Category Archives: Fjölmiðlar

Gyðingar og nasistar Comments Off

„Ísraelar hegða sér bara alveg einsog nasistar gagnvart Palestínumönnum, þeir eru engu betri en Hitler. En Hitler var nú raunar ekki alslæmur. Hann hafði sitthvað til síns máls þegar hann talaði um gyðinga, og þeir hafa nú sýnt það hvernig þeir eru innst inni.“

Kannist þið röksemdafærslu af þessu tagi? Hún er mjög algeng á íslenskum [...]

Íslenskar bókmenntir eru dauðar 0

Nú þegar Páll Baldvin lætur af störfum í Kiljunni og á Fréttatímanum, þar sem hann gagnrýndi jafnan sömu bækur fyrir báða miðla, segist hann vera alveg gáttaður á því að rithöfundar hafi ekki kvartað undan meðferðinni sem þeir hafa fengið í fjölmiðlum, meðal annars hjá honum sjálfum. Bíðum nú hæg. Við höfum bara víst kvartað [...]

Stephen King er hetjan mín 0

Við vitum öll hvað í vændum er þótt enginn vilji horfast í augu við það. Fólk lýgur að sjálfu sér, leiðir hið óhjákvæmilega hjá sér, segir við sjálft sig að þetta muni fjandakornið aldrei verða – við sjálft sig, vegna þess að það vogar sér ekki einu sinni að impra á því við aðra manneskju. [...]

Afbakanir og útúrdúrar 0

Það fyrsta sem ég fékk að heyra þegar ég vaknaði var að Pressan hefði birt frétt um mig. Það næsta sem ég gerði til að fullkomna stundina var að selja upp umtalsverðu magni af blóði í vaskinn. Líkaminn hefur sjálfsagt séð þetta fyrir og brugðist við með viðeigandi hætti. Fréttin er svo illa skrifuð að [...]

Hans og Grétu syndrómið 9

Ég var óskaplega stoltur af sjálfum mér í dag. Mér nefnilega tókst að klára nærri heilt páskaegg nr. 4. En svo áttaði ég mig á því að hér búa fleiri og því er líklegra að einhver annar hafi étið eitthvað af þessu. Þegar ég var lítill gat ég étið þrjú svona en það er liðin [...]

Með hjartað á réttum stað 0

Ég kynntist honum hvergi nándar nærri eins mikið og mig langaði til. Við hittumst heldur aldrei, þótt það hafi komið til tals. Og nú er hann dáinn. Það síðasta sem hann sagði við mig, í stríðni: „Þú hefur svo fallega sál.“ Eitthvað fannst mér það nú vera alveg öfugt.
Það er óvanalegt þegar manneskja sem lengst [...]

Viðbjóðurinn á AMX 0

Á sama tíma og ég les í dönskum fjölmiðlum að fyrst hafi verið talið að um hryðjuverk hafi verið að ræða í Noregi, en svo hafi það reynst vera Norðmaður, berst enn ógeðfelldari málflutningur úr afdankaðasta horni íslenskra netheima. Þá á ég ekki við það illa innrætta fólk sem ásakaði Önnu Pálu Sverrisdóttur um pólitíska [...]

En hún var svo djarflega klædd! 1

Það er viðtekinn skilningur margra að jafnrétti hafi verið náð milli kynjanna, og því sé barátta fyrir jafnrétti orðin að tímaskekkju – að sumar konur vilji „meira jafnrétti“ en aðrir eiga að njóta, einsog svínin á Dýrabæ; eiginleg kvenréttindi í stað mannréttinda – og svo útbreiddur er þessi skilningur að upphafleg þverstæða Orwells hefur tapast [...]

Engin svör hafa borist 0

Nú, tæpum sólarhring eftir að ég sendi opið bréf til forsvarsfólks Málsvarnar, og í tölvupósti einnig, hefur mér enn ekkert svar borist við spurningum mínum. Í kjölfar umfjöllunar Smugunnar, Eyjunnar og The Reykjavík Grapevine hefur nafn mitt þó verið fjarlægt af stuðningslistanum.
Mér þykja spurningar mínar eðlilegar og sanngjarnar. Ég sé enga ástæðu fyrir þau að [...]

Guðbergur er ekki að erfa neinn flugvöll 2

Til að byrja með er rétt að taka það fram að mér finnst umfjöllun íslenskra fjölmiðla um málefni Guðbergs Bergssonar vera bjánaleg og full af vanvirðingu. Þetta snýst ekki um peninga, og kemur heldur engum í raun við. Aðalmálið er að Guðbergur missti manninn sinn, og hann ætti að fá að vera í friði með [...]

