Category Archives: Hugleiðingar

Enn af Árósum – og umferðarmenningu 2

Eitt það fyrsta sem fór að ergja mig þegar ég kom heim í síðustu viku er umferðarmenningin á höfuðborgarsvæðinu. Ég hef lengi haft þann draum að komið yrði á laggirnar léttlestakerfi eða metró á stór-Reykjavíkursvæðinu með miðstöð við Kringluna. Stoppin yrðu fá: Hamraborg, Garðatorg, Fjörður. Við Fjörð væri hægt að skipta yfir í lestina til [...]

Áhrif kreppunnar á bókasöfnin 13

Við sem vinnum við þjónustustörf þurfum að venjast því að endurtaka okkur oft yfir daginn. Frá því við færðum afgreiðsluaðstöðuna okkar um daginn hefur annar hver lánþegi – ég ýki ekki – sagt: Hva, bara alltaf verið að breyta!
Sum okkar hafa kosið að tala um hagræðingu, ég á hinn bóginn vil ekki heyra það orð [...]

Varúð – tenglafjöld 12

Harpa Jónsdóttir, sem skrifaði svo fallega um bókina mína í hittífyrra, á enn inni þakklæti mitt. Núna hefur hún búið til skólaverkefni um Póstkort í vesturbæinn úr sömu bók – aðgengilegt á vef Námsgagnastofnunar tileinkuðum Degi íslenskrar tungu. Verð að játa að það er skrýtið að sjá sjálfan sig á svona verkefnablaði. Hafi hún enn [...]

Sunnudagur 0

Ætli ég sé einn um að finnast það hálftilgangslaust að skrifa eitt aukatekið orð á þessa síðu?
Eins og ég heyrði af mótmælunum í gær varð ég afar ánægður með að Íslendingar væru hættir að láta valta yfir sig. Svo varð mér ljóst að þegar fjölmiðlar segja að mótmælendur hafi grýtt þinghúsið þýðir það að einhverjir [...]

Ljótt er veðrið 0

Hvað getur maður svosem sagt?
Jú, býsna margt. Ég á sjálfsagt eftir að hafa nóg um allt þetta að segja á næstunni, en þegar orkustöðvarnar eru fullnýttar á kvöldin og það eina sem maður hefur við rúmstokkinn til að ylja sér gegn ljótviðrinu úti er Beck’s og bókin sem ég fékk í pósti í dag (og [...]

Vandinn við leiðinlegt fólk 2

Hvort ætli sé meira óþolandi við leiðinlegt fólk sem kann að meta góða hluti, að maður hafi minni heimtingu á að finnast það leiðinlegt vegna smekks þeirra fyrir góðum hlutum, eða hvernig góðu hlutirnir virðast missa gildi sitt í kringum það smekks þeirra vegna?

Ilmar af gullnu glasi – Montefalco Rosso 2

Vitaskuld gat ég ekki látið undir höfuð leggjast þegar sú mæta skáldkona Sigurlín Bjarney skoraði á mig að smakka vín fyrir Arnar hjá Víni og mat. Það er víst til siðs að taka fram ef maður hefur reynslu á þessu sviði og tilkynni ég því hérmeð að ég get ekki kallað sjálfan mig vínfrömuð að [...]

Kynslóðaskiptin 6

Nú er ég ekki mikið fyrir að láta stimpla mig sem eitt eða neitt. En þetta n-kynslóðatal þykir mér nokkuð skrýtið ef marka má Wikipediu. Á einum stað segir hún að X-kynslóðin sé fædd 1965-1982 og Y-kynslóðin 1988-2000 á einum stað, 1980-1994 á öðrum stað. Þá stendur annarsstaðar:
Digital technologies began to emerge (in a mass [...]

Hýpóþetikal 3

Aðaluppistaðan í þeirri ansi hreint ósjarmerandi fæðu sem ég lifi á er kjöt. Nauta- og lambalundir er eitthvað það albesta sem ég fæ. Ég er ekki klár á því hvernig þessum skepnum er slátrað eða hverslags tól eru notuð til að búta þær niður til að færa mér vöðva þeirra á diski, löðrandi blóðuga með [...]

Telygaflensubók 5

Mér hefur loksins tekist að brugga mér marokkóte svo líkist frummyndinni. Í litla teketilinn frá mömmu set ég um fjórar alltof fullar teskeiðar af strásykri, svo set ég álíka jafnt magn af tei í síuna. Sykurinn bráðnar nær samstundis í vatnið áður en yfirborðið nær upp að síunni. Tvöfalt mall, svona í einhverjum skilningi, eins [...]

