Mér finnst stundum gaman að þykjast vera gamli karlinn. Fyrir einhverjum árum sagði ég við táning að það skipti engu máli hvað hún segði, ég tæki ekki mark á svona krökkum sem væru fæddir eftir fall Berlínarmúrsins. Grey stelpan hélt ég meinti þetta og varð voða skömmustuleg.
Það er jú í sjálfu sér ekki neitt voðalega [...]
Categories: Minningarbrot
- Published:
- August 26, 2009 – 19:29
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
- Published:
- June 3, 2009 – 23:41
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég trúi varla að ég sé að eyða tíma í þetta.
Það kom nokkuð flatt upp á mig í dag að vera spurður út í gamla gróusögu síðan í MR sem ég var búinn að gleyma. Stelpan sem kom sögunni af stað þoldi mig ekki og samkvæmt minni bestu vitneskju hefur það ekkert breyst. Það vildi [...]
Categories: Minningarbrot
- Published:
- September 5, 2008 – 21:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Parísardaman geðþekka skoraði á mig að fylla út svona lista. Ég skora á Silju, Halldór og Alla að fylla út líka (á sínum eigin síðum!).
1. Lykt og minningar. Er einhver sérstök lykt sem vekur hjá þér minningar? Segðu frá.
Lyktin af Half & Half píputóbaki minnir mig á tvær vikur sem ég var veikur. Fyrri vikuna gat [...]
Categories: Minningarbrot
- Published:
- August 15, 2008 – 18:33
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér krossbrá við fyrirsögnina „KK látinn“ en mundi þá skyndilega eftir þeim eldri, það er að segja úr Litlu flugunni við Laugarnesveg. Ég vissi ekki að það væri sami maður, hvað þá að hann hefði stofnað Verðlistann við Laugalæk – sem ennþá er starfræktur samkvæmt minni bestu vitneskju. Einhver allra síðasta leif um þá tíma [...]
Categories: Minningarbrot, Myndir af Laugarneshverfi
- Published:
- June 4, 2008 – 07:57
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nú er ég ekki mikið fyrir að láta stimpla mig sem eitt eða neitt. En þetta n-kynslóðatal þykir mér nokkuð skrýtið ef marka má Wikipediu. Á einum stað segir hún að X-kynslóðin sé fædd 1965-1982 og Y-kynslóðin 1988-2000 á einum stað, 1980-1994 á öðrum stað. Þá stendur annarsstaðar:
Digital technologies began to emerge (in a mass [...]
Categories: Hugleiðingar, Minningarbrot
- Published:
- April 19, 2008 – 11:10
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fyrirsegjanlegustu bloggtíðindi ársins: Ágúst Borgþór er kominn á Eyjuna. Minna mætti það ekki vera.
Í öðrum fréttum: Allt sem gerist kringum mig þessa dagana er of steikt til að tala um, þannig að ég ætla ekki að tala um það. Það litla jákvæða er síðan of persónulegt til að tala um. Það verður sjálfsagt lítil breyting [...]
Categories: Minningarbrot, Úr daglega lífinu
- Published:
- March 24, 2008 – 22:35
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þegar ég var á að giska í 10 ára bekk setti Guðrún Ásbjörnsdóttir okkur fyrir að elda kvöldmatinn fyrir þreytta foreldra okkar og útskýra aðferðina daginn eftir. Illar tungur gætu sagt að þannig hefði hún sjálf verið að upplifa einhverja fantasíu gegnum okkur en ekkert er fjær sanni. Guðrún er ein af þessum fáu kennurum [...]
Categories: Minningarbrot
- Published:
- March 3, 2008 – 20:34
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Á veggnum við hliðina á skrifborðinu mínu hvílir mynd af fyrsta bekk N úr Laugarnesskóla, tekin á vorönn 1991. Fyrir neðan hana er mynd af öllum útskriftarárgangi Laugalækjarskóla, tekin að vori árið 2000. Það má varla á milli sjá hvor myndin var tekin fyrr. Að maður hafi álitið sig fullorðinn á þessum tíma hlýtur að [...]
Categories: Minningarbrot
- Published:
- March 3, 2008 – 01:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fregnir af óveðrinu eru farnar að minna á storminn sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið í apríl 1991. Þá braut rokið grindverk með föður mínum og reif upp stærsta tré Laugarneshverfisins með rótum og lagði snyrtilega yfir Kirkjuteiginn, eins og til að varna djörfum foreldrum frá að keyra börnin sín í skólann. Gott ef það voru ekki [...]
Categories: Minningarbrot, Úr daglega lífinu
- Published:
- December 14, 2007 – 08:33
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fyrir helgi sá ég fyrstu norðurljós vetrarins slæðast fyrir fullt tungl yfir höfninni í Hafnarfirði, þótt þau vörðu nú heldur skammt. Í kuldanum ákvað ég að taka örstuttan göngutúr um smábátahöfnina og komst að raun um að ekki einungis eiga Hafnfirðingar ögn smekklegri tilbrigði við Litla kaffivagninn, heldur er þar einnig að finna sjálfsafgreiðsludælu frá [...]
Categories: Ferðalög, Minningarbrot, Úr daglega lífinu
- Published:
- October 1, 2007 – 13:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég þekkti Susie Rut kannski ekkert sérlega vel, en við spjölluðum margt saman þegar við vorum saman í bekk í MR. Meðal þess sem við ræddum voru bókmenntir. Ég veit að hún hafði dálæti á The Catcher in the Rye eftir J. D. Salinger, þá sérstaklega tilvitnuðum hluta hennar hér að neðan. Mér hefur oft [...]
Categories: Minningarbrot
- Published:
- June 20, 2007 – 22:57
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þegar tekur að dimma á norðurhveli vaknar einhver ósjálfráð hvöt inni í mér sem krefst þess að ég vaki á næturna. Hvers vegna veit ég ekki.
