Category Archives: Námið

Århus 4

Skrifað í Leifsstöð kl. fimm að morgni þess fimmtánda:
Leifsstöð, eini staður á Íslandi þarsem enginn er alkóhólisti. Hér drekka allir klukkan fimm á morgnana án þess að nokkur þyki þeir verri. En utan Leifsstöðvar eru allir alkóhólistar, jafnvel þeir sem aldrei hafa drukkið.
Ég veit ekki hvort það er svefnleysið mín megin eða andleysið í sófunum [...]

Skýrsla um atburði liðna og líðandi 8

Mér finnst ég pínu gamall stundum, þótt ég sé að vísu bara tuttugu og fjögurra og hálfs árs. Ég veit ekki hvort ég er kominn með fitukomplex líka en þegar ég leit í spegil í gær fannst mér ég kominn með nettan Sigmund Davíð undir hökuna. Þegar ég tók af mér skeggið sem ég hafði [...]

Mitt áhugaverða líf 2

Tölvan mín er farin að hitna svo mikið að ég sá þann kostinn vænstan að hringja í þjónustuaðila og panta tíma. Húðin er beinlínis farin að flagna utanaf örgjörvanum. Tölvan reyndist vera í ábyrgð ennþá svo það kemur sér afskaplega vel.
Á Þórbergsvefnum rakst ég á meint MA verkefni eftir Sverri Árnason, Í kompaníi við Þórberg [...]

Almáttugs andskotans helvíti! 0

Rétt í þessu greip ég niður í 50 blaðsíðna ritgerð sem ég hef verið að lesa mér til heimildar, og lauk því litla sem eftir var. Það er langlengsta heimildin sem ég þarf að styðjast við að undanskildum bókum. Fer svo að fletta upp í glósunum.
Ég hef ekki hripað eina einustu hjá mér, nema þá [...]

Þrjú öppdeit 3

Mér sýnist að peningar verði engin fyrirstaða fyrir aðstöðu í Suðursveit hvenær sem sá gállinn er á mér. Þá neyðist ég samt til að troða vetrardekkjunum undir bílinn og láta laga þetta smáræði sem laga þarf.
Sumarnámskeiðið í Árósum er matshæft, sem þýðir að ég borga engin skólagjöld komist ég að. Og það að ég er [...]

Af mér er þetta helst að frétta 10

Mun sækja um sumarnámskeið um kristni og heiðni í norrænum miðaldabókmenntum í háskólanum við Árósa eftir helgi. Nordplusstyrk ef ég kemst að. Ég hafði aldrei færi á að fíflast í útlöndum einsog flest ykkar hinna eftir stúdentspróf. Svo það er sárabót ef ég fæ að vera voða alvarlegur í útlöndum í smátíma.
Fer að demba mér [...]

Í súld inni á safni 0

Ég er farinn að taka vaktir í Ársafni annað slagið og líkar orðið mjög vel að koma hingað, þótt ekki þyki mér rauðu járnhillurnar neitt til að hrópa húrra fyrir.
Foldasafn er á hinn bóginn afskaplega fallegt en ég kann ekki við mig þar. Allavega ekki ennþá.
Svo er verið að biðja mig um að vinna niðri [...]

1

sofna ekki
mæta klukkan átta í skólann
þar sem þrír kaffibollar gerðu ekkert fyrir mig
fara beint í vinnu eftir skóla að bera tækjabúnað
þar sem fimm kaffibollar til viðbótar gerðu ekkert fyrir mig
fara heim illa uppfokkaður og leggjast í kör á rúmið nakinn, skjálfandi
öskrandi nöfn fræðimanna ofan í tóma illa lyktandi bjórdós
þyljandi upp strauma og stefnur missandi
sig yfir [...]

Aftur á bekkinn 0

Að forníslenskunni undanskilinni sé ég ekki fyrir mér að ég muni eiga í miklum vandræðum með námið það sem eftir er. Að öðru leyti finnst mér ég aftur kominn í menntaskóla. Bekkjarsystir mín ein deilir ekki þeirri tilfinningu. Ég veit ekki hvort ég ætti heldur að öfunda hana af að fá að læra þetta allt [...]

