Það verður ekki af honum Helga Guðmunds tekið að hann heldur manni svoleiðis á snakki að kaffið kólnar í hitabrúsanum á meðan. Ég þekki engan annan sem hefur slíkan samræðumátt að ég gleymi kaffibolla. Hann er einnig þeirri gáfu gæddur að ef hann þarf að mæla á eitthvert annað tungumál þá segir hann „þú skilur [...]
Categories: Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- June 18, 2013 – 15:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Bakið mitt hefur ákveðið að sálga sér hvort sem ég er fastur við það eða ekki. Svo ég er lagstur í flet meðan minni stórfjölskyldan situr að veisluborði frammi í stofu. Til allrar hamingju missi ég bara af kjúkling en ekki nautalund.
Á þessum tímapunkti finnst mér ég þurfa að játa það að ég hef algert [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Trú, Úr daglega lífinu
- Published:
- June 13, 2013 – 21:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
… verður einhvern tíma í fyrirsjáanlegri framtíð. Þá munum við eiga stóra og fína íbúð og þurfum aldrei að flytja framar. Þá getur maður staðið keikur með ístruna framan í sólinni og dásamað sérhvert tilbrigði við hið kunnuglega lífsstef, og þambarabambað á bumbunni einsog sannur eignamaður, Þríhrossi líkari en Sumarhúsum. Þá verður hvorki grætt né [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- June 9, 2013 – 23:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er ótrúlegt hvað kemst mikið í eina geymslu, þ.e.a.s. ef ég fæ að vera einráður um hvernig raðað er í hana. Megnið af búslóð úr 120 fermetra íbúð komið saman á tæplega 8 fermetra reit í kjallaraherbergi.
Það er líka ótrúlegt hvað líkaminn leyfir sér ef hann veit að meiri átök eru framundan. Ég vaknaði [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- June 9, 2013 – 02:19
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er að lesa Bodies that Matter eftir Judith Butler, bók sem ég hafði lesið stóra glefsu úr í grunnnámskeiði um strauma og stefnur í bókmenntafræði. Mér fannst lítið mál á sínum tíma að lesa þetta en núna hnýt ég frekar um ýmis atriði í textanum. Það er þetta einkenni póststrúktúralískrar heimspeki að nefna alltaf [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- May 7, 2013 – 12:58
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Einn af mínum uppáhaldshamborgurum var keyptur á McDonald’s árið 2007. Hamborgarinn er úr svona rauðu kjötlími sem rotnar ekki. Ef ég set hann í þvottavél þá kemur hann gott sem þurr út. Árið 2007 voru menn nefnilega með metnað. Það var það ár sem þáverandi Ólympíumeistari í kappáti, Ítalinn Stefano Baldini, át sig í annað [...]
Categories: Pólitík
- Published:
- May 3, 2013 – 21:30
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þegar maður hefur ekki geð í sér til að fylgja kröfugöngunni alla leið út á Ingólfstorg til að hlusta á sturlaðar ræður um kjarasamninga sem eru í engu samræmi við veruleikann, þá er orðið ljóst að annarleg öfl hafa rænt þessum degi. Mín græna ganga, sem var ásökuð um að ræna þessum degi í gær [...]
Categories: Femínismi., Pólitík
- Published:
- May 2, 2013 – 10:49
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég gleymdi því víst alveg þar til það hvarflaði óvænt að mér í dag, að í gær voru tíu ár frá því ég byrjaði að blogga. Það sem verra er: þetta er allt til ennþá, hér á þessari síðu. Hér er hægt að lesa vissa þætti ævi minnar frá því ég var rúmlega 18 ára [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- May 1, 2013 – 00:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Að stinga einhverju ofan í skúffu getur haft mjög neikvæða merkingu. Í dag stakk ég 22 prófritgerðum í námskeiði í miðaldabókmenntum ofan í skúffu. Svo þær lægju ekki á glámbekk. Þar með breyttist merkingin. Ég er þó ekki frá því að það sé jafnvel neikvæðara að stinga einhverju undir stól, hvernig svo sem það er [...]
Categories: Vinnan, Úr daglega lífinu
- Published:
- April 23, 2013 – 00:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í nótt dreymdi mig fernt sem ég man.
1. Par sem við þekkjum var ásamt fleiri gestum í litlu boði hjá okkur Eyju. Þau rifust allan tímann og sérstaklega hann, sem ásakaði hana í sífellu um að reyna við mig. Svo lagði hann hönd á öxlina á mér inni á milli og sagði í hughreystandi tón: [...]
