Ég fór með tölvuna í viðgerð í gær og fékk hana aftur samdægurs. Hún hafði verið að ofhitna einsog Ödipus og bræða utanaf sér húðina að neðan. Um miðjan dag fékk ég símtal frá EJS: Áttu kött? Það er heilt teppi hérna inni.
Á dauða mínum átti ég von. En tölvan er einsog ný núna.
Á morgun [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- March 31, 2009 – 20:21
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hvet lesendur eindregið til að hlusta á þennan merkilega hlaðvarpsþátt. Mér þykir ég raunar alveg skelfilega illa reprisenteraður, nýt nær engrar athygli þáttastjórnenda meðan Loðmfjörð, Guttesen, Norðdahl og Lilliendahl þiggja meiriháttar hýðingar. Í öllu falli hlýt ég að krefjast þess að fá meiri dagskrártíma síðarmeir.
Að því sögðu vil ég biðja þær tvær manneskjur sem [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Fjölmiðlar, Menning og listir
- Published:
- March 25, 2009 – 01:15
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nei heyrið mig nú! Það er víst búið að finna og ídentífíkera hræið af henni Anastasíu minni. Og það fyrir tæpu ári. Mun nú vera búið að sameina Romanovfjölskylduna alla í sameiginlegum grafreit.
Ég er sjokkeraður yfir að hafa fyrst komist að þessu núna. Ekki fannst íslensku miðlunum þess virði að færa mér þessar fréttir fyrst [...]
Categories: Kvikmyndir, Saga
- Published:
- March 23, 2009 – 01:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Vorið er að koma. Söngur farfuglanna í trjánum fyrir utan blandast hljóðinu í bráðnandi gúmmíi ökuþóra hér um hálfeittleytið að nóttu. Margt brosir líka við mér núna sem mér hefði aldrei áður dottið í hug að ég ætti eftir að fagna. Vinnan mín er frábær, kærastan mín er best í heimi og kvöldin fara ekki [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- March 20, 2009 – 00:43
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég vil benda á það litla atriði, sbr. þessi frétt, að berserkjavígunum er bæði lýst í Víga-Styrssögu, og þarmeð Heiðarvígasögu, og Eyrbyggju. Það bætir ekki fyrir þau mistök að gefa rangt fyrir Víga-Styrssögu, en svar Kópavogsliðsins var engu að síður rétt líka.
Réttlætingin er þá væntanlega sú að Víga-Styrssaga hafi ekki verið sagan sem leitað var [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- March 17, 2009 – 18:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég sat að semja við píanóið þegar skyndilega riðu þung högg uppum gólfið allt. Ég hélt áfram, nágranninn gæti bara vel fellt sig við óhjákvæmilegu falsnóturnar. En mannfjandinn hélt bara áfram að lemja svo ég neyddist til að hætta. Og ég sem var kominn svo nálægt því sem ég vildi.
Það er kortér síðan og ennþá [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- March 16, 2009 – 22:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Er Þórbergur Þórðarson. Einhversstaðar í akhasaþokunni er hann 121 árs í jarðárum. Fagni því allir góðir menn.
Categories: Þórbergur
- Published:
- March 12, 2009 – 22:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nördinn hann Matti má t.d. alveg gera heiðarlega tilraun.
Fyrst rek ég augun í þetta. Svo þetta.
Elías Halldór má líka spreyta sig.
Categories: Óflokkað
- Published:
- March 12, 2009 – 14:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í gær sat ég á kaffihúsi og fylgdist með stórbruna í Síðumúla. Og ég sem ætlaði Fellsmúlann. Á leiðinni heim keyrði ég framá krambúleraðan jeppa sem leit helst út fyrir að hafa verið tekinn sundur með sprengjuvörpu. Síðdegis í dag var svo búið að strá löggum eftir endilangri Reykjanesbrautinni. Og ég með endurskoðunarmiða.
Að gefnu tilefni [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- March 11, 2009 – 22:38
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Jón Örn kemur með góða ábendingu á bloggsíðunni sinni: Síðasta ljóðabók Sjóns er ekki skrifuð af mönnum sem kunna skil á ritverki Sjóns eða hafa stúderað hann á nokkurn einasta hátt, utan að hafa gripið niður í ljóðasafn hans.
Samt hafa allir skirrast undan að fjalla um hana – á þeim forsendum að þeir þekki einfaldlega [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- March 10, 2009 – 22:05
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Erlendur í Unuhúsi var okkar teingiliður, en eftir að hann dó og Unuhúsi var lokað bar fundum okkar Þórbergs ekki saman nema með höppum og glöppum, einna helst í gestaboðum þar sem ekki er kostur að blanda geði við menn. Ég sá hann seinast sitja einmana og yfirgefinn á bekk í manntómum gángi á Vífilstaðahæli [...]
