January 4, 2009

Útrás

Og nú þegar víkingarnir liggja í valnum og ekki dugir neitt minna en hrækja á hræin er þegar búið að finna arftaka þeirra sem verðugir eru sæmdarheitisins „víkingar“.

Jú, það eru rithöfundar. Og hvaða rithöfundar? Arnaldur Indriðason, Ævar Örn Jósepsson, Yrsa Sigurðardóttir og Árni Þórarinsson. Semsé rjómi stéttarinnar. Vantar bara Birgittu Halldórs. Jú, og svo er eitthvað minnst á Guðrúnu Evu, Auði Jóns og Gerði Kristnýju. Í framhjáhlaupi. Þetta eru hinir nýju víkingar, og ekkert kreppuvæl á þeim bænum. Bara trilljón titlar hjá Fischer Verlag og læti. Líklega tökum við yfir allan evrópskan markað á fyrsta ársfjórðungi 2009 og leysum kreppuna.

Ágætis þverskurður sem Evrópa fær af íslenskum bókmenntum þarna þegar 57% útgefinna verka eru glæpasögur. Þau halda þá allavega ekki að hinir nýju víkingar hugsi bara um peninga eins og þeir gömlu. En kannski finnst þeim hjákátlegt að Íslendingar skrifi um glæpi í ljósi nýliðinna atburða. Ekki það, ef allt væri með eðlilegu móti ættum við að vera orðin sérfræðingar í þeim, en ef allt hefði verið með eðlilegu móti til að byrja með hefðu þeir aldrei verið mögulegir.

Ég ætla ekki að röfla of mikið undan þessu en mér finnst þetta vinsældamat leiðinlegt. Fólk les það sem því er sagt að sé vinsælt og vinsældir glæpasögunnar eru fyrst og fremst sprottnar af því að hún er matreidd ofan í það af bókaútgefendum og í framhaldi af ritdómurum og bókasöfnum. Og þetta er ekkert bara svona hérna - Arnaldur er kannski vinsælastur hérna en James Patterson er vinsælastur í heimi. Er mér sagt. Svo eru til minni spámenn á borð við John Grisham og Stephen King.

En svo er þessi víkingastimpill. Hann og þessi sjálfsskilyrta firring sem honum fylgir er eiginlega tífalt verri en einsleitur bókmenntasmekkur Íslendinga: að allt sé gott meðan það er vinsælt, sama hversu siðlaust og hreint út sagt viðbjóðslegt það er. Því það er alveg sama hvað mönnum finnst um verk þessara rithöfunda; það er alvarlega vanhugsað og fullkomlega óréttlætanlegt að kalla þá „útrásarvíkinga“. Við Íslendingar erum ekki svo merkileg meðal þjóða að við höfum efni á svona hroka nema síður sé, sama hversu merkileg við eigum það til að telja okkur vera.

December 11, 2008

ESB býr sig undir umsókn frá Íslandi

Hvernig tókst mér að misskilja þessa fyrirsögn?

November 26, 2008

Næsta skref

Viljið þið breytingar? Þá er svarsins að leita hjá fjölmiðlum. Þetta er afskaplega einfalt: Næst þegar ráðamenn boða til blaðamannafundar, ekki mæta. Fólk sem hefur ekki umboð til að stjórna landinu getur boðað til allra þeirra blaðamannafunda sem þeim sýnist, en það þýðir ekki að nokkur þurfi að mæta, eða að það verði tekið alvarlega. Vinsamlegast hættið að taka þau alvarlega, og hættið að mæta. Það er ekki eins og þau hafi nokkuð að segja!

November 25, 2008

Nei, kommon!

Á ég að trúa því að þetta bréf sé ekki uppspuni? Hvaða auli sem er getur búið svona til, og þetta er nú einum of. Mér er svo mikið um að ég næ varla andanum. Ef þetta er satt, hverslags eiginlega andskotans viðrini eru þessir menn þá!

November 24, 2008

Fráhvarf

Ég held ég hafi ekki fundið eitt einasta blogg um lögreglustöðvarmótmælin sem ég get tekið undir með. Og það er hreinlega bara ekki á þetta helvítis kraðak bætandi, svo ég sleppi því bara að segja nokkuð. Nema kannski þetta: Ég er orðinn ansi þreyttur á þessu rúllandi skoðanabrjálæði sem bloggheimar eru, og það er einsog blogggáttin bæti ennfremur á vitleysuna, þar sem nær allir sem á annað borð vilja tjá sig eiga sínar eigin síður, sem gerir komment óþörf. Það ærir svo óstöðugan að sjá hálft moggabloggið endurtaka færslurnar sínar aftur og aftur í kommentum við færslur ósammála bloggara sem aftur endurtaka sínar færslur á síðum hinna og svo framvegis. Þetta er nóg til að gera einn mann geðveikan.

