um 140 prestar og djáknar eru skráðir til þátttöku á prestastefnunni sem stendur yfir í Seljakirkju í Reykjavík fram á fimmtudag. Aðalefni prestastefnu að þessu sinni er að ræða drög að samþykktum um innri málefni kirkjunnar, meðal annars skírn og fermingu.
via mbl.is

Íslamistar og naívistar 10

Lesið þessa grein eftir Ingólf Gíslason. Núna.

Ísland í dag 5

Kreppan vofir yfir, engum að óvörum.
Litlu dýrin hans Hannesar sníkja peninga til að létta undir með kostnaðarsömum ærumeiðingum.
Geðsjúklingur er fluttur inn af enn bilaðri viðrinum. Einkaviðtöl uppseld. Sjá meðal annars hér og hér.
Ég veit ekki hvað skal segja um þessa samlanda mína.

Ég missi jafnan trú á mannskepnuna 1

Þeir sem fárast yfir bingóspili á föstudeginum langa hljóta að vera alvarlega veikir í sinninu. Það kemur ríkisvaldinu ekki við hvað fólk gerir í frítíma sínum svo lengi sem það skaðar engan. Og þaðan af síður kemur það kirkjunni við, fremur en skattstjóranum eða öðrum stofnunum ríkisins, hvort fólk spili bingó eða ekki. Hvað þætti [...]

Vilji stýrir efni 0

Þegar fólk skilar Leyndarmálinu skuldugu á safnið velti ég fyrir mér hvort það hafi ekki óskað þess nógu heitt að skila henni skuldlausri.

Fable revisited Comments Off

Í sumar varð mér bloggað um Atlantis og vakti það athygli sjálfs Menosar, sem svaraði pistlinum um hæl. Nú hef ég rekið augu mín í nýstofnaða vefsíðu, Bad Archaeology, sem tekur fyrir allskyns þvælu sem fer að einhverju eða öllu leyti á skjön við viðurkennda fornleifafræði. Hér má sjá umfjöllun þeirra um Atlantis. Af því [...]

Atlantis 5

Ekki man ég hver þrætti fyrir tilvist Atlantis við mig um daginn, en hér stendur mín meining nokkuð svört á hvítu. Það er einfaldlega svo að flestir fræðimenn eru sammála um að fyrirbærið hafi verið symbólískur uppspuni Platóns, og jafnframt er það sú skýring sem er haldbærust miðað við heimildir. Að ógleymdu því að flest [...]

Ýmiss konar tilbeiðsla 2

Sú mikla bifreið föður míns er nýkomin úr viðgerð en er alveg jafn biluð og fyrri daginn. Líklega var ég bara heppinn að komast ferða minna í gær, en í dag var ég ekki svo heppinn og mætti alltof seint í goðafræðina.
Goðafræðin er annars áhugaverðasti kúrsinn, þótt ef til vill sé hann lúmskt erfiður. En [...]

Umræðan Comments Off

Skyndilega sprakk út í Bloggheimum eldheit umræða um trú á móti vantrú í kjölfar bakþankapistils Davíðs Þórs Jónssonar um téð efni.
Nú var það síst ætlun mín að blanda mér inn í þessa umræðu, en sú spurning brennur á mér hvort sé umræðan díalektísk í eðli sínu, eða a priori málaflækjur í ætt við það sem [...]

Hættur 4

Ég les stundum Vantrú, en aðeins örsjaldan skil ég eftir athugasemdir. Það er vegna þess að ég er orðinn leiður á því hvað fólki hættir annarsvegar til að svara án þess að svara, hinsvegar oftúlka allt sem á undan er sagt. Einhverju sinni varði ég t.a.m. Nietzsche fyrir manni sem kallaði hann nasista. Sá svaraði [...]

Ekki seinna vænna 1

Þetta hér eru einhverjar þær bestu fréttir sem ég hef heyrt lengi.

