Á hverri árshátíð Mímis, félags stúdenta í íslenskum fræðum, eru flutt minni bæði karla og kvenna. Fyrsta veturinn minn í íslenskunni var ég beðinn að flytja minni kvenna. Oft hefur fólk rifjað þetta upp við mig í samræðum og hvatt mig til að birta ræðuna sem fræg sé að endemum, einhverra hluta vegna. Og nú [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Femínismi., Greinar, Menning og listir, Námið, Saga, Tungumál / málfræði, Íslenska
- Published:
- April 30, 2012 – 20:55
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það fyrsta sem ég fékk að heyra þegar ég vaknaði var að Pressan hefði birt frétt um mig. Það næsta sem ég gerði til að fullkomna stundina var að selja upp umtalsverðu magni af blóði í vaskinn. Líkaminn hefur sjálfsagt séð þetta fyrir og brugðist við með viðeigandi hætti. Fréttin er svo illa skrifuð að [...]
Categories: Femínismi., Fjölmiðlar, Greinar, Pólitík
- Published:
- April 26, 2012 – 16:31
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Stelpurnar kölluðu á athygli mína rétt í þessu. Þegar hún var fengin spurði sú yngri þá eldri hvort hún vildi kynnast sér. Sú eldri játti því og þær nudduðu kinnunum saman, eða „gerðu a“ einsog það hét víst eitt sinn.
Á sunnudaginn heyrði ég svo hið frábæra orð pomsur í fyrsta sinn. Pomsur eru hraðahindranir, nefndar [...]
Categories: Tungumál / málfræði, Íslenska, Úr daglega lífinu
- Published:
- April 24, 2012 – 19:52
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Á Háskólatorgi er jafnan gaman, enda þótt byggingin sé ein sú ljótasta á landinu öllu. Þar er margt um manninn og oftast hitti ég fólk sem ég þekki, í dag hitti ég t.d. málvísindanemuna knáu hana Silju Hlín. Vanalega hitti ég þó mun fleira fólk sem ég þekki ekki neitt, eða man a.m.k. ekki eftir. [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- April 24, 2012 – 16:52
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Stundum fæ ég fólk inn á síðuna mína í leit að svörum við áleitnum spurningum sem brenna á þeim. Ég hef nú ákveðið að svara sumum þessara spurninga svo næsta manneskja sem leitar hins sama grípi ekki í tómt:
Hvað er hryðjuverkasamtök?
Samtök fábjána með óljós en ofbeldisfull markmið. Sem dæmi má nefna Samtök atvinnulífsins og Landssamband [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- April 23, 2012 – 10:11
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Amma mín á Akureyri sagði alltaf við mig áður en við fórum að hátta: „Nú skulum við hvíla lúin bein.“ Það brást ekki að mér fannst ég finna fyrir því hversu lúið hvert bein í líkama mínum var í hvert sinn sem hún sagði þetta og syfjan seig fljótt á. Stundum virkar þetta ennþá ef [...]
Categories: Minningarbrot, Trú, Úr daglega lífinu
- Published:
- April 22, 2012 – 23:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Iðulega hef ég rétt misst af gönguljósinu þegar ég kem að gangbrautinni við Hamrahlíð og Kringlumýrarbraut. Þá ýti ég á takkann, en oft myndast einmitt þá gap í umferðinni sem ég gæti hæglega smogið mér í gegnum. En mér finnst eitthvað svo ókurteist að nýta ekki ljósið til neins svo ég bíð uns yfirleitt uns [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- April 21, 2012 – 18:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Við erum okkar eigið kaffihús. Mölum baunir og möllum í espressókönnu, flóum mjólk og þeytum. Tveir svona á dag síðustu 8 mánuði og ég er allt í einu orðinn kresinn á kaffi sem ég fæ afgreitt á kaffihúsum. Segir maðurinn sem lifði á neskaffi og hafragraut lungann úr síðasta vetri og kvartaði ekki.
Ég sé ennþá [...]
Categories: Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- April 20, 2012 – 19:18
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
– var í raun á þriðjudaginn, a.m.k. hvað veðrið snertir. Eftir aðeins eitt ár í Danmörku, þar sem ég upplifði ekki beinlínis neina frídagahelgi, er ég orðinn alveg ringlaður í þessum íslensku frídögum. Ég hélt t.d. ekki að neinn héldi upp á sumardaginn fyrsta lengur nema hið opinbera, og hef haldið það í ein 20 [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- April 19, 2012 – 01:13
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef ákveðið að orðræðu- og innihaldsgreina nokkrar vinsælar myndasögur nákvæmlega. Hér eru niðurstöðurnar hingað til. Þær eru hafnar yfir vísindalegan vafa: nákvæmlega svona eru allar sögur hvers myndasöguflokks (92% vikmörk). Smellið á myndirnar til að stækka.
Grettir: Jón á kött sem borðar, sérstaklega það sem hann á ekki að borða.
Ívar grimmi / Hrólfur hræðilegi: Víkingur [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- April 14, 2012 – 17:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í gærkvöld horfði ég á Gremlins í fyrsta skipti í mörg ár. Á meðan ég mundi nákvæm smáatriði í mörgum senum, meiraðsegja tónfall sumra setninga, þá var ýmislegt annað sem ég hafði ekki veitt sérstaka athygli fyrren nú:
• Þemalag myndarinnar er miklu meira eitís en ég hafði gert mér grein fyrir, þó vissi ég alltaf [...]
Categories: Kvikmyndir
- Published:
- April 13, 2012 – 18:51
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá eru komnar athugasemdirnar við Cand. Mag. ritgerðina og eina sem er eftir er að fara yfir ritverkið með þær til hliðsjónar áður en ég skila inn endanlega. En það er þetta með titilinn, ég veit ekki hvað ég á að kalla þetta. Að einhverju leyti er þetta titlasnobb, ég játa það alveg, en fyrst [...]
Categories: Námið
- Published:
- April 9, 2012 – 23:38
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég var óskaplega stoltur af sjálfum mér í dag. Mér nefnilega tókst að klára nærri heilt páskaegg nr. 4. En svo áttaði ég mig á því að hér búa fleiri og því er líklegra að einhver annar hafi étið eitthvað af þessu. Þegar ég var lítill gat ég étið þrjú svona en það er liðin [...]
Categories: Aarhus, Fjölmiðlar, Pólitík, Trú, Úr daglega lífinu
- Published:
- April 8, 2012 – 23:56
- Author:
- By Arngrímur Vídalín