Ég var óskaplega stoltur af sjálfum mér í dag. Mér nefnilega tókst að klára nærri heilt páskaegg nr. 4. En svo áttaði ég mig á því að hér búa fleiri og því er líklegra að einhver annar hafi étið eitthvað af þessu. Þegar ég var lítill gat ég étið þrjú svona en það er liðin [...]
Categories: Aarhus, Fjölmiðlar, Pólitík, Trú, Úr daglega lífinu
- Published:
- April 8, 2012 – 23:56
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Lífið færist áfram með slíkum hraða að erfitt er að halda í við það allt til að gera sér grein fyrir samhengi hlutanna. Andlegi helmingurinn er tvíklofinn persónuleiki sem ýmist er fræðimaður eða rithöfundur og getur aðeins verið annað hvort á hverjum einum tíma.
Í nóvember fór ég til Biskops Arnö sem fræðimaður en kom [...]
Categories: Aarhus, Femínismi., Ferðalög, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- March 21, 2012 – 04:05
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér finnst svona eftir á að hyggja að það sé til talsvert mikið af efni um það hvernig er að verða faðir, en öllu minna um það hvernig það er að verða – snögglega sem slíkt hendir – stjúpfaðir. Ég geri mér grein fyrir að það er ekki eins merkilegt og hitt, en það er [...]
Categories: Aarhus, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- February 9, 2012 – 23:36
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Lesendur Bloggsins um veginn ættu að kannast við að ég hef ekki beinlínis átt sjö dagana sæla í Danmörku. Nú er sú dvöl á enda runnin, með sérdeilis viðeigandi hætti líka sé tillit tekið til allra þeirra erfiðleika sem ég hef átt við að etja síðan ég flutti fyrir rúmu ári.
Fyrsta íbúðin mín var ógeðsleg, [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- August 30, 2011 – 15:18
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nú þegar sumarið hálfna fer held ég að það sé ekki seinna vænna að fara að telja upp þær hremmingar sem ég hef lent í af höndum örsmárra ófreskja á því tæpa ári síðan ég flutti til Danmerkur.
Í september varð ég fyrir árás hundruða geitunga sem leituðu inn í birtuna. Þegar mér tókst að loka [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- June 30, 2011 – 12:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Um daginn – lesist fyrir uþb þrem vikum eða mánuði – leiddist mér nógu mikið til að þræla mér gegnum kvikmyndina The Arrival með Charlie winning Sheen. Í miðri myndinni kynnist hann loksins aðalaukapersónunni sem áhorfandinn hafði fengið að fylgjast með inná milli. Hann neitar henni um kynlíf og svo bara sisvona er hún stungin [...]
Categories: Aarhus, Ferðalög, Kvikmyndir, Úr daglega lífinu
- Published:
- June 28, 2011 – 02:08
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Reglurnar í Árósaháskóla eru þær að sé tímasókn skikkanleg (75% eða meiri) fá nemendur sjálfir að velja sér prófspurningu, en að öðrum kosti er efnið valið fyrir þá. Misjafnt er svo hvernig prófað er eftir áföngum, ýmist munnleg próf, ritgerðir eða hvorttveggja í senn. Áfanginn Norræn goðafræði frá miðöldum til nútímans var af síðastnefndu sortinni, [...]
Categories: Aarhus, Námið
- Published:
- May 27, 2011 – 01:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mörg eru umhugsunarefnin á næstu vikum og mánuðum, en aðalatriðið er að hafa ekki miklar áhyggjur. Í lok næsta mánaðar mun það vonandi hafa skýrst hvar ég kem til með að búa eftir að samningurinn minn hér rennur út. Um svipað leyti kemur í ljós hvort ég muni yfirhöfuð búa í Danmörku eftir áramót.
Svo það [...]
Categories: Aarhus, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- May 16, 2011 – 23:48
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég bý milli tveggja einna mestu umferðaræða borgarinnar. Gatan sem húsið mitt liggur við gengur alla leið niður í bæ beinustu leið framhjá einu stærsta markaðstorgi Árósa á fyrri árum, Vesterbro Torv, og að Ráðhústorginu sem liggur steinsnar frá lestarstöðinni, en sé haldið enn lengra áfram götuna endar maður við umferðarmiðstöðina, sem ég nota mikið. [...]
Categories: Aarhus, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- May 13, 2011 – 15:47
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Síðastliðinn föstudag brá ég mér á málþing Miðaldaleshringsins sem bar yfirskriftina „Alkoholkultur i middelalderen“. Þar fræddist ég meðal annars um það að á 15. öld þótti drykkja keyra svo úr hófi í danskri þinghelgi að brugðið var á það ráð að flytja bæði Héraðs- og Landsþing úr borg í sveit, svo þau gætu starfað í [...]