Categories: Draumfarir
- Published:
- March 9, 2013 – 14:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fólk pirrar sig stundum á því þegar annað fólk (oft þulir Ríkisútvarpsins) tala um Evróvision. Hvers vegna að þýða aðeins fyrri partinn en ekki þann seinni? Annaðhvort skal það vera Evrópusýn eða Eurovision og engar refjar!
Ef við tökum hefðarrökin þá er sannarlega hefð fyrir því í íslensku að setja inn v í stað u í [...]
Categories: Tungumál / málfræði, Íslenska
- Published:
- March 9, 2013 – 10:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég held það megi færa rök fyrir því að a.m.k. tvenns konar aukalög hafi bæst ofan á þegar marglaga veruleika mannlegra samskipta með tilkomu Facebook. Þá á ég við samskipti sem hefðu ekki átt sér stað ella.
Það eru annars vegar þeir sem maður þekkir ekkert í raun en maður af einhverjum löngu gleymdum ástæðum hefur [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- March 9, 2013 – 00:48
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Ísraelar hegða sér bara alveg einsog nasistar gagnvart Palestínumönnum, þeir eru engu betri en Hitler. En Hitler var nú raunar ekki alslæmur. Hann hafði sitthvað til síns máls þegar hann talaði um gyðinga, og þeir hafa nú sýnt það hvernig þeir eru innst inni.“
Kannist þið röksemdafærslu af þessu tagi? Hún er mjög algeng á íslenskum [...]
Categories: Fjölmiðlar, Pólitík, Úr daglega lífinu
- Published:
- March 8, 2013 – 09:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ef einhverjir nemenda minna álpast inn á þetta blogg skulu þeir vita að ég gekk í bandvitlausu veðrinu úr austanverðum Hlíðum út á Árnastofnun til að verða mér úti um greinarnar sem verða til umræðu á morgun. Eða hefði gert það ef konan mín hefði ekki bent mér á að við eigum bíl. En ég [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- March 6, 2013 – 21:37
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Gamall maður kemur með hundi sínum innanúr hrauni og geingur í veg fyrir lestamenn:
Og hverjir eru mennirnir?
Hinn feiti svarar: Ég er hans majestets bífalíngsmaður og prófoss.
Óekkí, muldraði gamli maðurinn hás einsog rödd úr fjarska. Skaparinn er nú samt sá sem ræður. – HKL
Ég er svona náungi sem vakir á næturnar með samviskubit og les kennslubækur [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- March 3, 2013 – 00:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Alltaf í upphafi haustmisseris er mikið um að vera á Háskólatorgi. Heil reiðinnar býsn af nýnemum, þriðjungur af hverjum sést ekki aftur eftir almennuna, ryðjast um rýmið (hinir fáu hugvísindanemar þekkjast oft á Fjällrävenbakpokanum). Hljómsveit sem einhver hélt að væri vinsæl en var í rauninni vinsæl fyrir fimm árum spilar lög sín í þessu rými [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- March 1, 2013 – 14:44
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Sumir dagar renna næsta sjálfkrafa saman við aðra, og það getur gerst jafnvel þótt róttækar breytingar eigi sér stað á milli þeirra. Það virkar einsog þversögn, segjum að ef áfall hendir, að upplifa daginn eftir það alveg einsog daginn á undan, og jafnvel vikurnar á eftir.
En kannski renna dagar saman einmitt helst við mjög [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- February 27, 2013 – 19:15
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það hefur stundum orðið vart við undrun fólks yfir orðatiltækinu að sjaldan falli eplið langt frá eikinni, því auðvitað vaxi ekki epli á eikartrjám. Iðulega er bent á að í íslensku sé þetta einfaldlega látið stuðla sem títt er hér á landi, sem ekki er gert í t.d. ensku þar sem sams konar hugsunarvilla kemur [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Tungumál / málfræði, Íslenska
- Published:
- February 12, 2013 – 16:32
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég skil ekki hvernig ég hef komist svona langt í námi án þess að hafa lesið meira. Samt er mér fyllilega ljóst alltaf þegar ég les nýja bók hvar ég er ósammála höfundi og hvar ekki, og gæti skrifað heila ritgerð um forsendur mínar í hvert sinn. Fræðirit eru ígrundaðar ályktanir kollega minna sem oftast [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Námið
- Published:
- January 30, 2013 – 06:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Iðunn Soffía er barn engu öðru líkt. Í morgun spurði hún mömmu sína, sem brást forviða við, klukkan hvað hún færi til tannlæknis. Því hafði Eyja alveg gleymt en Iðunn var alveg með þetta á hreinu og vildi ekki fyrir nokkra muni verða of sein til tannlæknisins (ólíkt til dæmis stjúpföður hennar sem á hennar [...]
