Wie Todesahnung Dämmrung deckt die Lande,
umhüllt das Tal mit schwärzlichem Gewande;
der Seele, die nach jenen Höhn verlangt,
vor ihrem Flug durch Nacht und Grausen bangt.
Da scheinest du, o lieblichster der Sterne,
dein Sanftes Licht entsendest du der Ferne;
die nächt’ge Dämmrung teilt dein lieber Strahl,
und freundlich zeigst du den Weg aus dem Tal.
O du, mein holder Abendstern,
wohl grüßt [...]
Categories: Tónlist
- Published:
- September 5, 2010 – 23:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Bölvanir hafa gegnum mannkynssöguna lagst yfir heilu löndin og ættliðina, stundum hafa þær hvílt á verðmætum gripum og jafnvel einstaka gæluverkefnum. Hollywood hefur séð sinn skerf af slíkum bölvunum að menn segja og líklega er frægust þeirra sú sem sögð er hvíla á Supermanvörumerkinu (George Reeves, Christopher Reeve – tilviljun?).
Ein þeirra bölvana sem Hollywood [...]
Categories: Kvikmyndir, Þjóðsögur
- Published:
- August 12, 2010 – 22:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hinn stórmerki vinur minn og hellenophil Ásgeir Berg benti mér um daginn á Bechdelstaðalinn fyrir ásættanlegt kynjahlutfall í kvikmyndum, sem Alison Bechdel setti fram í teiknimyndasögu sinni Dykes to Watch Out For. Staðallinn sem prófa má eftir felst í þrem einföldum liðum. Kvikmynd skal hafa:
1. Tvær (nafngreindar) kvenpersónur
2. sem tala saman
3. um eitthvað annað en [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Femínismi., Kvikmyndir, Menning og listir
- Published:
- August 3, 2010 – 14:57
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í Morgunblaðinu í dag birtist pistill eftir Guðmund Egil Árnason sem ber heitið Misskilningur í íslenskri menningu, sem er einmitt sérstakt áhugamál hjá mér. Að mörgu leyti er pistillinn ágætis áminning um þann tvískinnung sem felst í óhóflegri málvernd, einsog þeirri sem stunduð er af „íslenskum menningarstofnunum“, einsog hann kemst að orði. Þar nefnir hann [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Tungumál / málfræði, Íslenska
- Published:
- July 29, 2010 – 16:51
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það hlýtur að teljast til nokkurra útgáfutíðinda að út komi ný bók eftir Þórberg Þórðarsson! Áskrifendur í Klassíska kiljuklúbbnum munu fyrstir manna berja augum rit sem fengið hefur titilinn Meistarar og lærisveinar en bókin sú er byggð á „stóra handritinu“ hans Þórbergs sem er að líkindum uppkast að þriðja bindi skáldævisögu hans. Verkið er skrifað [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- July 22, 2010 – 12:39
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í gærkvöldi hitti ég þýsku menningarblaðamennina Kai Müller og Marcel Krueger frá Sonic Iceland á Hressó þar sem við ræddum um íslenska bókmenntageirann (smellið á hlekkinn til að lesa meira og sjá gullfallega mynd af mér).
Settling in the beer garden, while the rain was lashing down on the canopy above our heads, we had a [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Fjölmiðlar, Menning og listir
- Published:
- June 10, 2010 – 15:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Marga daga í röð hef ég rekið augun í Bjarnfreðarson á DVD, haganlega útstilltum og á misgóðu verði. Svona freistingar stenst ég bara einfaldlega ekki og keypti myndina í dag. Ef eitthvað er kalla ég mig góðan að hafa haldið í mér svona lengi fremur en hitt, þetta er enda efni sem á (vonandi) eftir [...]
Categories: Greinar, Kvikmyndir, Pólitík
- Published:
- May 27, 2010 – 17:27
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Árið 1952 skrifaði Sigfús Daðason grein í Tímarit Máls og menningar sem nú er kennd við Háskóla Íslands sem undirstöðurit í skilningi okkar á módernísku skáldunum á Íslandi á fyrrihluta 20. aldar og þeim forpokaða og stirnaða heimi sem mætti viðleitni þeirra. Tilefni greinarinnar var gagnrýni á atómkveðskapinn svokallaða, til að orða það pent, með [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Greinar, Menning og listir
- Published:
- May 16, 2010 – 20:27
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef alltaf jafn gaman að því þegar menntskælingar koma á bókasafnið og biðja um Íslendingasögur á nútímaíslensku. Skelfingarsvipurinn á þeim þegar ég segi þeim að þetta sé nútímaútgáfan.
Ég held það sé of mikið gert úr því að það sé á færi Íslendinga að lesa handritin. Það er það bara almennt ekki. Samt er talað [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Háskólablogg, Vinnan
- Published:
- September 11, 2009 – 22:04
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef oft staldrað við bækur Einars Pálssonar um íslenskt þjóðveldi og goðafræði á bókasafninu, velt fyrir mér hvers vegna enginn talaði um þær í íslenskuskor en aldrei árætt að lesa neina þeirra. Þær eru svo margar, efni þeirra svo fjölbreytt (að því er virtist) og titlarnir gáfu ekki beinlínis miklar vísbendingar um innihaldið.
Svo í [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Háskólablogg, Þjóðsögur
- Published:
- September 9, 2009 – 20:37
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nú býðst lesendum Bloggsins um veginn að lesa Endurómun upphafsins endurgjaldslaust á netinu. PDF-skjalið er aðgengilegt hér.
Þá vek ég einnig athygli á því að upplýsingar um bækurnar mínar má finna hér, eða á spássíu hægra megin undir um bækurnar.
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- August 20, 2009 – 20:17
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nú í kvöld var fimmtu alþjóðlegu ljóðahátíð Nýhils þjófstartað með koverljóðakvöldi á Grand rokk. Á morgun verður hátíðin hinsvegar formlega sett í Norræna húsinu við hátíðlega athöfn klukkan fimm og um kvöldið klukkan níu verða sýnd myndljóð. Á föstudags- og laugardagskvöld verða upplestrar. Nánari upplýsingar um hvar og hvenær og hverjir lesa og hvaðeina fást [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Menning og listir
- Published:
- August 20, 2009 – 00:09
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hvet lesendur eindregið til að hlusta á þennan merkilega hlaðvarpsþátt. Mér þykir ég raunar alveg skelfilega illa reprisenteraður, nýt nær engrar athygli þáttastjórnenda meðan Loðmfjörð, Guttesen, Norðdahl og Lilliendahl þiggja meiriháttar hýðingar. Í öllu falli hlýt ég að krefjast þess að fá meiri dagskrártíma síðarmeir.
Að því sögðu vil ég biðja þær tvær manneskjur sem [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Fjölmiðlar, Menning og listir
- Published:
- March 25, 2009 – 01:15
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nei heyrið mig nú! Það er víst búið að finna og ídentífíkera hræið af henni Anastasíu minni. Og það fyrir tæpu ári. Mun nú vera búið að sameina Romanovfjölskylduna alla í sameiginlegum grafreit.
Ég er sjokkeraður yfir að hafa fyrst komist að þessu núna. Ekki fannst íslensku miðlunum þess virði að færa mér þessar fréttir fyrst [...]
Categories: Kvikmyndir, Saga
- Published:
- March 23, 2009 – 01:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég vil benda á það litla atriði, sbr. þessi frétt, að berserkjavígunum er bæði lýst í Víga-Styrssögu, og þarmeð Heiðarvígasögu, og Eyrbyggju. Það bætir ekki fyrir þau mistök að gefa rangt fyrir Víga-Styrssögu, en svar Kópavogsliðsins var engu að síður rétt líka.
Réttlætingin er þá væntanlega sú að Víga-Styrssaga hafi ekki verið sagan sem leitað var [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- March 17, 2009 – 18:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Jón Örn kemur með góða ábendingu á bloggsíðunni sinni: Síðasta ljóðabók Sjóns er ekki skrifuð af mönnum sem kunna skil á ritverki Sjóns eða hafa stúderað hann á nokkurn einasta hátt, utan að hafa gripið niður í ljóðasafn hans.
Samt hafa allir skirrast undan að fjalla um hana – á þeim forsendum að þeir þekki einfaldlega [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- March 10, 2009 – 22:05
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í Lesbók laugardagsins birtist alveg frámunalega léleg grein eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson undir heitinu Við skulum ekki skilja aftur. Fyrir neðan titilinn stendur:
„Hin trúarlega No More Shall We Part er líklega vanmetnasta plata Nick Cave & The Bad Seeds“
sem kemur mér á óvart enda veit ég ekki til annars en hún hafi hlotið gríðarlegt lof [...]
Categories: Fjölmiðlar, Tónlist
- Published:
- March 2, 2009 – 20:15
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Varir okkar hafa gróið saman
utanum tvö lítil og skrítin dýr
sem iða af ást og njótast
inní heitum og rauðum heimi
sem varir okkar hafa lokast um
- Ari Jósefsson, úr Nei, 1961.
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- February 24, 2009 – 22:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er með stóra spurningu við heimildarmyndina The Bridge.
Myndin fjallar um sjálfsvíg við Golden Gate brúna. Í myndinni eru u.þ.b. átta sjálfsvíg fest á filmu (eftir að þetta var skrifað sé ég að Wikipedia segir 19 – ég hlýt að hafa athyglisbrest), og að mig minnir þrjú stöðvuð. Rammafrásögn myndarinnar er eitt tiltekið sjálfsvíg. Við [...]
Categories: Kvikmyndir
- Published:
- February 10, 2009 – 00:33
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér virðast margir bloggarar orðnir æstir vegna árvissrar fréttar um listamannalaun í dag (af hverju enginn fyrtist fyrr við veit ég ekki). Þá er Hallgrímur Helgason oft sérstaklega nefndur, Baugur og annað álíka. Skoðanir listamanna, yrtar eða óyrtar, eru semsé skyndilega farnar að þykja tilefni til að ríkið hætti að styrkja þá.
Ef dagskipunin á að [...]
Categories: Menning og listir
- Published:
- February 6, 2009 – 17:48
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mig vantar að kaupa – eða þiggja gefins – nokkrar bækur eftir Sjón, helst harðspjalda með rykkápu. Kiljur koma einnig til greina en síður (kiljur eru fyrir skóla, harðspjalda til eignar og endingar).
Augu þín sáu mig
Með titrandi tár – glæpasaga
Stálnótt
Áhugasamir svari þræðinum.
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- January 14, 2009 – 20:28
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þrátt fyrir meðfædda bölsýni, sem fær mig til að trúa ótrúlegustu hlutum, virðist mér ekki hafa tekist að láta reka mig úr háskólanum. Ég byrja því að sanka í BA ritgerð eftir helgi – og tileinka mér hin eilífu vísindi orðmyndunar- og beygingarfræða. Held að Jóhannes Gísli eigi eftir að sakna mín næsta vetur.
Hinsvegar trúði [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Háskólablogg, Úr daglega lífinu
- Published:
- January 8, 2009 – 17:38
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá er ég kominn út úr skápnum með nýjustu bókina mína. Við Jón Örn Loðmfjörð skrifuðum hana saman, upplýsingar um hana má finna hér, smellið á kápuna.
Þess má geta að hún kostar aðeins 490 krónur í næstu bókabúð – nánar tiltekið á Laugavegi, í Austurstræti og í Iðu.
Þess má einnig geta að fjölmiðlar hafa hingað [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- January 7, 2009 – 21:29
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Og nú þegar víkingarnir liggja í valnum og ekki dugir neitt minna en hrækja á hræin er þegar búið að finna arftaka þeirra sem verðugir eru sæmdarheitisins „víkingar“.
Jú, það eru rithöfundar. Og hvaða rithöfundar? Arnaldur Indriðason, Ævar Örn Jósepsson, Yrsa Sigurðardóttir og Árni Þórarinsson. Semsé rjómi stéttarinnar. Vantar bara Birgittu Halldórs. Jú, og svo er [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Fjölmiðlar
- Published:
- January 4, 2009 – 20:33
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Vi kan godt opfatte retoriske virkemidler som redundans, som fyld er skal påvirke ved sin flothed eller skønhed, men vi må stadig huske at det litterære indhold i teksten ikke er det samme som det logiske indhold.“
Mér þykir leitt að geta ekki vísað til heimildar þar sem þetta er bara dreifildi sem við fengum í [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- December 11, 2008 – 00:43
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Höldum okkur við vídjóljóðin í bili.
Jón Sigurðsson frelsishetja flytur Kreppusonnettuna, eftir Eirík Örn Norðdahl:
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- December 5, 2008 – 03:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hvað á maður svosem að skrifa hérna?
Ég er talsvert að pæla í ljóðlist þessa dagana, takmörkum hennar sumpart, en fyrst og fremst möguleikum ljóðlistar. Án þess endilega að leita að niðurstöðu. Sem er skemmtilegt.
Án þess að orðlengja það vil ég vísa hingað og þarmeð gera ofansagt að formála fyrir síðasta prójekt Lomma.
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- December 3, 2008 – 22:01
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
herbergið hvítkalkað
og tómt
rakinn áttatíu prósent
þú sast á rúmbríkinni
og lést sæðið
drjúpa úr þér á nakið gólfið
og það dropaði úr krananum
inná baði:
drip drip drip…
einsog angurvær barnsgrátur
utanaf götunni
og tár þín María
tár þín
- Jón Gnarr.
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- November 27, 2008 – 18:27
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er ekki laust við að mér líði einsog svindlara innanum þessa menn.
Þetta er ekki síður skringilegt.
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- November 27, 2008 – 02:36
- Author:
- By Arngrímur Vídalín