Það lítur út fyrir að auglýsingin mín hafi virkað, þökk sé góðu fólki. Aldrei að segja aldrei. Ég kannski auglýsi eftir lítið notuðum, ódýrum saunaklefa næst – sem hengja má utan á húsið mitt með aðgengi úr svefnherberginu mér að kostnaðarlausu. Og koma svo …
Í öðrum fréttum eru prófin búin, við tekur vinna út desember [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- December 20, 2008 – 11:49
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég veit þetta er líklega ekki til neins en það sakar ekki að reyna:
Skrifstofa óskast, að lágmarksstærð 10m2. Ég hef ekki ráð á að borga meira en 15 þúsund krónur á mánuði. Sólarhringsaðgangur er krafa. Skiptir litlu hvar húsnæðið er, en æskilegt að það sé í miðborginni. Þarf ekki að reykja innandyra en leyfi til [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- December 18, 2008 – 22:28
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
“Sexuality is part of the genre of language,” says Baudrillard; however, according to Prinn, it is not so much sexuality that is part of the genre of language, but rather the rubicon of sexuality. In a sense, many sublimations concerning the dialectic, and some would say the fatal flaw, of neoconceptual class may be found. [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- December 18, 2008 – 21:03
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hvernig tókst mér að misskilja þessa fyrirsögn?
Categories: Fjölmiðlar
- Published:
- December 11, 2008 – 14:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Vi kan godt opfatte retoriske virkemidler som redundans, som fyld er skal påvirke ved sin flothed eller skønhed, men vi må stadig huske at det litterære indhold i teksten ikke er det samme som det logiske indhold.“
Mér þykir leitt að geta ekki vísað til heimildar þar sem þetta er bara dreifildi sem við fengum í [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- December 11, 2008 – 00:43
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Við þurfum að horfast í augu við sannleikann.
Áðan mallaði ég nefnilega einhvern þann furðulegasta kaffibolla sem ég hef lengi bragðað. Svo komst ég að því hvað var að kaffinu: það var óvenjugott! Gömul fíkn er að skríða upp á yfirborðið og eftirbragðið er mig lifandi að drepa. En ég veit að ef ég laga meira [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- December 9, 2008 – 23:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í dag flaug þröstur inn á safn. Eftir skamman eltingarleik náði ég að taka hann upp og koma honum útfyrir. En þegar ég opnaði lófann haggaðist hann ekki. Ég lagði hann niður á gangstéttina og losaði litlu klærnar úr höndinni. Enn fór hann ekki neitt, bara lá þarna einsog beinlaust viðrini, starði á mig opinmynntur [...]
Categories: Háskólablogg, Úr daglega lífinu
- Published:
- December 8, 2008 – 20:35
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Kannski ólíkt flestum þá er ég ánægður með veðrið núna. Massíf snjókoma og hörð suðaustanátt. Þá er gott að eiga bjór og súrmeti, og nokkur velvalin lög til að kynda undir einhverslags jólastemningu. Þetta síðastnefnda sækist raunar seint.
Prófin á leiðinni, og svo þessi jól með öllu sínu tilheyrandi hérna uhh. Það er eitthvað skrýtin tilhugsun, [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- December 8, 2008 – 00:08
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ef fólk vill kvarta undan mér þykir mér betra að það sé gert við mig. Ég vil ekki frétta það annarsstaðar. Ég er hreinskiptinn og seinþreyttur til leiðinda. Mér finnst gagnrýni aldrei sár nema hún komi aftan frá.
Ótengt en svipað: Ef fólk hefur eitthvað að segja mér má það bara gjöra svo vel að segja [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- December 5, 2008 – 22:15
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Höldum okkur við vídjóljóðin í bili.
Jón Sigurðsson frelsishetja flytur Kreppusonnettuna, eftir Eirík Örn Norðdahl:
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- December 5, 2008 – 03:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hvað á maður svosem að skrifa hérna?
Ég er talsvert að pæla í ljóðlist þessa dagana, takmörkum hennar sumpart, en fyrst og fremst möguleikum ljóðlistar. Án þess endilega að leita að niðurstöðu. Sem er skemmtilegt.
Án þess að orðlengja það vil ég vísa hingað og þarmeð gera ofansagt að formála fyrir síðasta prójekt Lomma.
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- December 3, 2008 – 22:01
- Author:
- By Arngrímur Vídalín