Opnað í bili 0

Fólk er farið að röfla í mér að opna síðuna aftur. Engu að síður hef ég ekkert að segja frekar en fyrri daginn. Þori ekki að geta mér þess til hvaða ánægju er að hafa af sífrinu hérna.
Skólinn byrjaði á mánudaginn og ég hef enn ekki gerst svo frægur að mæta á einn einasta fyrirlestur. [...]

Leiðinlegt blogg 0

Nú hef ég unnið nær sleitulaust síðan á hádegi í gær og loks sér nokkuð högg á verkefninu sem fyrir lá, að fjalla um höfðingjavald í Sturlu sögu. Vona þá að mér hafi tekist að gera það með sannfærandi hætti. Morgundagurinn fer að mestu í að þétta verkið og hnýta lausa enda áður en klukkan [...]

Fokk var víst orðið 0

Það er alltaf gott að finna nýjar vísbendingar sem sprengja sundur öll þau rök sem maður hefur klambrað saman í hrákaritsmíð. Þá verður ritgerðin sterkari fyrir vikið. Þó er það að sönnu hvimleitt að þurfa að endurskrifa allt á síðustu stundu.

Ergelsi 1

Hvers vegna gerist það einmitt á þessari stundu að ég finn ekki grein sem er eingöngu fáanleg í Árnastofnun og ég þurfti til að tengja saman kafla í ritgerðinni minni? Ég er gjörsamlega lamaður án hennar og hef hvorki tíma né vilja til að banka uppá á morgun. Fokkíng týpískt.
Uppfært
Auðvitað fannst helvítis greinin úti í [...]

Af aðferðum stúdents 9

Þegar ég vinn með textaskjöl hef ég jafnan algengustu táknin í handraðanum svo ég þurfi ekki að eyða tíma að gera þau í hvert sinn heldur geti einfaldlega límt þau í skjalið þar sem við á. Áðan voru það íslenskar gæsalappir sem mér fannst taka of langan tíma að gera fyrir hvert tilvik, svo ég [...]

Hybris 0

Ég er ekki frá því að ég hafi gerst sekur um hybris með leti minni.
Mætti þó í tíma til að læra að nota rétt hugtök yfir orsakir hennar.

Stúdentalífið 9

Ég ætti kannske að breyta þessari síðu í svona stúdentablogg. Líf stúdentsins í hnotskurn snýst fyrst og fremst um lífið á Görðunum, ritgerðaskil í pósthólfið í Árnagarði/Odda, ferðir á Þjóðarbókhlöðuna, kynlega kvisti sem þar leynast milli hilla, latté á Kofa Tómasar frænda, debatta um hvað sé besta kaffið frá Kaffitár, frískleg morgundögg eða kvöldroði, rustalegt [...]

Eftir miðnætti á mánudegi 0

Núna hefst geðveikin fyrir alvöru. Ég drekk ekki á meðan né geri nokkuð annað en rykfalla inni á bókasöfnum meðan hárið og „skeggið“ vex utan á mér. Ef ég verð ennþá til frásagnar í maí, þegar allt er búið, má gera ráð fyrir að ég detti það harkalega íða að ég muni ekki næsta hálfa [...]

Lesefnið Comments Off

Ragnar loðbrók eignaðist ægimarga syni. Einn þeirra hét Ívar, fæddist beinlaus og var mest manna gefinn um fríðleik, vitsmuni og fjölkynngi. Vegna fötlunar sinnar var hann jafnan borinn um af bræðrum sínum ýmist á stöngum meðan hann lagði á ráðin um að tortíma heilu byggðarlögunum eða á skildi ef í bardaga. Það finnst mér fyndið.
Í [...]

Óvíð – Sófóklíð? 6

Í fyrsta tíma í janúar lýsti Gottskálk Þór Jensson, kennari minn í bókmenntasögu, því yfir að hann tæki ekki í mál að lesa yfir ritgerðir þar sem enskar útgáfur nafna væru notaðar þegar fullkomlega góðar íslenskar útgáfur væru til. Ég var hjartanlega sammála honum þar til ég komst að því hvað „góðar íslenskar útgáfur“ þýddi. [...]