Salerni og samgöngur 5

Litla kynjafræðingnum innra með mér finnst það merkingarbært að konur og bekkir til bleyjuskipta deili jafnan salernum með hreyfihömluðum.
Raunar hefur mér lengi þótt þessi kynjaaðgreining á salernum vera blátt áfram fáránleg. Eða allt þar til einhver rökfræðisnillingurinn sagði mér að konu hefði verið nauðgað af útlendingum á salerni skemmtistaðar af því þar skorti aðgreiningu. Já, [...]

Seinleg athugun 2

Byssan gerir aldrei skyssan segir máltækið. Auðvitað gerði hann enga skyssu í stóra Morfísmálinu, það sem gert er að undirlögðu ráði getur varla flokkast sem mistök, þótt það sé ef til vill misráðið eftir á að hyggja. Mistök eru engin afsökun fyrir að vera hálfviti.
Hitt er svo annað að ef umræðurnar á vefsíðu téðrar Byssu [...]

Afmælishelgi afstaðin 5

Helgin var alveg frábær, ef ekki downright furðuleg … Þakka öllum hlutaðeigandi, ekki síst elsku vinkonum mínum í Sólheimasafni sem gáfu mér vöfflujárn í afmælisgjöf og spurðu strax áhyggjufullar hvort ég ætti nokkuð svoleiðis.
Jú, nokkrir glöggir lesendur urðu þess áskynja að ég aldraðist í vikunni. Jón Örn bendir á, réttilega að eigin mati, að ég [...]

Ef velkistu í vafa 6

Fór utan veikur, kom aftur frískur. Vaknaði veikur aftur, veikari en fyrr, sýnist stærri og stærri bitar úr nefinu fylgja með í hvert bréfsnifsi. Það er eitthvað við loftslagið hérna. Ég er veikur allan ársins hring nema rétt á meðan ég skrepp til útlanda. Ó, linið þjáningar mínar með koníaki á köldum aftni.
Á Íslandi um [...]

Piacenza 2

Hér er stórfurðulegt að vera. Stórfurðulegt. Er á leiðinni á djammið (eða það held ég …) með Riccardo Anselmi. Það eitt og sér er eins furðulegt og það verður. Vegna samgönguörðugleika neyðist ég til að fara fyrr en áætlað var og hanga í Bergamo heilan dag að drekka caffe corretto og þykjast skrifa nýjasta kafla [...]

Satie 2

Það er sammerkt með mörgum snillingum sögunnar að þeir voru ekki metnir að verðleikum tímanlega. Nú veit ég ekki hvort maðurinn spilaði svona hryllilega á píanó, en ég fullyrði að engum sem hefur hlustað á Gymnopédíur Saties myndi láta sér detta í hug að segja hann „klaufalegan þó fágaðan tekníker“. Sá sem sagði það hafði [...]

Miðbærinn 0

Nú brainstorma menn ógurlega um hvað beri að gera til að hleypa lífi í Austurstræti og Lækjartorg. Ég er með hugmynd:

Tekið af myndavef Ljósmyndasafns Reykjavíkur.

Litlu hlutirnir Comments Off

Litlu hlutirnir skipta öllu máli. Sú afstaða hefur komið nokkuð sjálfkrafa til mín að undanförnu.
Um daginn leit himinninn svona út.
Degi síðar komu svölurnar aftur til Capistrano.
Mitt í þessu öllu virðist á flestum stöðum vera að birta yfir. Það er kraðak allt um kring en gangnasjónin fer að vissu leyti minnkandi.
Hvort ég finni mig knúinn til [...]

Hvor Islændinger kan best li’ at købe Comments Off

Sannarlega eru danskir dagar, og ekki aðeins í Hagkaupum. Í hönd fer át alvöru dansks lasagne, eins og hin danska herraþjóð eldaði fyrr á öldum, hverju skolað verður niður með Slots, uppáhaldsöli sérhvers sanns konungsholls Dana. Ekki síst vegna þess hversu ódýr hann er. Carlsbergrónar verði dæmdir landráðamenn og skotnir.
Það er dálítið sérstakt, svo vikið [...]

Kyrrðin 2

Þegar maður horfir út yfir fannbreiðuna á sunnudagsmorgni finnst manni eins og aldrei aftur muni orð verða sögð.