Categories: Aarhus, Bækur / Bókmenntir, Saga, Úr daglega lífinu
- Published:
- April 4, 2011 – 21:56
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég held ég hafi aldrei verið eins stressaður á ævinni einsog fyrir doktorsumsókninni, utan þegar umsóknin mín um meistaranám lá inni hjá Árósaháskóla og ég vaknaði upp við þann vonda draum að ég hafði ekki sinnt áfanga Gísla Sigurðssonar og Vilborgar Davíðsdóttur um munnlega hefð í Íslendingasögum. Ég var skráður í 5 áfanga á þeirri [...]
Categories: Aarhus, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- March 16, 2011 – 02:23
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Umsókn um doktorsnám við Árósaháskóla hefur verið send af stað. Svo mikið er víst að án þeirrar góðu aðstoðar sem ég hef notið væri útlitið öllu svartara, svo burtséð frá því hvernig til tekst á ég mörgum skuld að gjalda. Gott er að eiga góða að.
Umsóknarferlið má kalla heiðarlega tilraun til að missa vitið. Rannsóknarvinnan [...]
Categories: Aarhus, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- March 16, 2011 – 00:04
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í dag skoðaði ég elstu byggingu í Skandinavíu. Það er grafhýsi frá um 1060 undir 13. aldar klaustri í Árósum. Þaðan fór ég í dómkirkjuna til að kynna mér ærið flókna byggingarsögu hennar.
Eftir kirkjurúntinn fór ég á kaffihús og kveikti mér í pípu með sætu dönsku tóbaki. Gamall maður við hliðina á mér spurði hvort [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- February 22, 2011 – 16:55
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hálflesin Calvin & Hobbes, og drullusokkur sem lekur frá yfir allt gólf. Lyktin leynir sér ekki. Svona er að búa í húsi með gömlum pípulögnum. Ég vatt mér á næsta bás. Að vísu eru þeir til sem áttu verri aðkomu að baðherbergi en létu það ekki aftra sér, að ónefndri fyrrum nágrannakonu minni í Gellerup [...]
Categories: Aarhus, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- January 9, 2011 – 23:57
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Svo fer gjarnan um mannanna ráð að þau bregðast, og því ítarlegar sem skipulagt er þeim mun meira geta smáatriði sett úr skorðunum. Smáatriði dagsins var að mér yfirsást að ég yrði nauðsynlega að afhenda lyklana að Lottuvegi á slaginu níu. Án lyklanna verður hvorki komist inn né út af lóðinni, hvað þá inn eða [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- January 3, 2011 – 22:23
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Með lægri bloggtíðni og leiðinlegum hversdagsfærslum hefur Bloggið um veginn hrapað þónokkuð í virðingarstiganum á Blogggáttinni. Það finnst mér ágætt. Mér finnst alltaf jafn hundleiðinlegt þegar einhverjir eyjukommentarar koma hingað til að rúnka sér yfir síðuna mína. Svo enn um sinn verður haldið áfram á sömu braut nema eitthvað sérstakt komi til (næg eru bloggin [...]
Categories: Aarhus, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- December 1, 2010 – 16:40
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Danska verðlaunamyndin Kongekabale frá 2004 fjallar um átök og undirferli í danska þinginu, Kristjánsborg. Í upphafi myndar lendir formaður Miðflokksins í bílslysi svo tvísýnt er um líf hans. Síðar kemur í ljós að upplýsingum um líðan formannsins hefur verið haldið frá fjölmiðlum á meðan plottað er innan flokksins um arftaka hans. Hinn ófyrirleitni Erik Dreier [...]
Categories: Aarhus, Greinar, Pólitík
- Published:
- November 12, 2010 – 08:58
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nú vantar mig aðstoð frá lesendum. Ég get ekki tekið við póstsendingum frá Íslandi, kemur í ljós. Pakki sem beið mín hefur nú verið endursendur af því enginn gat veitt mér upplýsingar um sendinguna, og þótt standi í kerfinu að tvisvar hafi póstburðarmaður barið hér að dyrum hugkvæmdist víst engum að skilja eftir tilkynningu.
Í ljós [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- November 10, 2010 – 10:44
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í síðasta pistli fjallaði ég um misheppnaða uppbyggingu snobbhverfis þar sem í dag stendur völundarhús ógnarstórra blokka í órækt undir samheitinu Gellerup, umlukið óhirtum trjám sem vaxa hvert með sínu laginu svo líkja mætti við frumskóg. Raunar er það svo vinsæl líking að nálega í hvert sinn sem fjölmiðlar taka Gellerup til umfjöllunar, sem er [...]
Categories: Aarhus, Greinar, Pólitík
- Published:
- October 26, 2010 – 21:26
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef ekki bloggað síðan áður en kisan mín dó. Hef ekki verið í stuði til þess. Hún dó 10. október tæplega tvítug að aldri og var jarðsett í sömu viku í dýragrafreit í Kjós. Hennar er sárt saknað, enda öllum sem þekktu hana harmdauði þrátt fyrir langan aldur. Ég hef enn ekki kvatt [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- October 25, 2010 – 13:20
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Dýrðardagur! Á tveim dögum hef ég eignast kaffivél, bolla, ruslafötu, þvottasnúru, kerti og bókasafnsskírteini. Mér finnst ég nánast ríkur orðinn. Þá lét ég í einhverju góðmennskukasti ginnast til að kaupa rós af sígaunakonu sem fær nú að drekka úr vatnsfylltri bjórflösku, rósin það er, ekki sígaunakonan.