Categories: Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- January 29, 2013 – 15:58
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég rakst á hugtakið „the primary sadistic eroticism of the infant“ í rökstuðningi mannfræðings fyrir því að sálgreining væri nauðsynleg í allri umfjöllun um ófreskjur. „Beyond this modest and unobjectionable observation,“ bætir hann við, „but still in a strictly Freudian sense, we may add that the monster may stand for the Olympian castrating father of [...]
Categories: Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- January 24, 2013 – 23:36
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Sumum hlutum gleymir maður aldrei, nema um stundarsakir. Eða öllu heldur rifjast þeir ekki upp fyrir manni nema endrum og sinnum, einu sinni á ári eða á nokkurra fresti; eða yfirhöfuð alls ekki nema eitthvað minni mann sérstaklega á þá. Ég er þegar búinn að gleyma því hvað rifjaði upp fyrir mér eftirfarandi sögu, en [...]
Categories: Minningarbrot
- Published:
- January 22, 2013 – 09:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hvenær hugsar maður of mikið um einhvern einn hlut, eða eitthvert eitt mengi hluta? Hvenær nálgast áhugi á einhverju afmörkuðu efni þráhyggju gagnvart því? Retóríska spurningin hvort ég vissi að til væri fólk sem tæki sér frí um helgar hafði enga merkingu fyrir mér á sunnudaginn sem var; það fólk hlyti bara að vera í [...]
Categories: Minningarbrot, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- January 15, 2013 – 10:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það var ánægjulegt að fá póst frá Amazon með uppástungum um ‘best selling medieval history’. Sér í lagi þegar engin bók í mínu fagi selst nema það standi VIKING eitthvað með hástöfum á kápunni. Sem er aftur á móti ergilegt þar sem allt víkingatal er beinlínis villandi. Boethius var á listanum. Boethius bestseller stuðlar fallega.
Reykingafólkið [...]
Categories: Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- January 14, 2013 – 11:58
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það getur verið gaman að fylgjast með umræðum á Facebook. Nú er ég til að mynda hæfilegur aðdáandi Einars Kárasonar sem þó nýverið lét í ljós þá þekkingarfræðilegu afstöðu að hafi „dr. phil. Helgi Guðmundsson“ sýnt fram á eitthvað sem Einar er sammála þá hljóti það að vera rétt, en andmæli Viðar Hreinsson því þá [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- January 10, 2013 – 18:19
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér hefur fundist ég hafa ná að gera heilan helling síðan ég kom úr jólafríi (hvenær sem það annars var, varla meira en vika síðan). Ég hef sent umsókn um þátttöku í málstofu í Oxford í júlí, þar sem ég verð hvort eð er á ráðstefnu í Leeds um sama leyti. Þar verð ég með [...]
Categories: Ferðalög, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- January 10, 2013 – 08:02
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er afskaplega heppinn maður. Það er ekkert svo langt síðan ég hætti að gera kröfur um að fá mikið í lífinu og fór að gera meiri kröfur til sjálfs mín í staðinn (segi ég og hljóma einsog pseudóintellektúalinn Paulo Coelho), en síðan þá hef ég fengið meira en mér finnst ég í raun hafa [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- January 8, 2013 – 22:56
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég prófaði í dag að nota Google Scholar, í fyrsta sinn síðan hann var glænýr. Nú vildi ég að ég hefði verið duglegri að nota hann. Þar fann ég ýmislegt utan míns fræðasviðs sem ég þó get stuðst við í skrímslarannsóknum. Til dæmis þessa grein sem birtist í Journal of Experimental Psychology, en í upphafi [...]
Categories: Námið
- Published:
- January 4, 2013 – 22:10
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Að skipta úr Edgar Allan Poe yfir í Rudyard Kipling er einsog að koma ofan af Vatnsskarði í blindbyl niður í Skagafjörð um sumar. Þar á ég við ritstílinn en ekki efnið. Öll viðbrögð ég-sins (allar söguhetjur Poes eru ég) í The Fall of the House of Usher (ekki „tónlistarmannsins“) eru yfirdrifin, úr samhengi við [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Kvikmyndir, Námið, Saga
- Published:
- January 3, 2013 – 23:03
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hvað er skrímsli? Sé íslenska orðinu slegið upp í Google finnur maður myndir úr skrímslabókum Áslaugar Jónsdóttur og Disneymyndinni Monsters Inc., en einnig koma fram myndir af einni ófreskjunni úr myndinni El laberinto del fauno og meintu skrímsli sem skolaði upp í fjöru í Montauk fyrir fjórum árum sem ég fæ ekki betur séð en [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Kvikmyndir, Námið, Saga, Trú, Þjóðsögur
- Published:
- January 2, 2013 – 21:09
- Author:
- By Arngrímur Vídalín