Ætli hann snjói á Kilimanjaro? 1

Það vill svo til að áttin breyttist ekki hót allan tímann. Svo vill til að það snjóar í hina. Ber það í sér fyrirboða um betri tíð með blóm í haga? Látum það fara eftir hendingu.
Það er alltaf eitthvað skrýtið og torsótt handan við sjóndeildarhringinn, lýsist með orðinu kannski. Kannski það beri í sér fyrirboða [...]

2006, árið sem leið 2

Árið 2006 var dálítið eins og að eiga í reiptogi við ósýnilegan her, kippa einu sinni í en duglega, draga svo heilu hendurnar inn eins og fiska á færi. Allt sem ég gerði var eitthvað svo öfgakennt, fór einhvern veginn svo langt yfir strikið.
Að því sögðu gæti samlíkingin virst skrýtin ef litið er til þess [...]

Á milli daga Comments Off

Ég lýsi yfir að dagurinn í dag er sá dagur sem fellur á milli daga og er því ekki dagur í neinum skilningi. Þess vegna hlusta ég á In Between Days með Cure. Fann snert af eilífðinni á Brennslunni sem nú er yfirborðslaus á yfirborðinu, en það var kannski stundarbrjálæði. Enda eilífðin ekki til í [...]

Lífið er leikur Comments Off

Stóð fyrir stundu við suðurgluggann á íbúðinni og reykti. Í efsta glugga húsagarðsins á móti sá ég spegilmynd lítillar telpu hoppa á rúmi á fjórðu hæð hússins við hliðina. Hún hoppaði án afláts, og án sýnilegrar skemmtunar.
Það var undarlega róandi á að horfa. Og kannski er lífið einmitt spegilmynd af slíkum leik sem ætíð virðist [...]

Djamm segirðu? Comments Off

Í öllu falli var gærkvöldið áhugaverð mannlífsstúdía, þótt ekki yrði meira sagt. Skúli átti afmæli og óskist honum enn og aftur til hamingju með það. Ég fór raunar heim snemma vegna fullstífra lifraræfinga en endaði samt inni á skemmtistað í stutta stund, hafði í það allra minnsta vit á að drekka ekki neitt meðan ég [...]

Færslan sem vatt upp á sig Comments Off

Klukkan að ganga 10 gekk ég Hagamelinn úr heimsókn til Einars Arnar þar sem ég sótti hlut sem ég hafði (á afar vafasaman hátt) unnið í uppboði hans til styrktar börnum í suðaustur Asíu. Mér hefði í raun verið sama þótt hinn náunginn hefði fengið það, mann munar ekkert um smá peninga í þágu góðs [...]

Tunglið 2

Vesturbærinn er sérlega íslenskur staður sé miðað við hina hluta Reykjavíkur. Það er mjög sérstaka stemningu að finna hérna í engu skjóli frá norðanáttinni, í námunda við höfnina, innanum veðurbarin hús meðfram sjávarsíðunni og litlar götur sem norðurljósin lýsa upp í hvívetna. Það er mjög gott að ganga hérna um, litast um, skoða.
Á slíkri göngu [...]

Leiðrétting 2

Einhverjir munu hafa skilið síðustu færslu sem svo að ég væri að hnýta í Einar Má (!), svo greinilega er það ofsögum sagt að ég geti tjáð mig á skiljanlegri íslensku. Síðasta færsla segir, í sem fæstum orðum, að það sé kjaftæði að list eða fræði geti versnað af þau komast í tísku. Dæmi um [...]

Nietzsche-klisjan 11

Jæa, hér hefur ekkert verið sagt af viti í alltof langan tíma. Bæti ég úr því hérmeð ellegar verð að gjalti sjálfum mér til ævarandi sproksetningar í sérhverjum afkima mannfélagsins. Sjáum hvort gerist.
Það er fáránlega klisjukennt, þreytt og fíflalegt að vitna í Nietzsche, gæti maður haldið, kannski ekki síst eftir að Englar alheimsins varð skyldulesning [...]

Uppboðshúsið í eyðimörkinni 2

Undarleg tilfinning þegar strætóbílstjórinn yfirgaf vagninn orðalaust og hljóp inná Grandakaffi í andlega yfirhalningu. Einn inni í vagninum sat ég og horfði yfir höfnina á borgina hinumegin. Skrítið að ég hafi aldrei tekið eftir því áður að Grandinn stendur eiginlega utan þéttbýlis. Reykur sté upp frá borginni hér og hvar, datt ekkert í hug því [...]