Fjölmiðlar á fyrsta apríl 6

Réttmætt er gysið, hefðin kringum þennan dag er fáránleg. Og fyrst fjölmiðlunum finnst ekkert tiltökumál að ljúga að lesendum sínum fyrir ekki merkilegri sakir, guð einn má þá vita hversu reiðubúnir þeir eru að ljúga ef eitthvað raunverulega er í húfi.
Uppfært kl. 00:06
Það sem hér fer eftir er skrifað aðeins örfáum mínútum áður en viðkomandi [...]

Vídalín fer í messu 2

Vaknaði snemma (lesist fyrr en venjulega) og skrapp upp í Vídalínskirkju að hlýða á Vídalínsmessu Hildigunnar. Tónlistin var alveg frábær og einsöngvararnir tveir, Hallveig og Ólafur (systkini Hildigunnar?) voru bæði afar sterk. Gaman líka hvað þau lifðu sig inn í flutningin, hélt að Ólafur myndi hlaupa með kirkjubekkjunum af kátínu í Orði föðurins. Svo var [...]

Ritsmíðin enn og aftur 2

Finnst mér fyndið að hafa elt heimildir gegnum tæplega tvöhundruð ára sögu aðeins til rekast á botnlanga við endann og hafa þurft að þræða mig alla leið til baka og halda áfram í aðra átt? Nei, ekkert átakanlega.
Nú er ég kominn að Erasmusi frá Rotterdam (1469-1517). Ef Lúther má ekki leiða útfrá honum er ég [...]

Gott svar 2

Þeir vita hvað þeir syngja í Íran. Skopmyndasamkeppni, takk fyrir, Helförin tekin fyrir. Eins og Danir hljóta að verða svekktir miðað við afgerandi hátt hlutfall gyðinga þar í landi, þá hefði ég meiri áhyggjur af því hvað Ísraelsmenn segja.

Að hinstu um það mál 6

Ef við gefum okkur að öll trúarbrögð séu í eðli sínu röng fáum við þá niðurstöðu að Islam sé rangt. Ef við gefum okkur það ennfremur að miðstýrðar trúarstofnanir gefi sanngjarna mynd af trúarbrögðunum sem þær kenna sig við, og að leiðtogar miðstýrðra trúarstofnana séu ótvíræð málpípa allra meðlima, fáum við ekki aðeins þá niðurstöðu [...]

Úr böndunum Comments Off

Myndbirtingarmálið hefur undið upp á sig, eins og við var að búast. Ég mun ekki samþykkja neinar réttlætingar, sama í hvora áttina þær beinast. Nákvæmlega hverjum andskotanum bjuggust þið eiginlega við? Sama hvernig á það er litið var guðlast Jyllandsposten fullkominn óþarfi. Það sama gildir um sendiráðsbrennur. Og auðvitað hafa klerkarnir öll tögl og hagldir [...]

Allt og ekkert Comments Off

Tarja Halonen vann finnsku forsetakosningarnar. Mér skilst hún hafi verið besti kosturinn. Í það minnsta betri en eini vinur Framsóknarflokksins á Norðurlöndunum, Matti Vanhanen.
Ég hef átt nokkuð erfitt með mig síðustu daga, næ ekki að hugsa eina einustu hugsun nema komast að niðurstöðu sem ég svo hafna skömmu síðar. Finnst eins og ekkert sem ég [...]

Af mannréttindum 1

Þetta er allt að koma

Jólasveinninn er víst til 7

„Jólasveinninn er ekki til“, úthrópar séra Flóki á forsíðu DV. Ég spyr nú bara á móti: Eru einhverjar sannanir fyrir því að hann sé ekki til? Við höfum skriflegar heimildir fyrir tilvist margra jólasveina frá 19. öld, sem þá höfðu lengi varðveist í munnlegri geymd. Fjölmiðlar tala um þá líkt og þeir séu til, og [...]