Gamli skipulags- og Ikeapervertinn í mér er víst kominn á [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 22, 2010 – 15:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það eru óhjákvæmileg viðbrigði að hugsa og tjá sig á þrem tungumálum á sama tíma. Stundum yfirhleðst hugurinn svo úr verður alveg stórfurðulegur en skemmtilegur hrærigrautur. Mest henti það mig í Svíþjóð þegar ég þurfti að þýða úr dönsku jafnóðum og ég talaði á minni sérstöku dólgasænsku, svo blandaðist þar við að Christian vinur minn [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 22, 2010 – 11:49
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Bankakortið fékk ég blessunarlega í hendurnar aftur í dag svo ég get haldið ótrauður til Álaborgar á morgun. Ég ákvað að verðlauna sjálfan mig þolinmæðina með feitum hamborgara við ána, en þeir kostuðu tæplega 3000 krónur svo ég hélt lengra inn í bæinn og fann Buffhús Jensens sem var örlítið ódýrara. Það er hægara sagt [...]
Categories: Aarhus, Ferðalög, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 9, 2010 – 18:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Seinheppni minni og klaufaskap er engin takmörk sett. Eftir ágætis göngutúr með Christian um fegurri hluta gettósins – gömlu Brabrand og umhverfis hið gullfallega Brabrandvatn – lá leið mín niður í bæ að næla mér í eitthvað til að nærast á. Ég hef komið mér upp þeim sið hérna þegar ég fer yfir fjölfarnar umferðargötur [...]
Categories: Aarhus, Ferðalög, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 8, 2010 – 16:40
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Eyrarsundskollegíið á Amager er fyrir löngu alræmt meðal íslenskra námsmanna í Kaupmannahöfn. Þegar ég kom þangað fyrst í janúar á síðasta ári var þar íslendingapartí auk eins Færeyings sem fékk að fljóta með sökum skyldleika og kannski þess að Íslendingum þykja Færeyingar fyndnir. Það er stærsta kollegí í Kaupmannahöfn, ef ekki það stærsta í Danmörku. [...]
Categories: Aarhus, Greinar, Pólitík, Trú
- Published:
- September 7, 2010 – 14:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Krakkarnir á kollegíinu mínu eru svolítil krútt inn við beinið. Þar sem þau koma úr myrkviðum evrópskrar menningar (að undanskildum Tyrkjanum) eru þau vön því að láta samlanda sína leiklesa fyrir sig kvikmyndir, svo þau geti forðast að læra erlend tungumál. Ég lánaði tékknesku stelpunni mynddiska en hún átti erfitt með að fylgjast með af [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 2, 2010 – 21:23
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá er fyrsti skóladagurinn búinn. Það var gaman að hitta suma krakkana aftur, ég sit í bekk með Tatjönu, Deboruh og áðurnefndum David hinum spánska í tímum hjá góðkunningja okkar Rolf Stavnem. Kúrsinn er bæði fyrir BA og MA nema og annar Spánverji í bekknum hefur af því áhyggjur að kúrsinn sé heldur miðaður að [...]
Categories: Aarhus, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 2, 2010 – 16:23
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef ekkert skrifað í viku, finnst ég varla geta skrifað neitt af neinu sérstöku viti um það stúss sem ég hef staðið í að undanförnu.
Það tók mig átta daga, margar strætóferðir, uþb 3000 króna símreikning og tæknimann sem skipti um innstungu hjá mér til að fá netið heim. Nenni varla að nota það eftir [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 1, 2010 – 21:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Eftir vikubið hringdi ég í internetfyrirtækið Telia Stofa. Þeir könnuðust ekki við neina pöntun á háhraðatengingu svo ég pantaði gegnum síma. Þá kemur í ljós að háhraðatenging er ekki möguleg þráðlaust svo ég pantaði venjulega þráðlausa tengingu í staðinn. Hún kemur eftir viku. Helv.
Það hjálpar dönskunni minni að enginn hjá Jyske Bank kann eða vill [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- August 24, 2010 – 13:11
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í heila viku hef ég varið hálfum deginum á börum Árósa svo ég komist á netið. Ég fæ svona 30 tölvupósta á dag og sumum þarf að svara, svo ég kemst ekki undan.
Rigningin undanfarna viku hefur samkvæmt Politiken valdið því að vatn hefur runnið frá óæðri stöðum og flætt yfir grunnvatnið. Eftir minni vanalegu heppni [...]
Categories: Aarhus, Pólitík, Úr daglega lífinu
- Published:
- August 23, 2010 – 16:49
- Author:
- By Arngrímur Vídalín