Ég er að lesa Bodies that Matter eftir Judith Butler, bók sem ég hafði lesið stóra glefsu úr í grunnnámskeiði um strauma og stefnur í bókmenntafræði. Mér fannst lítið mál á sínum tíma að lesa þetta en núna hnýt ég frekar um ýmis atriði í textanum. Það er þetta einkenni póststrúktúralískrar heimspeki að nefna alltaf [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- May 7, 2013 – 12:58
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Gamall maður kemur með hundi sínum innanúr hrauni og geingur í veg fyrir lestamenn:
Og hverjir eru mennirnir?
Hinn feiti svarar: Ég er hans majestets bífalíngsmaður og prófoss.
Óekkí, muldraði gamli maðurinn hás einsog rödd úr fjarska. Skaparinn er nú samt sá sem ræður. – HKL
Ég er svona náungi sem vakir á næturnar með samviskubit og les kennslubækur [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- March 3, 2013 – 00:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það hefur stundum orðið vart við undrun fólks yfir orðatiltækinu að sjaldan falli eplið langt frá eikinni, því auðvitað vaxi ekki epli á eikartrjám. Iðulega er bent á að í íslensku sé þetta einfaldlega látið stuðla sem títt er hér á landi, sem ekki er gert í t.d. ensku þar sem sams konar hugsunarvilla kemur [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Tungumál / málfræði, Íslenska
- Published:
- February 12, 2013 – 16:32
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég skil ekki hvernig ég hef komist svona langt í námi án þess að hafa lesið meira. Samt er mér fyllilega ljóst alltaf þegar ég les nýja bók hvar ég er ósammála höfundi og hvar ekki, og gæti skrifað heila ritgerð um forsendur mínar í hvert sinn. Fræðirit eru ígrundaðar ályktanir kollega minna sem oftast [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Námið
- Published:
- January 30, 2013 – 06:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það getur verið gaman að fylgjast með umræðum á Facebook. Nú er ég til að mynda hæfilegur aðdáandi Einars Kárasonar sem þó nýverið lét í ljós þá þekkingarfræðilegu afstöðu að hafi „dr. phil. Helgi Guðmundsson“ sýnt fram á eitthvað sem Einar er sammála þá hljóti það að vera rétt, en andmæli Viðar Hreinsson því þá [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- January 10, 2013 – 18:19
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er afskaplega heppinn maður. Það er ekkert svo langt síðan ég hætti að gera kröfur um að fá mikið í lífinu og fór að gera meiri kröfur til sjálfs mín í staðinn (segi ég og hljóma einsog pseudóintellektúalinn Paulo Coelho), en síðan þá hef ég fengið meira en mér finnst ég í raun hafa [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- January 8, 2013 – 22:56
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Að skipta úr Edgar Allan Poe yfir í Rudyard Kipling er einsog að koma ofan af Vatnsskarði í blindbyl niður í Skagafjörð um sumar. Þar á ég við ritstílinn en ekki efnið. Öll viðbrögð ég-sins (allar söguhetjur Poes eru ég) í The Fall of the House of Usher (ekki „tónlistarmannsins“) eru yfirdrifin, úr samhengi við [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Kvikmyndir, Námið, Saga
- Published:
- January 3, 2013 – 23:03
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hvað er skrímsli? Sé íslenska orðinu slegið upp í Google finnur maður myndir úr skrímslabókum Áslaugar Jónsdóttur og Disneymyndinni Monsters Inc., en einnig koma fram myndir af einni ófreskjunni úr myndinni El laberinto del fauno og meintu skrímsli sem skolaði upp í fjöru í Montauk fyrir fjórum árum sem ég fæ ekki betur séð en [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Kvikmyndir, Námið, Saga, Trú, Þjóðsögur
- Published:
- January 2, 2013 – 21:09
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Leslistar eru merkileg fyrirbæri. Ég get sett saman svoleiðis lista og fundist alveg augljóst samhengi á milli verkanna, jafnvel að rannsóknarefnið hljóti öllum að vera dagljóst sem sjá hvað ég les, en þannig er það auðvitað ekki. Fyrir hverjum og einum hafa slíkir listar ólíka merkingu, jafnvel enga merkingu. Ef ég segði að ég hefði [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Námið
- Published:
- January 2, 2013 – 17:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Bloggið er hinn nýi tjáskiptamiðill er hinn gamli tjáskiptamiðill. Einu sinni þótti bloggið sjálfhverft. Það var löngu fyrir daga Facebook.