Hugleiðingar um úrslitin 2

Ég ber mikla virðingu fyrir þeirri prinsípskoðun að Íslendingum beri yfirhöfuð ekki að greiða skuldir einkafyrirtækja (þó er deilt um hvort það sé tilfellið hér), og var sjálfur þeirrar skoðunar fyrst eftir hrun. Afstaða mín breyttist síðar og þá fyrst og fremst af pragmatískum ástæðum – auðvitað á almenningur ekki að borga skuldir einkafyrirtækja, en [...]

Misskilningur Sölva Tryggvasonar 6

Á náttborðinu mínu um jólin var að finna tvær bækur eftir indverska heimspekinginn Jiddu Khrisnamurti, Fátækt Fólk eftir Tryggva Emilsson, en Lífsleikni Gillz var þar líka.
[...]
Ég skil ekki fólk sem þarf að hefja sig yfir það sem þeim ekki líkar. Ég geri mitt og þú gerir þitt. En mitt er ekki fínna eða merkilegra.
Ég [...]

Hamfarastjórnun illfyglanna 1

Það er óviðjafnanlega fyndið að lesa gargið í illfyglum AMX núna. Þar er Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, ritstýra Smugunnar, ásökuð um að þegja þunnu hljóði þegar fréttafólk er rekið vegna óeðlilegra afskipta hagsmunaaðila af fjölmiðlum eða vegna pólitískra skoðana. Ástæðan er sú segja illfyglin að Þóra Kristín hafi þegið styrk frá Alcan vegna rannsóknar á hamfarastjórnun!
Það [...]

Viðtal við Sonic Iceland 8

Í gærkvöldi hitti ég þýsku menningarblaðamennina Kai Müller og Marcel Krueger frá Sonic Iceland á Hressó þar sem við ræddum um íslenska bókmenntageirann (smellið á hlekkinn til að lesa meira og sjá gullfallega mynd af mér).
Settling in the beer garden, while the rain was lashing down on the canopy above our heads, we had a [...]

Rannsóknarskýrslan er fullnægjandi – til síns brúks 4

Ætli það hafi ekki komið fleirum að óvörum en mér hversu vönduð skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis er. Líklega bjuggust fáir við hversu afgerandi hún í raun er. Störf nefndarinnar eru eiginleg andstæða alls þess sem lýst er í skýrslunni. Stjórnsýslan einkenndist af fábjánahætti og innviðir bankanna voru hriplekir og stoðirnar fúnar – þá undanskil ég ábyrgðarleysi [...]

Enn af ritstjórum 2

Þessi umræða um Davíð Oddsson jaðrar við geðsýki. Sá sem telur það skipta sköpum fyrir Íslendinga hver ritstýrir hvaða málgagni ofmetur annaðhvort persónutöfra ritstjórans eða áhrifagirni fólksins í landinu, nema hvorttveggja sé. Fólk er ekki nautheimskir sauðir sem hleypur upp til handa sér og fóta af því Davíð segir eitthvað.
Samt er fólk þegar farið að [...]

Af minningagreinum lífs og liðinna 0

Ef það kemur í ljós að Geir Haarde hafi gengið um í mislitum sokkum alla sína embættistíð væri það mögulega merkilegra en þessar endalausu fréttir af ritstjóraskiptum á Morgunblaðinu.
Fólk les Morgunblaðið fyrst og fremst vegna minningagreinanna. Það má vissulega deila um lífsmark hvers ritstjóra Morgunblaðsins fyrir sig, en hitt er víst að enginn kaupir Morgunblaðið [...]

Musteri hæverskunnar 9

Ég hvet lesendur eindregið til að hlusta á þennan merkilega hlaðvarpsþátt. Mér þykir ég raunar alveg skelfilega illa reprisenteraður, nýt nær engrar athygli þáttastjórnenda meðan Loðmfjörð, Guttesen, Norðdahl og Lilliendahl þiggja meiriháttar hýðingar. Í öllu falli hlýt ég að krefjast þess að fá meiri dagskrártíma síðarmeir.
Að því sögðu vil ég biðja þær tvær manneskjur sem [...]

Rúv 2

Nú þykir mér meira en sjálfsagt að greiða fyrir það framúrskarandi dagskrárefni sem ég fæ hjá Ríkisútvarpinu ár eftir ár. En að það eigi að vera eingreiðsla upp á 17.200 krónur í stað mánaðarlegra afborgana þykir mér alveg útúr kú. Það munar nú um minna.
Auk þess er víst miðað við sextán ára og eldri. Hvernig [...]