Þannig að ég ætla að blogga um nýjar bækur sem ég er spenntur fyrir að lesa.

Konur eftir Steinar Braga. Ég er raunar búinn að lesa hana í handriti, en ég hlakka til að lesa hana aftur og mæli eindregið með henni.

Með villidýrum eftir Kára Pál Óskarsson. Það sem ég hef séð og heyrt þaðan finnst mér lofa góðu.

Tvítólaveizlan eftir Ófeig Sigurðsson.

Fiðrildi, mynda og spörfuglar Lesbíu eftir Magnús Sigurðsson, og sömuleiðis Hálmstráin eftir sama.

Vonarstræti eftir Ármann Jakobsson.

Gott á pakkið, ævisaga Dags Sigurðarsonar.

Annarskonar sæla, eftir Kristínu Eiríksdóttur.

Ofsi eftir Einar Kárason.

Ú á fasismann eftir Eirík Örn Norðdahl, og þýðingar hans á Allen Ginsberg, Maíkonungurinn.

Segðu mömmu að mér líði vel eftir Guðmund Andra Thorsson.

Og margt fleira svosem. En þetta svona flýtur ofaná öðru. Komi jólafrí fagnandi nær það kemur, með bókum, graflax og svoleiðis sulli.

November 19, 2008

Nei

Sumum finnst Steinar Bragi hafa boðað til blóðugrar byltingar með grein í dagblaðinu Nei á dögunum. Öðrum finnst Viðar Þorsteinsson hafa boðað til blóðugrar byltingar á Austurvelli á laugardaginn. Lesið greinarnar og metið það sjálf.

Það er skýlaus krafa þjóðarinnar að hreinsað verði úr Stjórnarráðinu, Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu og endurstokkað á Alþingi - ef þingið er þá nokkurs virði ennþá í ríkjandi fyrirkomulagi. Lýðræði er ekki bara á fjögurra ára fresti og það er ólíðandi að kjörnir fulltrúar utan ríkisstjórnar séu hunsaðir, að þjóðin sé hunsuð.

Ef þessi einfalda krafa jafngilti því að boða til blóðugrar byltingar - sem hún er ekki, allt tal um slíkt er spuni og þvættingur - þá væri það einfaldlega það sem þyrfti. Það hefur sýnt sig undanfarnar vikur nákvæmlega hversu rotið kerfið er og fólkið sem stjórnar því - og lýðræði er hér ekki til. Ef fólkið fær ekki notið lýðræðis er kerfið gallað. Ef kerfið er gallað ber að breyta því.

Sættum við okkur við eitthvað minna?

November 13, 2008

Ha?

13.11.2008: ESB/EFTA: Sögðu sig frá gerðardómi

Þetta voru óaðgengileg skilyrði, segir Árni, og því sáum við enga aðra leið en að segja okkur frá ferlinu. Hann segir að viðræðum hafi ekki verið slitið og að allir geri sér grein fyrir því hve málið sé mikilvægt. Hann segir þetta vonbrigði en útilokað hafi verið að ganga að skilyrðum ESB.

Það vekur hins vegar athygli að ákvörðun um gerðardóminn var haldið frá almenningi og fjölmiðlum. Þegar fréttastofa talaði við embættismenn úr fjármálaráðuneytinu um fundinn í síðustu viku sögðu þeir engar fréttir að hafa af fundinum. Það vekur líka athygli að ráðamenn hafa ekki sagt frá þessari atburðarás þó tækifæri hafi gefist. #

13.11.2008: Icesave: Lausn í sjónmáli?

Nokkru meiri bjartsýni gætir nú meðal þingmanna stjórnarflokkanna og embættismanna um að niðurstaða náist milli ríkja um Icesave ábyrgðir, lán og aðstoð IMF. Talið er að hægt verði að höggva á tengslin milli kröfu Breta og Hollendinga um Icesave deiluna og aðstoðar IMF. Þannig verði Icesave-deilunni vísað í gerðardóm eða til óháðra aðila en aðstoð IMF tekin fyrir fljótt. Í kjölfarið muni önnur ríki veita Íslendingum nauðsynleg lán. #

Eru fjölmiðlar með öllum mjalla?