Bækur 0

Þegar ég mætti í skólann beið mín eintak af Ást á grimmum vetri frá honum Sigtryggi. Ég er ekki frá því að mér þyki meira í hana spunnið núna en þegar ég las hana síðast fyrir rúmi ári. Hver veit nema sama verði uppi á teningnum hjá Steinunni Sigurðardóttur, sem Kistudómur dagsins er tileinkaður. Það [...]

Góður dagur 2

Þegar ég vaknaði á slaginu sjö í morgun ætlaði ég varla að trúa því, fyrr en ég leit út um gluggann. Veðrið virtist ekkert of slæmt, og fyrir utan að ég vildi ekki spilla þessum einstaka áfangasigri þurfti ég eftir sem áður að flytja fyrirlestur í skólanum uppúr klukkan átta. Undir eins og ég komst [...]

Leto og svanurinn 0

Les Ármann þetta ennþá? Ég velti nefnilega fyrir mér hvort hér sé komin viss höggmynd sem á var minnst í tíma í dag. Hér má svo aftur sjá aðeins, uuhh … rómantískari útgáfu.
Ég tek fram að áfanginn fjallar ekki eingöngu um kynusla og bindikynlíf heiðins menningararfs.

Að vera andsofa 0

Það er kannski rétt að geta heimilda við síðustu færslu, en vel ríflega þær upplýsingar sem þar er að finna fékk ég í Símenntunarstöð Háskóla Íslands, það er að segja, kaffistofunni í Árnagarði.
Auðvitað hlaut ég að vakna klukkan fjögur á laugardegi þegar ég gæti ekki innt þann gjörning til að leysa höfuð mitt að mæta [...]

Lífsgæðavændið heldur áfram 2

Góðir hlutir gerast einhvernveginn. Á dögunum samdi ég við ýmsa lánadrottna sem reyndar voru svo skilningsríkir að þeir buðust til að lána mér enn meiri peninga. Hafði nú vaðið fyrir neðan mig í þetta skiptið. Á sama tíma falaðist ég eftir meiri vinnu hjá Borgarbókasafni en var heldur vonlítill. En símtal sem ég fékk nú [...]

Stress Comments Off

Fyrirlestur á morgun, ég ekki búinn að kanna alla kanta á niðurstöðum ennþá
engin bylting strax semsé
en það sem ég hef hlýtur að duga
ég vill það sem kennarinn vil og það er vel unnin rannsókn
það kemur
guði væri hann til sé lof fyrir bókasafnið mitt
þar getur maður unnið fram á nótt
í svona líka kosmísku umhverfi
stjörnurnar sjást hvergi [...]

Sakn Comments Off

Ég sakna ályktandi tölfræði. Slíkt gæfi miður litlar upplýsingar í minni rannsókn. Hvernig stendur eiginlega á því að fólk virðist margt hvert hafa gagnverkandi reglur í málvitund sinni? Er verið að krukka of mikið í skólakrökkum? Er fólk hætt að tala af ótta við að vera leiðrétt?

Ó, Wurzel, hvar ertu? 4

Bók Wurzels sem vísað er í hér að neðan geta áhugasamir skoðað hér. Áhugasamur sem ég er þá vantar einmitt þær síður í sýnishorn bókarinnar sem ég þarf mest á að halda! Og bókin er hvergi til á landinu nema að því er virðist í bókaskápum málfræðinga. Ég dey.

Hvað er ég að gera spyrjiði? 2

Til að svara þessari spurningu án þess ég þurfi að útskýra það fyrir ólíku fólki oft á dag þá er ég að lesa greinar eins og þessa til að auka skilning minn á viðfangsefni daganna:
„Ef unnt er að greina eitthvert mynstur sem talist getur einkennandi fyrir eintölubeygingu íslenskra sagna í germynd ætti það samkvæmt kenningu [...]

Fyrstur 1

Aldrei fór það ekki svo að mér tækist að vakna klukkan sjö eftir fjögurra tíma svefn, vera á undan umferðinni í skólann og ná að mæta fyrstur allra í fyrsta tíma eftir viðkomu á kaffistofunni í Odda. Þetta gat ég.
Minnir á gömlu góðu dagana þegar ég reykti einn og hálfan pakka af sígarettum á dag [...]