Óskiljanlega léleg tónlistarumfjöllun 3

Í Lesbók laugardagsins birtist alveg frámunalega léleg grein eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson undir heitinu Við skulum ekki skilja aftur. Fyrir neðan titilinn stendur:
„Hin trúarlega No More Shall We Part er líklega vanmetnasta plata Nick Cave & The Bad Seeds“
sem kemur mér á óvart enda veit ég ekki til annars en hún hafi hlotið gríðarlegt lof [...]

Aldahvörf 1

Í dag eru hálfgerð aldahvörf, og af því tilefni lét ég til leiðast að fara í einhverra þriggja tíma göngutúr um Mosfellssveitina í vetrarríkinu – upphaflega planið kallaði reyndar á lengri gönguleið en það voru dragbítar með í för. Kom svo í tæka tíð í hlaðborð kræsinga til að fylgjast með stjórnarkynningu. Svo var útsending [...]

Kominn heim frá Kaupmannahöfn 0

Og þvílík ferð sem það var. Með allar fréttirnar sem bárust gegnum síma og danska sjónvarpið allan tímann.
Og þvílík heimkoma! Ég á varla til orð til að lýsa ánægju minni með að loksins ætli sér einhver að gera eitthvað. Þá er að vona að boðað verði til kosninga fremur fyrr en seinna.

Útrás 4

Og nú þegar víkingarnir liggja í valnum og ekki dugir neitt minna en hrækja á hræin er þegar búið að finna arftaka þeirra sem verðugir eru sæmdarheitisins „víkingar“.
Jú, það eru rithöfundar. Og hvaða rithöfundar? Arnaldur Indriðason, Ævar Örn Jósepsson, Yrsa Sigurðardóttir og Árni Þórarinsson. Semsé rjómi stéttarinnar. Vantar bara Birgittu Halldórs. Jú, og svo er [...]

ESB býr sig undir umsókn frá Íslandi 5

Hvernig tókst mér að misskilja þessa fyrirsögn?

Næsta skref 2

Viljið þið breytingar? Þá er svarsins að leita hjá fjölmiðlum. Þetta er afskaplega einfalt: Næst þegar ráðamenn boða til blaðamannafundar, ekki mæta. Fólk sem hefur ekki umboð til að stjórna landinu getur boðað til allra þeirra blaðamannafunda sem þeim sýnist, en það þýðir ekki að nokkur þurfi að mæta, eða að það verði tekið alvarlega. [...]

Nei, kommon! 0

Á ég að trúa því að þetta bréf sé ekki uppspuni? Hvaða auli sem er getur búið svona til, og þetta er nú einum of. Mér er svo mikið um að ég næ varla andanum. Ef þetta er satt, hverslags eiginlega andskotans viðrini eru þessir menn þá!

Fráhvarf 0

Ég held ég hafi ekki fundið eitt einasta blogg um lögreglustöðvarmótmælin sem ég get tekið undir með. Og það er hreinlega bara ekki á þetta helvítis kraðak bætandi, svo ég sleppi því bara að segja nokkuð. Nema kannski þetta: Ég er orðinn ansi þreyttur á þessu rúllandi skoðanabrjálæði sem bloggheimar eru, og það er einsog [...]

Nei 7

Sumum finnst Steinar Bragi hafa boðað til blóðugrar byltingar með grein í dagblaðinu Nei á dögunum. Öðrum finnst Viðar Þorsteinsson hafa boðað til blóðugrar byltingar á Austurvelli á laugardaginn. Lesið greinarnar og metið það sjálf.
Það er skýlaus krafa þjóðarinnar að hreinsað verði úr Stjórnarráðinu, Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu og endurstokkað á Alþingi – ef þingið er [...]

Ha? 1

13.11.2008: ESB/EFTA: Sögðu sig frá gerðardómi
Þetta voru óaðgengileg skilyrði, segir Árni, og því sáum við enga aðra leið en að segja okkur frá ferlinu. Hann segir að viðræðum hafi ekki verið slitið og að allir geri sér grein fyrir því hve málið sé mikilvægt. Hann segir þetta vonbrigði en útilokað hafi verið að ganga að [...]

Deus ex-machina 0

Ætli Egill hitti ekki naglann á höfuðið hér. Þið afsakið þótt ég taki ekki handahlaup strax.