Category Archives: Þórbergur

Bergshús V 1

Fyrir tæpu ári fjallaði ég nokkuð um Bergshús á þessum síðum og vitnaði meðal annarra í Guðjón Friðriksson sem sagði að húsið hefði verið rifið (sjá hér). Fljótlega eftir það skrifaði einhver færslu um húsið á Wikipediu og vísaði hingað (sjá hér).
Athygli mín var vakin á málinu aftur í gær þegar einhver kom inná síðuna [...]

Þórbergur, ástin og andófið 2

Fyrirlesturinn í Suðursveit gekk vel, raunar langt framúr vonum.
Fyrirlesturinn má finna á Tregawöttunum, hér. Í heimildaskrá er vísað beint í béaritgerðina mína, hafi einhver áhuga. Seinna birti ég svo fyrirlesturinn einnig hér, á pdf-formi.
Þetta er annars fyrsta bloggfærslan sem er skrifuð á makka. Ég var semsé að fá mér nýja tölvu. Venst vel.

Jöklar og saga, stjörnur og rómantík 3

Um helgina verður haustþing Þórbergsseturs að Hala í Suðursveit. Meðal annarra verðum við frændsystkinin Þórunn Hrefna með erindi þar og að sjálfsögðu hvet ég alla lesendur Bloggsins um veginn til að koma þangað. Þingið verður ræst á laugardagsmorgun og stendur fram á sunnudag.
Dagskrána má finna hér. Erindið mitt set ég inná síðuna við tækifæri nema [...]

Stiklur 3

Mér þráleiðist allt tal um nákvæmni Þórbergs. Ennfrekar leiðist mér að sjöþúsund manns hafi ekki talið það eftir sér að skrifa einhversstaðar í greinum sínum um óskyld efni að kaldhæðnislegt hafi verið fyrir „nákvæmnismanninn Þórberg“ að fæðingarár hans hafi verið vitlaust skráð. Get over it.
Sigfús Daðason er manna hófsamastur og öðrum rökfastari í greinaskrifum sínum. [...]

Enn af Þórbergi 4

Ég held stundum að ég sé að verða ruglaður. Ég er með 53 blaðsíður af tilvitnunum í heimildir. Svo þegar ég renni yfir skjalið sé ég að það vantar fullt af heimildum þar inn sem ég þó hef farið ítarlega yfir. Hvers vegna skrifaði ég ekkert niður? Las ég þær kannski aldrei? Er ég eitthvað [...]

Afmælisbarn dagsins 5

Er Þórbergur Þórðarson. Einhversstaðar í akhasaþokunni er hann 121 árs í jarðárum. Fagni því allir góðir menn.

Við Þórbergur 2

Erlendur í Unuhúsi var okkar teingiliður, en eftir að hann dó og Unuhúsi var lokað bar fundum okkar Þórbergs ekki saman nema með höppum og glöppum, einna helst í gestaboðum þar sem ekki er kostur að blanda geði við menn. Ég sá hann seinast sitja einmana og yfirgefinn á bekk í manntómum gángi á Vífilstaðahæli [...]

Bergshús IV 6

Bergshús stóð ennþá 1987. Það var greinilega ekkert sérlega fallegt hús (smellið á myndina til að stækka):

Fengið úr Mannlífi við Sund 3.b., Páll Líndal.
Um Bergshús skrifar Páll Líndal:
Alexíus Árnason lögregluþjónn mun hafa reist þetta hús um 1865. ‘Í þessu húsi hafði sá nafnkunni snillingur átt heima á efri árum æfi sinnar. Innan þessara bókfellslegu veggja [...]

Heill kafli handa æstum lesendum 2

Nei, ég veit þið hafið engan áhuga á þessu. En hér er samt heill kafli sem ég hripaði upp úr handritinu, svo mér fer greinilega fram við að lesa þetta. Eftir á að hyggja læðist sá ljóti grunur að mér að sami kafli finnist í Skáldalífi Halldórs Guðmundssonar. Stök orð í textanum skildi ég ekki [...]

Að lesa handrit 3

Vorið 2005 fékk ég að skoða Guðbrandsbiflíu. Þessa stundina puða ég hinsvegar við að lesa óútgefið handrit eftir Þórberg. Ég á bágt með að gera upp við mig hvort var erfiðara aflestrar.
Eitt sinn var Þórbergur spurður hvers vegna hann fengi sér ekki ritvél í stað þess að handskrifa allar bækur sínar. Það gæti sparað honum [...]

Í snjó og stormi suður í Hafnarfjörð 0

„Skáldið og heimspekingurinn varð að sitja dag eftir dag inni í köldu herberginu og skjálfa úr kulda. Rétt fyrir jólin gekk hann í snjó og stormi suður í Hafnarfjörð til þess að fá léðan kogara til að hita upp með herbergið. En kogaraupphitunin var alltof dýr fyrir skáldið og heimspekingurinn átti erfitt með að þola [...]

Bergshús III 2

Gátan leyst:
„Á neðra horni Bergstaðastrætis, vinstra megin götunnar (nr. 10), er nú risin nýbygging eftir Guðmund Kr. Guðmundsson arkitekt en þar var til skamms tíma Bergshús, lágt timburhús með miklu risi sem því miður hefur verið rifið. Það var eitt frægasta hús íslenskra bókmennta vegna frásagna Þórbergs Þórðarsonar í Ofvitanum. Þar var Baðstofan, þar sem [...]

Bergshús II 15

Sæll,
Þessi Bergur er fyrsti lærði sútunarmeistarinn á Íslandi og fyrsta
sútunarverksmiðjan á Íslandi var þarna í bakhúsi.
Til er mynd af danska kónginum þarna í kaffi og mér skilst á núverandi eiganda að
það séu til heilmikil skrif um þetta hús.
Hans aðalvitneskja er frá gamalli konu sem átti íbúðina á neðstu hæðinni og sagði
honum alla söguna um húsið [...]

Bergshús 4

Ég sendi Fasteignasölunni Ási svohljóðandi fyrirspurn:
Góðan dag.
Umrætt hús er nefnt Bergshús og sagt sögufrægt. Þó er það ekki Bergshús sem Þórbergur Þórðarson bjó í á fjórða vetur á árunum 1909-1913, til þess er það of ungt (reist 1929 skv. vefnum). Auk þess var það við Skólavörðustíg þótt vissulega sé hægt að færa til hús.
Mig langar [...]

Mitt áhugaverða líf 2

Tölvan mín er farin að hitna svo mikið að ég sá þann kostinn vænstan að hringja í þjónustuaðila og panta tíma. Húðin er beinlínis farin að flagna utanaf örgjörvanum. Tölvan reyndist vera í ábyrgð ennþá svo það kemur sér afskaplega vel.
Á Þórbergsvefnum rakst ég á meint MA verkefni eftir Sverri Árnason, Í kompaníi við Þórberg [...]

Almáttugs andskotans helvíti! 0

Rétt í þessu greip ég niður í 50 blaðsíðna ritgerð sem ég hef verið að lesa mér til heimildar, og lauk því litla sem eftir var. Það er langlengsta heimildin sem ég þarf að styðjast við að undanskildum bókum. Fer svo að fletta upp í glósunum.
Ég hef ekki hripað eina einustu hjá mér, nema þá [...]