Að gera [sic] rannsókn 9

Fátt mun ungum manni hollara en láta letina lönd og leið og drífa sig út í hinn stærri heim að gera rannsókn. Hef troðið fætinum inn hjá einum skóla og vantar annan, en það er í vinnslu. Rannsóknir eru skemmtilegar.
Því miður hef ég ekki staðið mig sem skyldi á þessari önn. Eins og staðan er [...]

Bókhlöðublogg 19

Fleygði kettinum ofan af sænginni eldsnemma í morgun til að:
a) Láta taka mig í gíslingu, stokkhólmseinkennið er raunar víðs fjarri.
b) Setjast inn á bókhlöðu með blóðnasir á þriðja degi, vona að bókavörðurinn sjái ekki dýrðina.
c) Hlusta á regnið og muna ekki af hverju ég kom hingað.
Uppfært kl. 11:37
Kaffið á Hlöðunni er gott sé það drukkið [...]

Daglegt amstur 3

Eftir stórfelldar ruslpóstsárásir á vefsvæði Kaninkunnar síðustu vikuna hef ég neyðst til að setja upp síu. Það er skárra en að eyða milli fimmhundruð og þúsund tilboðum um ókeypis barnaklám og læknadóp á dag.
Goðafræði Snorra-Eddu lauk ég á örfáum dögum og tryggði mér fimm einingar til viðbótar. Get ekki sagt að ég mæli með því. [...]

Say. No. More. 7

… Thór rode in a chariot drawn by goats. In the Húsdrápa (str. 3) he was called hafra njótr (user of goats), and in the Hymiskviða (str. 31) he is the hafra dróttinn (lord of goats).
- E. O. G. Turville-Petre, Myth and Religion of the North.

Sumt lærist ekki 3

Á næstu dögum hyggst ég setja met í kokhreysti við Háskóla Íslands og klára fimm eininga áfanga á níu dögum. Það verður því lítið um fína drætti hér á næstunni.
Ef einhver hefur þegar gert betur ætti viðkomandi ekkert að vera að stæra sig af því, nema argúmentið sé að ljótasti maðurinn í Guinnessbókinni sé jafnframt [...]

V 6

Í dag er kjördagur. Ég treysti því að þið gerið hið eina rétta í stöðunni.

~

Prófin eru búin. Ríkisstjórnin sömuleiðis.

Munnlegt próf 24

Það er naumast hvað maður getur aldrei komið neinu útúr sér þegar mest á ríður, svo eftir einn bjór á barnum þarf heila herdeild til að þagga niður í mér.
Þartil ég heyri rök fyrir öðru verð ég að vera sammála Antoni um að best væri að deila [sic] bókmenntasögunni uppí tvo 2.5 eininga áfanga. Þannig [...]

Bók, grindardráp og dauði 2

Þessi vika er vika bókarinnar. Þá er kominn tími til að hafa áhyggjur af námsframvindu. Ef bókmenntaritgerðin er ekki kláruð fyrir fæðingardag Kiljans og Shakespeare (og dauðadags þess síðarnefnda), og próflesturinn ekki vel ríflega hálfnaður, þá er illt í efni. Hálfkaldhæðnislegur deadline.

~
Ég tefli einnig á tæpasta vaði í öðrum skilningi. Með dags millibili hef ég [...]

Árnað heilla 10

Afmælisbarn dagsins er mademoiselle Hjördís Alda, heimsferðalangur og snillingur. Hún er tuttugu og eins árs í dag og er henni hérmeð árnað heilla á auðmjúkum síðum órum, í því tilfelli að smáskilaboðin hafi geigað einhversstaðar útyfir Atlantshafi.
Sjálfur kanna ég hugarlendur Þórbergs um þessar mundir og á því fáar frístundir frá námi. Það er eins nálægt [...]

Af Bréfum til Sólu 0

Mig grunar að hinir hrifnæmu vildu helst ekki vita mikið um samband Þórbergs og Sólu áður en þeir lesa bréfasafnið, sér í lagi ekki hið eina réttnefnda Bréf til Sólu í allri sinni 70 blaðsíðna heift, sem af einhverjum ástæðum var ekki gefið út með hinum. Síst mun þeim sömu hugnast að kunna skil á [...]

