Síðasta ljóðabók Sjóns

Þá er ég kominn út úr skápnum með nýjustu bókina mína. Við Jón Örn Loðmfjörð skrifuðum hana saman, upplýsingar um hana má finna hér, smellið á kápuna.

Þess má geta að hún kostar aðeins 490 krónur í næstu bókabúð – nánar tiltekið á Laugavegi, í Austurstræti og í Iðu.

Þess má einnig geta að fjölmiðlar hafa hingað til hunsað hana algjörlega. Ekki múkk.

Viðbót: Ég get þá kannski heimtað af Hauki Ingvarssyni ef hann lítur hingað inn, að fjallað verði um bókina í TMM. Hvað segir Haukur við því?

Viðbót II:Nú, eða Guðmundur Andri. Já og þið öll bara.

No Trackbacks

You can leave a trackback using this URL: http://kaninka.net/arngrimurv/2009/01/07/si%c3%b0asta-ljo%c3%b0abok-sjons/trackback/

8 Comments

  1. Vá þú verður öruglega vinnsæll í bókabúðunum . Til hamingju að vera búinn með hana.

    Posted January 7, 2009 at 21:45 | Permalink
  2. Nei, þetta er önnur bók …

    Posted January 7, 2009 at 21:55 | Permalink
  3. Þórdís

    Er ekki Guðmundur Andri orðinn ritstjóri TMM?

    Posted January 7, 2009 at 22:18 | Permalink
  4. Er það? Einhversstaðar heyrði ég að Haukur Ingvarsson væri orðinn ritstjóri. En Guðmundur Andri er ekkert of góður til að svara kallinu heldur, lesi hann þessi harmakvein mín.

    Posted January 7, 2009 at 22:22 | Permalink
  5. Gratulerar!

    Posted January 8, 2009 at 12:27 | Permalink
  6. Ég þakka pent. Gratúlera þér sömuleiðis með Húsið, er með hana ólesna í láni af safninu og hlakka til að byrja.

    Posted January 8, 2009 at 17:47 | Permalink
  7. Til hamingju með bókina. Að mínu bókmenntaviti ert þú lífæð íslensks aldamótakveðskaps, sneiðir framhjá skammsýni framúrstefnunnar og upphefur íslenska bændasamfélagið. Það er rökrétt að lesa skáldskap “Der Vídalíns” þegar upplausn ríkir og þjóðin finnur enga fótfestu. Er séns að fá eintak sent til Vínar?

    Posted January 9, 2009 at 12:43 | Permalink
  8. Jón Örn

    Lífæð íslenskunnar… jaddí jaddí

    Ég á eintök sem ég get sent ef fólk vill.

    Posted January 9, 2009 at 21:51 | Permalink

Post a Comment

Your email is never shared. Required fields are marked *

*
*