November 10, 2008

Deus ex-machina

Ætli Egill hitti ekki naglann á höfuðið hér. Þið afsakið þótt ég taki ekki handahlaup strax.

November 9, 2008

Sunnudagur

Ætli ég sé einn um að finnast það hálftilgangslaust að skrifa eitt aukatekið orð á þessa síðu?

Eins og ég heyrði af mótmælunum í gær varð ég afar ánægður með að Íslendingar væru hættir að láta valta yfir sig. Svo varð mér ljóst að þegar fjölmiðlar segja að mótmælendur hafi grýtt þinghúsið þýðir það að einhverjir hentu eggjum í það (þó að þingið komi þessu nú lítið við). Og þegar fjölmiðlar segja að mótmælendur hafi gert aðsúg að lögreglu þá var löggan og einhverjir náungar sitt á hvað að pota í bumbuna hver á öðrum.

Næsta sem gerist er að þeir sem titla sig aktúal mótmælendur þvo hendur sínar af hinum sem „harðast gengu fram“. Semsagt þeim sem köstuðu eggjum og potuðu í bumbuna á lögreglunni þegar átti að handtaka fánastrákinn. Það skyldi þó aldrei þýða að eftir því sem mótmælin stigmagnast fari hinir aktúal mótmælendur í auknum mæli bara að halda sig heimavið með Herði Torfa á laugardögum, halda kannski gítarpartí og syngja saman með kaffi og meðþví?

Það er ekki hægt að boða fólk til mótmæla og skipa því svo fyrir. Það er ekki hægt að krefjast þess af fólki að það haldi stillingu sinni. Það er í eðli mótmæla að hlýða ekki skipunum og hafna yfirvaldinu. Og svo lengi sem æðsta valdið neitar að upplýsa almenning um ástandið munu aðgerðir fara harðnandi með hverri viku sem líður, og ef þeir þrjóskast enn við þarf einfaldlega að sýna þeim hvaðan valdið kemur: frá fólkinu. Og það er mikilvægt að sjálfskipaðir skipuleggjendur fjöldasamkoma átti sig á þessu. Það getur beinlínis verið hættulegt að hunsa það þegar ástandið er svona krítískt.

En það sem er sérkennilegasta við mótmælin í gær er ef til vill það að til sé fólk sem afneitar tengslum við uppþot sem aldrei átti sér stað. Hvernig verður þá fréttaflutningurinn - og viðbrögðin við honum - þegar raunverulegt uppþot verður?

November 7, 2008

Zeitgeist Addendum

Þrátt fyrir hallærislega dramatískan áróður fyrir einni tiltekinni heimssýn þá er myndin vel þess virði að horfa á. Það er margt þarna sem þarf að takast á við, með voninni um að hægt sé að breyta því hvernig heimurinn virkar, og hvernig við hugsum.

Þið getið séð myndina hér.

November 5, 2008

Hver er þessi Guðmundur?

Ætli þeir á DV viti það?

November 4, 2008

Koddu að býtta

Þegar ég var lítill skiptumst við félagarnir á körfuboltamyndum, og einhugur ríkti um ímyndað verðmætamat einstakra spjalda. Sum voru „sjaldgæf“ og þar af leiðandi meira virði en önnur, og hver sá sem býttaði á 10 Karl Malone, einum Scotty Pippen og tveim Larry Bird fyrir einn Michael Jordan að kyssa gullbikar NBA deildarinnar lét Jordaninn ekki uppi nema hann fengi meira í staðinn. Stundum er þetta kallað hagvöxtur en það er bara rugl og þvæla.

Þegar körfuboltanum sleppti tók poxið við. Þá var Geir Sveins í loftköstum næstsjaldgæfastur að því er sagt var, en Siggi Sveins - alþýðuhetja allra 11 ára krakka - var að sjálfsögðu langflottastur. Það skipti enginn á honum sem átti. Á kvöldin reyndum við krakkarnir að útlista viðskiptasigra dagsins fyrir daufum eyrum foreldra okkar, en nújæa, okkur nægði eigin viðurkenning. Næstu kynslóðir héldu svo uppteknum þræði með pokémonspil.

En nóg um það. Búið er að „kaupa“ Birtíng. Morgunblaðið sparar ekki við köpuryrðin frekar en fyrri daginn og lýsir yfir að Birtíngur hafi rofið tengsl sín við Baug með eigendaskiptunum. Vísir segir á hinn bóginn að kaupandinn sé enginn annar en Hreinn Loftsson.