Ó, Ísafold! 1

Fór í klippingu áðan. Austurevrópumaðurinn sem klippti mig alltaf er hættur og farinn austur fyrir tjald (skil hann vel) svo ég fékk þessa líka skemmtilegu stelpu og gleymdi mér í samræðum við hana. Svo mjög að ég sagði henni ekki hvorum megin ég skipti hárinu mínu, og hún klippti mig öfugt. Þetta verður eins og [...]

Drungi og djöfullegheit Comments Off

Það er eitthvað svo einkennilega drungalegt að horfa á regnið fljóta lárétt eftir glugganum mínum meðan skuggamyndir lauflausra trjáa hver ofan í annarri sveiflast til í taktleysi framan við ljósum logandi glugga húsanna á móti. Eins og það sé ekkert annað til í heiminum, trén verða að táknmynd hins illa í huganum. Myrkrið er þvílíkt [...]

Tilvitnun dagsins 2

Það er af mörgum ástæðum að ég bendi á grein Ingólfs Gíslasonar á Múrnum. Ein þeirra er þessi litla klausa sem fangar svo ótrúlega vel það sem ég hef lengi reynt að segja, greinin sjálf er svo orð í tíma töluð:
„Mörg sem læra til kennara heillast af svokallaðri fjölgreindarkenningu. Þau þykjast sjá að andlegir hæfileikar [...]

Stjörnuhrap Comments Off

Þegar tekur að dimma á norðurhveli vaknar einhver ósjálfráð hvöt inni í mér sem krefst þess að ég vaki á næturna. Hvers vegna veit ég ekki.
Rétt í þessu sá ég stjörnuhrap en óskaði mér einskis. Líklega er það einn fárra snertiflata ofmetnaðar og metnaðarleysis, að óska sér undir stjörnuhrapi; maður væntir þess þá að óskin [...]

Undarlegar draumfarir 4

Ég hrökk upp í morgun af nokkuð sérstökum draumi sem varð þó ekki að martröð fyrr en undir það allra síðasta. Hef hugleitt hann þónokkuð í dag án þess að komast að nokkurri niðurstöðu.
Flest þau sem þekkja mig ættu að vita að ég hef mikla tilhneigingu til að leyfa draumum að hafa áhrif á mig, [...]

Umræðan Comments Off

Skyndilega sprakk út í Bloggheimum eldheit umræða um trú á móti vantrú í kjölfar bakþankapistils Davíðs Þórs Jónssonar um téð efni.
Nú var það síst ætlun mín að blanda mér inn í þessa umræðu, en sú spurning brennur á mér hvort sé umræðan díalektísk í eðli sínu, eða a priori málaflækjur í ætt við það sem [...]

Um framtíðina 2

Arkaði frakkalaus af stað út í gamla vesturbæinn í léttu roki niður á Laufásveg þar sem beið mín bíll. Þaðan hélt ég í Kópavog að sækja frakkann sem gleymdist á Ísafirði í síðasta mánuði. Ísafjarðarlognið hefur fylgt frakkanum alla leið suður, því algjör stilla var komin á þegar ég skilaði bílnum af mér aftur.
Gekk í [...]

Kvöld Comments Off

Kvöld með hvítvíni og kveðskap í vændum. Njósnavélin með SigurRós glymur í tækinu.
Gærkvöldið var skrýtið /skrítið. Sömuleiðis skrautlegar stemningar sem svífa yfir vötnum hér á Öldugötunni í kvöld, flugeldar springa yfir og kalla á nostalgíu. En hefur eitthvað breyst síðan nokkurn tíma? Nýir tímar, nýjar vonir eða væntingar? Held ekki. Held ég sé ennþá bara [...]

Eddan / Viljinn til trúar 4

Fyrst þegar ég las um hin tilvonandi Edduverðlaun tókst mér að misskilja fréttina svo hrapalega, að lengi á eftir taldi ég þau væru nefnd eftir Eddu Björgvinsdóttur. Fannst mér það temmilega viðeigandi.
Einhverju seinna kom á daginn að verðlaunin heita eftir einhverri allt annarri Eddu. Ég gaf „Akademíinu“ smá kredit fyrir það. Á móti kemur að [...]

Snjór í París Comments Off

Heitir smásaga eftir Thor Vilhjálmsson. Í henni er afar steríótýpískur franskur þjónn. En það tengist þessari færslu ekki neitt. Aftur á móti blundar mjög sterkt í mér að fara til Parísar í desember. Þangað hefur mig lengi langað að fara, og mér er sama þótt enginn kæmi með mér.