Categories: Þórbergur
- Published:
- March 9, 2009 – 18:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Bergshús stóð ennþá 1987. Það var greinilega ekkert sérlega fallegt hús (smellið á myndina til að stækka):
Fengið úr Mannlífi við Sund 3.b., Páll Líndal.
Um Bergshús skrifar Páll Líndal:
Alexíus Árnason lögregluþjónn mun hafa reist þetta hús um 1865. ‘Í þessu húsi hafði sá nafnkunni snillingur átt heima á efri árum æfi sinnar. Innan þessara bókfellslegu veggja [...]
Categories: Þórbergur
- Published:
- March 7, 2009 – 17:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nei, ég veit þið hafið engan áhuga á þessu. En hér er samt heill kafli sem ég hripaði upp úr handritinu, svo mér fer greinilega fram við að lesa þetta. Eftir á að hyggja læðist sá ljóti grunur að mér að sami kafli finnist í Skáldalífi Halldórs Guðmundssonar. Stök orð í textanum skildi ég ekki [...]
Categories: Þórbergur
- Published:
- March 6, 2009 – 01:42
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Vorið 2005 fékk ég að skoða Guðbrandsbiflíu. Þessa stundina puða ég hinsvegar við að lesa óútgefið handrit eftir Þórberg. Ég á bágt með að gera upp við mig hvort var erfiðara aflestrar.
Eitt sinn var Þórbergur spurður hvers vegna hann fengi sér ekki ritvél í stað þess að handskrifa allar bækur sínar. Það gæti sparað honum [...]
Categories: Þórbergur
- Published:
- March 5, 2009 – 22:57
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nú þykir mér meira en sjálfsagt að greiða fyrir það framúrskarandi dagskrárefni sem ég fæ hjá Ríkisútvarpinu ár eftir ár. En að það eigi að vera eingreiðsla upp á 17.200 krónur í stað mánaðarlegra afborgana þykir mér alveg útúr kú. Það munar nú um minna.
Auk þess er víst miðað við sextán ára og eldri. Hvernig [...]
Categories: Fjölmiðlar
- Published:
- March 4, 2009 – 13:24
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Skáldið og heimspekingurinn varð að sitja dag eftir dag inni í köldu herberginu og skjálfa úr kulda. Rétt fyrir jólin gekk hann í snjó og stormi suður í Hafnarfjörð til þess að fá léðan kogara til að hita upp með herbergið. En kogaraupphitunin var alltof dýr fyrir skáldið og heimspekingurinn átti erfitt með að þola [...]
Categories: Þórbergur
- Published:
- March 4, 2009 – 01:55
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Gátan leyst:
„Á neðra horni Bergstaðastrætis, vinstra megin götunnar (nr. 10), er nú risin nýbygging eftir Guðmund Kr. Guðmundsson arkitekt en þar var til skamms tíma Bergshús, lágt timburhús með miklu risi sem því miður hefur verið rifið. Það var eitt frægasta hús íslenskra bókmennta vegna frásagna Þórbergs Þórðarsonar í Ofvitanum. Þar var Baðstofan, þar sem [...]
Categories: Þórbergur
- Published:
- March 3, 2009 – 17:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í Lesbók laugardagsins birtist alveg frámunalega léleg grein eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson undir heitinu Við skulum ekki skilja aftur. Fyrir neðan titilinn stendur:
„Hin trúarlega No More Shall We Part er líklega vanmetnasta plata Nick Cave & The Bad Seeds“
sem kemur mér á óvart enda veit ég ekki til annars en hún hafi hlotið gríðarlegt lof [...]
Categories: Fjölmiðlar, Tónlist
- Published:
- March 2, 2009 – 20:15
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Sæll,
Þessi Bergur er fyrsti lærði sútunarmeistarinn á Íslandi og fyrsta
sútunarverksmiðjan á Íslandi var þarna í bakhúsi.
Til er mynd af danska kónginum þarna í kaffi og mér skilst á núverandi eiganda að
það séu til heilmikil skrif um þetta hús.
Hans aðalvitneskja er frá gamalli konu sem átti íbúðina á neðstu hæðinni og sagði
honum alla söguna um húsið [...]
Categories: Þórbergur
- Published:
- March 2, 2009 – 19:09
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég sendi Fasteignasölunni Ási svohljóðandi fyrirspurn:
Góðan dag.
Umrætt hús er nefnt Bergshús og sagt sögufrægt. Þó er það ekki Bergshús sem Þórbergur Þórðarson bjó í á fjórða vetur á árunum 1909-1913, til þess er það of ungt (reist 1929 skv. vefnum). Auk þess var það við Skólavörðustíg þótt vissulega sé hægt að færa til hús.
Mig langar [...]
Categories: Þórbergur
- Published:
- March 1, 2009 – 18:26
- Author:
- By Arngrímur Vídalín