Aðspurður hversu mikið hann greiðir fyrir viðskiptin vill Hreinn ekki gefa það upp. „En þetta eru raunveruleg viðskipti.”

Naumast viðskiptin þegar Baugur gefur sjálfum sér sínar eigin verðlausu eignir. Hvenær ætli þeir gefist upp á að býtta á verðbréfum einsog pokémonspilum í von um að stóra fólkið í útlöndum taki mark á því að hér séu viðskipti enn stunduð, og að hér sé hagvöxtur?

Leikurinn er tilgangslaus, og viðskiptin eru ekki „raunveruleg“ nú fremur en fyrr. Það vill bara svo til að alveg einsog með körfuboltamyndirnar, poxið og pokémonspilin þá gildir sú regla að þegar allir aðrir hætta að býtta þá tapar sá sem harðast gekk fram og situr á mestum birgðum. Það er sama fólkið sem situr á sömu verðlausu eignunum, sama hvað þeir býtta sín á milli - það sem gerir það enn kjánalegra er að þeir heyra allir undir sama eignarhaldsfélag þeirra eigna sem þeim finnst svo gaman að býtta á.

Sjálfur á ég reyndar enn Michael Jordan að kyssa gullbikarinn, en hann er mér þó ennþá nokkurs virði, og sjálfsagt nokkrum dellukörlum á eBay. Og mér er alveg sama hvað þeir segja. Hér er aðeins stigsmunur á, ekki eðlis.

October 28, 2008

Gæði

Ef þið hugsið um raunveruleg gæði, landgæði og framleiðslutæki, andspænis ímynduðum tölum á tölvuskjá sem standa fyrir peninga - sem eru ekki höfuðstóll neins nema sjálfra sín - þá er engin kreppa á Íslandi. Hér er allt óbreytt, því allt er enn á sínum stað. Vegið og metið aðstæður hverrar þjóðar fyrir sig, hvar standa þær? Spáið svo í hvort þetta sé ekki bara geðveiki, trú á einhvern pappírsseðil sem engu máli skiptir. Þetta er bara pappír þartil þú fjárfestir hann, og þegar trú fólks á pappírinn dvínar, hvar erum við þá? Akkúrat hérna. Og hvað, er Ísland þá á vonarvöl útaf ímynduðum tölum? Eða búum við þó ennþá að því að öll raunveruleg framleiðsla, öll raunveruleg eignamyndun, öll raunveruleg gæði, eru ennþá staðsett hérlendis, meðan óprenthæfar tölur hrapa í ritvinnsluforritum og töflureiknum spikfeitra smjörsleiktra bankamanna úti í heimi?

Nei, í alvörunni. Peningar eru ímyndun, þeir eru kjaftæði, þeir standa ekki fyrir ein einustu verðmæti í sjálfum sér. Þeir hafa ekki verið raunverulegur gjaldmiðill síðan þeir hættu að standa í sambandi við veruleikann, við upprunalega höfuðstólinn sem átti að tryggja innistæðu fyrir þeim. Peningar eru pappír sem ekki einu sinni er hægt að fjárfesta lengur. Ef allt ætti að vera eðlilegt tæki lífið við aftur. En horfið á trúðana reyna að bjarga því eina sem þeir trúa og treysta á: peningum. Þegar afkoma fólks byggist á hagtölum án þess að raunverulegur skortur sé á nokkru öðru en tölum á pappír, væntingum, vonum og vísitölum, þá er eitthvað mikið að gildismatinu.

Frjálshyggjan og framtíðin

Ég er reglulega spurður retórískt þessa dagana hvar frjálshyggjumennirnir séu, fyrir utan þennan eina sem þusaði eilíft í þenslunni en flýgur á hvolfi í kreppunni, og hingað til hef ég ekkert þorað að fullyrða. En núna segir mér svo hugur að einhversstaðar séu þeir hlæjandi með vindlareykinn standandi uppúr sér, því einhverjir þeirra fá vænti ég núna að horfa uppá draumalandið sitt rísa úr öskustónni, lágmarksríkið með öllum sínum félagslega darwínisma og mannúðarleysi.