Ég held ég taki Ingólf mér til fyrirmyndar og bloggi hugleiðingar mínar um ýmis viðfangsefni mín. Eða – ég hef lengi ætlað mér að gera það, og var byrjaður að ætla að gera það enn einu [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Kvikmyndir, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- January 1, 2013 – 23:54
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Íslendingabók Kára hefur ekki efni á því að vera kresin á heimildir þegar kemur að allra elstu ættartengslum á Íslandi. Á bláþræði framætta strandar allt að lokum á einni heimild og þess vegna eru fornaldarsögur Norðurlanda til dæmis á meðal heimilda Íslendingabókar. Þar af leiðandi leyfir ættfræðin mér sitthvað sem sagnfræðin gerir ekki: til dæmis [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Námið, Saga
- Published:
- November 20, 2012 – 13:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég fór óvart að fantasera á Facebook um að eignast fræðilega útgáfu á Biblíunni. Best væri ef Hið íslenzka bókmenntafjelag stofnlegði ritröðina Erlend fornrit að fyrirmynd Íslenzkra fornrita. Þess í stað höfum við þýðingar Lærdómsritanna, sem að ósekju mætti gera að hardkor fræðilegri útgáfu án þess að almennir lesendur yrðu nauðsynlega fældir frá.
Og nógu déskoti [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Námið, Saga, Trú, Úr daglega lífinu
- Published:
- October 8, 2012 – 21:30
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mig langar að verða duglegri við að setja inn ýmiss konar hugleiðingar hér, almenns efnis, námsefnis og svo framvegis. Til að mynda rámaði mig snögglega í það – meðan ég beið eftir espressókönnunni rétt áðan (ég drekk kaffi á kvöldin) í samræðu við Eyju um hina karlmiðuðu sögu (ég bjó til þennan Jón Sigurðsson sem [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Femínismi., Minningarbrot, Námið, Saga
- Published:
- October 2, 2012 – 20:55
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nú þegar Páll Baldvin lætur af störfum í Kiljunni og á Fréttatímanum, þar sem hann gagnrýndi jafnan sömu bækur fyrir báða miðla, segist hann vera alveg gáttaður á því að rithöfundar hafi ekki kvartað undan meðferðinni sem þeir hafa fengið í fjölmiðlum, meðal annars hjá honum sjálfum. Bíðum nú hæg. Við höfum bara víst kvartað [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Fjölmiðlar
- Published:
- September 28, 2012 – 16:15
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
- Published:
- June 12, 2012 – 21:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Við vitum öll hvað í vændum er þótt enginn vilji horfast í augu við það. Fólk lýgur að sjálfu sér, leiðir hið óhjákvæmilega hjá sér, segir við sjálft sig að þetta muni fjandakornið aldrei verða – við sjálft sig, vegna þess að það vogar sér ekki einu sinni að impra á því við aðra manneskju. [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Fjölmiðlar, Kreppan, Kvikmyndir, Pólitík, Úr daglega lífinu
- Published:
- May 2, 2012 – 17:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Á hverri árshátíð Mímis, félags stúdenta í íslenskum fræðum, eru flutt minni bæði karla og kvenna. Fyrsta veturinn minn í íslenskunni var ég beðinn að flytja minni kvenna. Oft hefur fólk rifjað þetta upp við mig í samræðum og hvatt mig til að birta ræðuna sem fræg sé að endemum, einhverra hluta vegna. Og nú [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Femínismi., Greinar, Menning og listir, Námið, Saga, Tungumál / málfræði, Íslenska
- Published:
- April 30, 2012 – 20:55
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef ákveðið að orðræðu- og innihaldsgreina nokkrar vinsælar myndasögur nákvæmlega. Hér eru niðurstöðurnar hingað til. Þær eru hafnar yfir vísindalegan vafa: nákvæmlega svona eru allar sögur hvers myndasöguflokks (92% vikmörk). Smellið á myndirnar til að stækka.
Grettir: Jón á kött sem borðar, sérstaklega það sem hann á ekki að borða.
Ívar grimmi / Hrólfur hræðilegi: Víkingur [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- April 14, 2012 – 17:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í rannsóknum á yfirnáttúru á miðöldum kemst maður í tæri við ýmislegt. Mörkin milli hins yfirnáttúrlega og þess djöfullega verða óskýrari því trúarlegri sem textinn er, og eitthvert mest hrollvekjandi dæmið um slíka frásögn er í Jóns sögu, þar sem segir frá því þegar heilt kirkjufylli af uppvakningum réðist á Guðrúnu „kirkjukerlingu“ á 12. öld.
Ýmis [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Saga, Trú
- Published:
- March 1, 2012 – 16:55
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Síðasta ljóðabók Sjóns eftir okkur Jón Örn Loðmfjörð.
Kápa: Fanney Sizemore
Um bókina segir aftast:
bókin er skrifuð á stuttum tíma í draumi þann fjórða desember tvöþúsundogátta eftir neyslu átta kaffibolla og tuttuguogþriggja sígarettna í herbergi troðfullu af silfurskottum ljóðabókum sjóns úrklippum úr morgunblaðinu íslenskri orðabók og farsíma sem hringdi aldrei þakka þeim sem [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- April 25, 2011 – 15:55
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Síðastliðinn föstudag brá ég mér á málþing Miðaldaleshringsins sem bar yfirskriftina „Alkoholkultur i middelalderen“. Þar fræddist ég meðal annars um það að á 15. öld þótti drykkja keyra svo úr hófi í danskri þinghelgi að brugðið var á það ráð að flytja bæði Héraðs- og Landsþing úr borg í sveit, svo þau gætu starfað í [...]
