Dýrðardagur! Á tveim dögum hef ég eignast kaffivél, bolla, ruslafötu, þvottasnúru, kerti og bókasafnsskírteini. Mér finnst ég nánast ríkur orðinn. Þá lét ég í einhverju góðmennskukasti ginnast til að kaupa rós af sígaunakonu sem fær nú að drekka úr vatnsfylltri bjórflösku, rósin það er, ekki sígaunakonan.
Gamli skipulags- og Ikeapervertinn í mér er víst kominn á [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 22, 2010 – 15:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það eru óhjákvæmileg viðbrigði að hugsa og tjá sig á þrem tungumálum á sama tíma. Stundum yfirhleðst hugurinn svo úr verður alveg stórfurðulegur en skemmtilegur hrærigrautur. Mest henti það mig í Svíþjóð þegar ég þurfti að þýða úr dönsku jafnóðum og ég talaði á minni sérstöku dólgasænsku, svo blandaðist þar við að Christian vinur minn [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 22, 2010 – 11:49
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þar kom að því, ég er farinn að nótera niður mannamót á dagatalið í tölvunni minni. Fyrrum nýlenduherrann vann stórsigur á hrokafulla eftirlendugosanum sem lyppaðist með skottið milli lappanna heim aftur fyrir sex vikum. Fundur í fyrramálið, matarboð um kvöldið, fyrirlestur á föstudag, ljóðahátíð um helgina, þrif á sameign á sunnudag. En ekki man ég [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- September 21, 2010 – 16:26
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Á leiðinni til Álaborgar frá Árósum keyrði lestin á eitthvað og tætti það svo í sundur undir hjólunum. Titringurinn og óhljóðin fundust óbærilega vel og ég grínaðist með að við hefðum keyrt yfir dádýr. Stuttu síðar var tilkynnt í hátalarakerfinu að við hefðum keyrt yfir dádýr.
Álaborg virtist mér vera ágætispláss en hún er smámsaman að [...]
Categories: Ferðalög
- Published:
- September 20, 2010 – 19:17
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá er ég farinn! Geri mitt besta til að láta ekki sjá mig á netinu næstu vikuna. Álaborg, Osló og svo ráðstefna í Bergvin. Þá Gautaborg og mögulega Lundur í framhjáhlaupi. Þetta verður ferðalag til að muna.
Categories: Ferðalög, Námið
- Published:
- September 10, 2010 – 12:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mæt kollega og vinkona úr íslenskunni, Ásta Kristín, bloggar nú frá Dyflinni og hefur þar með bæst í sístækkandi hóp alþjóðlegra stúdenta sem blogga. Nú erum við semsé orðin þrjú og aldrei að vita nema fleiri bætist í hópinn.
Categories: Háskólablogg
- Published:
- September 9, 2010 – 19:52
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Bankakortið fékk ég blessunarlega í hendurnar aftur í dag svo ég get haldið ótrauður til Álaborgar á morgun. Ég ákvað að verðlauna sjálfan mig þolinmæðina með feitum hamborgara við ána, en þeir kostuðu tæplega 3000 krónur svo ég hélt lengra inn í bæinn og fann Buffhús Jensens sem var örlítið ódýrara. Það er hægara sagt [...]
Categories: Aarhus, Ferðalög, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 9, 2010 – 18:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Seinheppni minni og klaufaskap er engin takmörk sett. Eftir ágætis göngutúr með Christian um fegurri hluta gettósins – gömlu Brabrand og umhverfis hið gullfallega Brabrandvatn – lá leið mín niður í bæ að næla mér í eitthvað til að nærast á. Ég hef komið mér upp þeim sið hérna þegar ég fer yfir fjölfarnar umferðargötur [...]
Categories: Aarhus, Ferðalög, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 8, 2010 – 16:40
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Eyrarsundskollegíið á Amager er fyrir löngu alræmt meðal íslenskra námsmanna í Kaupmannahöfn. Þegar ég kom þangað fyrst í janúar á síðasta ári var þar íslendingapartí auk eins Færeyings sem fékk að fljóta með sökum skyldleika og kannski þess að Íslendingum þykja Færeyingar fyndnir. Það er stærsta kollegí í Kaupmannahöfn, ef ekki það stærsta í Danmörku. [...]
Categories: Aarhus, Greinar, Pólitík, Trú
- Published:
- September 7, 2010 – 14:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Wie Todesahnung Dämmrung deckt die Lande,
umhüllt das Tal mit schwärzlichem Gewande;
der Seele, die nach jenen Höhn verlangt,
vor ihrem Flug durch Nacht und Grausen bangt.
Da scheinest du, o lieblichster der Sterne,
dein Sanftes Licht entsendest du der Ferne;
die nächt’ge Dämmrung teilt dein lieber Strahl,
und freundlich zeigst du den Weg aus dem Tal.
O du, mein holder Abendstern,
wohl grüßt [...]
Categories: Tónlist
- Published:
- September 5, 2010 – 23:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Krakkarnir á kollegíinu mínu eru svolítil krútt inn við beinið. Þar sem þau koma úr myrkviðum evrópskrar menningar (að undanskildum Tyrkjanum) eru þau vön því að láta samlanda sína leiklesa fyrir sig kvikmyndir, svo þau geti forðast að læra erlend tungumál. Ég lánaði tékknesku stelpunni mynddiska en hún átti erfitt með að fylgjast með af [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 2, 2010 – 21:23
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá er fyrsti skóladagurinn búinn. Það var gaman að hitta suma krakkana aftur, ég sit í bekk með Tatjönu, Deboruh og áðurnefndum David hinum spánska í tímum hjá góðkunningja okkar Rolf Stavnem. Kúrsinn er bæði fyrir BA og MA nema og annar Spánverji í bekknum hefur af því áhyggjur að kúrsinn sé heldur miðaður að [...]
Categories: Aarhus, Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 2, 2010 – 16:23
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef ekkert skrifað í viku, finnst ég varla geta skrifað neitt af neinu sérstöku viti um það stúss sem ég hef staðið í að undanförnu.
Það tók mig átta daga, margar strætóferðir, uþb 3000 króna símreikning og tæknimann sem skipti um innstungu hjá mér til að fá netið heim. Nenni varla að nota það eftir [...]
Categories: Aarhus, Úr daglega lífinu
- Published:
- September 1, 2010 – 21:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín