Category Archives: Greinar

Minni kvenna – árshátíð Mímis 2007 0

Á hverri árshátíð Mímis, félags stúdenta í íslenskum fræðum, eru flutt minni bæði karla og kvenna. Fyrsta veturinn minn í íslenskunni var ég beðinn að flytja minni kvenna. Oft hefur fólk rifjað þetta upp við mig í samræðum og hvatt mig til að birta ræðuna sem fræg sé að endemum, einhverra hluta vegna. Og nú [...]

Afbakanir og útúrdúrar 0

Það fyrsta sem ég fékk að heyra þegar ég vaknaði var að Pressan hefði birt frétt um mig. Það næsta sem ég gerði til að fullkomna stundina var að selja upp umtalsverðu magni af blóði í vaskinn. Líkaminn hefur sjálfsagt séð þetta fyrir og brugðist við með viðeigandi hætti. Fréttin er svo illa skrifuð að [...]

Breivik var ekki einn 0

Einsog svo margir fylgdist ég dofinn með beinni útsendingu norska ríkissjónvarpsins á dögunum, þegar Anders Behring Breivik sprengdi fyrst forsætisráðuneytið í Osló og myrti þvínæst unga jafnaðarmenn í hrönnum á Utøya. Þessi voðaverk hefðu alstaðar verið hræðileg, en urðu því ógnvænlegri sem þau voru okkur nálægri, hefur gjarnan heyrst í kjölfarið. Huggun harmi gegn var [...]

Bloggað á Smugunni 0

Senn mun Smugan opna á ný eftir sumarfrí. Mér var boðið að blogga þar og ég þáði. Ég mun þó halda áfram að skrifa hér og allt það sem birtist á Smugunni verður sem fyrr endurbirt hér.
Smugubloggið mitt má finna hér.

Greiningardeildin hefur svarað 9

Sá mæti maður Kristinn Theódórsson tilkynnti á vefsíðu sinni í gærkvöld að hann myndi í dag svara grein minni En hún var svo djarflega klædd! sem ég skrifaði umbeðinn fyrir Druslugönguna, og þótti heiður að. Raunar líkti hann skrifum mínum, eftir því sem ég kemst næst, við tölvuleikinn um Mariobræður (af gullpeningalíkingu Kristins helgast fyrirsögnin [...]

En hún var svo djarflega klædd! 1

Það er viðtekinn skilningur margra að jafnrétti hafi verið náð milli kynjanna, og því sé barátta fyrir jafnrétti orðin að tímaskekkju – að sumar konur vilji „meira jafnrétti“ en aðrir eiga að njóta, einsog svínin á Dýrabæ; eiginleg kvenréttindi í stað mannréttinda – og svo útbreiddur er þessi skilningur að upphafleg þverstæða Orwells hefur tapast [...]

Konur, skrímsli og kvenskrímsli 0

Jöðrun er grundvallarhugtak í hinseginfræðum og femíniskum fræðum. Í bók sinni Bodies that Matter fjallar Judith Butler um jöðrun á þeim nótum (minnir mig, ég hef ekki bókina hjá mér) að hin jöðruðu markist af sjálfskilgreindu félagslegu normi, og tekur dæmi af ýmsum jöðruðum þjóðfélagshópum. Útfrá skilgreiningu Butlers má orða þetta sem svo að hvítir [...]

Það sem rotið er í Danaveldi 0

Frá því ég hóf að skrifa fréttaskýringar og greinar með misjöfnu millibili á Smuguna hafa ýmsir orðið til að segja mér að, burtséð frá efni greinanna að öðru leyti, hafi ég í öllu falli sannfært þá um að flytja aldrei til Danmerkur. Ég hef ekki tölu á hversu oft viðmælendur mínir hafa vitnað í Hamlet [...]

Það sem sanna átti 0

Taugaskurðlæknirinn Milena Penkowa hefur mikið verið á síðum blaðanna og milli tannanna á fólki í Danmörku undanfarin misseri. Hún var vonarstjarna danska fræðaheimsins, hampað sem snillingnum sem útrýma myndi krabbameini úr heiminum, táknmynd hinnar frjálsu Danmerkur og hennar dýrðlega menntakerfis, og sönnun þess að konur – af útlendum ættum hvorki meira né minna – gætu [...]

Endalok Kristjaníu í núverandi mynd 0

Virkisveggurinn
Á árunum 1682 til 1692, eftir umsátur Svía um Kaupmannahöfn þann 11. febrúar árið 1659, var ráðist í gerð virkisveggs við bæinn Kristjánshöfn, til að tengja við virkisveggi Kaupmannahafnar og tryggja varnir borgarinnar. Virkisveggurinn stóð allt umhverfis gömlu Kaupmannahöfn fram á 19. öld, þegar stórir hlutar hans voru rifnir, að undanskildum þeim hluta sem enn [...]

Tækifæri til breytinga? 0

Nú þykir ýmsum sem blikur séu á lofti í dönskum stjórnmálum og að sá möguleiki sé nú fyrir hendi að vinstristjórn verði mynduð að kosningum loknum. Búist er við því að Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherra, boði senn til kosninga og að þær verði haldnar í vor fremur en síðar á árinu, sem jafnframt væri taktískt [...]

Íslensk tunga og börn hennar 3

Sem íslenskufræðingi þykja mér athyglisverð tvö þingmál sem Árni Johnsen hefur verið í forsvari fyrir undanfarnar sex vikur. Hið fyrra er þingsályktunartillaga lögð fram af fulltrúum allra flokka skömmu fyrir miðjan desember, með Árna að frummælanda,sem snýst um að stofnað verði prófessorsembætti við Háskóla Íslands kennt við Jónas Hallgrímsson „með vörn og sókn fyrir íslenska [...]

Hvað vitum við um söguna? Íslandssagan í gagnrýnu ljósi 0

Ég hugsa að það sé óvinsælt að endurbirta efni af Hugsandi, svo ég tengi bara héðan í grein sem ég var að birta þar:
§ Fyrsti hluti.
§ Annar hluti.
Opið er fyrir athugasemdir á báðum stöðum ef einhver vill rífast.
- Þess má geta til gamans að þessi færsla er skrifuð um borð í skipi úti á Kattegat.

Af skáldum og öðrum ekkisens óþarfa 0

Ég fann þetta óvænt í tölvunni minni. Þessi grein átti að birtast í Tíuþúsund tregawöttum í ársbyrjun 2009 minnir mig, en það hefti var aldrei gefið út. Fannst allteins gott að henda henni inn hérna þar sem efni hennar á jafnmikið erindi nú og þá.
1. Skáldið í ljóðinu
Mér er minnisstætt þessa dagana ljóð sem Hallur [...]

Fimm spor til afnáms mannréttinda – drög að úrsögn úr alþjóðasamfélaginu 0

Síðan ég hóf störf sem pistlahöfundur fyrir Smuguna í september síðastliðnum hef ég birt fjóra pistla, þar af þrjá um stöðu innflytjenda í Danmörku. Á þessum skamma tíma hefur ríkisstjórn íhaldsflokkanna Venstre og Konservative Folkeparti talað fyrir hverju frumvarpinu á fætur öðru sem ætlað er að skerða réttindi innflytjenda. Þau mál sem ég hef rakið [...]

Nasistinn í veislunni 0

Meðan íhaldsflokkarnir Venstre og Konservative Folkeparti berjast bæði inn- og útbyrðis við að halda ríkisstjórninni við völd, einsog ég fjallaði um í síðasta pistli, kemur sífellt betur í ljós hvaða afleiðingar það hefur þegar eini vinur manns er nasisti. Meðan Rasmussen og Espersen einbeita sér að spuna, spillingu og lygum í þingsal er það Dansk [...]

Kristjánsborg, frá framleiðendum Melrose Place 0

Danska verðlaunamyndin Kongekabale frá 2004 fjallar um átök og undirferli í danska þinginu, Kristjánsborg. Í upphafi myndar lendir formaður Miðflokksins í bílslysi svo tvísýnt er um líf hans. Síðar kemur í ljós að upplýsingum um líðan formannsins hefur verið haldið frá fjölmiðlum á meðan plottað er innan flokksins um arftaka hans. Hinn ófyrirleitni Erik Dreier [...]

Hræsnað um frumskógarlögmálið 0

Í síðasta pistli fjallaði ég um misheppnaða uppbyggingu snobbhverfis þar sem í dag stendur völundarhús ógnarstórra blokka í órækt undir samheitinu Gellerup, umlukið óhirtum trjám sem vaxa hvert með sínu laginu svo líkja mætti við frumskóg. Raunar er það svo vinsæl líking að nálega í hvert sinn sem fjölmiðlar taka Gellerup til umfjöllunar, sem er [...]

Aðlögun í skugga óreiðu 3

Eyrarsundskollegíið á Amager er fyrir löngu alræmt meðal íslenskra námsmanna í Kaupmannahöfn. Þegar ég kom þangað fyrst í janúar á síðasta ári var þar íslendingapartí auk eins Færeyings sem fékk að fljóta með sökum skyldleika og kannski þess að Íslendingum þykja Færeyingar fyndnir. Það er stærsta kollegí í Kaupmannahöfn, ef ekki það stærsta í Danmörku. [...]

Rýmisaðgreining í Vöktunum 1

Marga daga í röð hef ég rekið augun í Bjarnfreðarson á DVD, haganlega útstilltum og á misgóðu verði. Svona freistingar stenst ég bara einfaldlega ekki og keypti myndina í dag. Ef eitthvað er kalla ég mig góðan að hafa haldið í mér svona lengi fremur en hitt, þetta er enda efni sem á (vonandi) eftir [...]

Til varnar „ungskáldum“ 2

Árið 1952 skrifaði Sigfús Daðason grein í Tímarit Máls og menningar sem nú er kennd við Háskóla Íslands sem undirstöðurit í skilningi okkar á módernísku skáldunum á Íslandi á fyrrihluta 20. aldar og þeim forpokaða og stirnaða heimi sem mætti viðleitni þeirra. Tilefni greinarinnar var gagnrýni á atómkveðskapinn svokallaða, til að orða það pent, með [...]

Rannsóknarskýrslan er fullnægjandi – til síns brúks 4

Ætli það hafi ekki komið fleirum að óvörum en mér hversu vönduð skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis er. Líklega bjuggust fáir við hversu afgerandi hún í raun er. Störf nefndarinnar eru eiginleg andstæða alls þess sem lýst er í skýrslunni. Stjórnsýslan einkenndist af fábjánahætti og innviðir bankanna voru hriplekir og stoðirnar fúnar – þá undanskil ég ábyrgðarleysi [...]

Ljóðvinir fagrir: ungskáld og bókmenntasaga – ádrepa um Tíminn er eins og vatnið – íslensk bókmenntasaga 20. aldar 0

Ég vil gera alvarlegar athugasemdir við nýja bókmenntasögu tuttugustu aldar sem kennd er í framhaldsskólum í fyrsta sinn nú í vetur, bókina Tíminn er eins og vatnið eftir Brynju Baldursdóttur og Hallfríði Ingimundardóttur, eða í það minnsta þann stutta kafla hennar sem helgaður er ungskáldum samtímans og nefnist „Ljóðvinir fagrir“.
Ung [...]

Hugsið ykkur frið 0

I.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi borgarstjóri Reykjavíkur, vígði á dögunum Friðarsúlu Yoko Ono við hátíðlega athöfn í Viðey. Í yfirlýsingu Yoko við það tilefni kom fram að vonir hennar stæðu til að ljóskeilan mætti vera börnum huggun harmi gegn í vondum heimi, að hún gæfi þeim von þegar enga von væri að finna. Friður, kærleiki, bræðralag. [...]

Að hafa, en geta ekki 0

Nú eru síðustu forvöð að skoða landsvæðið sem enginn hefur komið til, raunverulegt draumaland, stærsta svæði ósnortinnar náttúru sem eimir eftir af í Evrópu. „Við erum forréttindakynslóð,“ sagði Ómar Ragnarsson, „við verðum fyrst til að sjá hálendið í allri sinni dýrð, og sjáum jafnframt til þess að enginn annar muni sjá það aftur“. Hvað er [...]

Varist róttæka friðarsinna! 0

Oft heyrast í umræðunni þau rök að einhver tiltekinn aðili sé róttæklingur og því dæmi málflutningur hans sig sjálfan. – Nei, heyrist einhver segja, það er engin önnur leið fær í stöðunni en að reisa álver. Þeir einu sem eru á öðru máli eru róttækir umhverfisverndarsinnar eða – hrollur – listamenn. Fyrir utan að oft [...]

Hvar er upplýsingin? 0

Ég hélt það væri tíu vetra skólaskylda á Íslandi. Ég hélt að á þessum tíu vetrum færi fram einhvers konar kennsla í gagnrýninni hugsun. Ég hélt að þar væri kennd mannkynssaga, fordæmin sýnd sem víti til varnaðar. Annaðhvort hlustar enginn eða ég hafði rangt fyrir mér.
Ásgeir Hannes Eiríksson, fyrrverandi alþingismaður Borgaraflokksins, vill að stofnaður verði [...]

Jafnréttisumræðan 0

Í hvert einasta sinn sem umræðan um jafnrétti fer af stað mætti halda að hún væri ný af nálinni, altént ef miðað er við háværustu gagnrýnisraddirnar. Til dæmis sér nú loks fyrir endann á baráttu samkynhneigðra fyrir sjálfsögðum réttindum. Til stendur að þeim verði veitt öll réttindi, utan þau að Alþingi hefur ákveðið að þrýsta [...]

Bókmenntarýni: Sumarljós og svo kemur nóttin 1

Vegna áskorunar birti ég fyrirlestur minn um Sumarljós og svo kemur nóttin eftir Jón Kalman Stefánsson, sem ég flutti í skólanum í dag. Set þann fyrirvara á að hún var hraðunnin og að sjálf efnisyrðingin sem ég lagði upp með frá upphafi týndist í hugmyndaflóðinu meðan ég spann mér leið í kringum hana. Þess vegna [...]

Íslenskir nasistar 0

Nú fyrir skemmstu sat undirritaður á kaffihúsi í miðborg Reykjavíkur og reyndi sem mest hann mátti að njóta veru sinnar þar. Það reyndist honum hinsvegar þónokkur Sýsifosarsteinn að velta, sökum þess að á téðu kaffihúsi var urmull af nasistum, þeir bókstaflega fylltu rýmið. Eftir um klukkustundar veru í gjallandi upphrópunum nasistanna um ríkið, foringjann og [...]