Categories: Aarhus, Bækur / Bókmenntir, Saga, Úr daglega lífinu
- Published:
- April 4, 2011 – 21:56
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Á náttborðinu mínu um jólin var að finna tvær bækur eftir indverska heimspekinginn Jiddu Khrisnamurti, Fátækt Fólk eftir Tryggva Emilsson, en Lífsleikni Gillz var þar líka.
[...]
Ég skil ekki fólk sem þarf að hefja sig yfir það sem þeim ekki líkar. Ég geri mitt og þú gerir þitt. En mitt er ekki fínna eða merkilegra.
Ég [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Femínismi., Fjölmiðlar, Menning og listir
- Published:
- February 11, 2011 – 17:33
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hugsa að það sé óvinsælt að endurbirta efni af Hugsandi, svo ég tengi bara héðan í grein sem ég var að birta þar:
§ Fyrsti hluti.
§ Annar hluti.
Opið er fyrir athugasemdir á báðum stöðum ef einhver vill rífast.
- Þess má geta til gamans að þessi færsla er skrifuð um borð í skipi úti á Kattegat.
Categories: Bækur / Bókmenntir, Greinar, Saga
- Published:
- February 3, 2011 – 18:35
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég fann þetta óvænt í tölvunni minni. Þessi grein átti að birtast í Tíuþúsund tregawöttum í ársbyrjun 2009 minnir mig, en það hefti var aldrei gefið út. Fannst allteins gott að henda henni inn hérna þar sem efni hennar á jafnmikið erindi nú og þá.
1. Skáldið í ljóðinu
Mér er minnisstætt þessa dagana ljóð sem Hallur [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Greinar
- Published:
- January 24, 2011 – 12:33
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hinn stórmerki vinur minn og hellenophil Ásgeir Berg benti mér um daginn á Bechdelstaðalinn fyrir ásættanlegt kynjahlutfall í kvikmyndum, sem Alison Bechdel setti fram í teiknimyndasögu sinni Dykes to Watch Out For. Staðallinn sem prófa má eftir felst í þrem einföldum liðum. Kvikmynd skal hafa:
1. Tvær (nafngreindar) kvenpersónur
2. sem tala saman
3. um eitthvað annað en [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Femínismi., Kvikmyndir, Menning og listir
- Published:
- August 3, 2010 – 14:57
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í Morgunblaðinu í dag birtist pistill eftir Guðmund Egil Árnason sem ber heitið Misskilningur í íslenskri menningu, sem er einmitt sérstakt áhugamál hjá mér. Að mörgu leyti er pistillinn ágætis áminning um þann tvískinnung sem felst í óhóflegri málvernd, einsog þeirri sem stunduð er af „íslenskum menningarstofnunum“, einsog hann kemst að orði. Þar nefnir hann [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Tungumál / málfræði, Íslenska
- Published:
- July 29, 2010 – 16:51
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það hlýtur að teljast til nokkurra útgáfutíðinda að út komi ný bók eftir Þórberg Þórðarsson! Áskrifendur í Klassíska kiljuklúbbnum munu fyrstir manna berja augum rit sem fengið hefur titilinn Meistarar og lærisveinar en bókin sú er byggð á „stóra handritinu“ hans Þórbergs sem er að líkindum uppkast að þriðja bindi skáldævisögu hans. Verkið er skrifað [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- July 22, 2010 – 12:39
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í gærkvöldi hitti ég þýsku menningarblaðamennina Kai Müller og Marcel Krueger frá Sonic Iceland á Hressó þar sem við ræddum um íslenska bókmenntageirann (smellið á hlekkinn til að lesa meira og sjá gullfallega mynd af mér).
Settling in the beer garden, while the rain was lashing down on the canopy above our heads, we had a [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Fjölmiðlar, Menning og listir
- Published:
- June 10, 2010 – 15:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Árið 1952 skrifaði Sigfús Daðason grein í Tímarit Máls og menningar sem nú er kennd við Háskóla Íslands sem undirstöðurit í skilningi okkar á módernísku skáldunum á Íslandi á fyrrihluta 20. aldar og þeim forpokaða og stirnaða heimi sem mætti viðleitni þeirra. Tilefni greinarinnar var gagnrýni á atómkveðskapinn svokallaða, til að orða það pent, með [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Greinar, Menning og listir
- Published:
- May 16, 2010 – 20:27
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef alltaf jafn gaman að því þegar menntskælingar koma á bókasafnið og biðja um Íslendingasögur á nútímaíslensku. Skelfingarsvipurinn á þeim þegar ég segi þeim að þetta sé nútímaútgáfan.
Ég held það sé of mikið gert úr því að það sé á færi Íslendinga að lesa handritin. Það er það bara almennt ekki. Samt er talað [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Háskólablogg, Vinnan
- Published:
- September 11, 2009 – 22:04
- Author:
- By Arngrímur Vídalín