Fyrsta skrefið var tekið í dag þegar stýrivextir voru hækkaðir um sex prósentustig svo standi nú í 18 prósentum. Geðveiki segir einn, óásættanlegt segir annar. En við hverju bjuggust þeir? Hvað segja þeir þegar IMF hækkar skatta? Óásættanleg geðveiki? Allavega munu frjálshyggjumennirnir firrtast við með okkur hinum, enda trúa þeir ekki á skatta eða aðra samfélagslega ábyrgð. Mig bara grunar að skattarnir eigi eftir að fara uppúr öllu valdi - og ekki til þeirrar þjónustu sem eðlilegt væri, heldur í vasann á þeim hinum sömu og hækkuðu þá.

Og hvað svo? Heilbrigðiskerfið, skólarnir, bókasöfnin, meðferðarheimilin og - fjandinn hafi það - jafnvel elliheimilin, öryrkjastyrkir, Tryggingastofnun. Hver veit hverju þeir taka uppá? Svartasta spáin er að hér verði bókstaflega ekkert eftir, og ég þori ekki að vera of bjartsýnn þegar sömu menn eru að verki og einkavæddu vatnsbólin í Bólivíu. En kannski finnst einhverjum þetta vera voða sniðugt allt, gargandi snilld einsog Íslendingar segja. Stjórnvöldum finnst ekkert athugavert við þetta. Vandamálið er að stjórnvöld hafa enga stjórn hérna og höfðu aldrei - umboðið kom frá okkur. Núna er umboðið meira eða minna selt til erlendra aðila.

Fjórtán árum eftir að 50 ára afmæli lýðveldisins var fagnað, fjórtán árum eftir að mér í barnaskóla var kennt að það stæði eitthvað á bakvið þingið, kjörna fulltrúa þjóðarinnar, forsetann, ættjarðarjarmið og fánann. Að þetta land væri byggt upp á einhverslags forsendum, og að lýðræði væri helgasta vé þjóðarinnar, að meirihlutavilji þjóða skipti máli. Þetta tók ekki langan tíma. Og hvað tekur við hérna? Í hreinustu hreinskilni þá vil ég bara ekki vita það. En það verður svart, það vitum við þó.

Fyrsta skrefið er allavega tekið. Segið svo ekki að þið hafið ekki séð þetta fyrir, það er allt aðgengilegt á netinu.

October 24, 2008

The IMF is the NME

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur boðað til blaðamannafundar í Karphúsinu, Borgartúni 21, klukkan 15:00 í dag. Fundurinn er haldinn í kjölfarið á blaðamannafundi sem Ríkisstjórnin hefur boðað til í Ráðherrabústaðnum klukkan 14:15. #

Á meðan það er ennþá til eitthvað sem kallast þjóð á tyllidögum í þessu landi væri nær að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort við viljum láta selja undan okkur grunnþjónustu samfélagsins og kreista líftóruna úr láglaunafólki með ómannúðlegri skattaprósentu. Ef þessi helvíti hegða sér einsog hingað til getum við nú strax farið að tilbiðja guð okkar og deyja. En það er víst eftir stjórnmálamönnum að muna ekki hvaðan þeir þiggja umboð sitt, ekki einu sinni á síðasta degi lýðveldisins.

October 22, 2008

Hakkebuff

Ingibjörg Sólrún sér ekkert athugavert við skilmála IMF. Heldur ekki Seðlabankinn. Sem þýðir að annað hvort skilja þau ekki skilmálana eða þau eru að ljúga. Björgvin G. neitar að tjá sig um skilmálana. Þau neita öll að tjá sig um skilmálana. Annað hvort er þetta alltsaman svona frábært að við komum til með að skíta kandífloss og einhyrningar skeina okkur, eða þá að við erum raunverulega það fokkd að ráðamenn vilja vera komnir í öruggt skjól þegar hausar fara að fljúga.

Það er snjór úti einsog til þess eins að minna mig á viss leiðinleg hugrenningatengsl, og kalt vatn er skyndilega orðið munaðarvara á þessum heimili; sjálfsagt allt frosið í lögnunum því meira að segja klósettið virkar ekki (hvar eru einhyrningarnir?). Kaffið mitt mallar því úr kýsilangandi íslensku heitavatni.

IMF fara að krúttast hingað bráðum að slá okkur létt á kollinn með töfrasprotanum sem breytir Íslandi í Nautnaeyju Gosa. Eina verðið fyrir krásirnar, vindlana og ölið er að við breytumst í asna á miðnætti og verðum seld í hakkebuff fyrir slikk einhversstaðar þar sem eftirspurn er eftir hakkebuffi. Því þannig virkar kapítalisminn og hin „heilbrigða græðgi“. Eða hafiði kannski aldrei séð Gosa?