Auðnustjarnan elt Comments Off

Lauk við þann fróma eftir Kárason. Hún hafði þau áhrif á mig að mig langar til að ferðast, og þá almennilega, engar tveggja vikna hallærisreisur eins og vani stendur til.
Sömu áhrif hefur svo auðvitað frásögnin af heimilislausu Íslendingunum í Frakklandi. Auðvitað er ekki hálft eins skemmtilegt að minnast þess að hafa lekið inn á heimili [...]

Sprúðlandi 4

Í bókinni Rokland eftir Hallgrím Helgason má finna svartan og sprúðlandi húmorinn úr 101 Reykjavík, ef marka má bókarkápu. Sprúðlandi?
Af öllum þeim orðabókum sem ég fletti upp í, þ.m.t. Íslenskri orðabók og orðabanka Íslenskrar málstöðvar, fann ég þessa orðmynd aðeins í lýsingarhætti nútíðar sagnorðsins sprúðla í Orðabók Háskólans. En enga merkingu eða dæmi um notkun.
Jafnframt [...]

Af dögum liðnum, líðandi, komandi 4

Fallegur morgunn á fyrsta degi Bókabílsins eftir sumarfrí, og jafnframt síðasta starfsdegi mínum þar. Allra síðasti dagurinn minn á safninu á morgun. Umsókn mín um áframhaldandi starf í vetur liggur inni, en óvíst er hvar mér verður komið fyrir. Er eiginlega ekki reiðubúinn að hætta í Kringlunni, en það er víst lítið sem ég gæti [...]

Rómantískt símaklám 3

Með morgunkaffinu á Kringlusafni eigum við jafnan í samræðum um allt og ekkert, að þessu sinni ræddum við um símavændi. Þegar samræðurnar fóru að ná nokkurri hæð datt mér í hug hvort ekki væri hægt að koma á laggirnar sams konar þjónustu fyrir hinar hjartahreinni sálir, þar sem hryggbrotnu fólki byðist að hringja inn og [...]

Kertafleyting við Tjörnina Comments Off

Hef varla getað hugsað um annað en kertafleytinguna í minningu Hiroshima og Nagasaki við Reykjavíkurtjörn í allan dag; hún hefur valdið mér ómældum hughrifum, jafnvel áður en ég fór til að vera viðstaddur. Raunar, þegar á staðinn var komið, var helst til mikið rætt um skáldskap og pólitík. Sem betur fer hef ég þó enn [...]

Sunnudagur á Prikinu 2

Það eru óendanlega margar leiðir sem ég hefði getað farið við að skrifa síðustu færslu, samt varð þessi nálgun ofaná. Hvers vegna ætli það sé?
Sit núna á Prikinu við yfirferð á handriti. Ekki til að drekkja sjálfum mér í tilgerð, heldur vegna þess að enn hef ég ekki hunskast til að kaupa mér kaffivél. Skrifa [...]

Öldugata 59 3

Búinn að taka upp úr flestum kössum, ennþá nokkrir eftir á Laugarnesveginum. Tvær ferðatöskur fullar af fötum sem á eftir að losa. Herbergið mitt er rúmgott og notalegt, þótt ég eigi enn eftir að venjast því að sjálfsögðu. Öll húsgögn komin: Fjórir bókaskápar, skrifborð, rúm, hatta- og fatastandur. Sumsé allt sem nokkurn mann gæti nokkru [...]

Enginn söknuður 2

Á miðnætti hefst síðasti heili sólarhringurinn sem ég eyði á Laugarnesvegi 100, heimili mínu í hartnær sextán ár. Tómir kassar standa fyrir utan herbergið, hvar inni ég sit og hlusta á tónlist sem ég er löngu hættur að hlusta á nema ef til væri að vekja upp minningar. Það er ekki að virka. Greinilega er [...]

Í útlegð á Íslandi 10

Eftir sex daga flyt ég með pabba á Öldugötu í Vesturbænum, þar sem ég kem til með að búa í eitt ár. Þaðan er stuttur spölur í Háskólann, hvar ég mun nema íslensk fræði. Ég tek mér námslán því launin mín ein og sér duga ekki. Námslánin duga heldur ekki ein og sér svo ég [...]

Dauðinn 3

Dauðinn er afar stór hluti af lífi hvers og eins, eins og sæist þó ekki nema væri litið til þess vægis sem hinstu orð hafa jafnan þótt hafa, og enda hefur sérhver maður afar ríka tilhneigingu til að deyja einhvern tíma á lífsleiðinni. Þannig má rökstyðja að nábjargir og niðurholun heyri í raun til samfélagslegrar [...]