Það tekur lengri tíma en ég hugði að drulla ámu af bjór yfir á aðra ámu og þaðan á flöskur. En ég er loksins búinn. Svo tókst mér að brenna mig við að sótthreinsa flöskur og er flekkóttur núna. Ef þetta verður verra á morgun er ég farinn niður á slysavarðstofu …
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- February 26, 2009 – 03:38
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Tölvan mín er farin að hitna svo mikið að ég sá þann kostinn vænstan að hringja í þjónustuaðila og panta tíma. Húðin er beinlínis farin að flagna utanaf örgjörvanum. Tölvan reyndist vera í ábyrgð ennþá svo það kemur sér afskaplega vel.
Á Þórbergsvefnum rakst ég á meint MA verkefni eftir Sverri Árnason, Í kompaníi við Þórberg [...]
Categories: Námið, Úr daglega lífinu, Þórbergur
- Published:
- February 25, 2009 – 13:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Rétt í þessu greip ég niður í 50 blaðsíðna ritgerð sem ég hef verið að lesa mér til heimildar, og lauk því litla sem eftir var. Það er langlengsta heimildin sem ég þarf að styðjast við að undanskildum bókum. Fer svo að fletta upp í glósunum.
Ég hef ekki hripað eina einustu hjá mér, nema þá [...]
Categories: Námið, Þórbergur
- Published:
- February 24, 2009 – 22:47
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Varir okkar hafa gróið saman
utanum tvö lítil og skrítin dýr
sem iða af ást og njótast
inní heitum og rauðum heimi
sem varir okkar hafa lokast um
- Ari Jósefsson, úr Nei, 1961.
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- February 24, 2009 – 22:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég var bara fyrst áðan að fatta að Jónas Kristjánsson er Jón Gnarr í dulargervi. Í alvörunni, er þetta ekki orðið gott, Jón?
Categories: Óflokkað
- Published:
- February 19, 2009 – 23:44
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Allir skulu stilla inn á síðdegisútvarp Rásar2 á morgun milli 16 og 18. Þar má heyra viðtal sem tekið var við okkur Kristínu Vilhjálmsdóttur í sambandi við prógram Borgarbókasafns, Húmor og amor.
Á sunnudaginn kemur hefst dagskráin með pompi og prakt og má finna undirritaðan þar, nánari upplýsingar hér. Verkefnið varir svo út árið með reglulegu [...]
Categories: Vinnan
- Published:
- February 19, 2009 – 15:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ligg hálfslappur heima í dag og langar í koníak. Koníak fer afskaplega vel með rigningu og veikindum. En ég á ekkert koníak, hef ekki efni á því og þyrfti þar fyrir utan að fara úr húsi til að verða mér úti um það. Það kemur ekki til greina Auk þess finnst mér koníak ekkert gott. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- February 17, 2009 – 13:51
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í kjölfar þess að bróðir minn gerðist ritstjóri þess prýðilega vefs Húmbúkk gúglaði einhver sig inn á þessa síðu í leit að honum (þetta er frægt og það leikur sér). Ég skoðaði hvað viðkomandi fann og rakst á þetta í leiðinni.
Ég vil taka það fram að ég var orðinn tvítugur þegar þetta er skrifað. Og [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- February 13, 2009 – 02:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hygg að ég sé að grána. Ég veit að maður á ekki að blogga um svona hluti. En spegillinn gegnt rúminu mínu sýnir mér ógnarstór kollvik þar sem þó vex hár þegar nánar er að gætt.
Sérstök ferð sem ég fór í rannsóknarskyni innundir flóðlýsta skuggsjá salernisins leiðir í ljós að vissulega er ég ögn [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- February 12, 2009 – 02:03
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég er með stóra spurningu við heimildarmyndina The Bridge.
Myndin fjallar um sjálfsvíg við Golden Gate brúna. Í myndinni eru u.þ.b. átta sjálfsvíg fest á filmu (eftir að þetta var skrifað sé ég að Wikipedia segir 19 – ég hlýt að hafa athyglisbrest), og að mig minnir þrjú stöðvuð. Rammafrásögn myndarinnar er eitt tiltekið sjálfsvíg. Við [...]
Categories: Kvikmyndir
- Published:
- February 10, 2009 – 00:33
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér virðast margir bloggarar orðnir æstir vegna árvissrar fréttar um listamannalaun í dag (af hverju enginn fyrtist fyrr við veit ég ekki). Þá er Hallgrímur Helgason oft sérstaklega nefndur, Baugur og annað álíka. Skoðanir listamanna, yrtar eða óyrtar, eru semsé skyndilega farnar að þykja tilefni til að ríkið hætti að styrkja þá.
Ef dagskipunin á að [...]
Categories: Menning og listir
- Published:
- February 6, 2009 – 17:48
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Við sem vinnum við þjónustustörf þurfum að venjast því að endurtaka okkur oft yfir daginn. Frá því við færðum afgreiðsluaðstöðuna okkar um daginn hefur annar hver lánþegi – ég ýki ekki – sagt: Hva, bara alltaf verið að breyta!
Sum okkar hafa kosið að tala um hagræðingu, ég á hinn bóginn vil ekki heyra það orð [...]
Categories: Hugleiðingar, Vinnan
- Published:
- February 4, 2009 – 20:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í dag eru hálfgerð aldahvörf, og af því tilefni lét ég til leiðast að fara í einhverra þriggja tíma göngutúr um Mosfellssveitina í vetrarríkinu – upphaflega planið kallaði reyndar á lengri gönguleið en það voru dragbítar með í för. Kom svo í tæka tíð í hlaðborð kræsinga til að fylgjast með stjórnarkynningu. Svo var útsending [...]
Categories: Fjölmiðlar, Pólitík, Úr daglega lífinu
- Published:
- February 1, 2009 – 19:54
- Author:
- By Arngrímur Vídalín