Annars mæli ég með því að þið lesið Surt, vin minn. Hann er þó ekki kominn til að brenna heiminn, því heimurinn logar þegar. En það eru mikilvægar spurningar sem brenna á honum. Lesið líka Ingólf og Eirík.

October 9, 2008

FME

Kaupþing rúllaði í nótt, ef búið var að ganga frá sameiningunni valt Spron vænti ég líka. Er minn banki þá einn eftir? Ég hef hvergi séð neinn velta vöngum um stöðu Byrs í öllu þessu - sem var reyndar rekinn af sveitarfélögum síðast ég vissi. Á sama tíma halda Bretar dauðahaldi í innistæður IceSave með hryðjuverkalögum. Kaldhæðið að fyrir rúmri viku „óraði engan fyrir þessu“.

Nei, ég held það verði bara gott að komast úr þessu eitt andartak, sama hvað það kann að kosta mig í biskupum og brókarsýktum dætrum þeirra. Ég er búinn að fá nóg í bili.

October 6, 2008

Jahá

„Það gat enginn séð þetta fyrir.“

Jú, allir nema þið.

„Það kom bara fyrst í ljós í gærkvöldi að skuldastaða bankanna nemur margfaldri landsframleiðslu og það breytti öllum forsendum!“

Þvættingur, það hefur verið vitað lengi.

„Blablabla.“

Mér er alveg sama hvað þið segið núorðið.

Hvernig væri svo að fjölmiðlar færu að sinna hlutverki sínu?

September 6, 2008

Jahérna.

August 18, 2008

Það var platað mig

Guðmundur Andri á ansi hreint fínan pistil í Fréttablaðinu í dag, sem lesa má hér. Ef til vill verða margir til að álykta að notkun hans á nýju þolmyndinni endurspegli máltilfinninguna, en þess heldur er „Það var platað mig“ ef til vill lymskulegasta diss sem sést hefur á síðum blaðanna lengi.

Stundum verð ég pirraður út í fólk. Það gildir jafnt í vinnunni sem annarsstaðar. Þegar manneskja segir í umvöndunartón að framkvæmdirnar við safnið hefði átt að tilkynna í Morgunblaðinu - af öllum furðulegum stöðum - hvernig annars eigi hún að vita upp né niður hvað sé að gerast á safninu hverju sinni, þá fýkur í mig. Blessunarlega kann ég að halda mér saman ólíkt sumum. Næst fæ ég skeitara sem stinga upp á að tíðindi verði gröffuð utaná helvítis bygginguna.

En auðvitað er þetta bara hártog. Maður finnur þolinmæðina hverfa smám saman við misgóð tíðindi yfir daginn og lánþega á tveggja mínútna fresti sem - sumpart eðlilega - spyrja hvort við séum að flytja, hvort búið sé að reka okkur, hvort sprengja eigi húsið í tætlur, hvað sé eiginlega að þessum nýja meirihluta að fara svona með okkur; við að passa upp á að krakkar slasi sig ekki í brakinu, að heimiliskettir lokist ekki í gámnum og þiggja umvandanir frá fólki með bros á vör og uppgerðarskömmustu.

Maður tekur að skynja velsæmislínuna þrengri þegar líða fer á daginn. Annars er þetta fínt. Og auðvitað á fólk skilið að fá skýr svör og meira en viðunandi þjónustu - rétt eins og alla aðra daga. Það þarf bara aðeins að kyngja milli svara stundum.

Stoppið mig þegar þið fáið leið á leiðinlegu vinnubloggi. Líf mitt er vinnan þessa dagana.

Þetta er Bloggið um veginn, stafrænt bókfell fyrir hugðarefni Arngríms Vídalín, ljóðskálds og bókavarðar, skrásett af honum sjálfum, öðrum til sárs gagns og nauðsynjar.

» Um höfundinn
» Um bækurnar

Síður

Hér kemur efni

Bloggið um veginn is proudly powered by WordPress.
WP-Vicksburg layout by Illudium Phosdex.
Valid XHTML / Valid CSS
14 queries in 0.637 seconds.

©Arngrímur Vídalín Stefánsson 2005.
Allt efni á þessari vefsíðu er verndað af ákvæðum höfundalaga. Það er sett hér til þess að unnt sé að lesa það af skjá. Sérhver eintakagerð eða dreifing efnisins þess utan er óheimil nema til komi samkomulag við höfund, sérstök lagaheimild eða samningur við samtök rétthafa höfundaréttar.
Notkun, sem brýtur í bága við lög eða samninga, getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.