Rétt í þessu sá ég stjörnuhrap en óskaði mér einskis. Líklega er það einn fárra snertiflata ofmetnaðar og metnaðarleysis, að óska sér undir stjörnuhrapi; maður væntir þess þá að óskin [...]
Categories: Hugleiðingar, Minningarbrot
- Published:
- October 17, 2006 – 03:17
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fyrsta september 1992 mætti ég á fyrsta skóladegi, öllum að óvörum, í kennslustofu 3.S. Fyrstu vikurnar þar einkenndust af þeirri tilfinningu að ég ætti ekki heima þar. Enda þótt ég vissi upp á hár hver væntanleg bekkjarsystkin mín voru, þá hafði ég ekki haft nein raunveruleg kynni af nema litlum hluta þeirra, sér í lagi [...]
Categories: Minningarbrot, Myndir af Laugarneshverfi
- Published:
- June 5, 2006 – 01:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í ágúst 2003 fór ungur námsmaður í sína fyrstu utanferð í fjórtán ár, til sjálfrar vöggu vestrænnar menningar, Krítar. Það var þar, í bænum Chania, í öngstræti útfrá verslunargötunni skammt frá feneysku höfninni, að ungi maðurinn leit inn í litla, illa merkta verslunarkytru.
Það fyrsta sem mætti unga manninum í illa upplýstu rýminu var notaleg reykelsislykt. [...]
Categories: Ferðalög, Hugleiðingar, Minningarbrot
- Published:
- May 15, 2006 – 18:56
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég vek athygli á því fyrir áhugasama að ég hef nú bætt tveimur frásögnum við fyrri færslu Mynda af Laugarneshverfi, veturinn 1990-1991. Þær eru raunar nátengdar, sagan af því þegar kötturinn kom til skjalanna og þegar óveðrið skall á Reykjavík í apríl 1991.
Myndafærslurnar eru einu færslurnar á þessari síðu sem munu taka sífellum viðbótum og [...]
Categories: Hugleiðingar, Minningarbrot
- Published:
- April 18, 2006 – 12:52
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Greinilega er sumarið komið í Laugarnesið, í sextánda skiptið síðan ég fluttist hingað. Táningarnir komnir með föst stæði framan við hverfissjoppuna, allt brjálað að gera í versluninni, allir íbúar virðast sammála um að nú sé tíminn til að grilla. Bílar standa með allar dyr opnar, fólk liggur hálft inni í þeim og bisar við að [...]
Categories: Minningarbrot, Myndir af Laugarneshverfi
- Published:
- April 17, 2006 – 21:09
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég fór skyndilega að velta fyrir mér, eftir að ég las þessa færslu hjá Hjördísi, að ég hef búið í Laugarneshverfinu í að verða sextán ár. Þaráður bjuggum við í Gnoðarvogi 38, í eitthvað um fjögur til fimm ár í heildina. Af tveimur síðustu árunum sem við bjuggum þar eyddum við einu og hálfu á [...]
Categories: Minningarbrot, Myndir af Laugarneshverfi
- Published:
- April 2, 2006 – 18:35
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þegar ég var lítill var starfrækt leikfangaverslun hér á Laugarnesveginum, í sama húsi og kaupmaðurinn í Laugarneskjöri var. Oftastnær var verslun þessi lokuð og fór ýmsum sögum af ástæðu þess. Sú skýring sem vinsælust var meðal okkar krakkanna var sú að verslunareigandinn væri í raun glæpon og verslunin væri aðeins skálkaskjól fyrir myrkraverk hans og [...]
Categories: Minningarbrot
- Published:
- March 21, 2006 – 14:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Líklega hef ég verið sjö ára þegar ég vann mínar fyrstu deilur. Þá var ég á skóladagheimili og deilurnar snerust um hvort Ísland væri eyja eða ekki. Rök hans voru þau að Ísland héti Ísland en ekki Íseyja, auk þess að hann væri eldri en ég. Mín rök voru þau, að bróðir minn segði að [...]
Categories: Minningarbrot
- Published:
- November 21, 2005 – 17:11
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í Piacenza átti bróðir minn vin sem hét Ricardo Anselmi, og fjölskylda hans var vinafólk okkar. Einn daginn var okkur boðið í fermingu Ricardos, vegna þess að sá siður er tilhafður innan rómversk-katólsku kirkjunnar, að börn fermist 8 til 9 ára. Ég var þvísemnæst ótilfáanlegur að fara, þartil faðir minn sagði mér að Ricardo yrði [...]
Categories: Minningarbrot
- Published:
- November 21, 2005 – 14:25
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég minnist þess einn daginn, þegar ég var fjögurra til fimm ára og bjó á Ítalíu, að ég lenti í rifrildi við vin minn jafngamlan. Sá hét Simone Bulla og hafði áreiðanlega búið lengur en ég á Ítalíu. Heiður minn, að því er ég hef sjálfsagt talið, leyfði mér samt ekki að lúta í lægra [...]
Categories: Minningarbrot
- Published:
- November 16, 2005 – 17:49
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég mundi skyndilega eftir einum af fyrstu skóladögunum mínum í Langholtsskóla áðan þegar ég var að keyra eftir vegi þeim er kenndur er við sama holt. Þá var bekkurinn, hvaða tilgangi sem það þjónaði, á rölti með kennaranum okkar Dídí (minnir mig) upp Langholtsveginn. Hinum megin við götuna, skáhallt á móti skúr gangbrautarvarðarins (sem stendur [...]
Categories: Minningarbrot
- Published:
- November 10, 2005 – 15:38
- Author:
- By Arngrímur Vídalín