Category Archives: Kreppan

TOEFL-próf 3

Einsog lesendum Bloggsins um veginn ætti að vera kunnugt er ég á leiðinni til Árósa í framhaldsnám næsta haust. Umsókn um háskólavist erlendis fylgir einsog við mátti búast óhemjumikið pappírsflóð sem þarf tiltekið marga hornrétta stimpla ofaná undirskriftir kontórmeistara og handhafa réttra prókúra auk ýmissra annarra skilyrða og formsatriða sem uppfylla þarf.
Eitt af þessum skilyrðum [...]

Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar 7

Ég var búinn að lofa sjálfum mér því að ég myndi ekki blogga um þetta Icesavemál en nú þegar niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar liggur fyrir og einsýnt er að hver og einn ætlar að túlka hana sér í hag get ég ekki á mér setið að koma þeim skilaboðum á framfæri að öll hafa þau rangt fyrir [...]

Hin hryllilega skattagleði 3

Lágmarksframfærsla sveitarfélaga eru 115 þúsund krónur á mánuði. Hún er veitt þeim sem ekki hafa rétt á atvinnuleysisbótum. Um 4600 íbúar Reykjavíkur þiggja framfærslu til að lifa af út mánuðinn og gætu ekki verið án.
Þessa framfærslu vill meirihlutinn í Reykjavík skerða, enda bara enn einn liðurinn í áætlun Hönnu Birnu borgarstjóra um að hækka ekki [...]

Laugardagsvakt 1

Laugardagsvaktir eru hressandi, en þá kemst maður ekki á mótmæli. Ég treysti því að þið látið þau heyra það fyrir mína hönd.

Næsta skref 2

Viljið þið breytingar? Þá er svarsins að leita hjá fjölmiðlum. Þetta er afskaplega einfalt: Næst þegar ráðamenn boða til blaðamannafundar, ekki mæta. Fólk sem hefur ekki umboð til að stjórna landinu getur boðað til allra þeirra blaðamannafunda sem þeim sýnist, en það þýðir ekki að nokkur þurfi að mæta, eða að það verði tekið alvarlega. [...]

Nei, kommon! 0

Á ég að trúa því að þetta bréf sé ekki uppspuni? Hvaða auli sem er getur búið svona til, og þetta er nú einum of. Mér er svo mikið um að ég næ varla andanum. Ef þetta er satt, hverslags eiginlega andskotans viðrini eru þessir menn þá!

Háðung? 2

Nennir einhver að leiðrétta þennan mann? Mig skortir þrótt til að útskýra fyrir honum hvernig lýðræði á að ganga fyrir sig. Nema hann sé bara svona stoltur af því að búa í landi þar sem Flokkurinn ræður lögum og lofum.

Fráhvarf 0

Ég held ég hafi ekki fundið eitt einasta blogg um lögreglustöðvarmótmælin sem ég get tekið undir með. Og það er hreinlega bara ekki á þetta helvítis kraðak bætandi, svo ég sleppi því bara að segja nokkuð. Nema kannski þetta: Ég er orðinn ansi þreyttur á þessu rúllandi skoðanabrjálæði sem bloggheimar eru, og það er einsog [...]

Nei 7

Sumum finnst Steinar Bragi hafa boðað til blóðugrar byltingar með grein í dagblaðinu Nei á dögunum. Öðrum finnst Viðar Þorsteinsson hafa boðað til blóðugrar byltingar á Austurvelli á laugardaginn. Lesið greinarnar og metið það sjálf.
Það er skýlaus krafa þjóðarinnar að hreinsað verði úr Stjórnarráðinu, Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu og endurstokkað á Alþingi – ef þingið er [...]

Ha? 1

13.11.2008: ESB/EFTA: Sögðu sig frá gerðardómi
Þetta voru óaðgengileg skilyrði, segir Árni, og því sáum við enga aðra leið en að segja okkur frá ferlinu. Hann segir að viðræðum hafi ekki verið slitið og að allir geri sér grein fyrir því hve málið sé mikilvægt. Hann segir þetta vonbrigði en útilokað hafi verið að ganga að [...]

Kæra dagbók 1

Í dag komst ég að því að ég tók myntkörfulán fyrir bílnum mínum.
Ég man að ég var spurður með mikilli söluræðu hvort ég vildi ekki taka slíkt lán, minnist þess þó ekki að hafa verið svo vitlaus að jánka, en hvað man maður svosem. Það eru jú heimskupörin sem stöðugt minna á sig fremur en [...]

Lánleysi Íslendinga 1

Það er ekki hægt að treysta einu einasta orði sem fram kemur í fjölmiðlum. Skilaboðin eru svo æði mörg og misvísandi að það stendur varla steinn yfir steini. Þetta er bara ein tilraun til að greina ástandið.
Bresk og hollensk stjórnvöld eru sögð kúga Íslendinga með því að standa í vegi fyrir skrímslalegri skuldsetningu þjóðarbúsins gegnum [...]

Nú krossleggur maður fingur 0

Frá: Einar Ólafsson
Fyrirsögn: Staðan í efnahagsmálum
Kjarasamningur St.Rv. við Reykjavíkurborg rann út um síðustu mánaðamót.
Samningaviðræður hófust 30. september. Um miðjan október óskaði samninganefnd Reykjavíkurborgar eftir hléi á viðræðum vegna óvissu í fjármálum borgarinnar, en Reykjavíkurborg hefur m.a. fundað með öðrum sveitarfélögum um fjárhagsstöðuna og útlitið í efnahags- og atvinnumálum.
Síðan hafa viðræður að mestu legið niðri en [...]