Ógnarjafnvægið 2

Endurvinnslan reddaði mér um lækniskostnaðinn frá í gær, og einum bjór betur. Hann sötra ég núna.
Ég er dauðþreyttur og reglulega andvaka, lítið eitt veikur í ofanálag. Það tekur á í erli dagsins, ekki sýndist mér Anton neitt betur haldinn heldur er ég hitti hann í dag. Þá bíður okkar ósaminn fyrirlestur í kvöld. Ég sem [...]

Á Árnastofnun 5

Ég ákvað að prófa lesaðstöðu Árnastofnunar, þó ef til vill í helst til sakleysislegum erindagjörðum:
Áttu hér eintak af Snorra-Eddu? Tjaá, hér er allavega eitthvað, svaraði bókavörðurinn og rétti fram velmeðfarna bók bundna í skinn.
Ég sest inn á lessal og opna bókina: „Snorra-Edda ásamt Skáldu og þarmeð fylgjandi ritgjörðum eftir gömlum skinnbókum. Útgefin af R. [...]

Gamla góða 3

Fyrir fjórum árum las ég Snorra-Eddu í fyrsta skipti. Þá fannst mér fyndið að Heimdallur gæti séð hundrað rasta jafnt á nóttu sem degi.

Ýmiss konar tilbeiðsla 2

Sú mikla bifreið föður míns er nýkomin úr viðgerð en er alveg jafn biluð og fyrri daginn. Líklega var ég bara heppinn að komast ferða minna í gær, en í dag var ég ekki svo heppinn og mætti alltof seint í goðafræðina.
Goðafræðin er annars áhugaverðasti kúrsinn, þótt ef til vill sé hann lúmskt erfiður. En [...]

Grænar hugmyndir sofa æðislega 6

Ég keypti mér svona skratta um daginn til að hjálpa mér að vakna á morgnana. Jæa, nú í morgun hrökk ég dálaglega upp við morðtólið um það leyti sem ég var loksins að sofna. Það verður bara að hafa það, sumir dagar byrja einfaldlega ekki eins vel og aðrir. Goðafræði Snorra-Eddu eftir klukkutíma.
Ég hef held [...]

Færslan sem vatt upp á sig Comments Off

Klukkan að ganga 10 gekk ég Hagamelinn úr heimsókn til Einars Arnar þar sem ég sótti hlut sem ég hafði (á afar vafasaman hátt) unnið í uppboði hans til styrktar börnum í suðaustur Asíu. Mér hefði í raun verið sama þótt hinn náunginn hefði fengið það, mann munar ekkert um smá peninga í þágu góðs [...]

Próflestur Comments Off

Síðasta prófið er á morgun. Það er ágætt, þetta er farið að hafa sín áhrif á mig, meira að segja vinnufélagi minn hafði orð á því við mig að ég hafi ekki verið eins og ég á að mér að vera. Ég er í það minnsta fremur djúpt sokkinn inn í sjálfan mig orðið, á [...]

Hljóðkerfisnótt Comments Off

Eftir sex klukkutíma af byltum í sófanum í Odda með doðrantinn Hljóð afréð ég að fara heim. Var líka búinn með kaffiklink (Eyddi um þúsundkalli bara í kaffi). Eyddi næsta klukkutímanum eftir að ég kom heim í að lesa hljóðkerfisfræði, reyndi svo að sofna eftir það en gat það ekki fyrr en seint og um [...]

Heimkoma Comments Off

Ókei, Arngrímur, andaðu rólega. Einn kafli eftir. Þú hefur staðið þig vel. Klára pakkann, það er það eina sem er eftir.

Oddablogg 2: The Return Comments Off

Hér sé annars stemningin, allir uppteknir að læra (eða öskra!), kaffibollar á víð og dreif, svo og hárrytjur og flösukleprar úr höfðum námsmanna. Líkt er og tíminn standi í stað. Það er því miður ekki raunin.

Bloggað í Odda Comments Off

Ykkur er fullkomnlega frjálst að ÖSKRA meðan sum okkar reyna að læra!