Laugardagsvaktir eru hressandi, en þá kemst maður ekki á mótmæli. Ég treysti því að þið látið þau heyra það fyrir mína hönd.
Categories: Kreppan
Laugardagsvaktir eru hressandi, en þá kemst maður ekki á mótmæli. Ég treysti því að þið látið þau heyra það fyrir mína hönd.
Categories: Kreppan
Fólk að vinna við upplýsta höfnina utan við gluggann minn.
Handrit sent í ýmsar áttir til yfirferðar.
Einn með sjónvarpinu á föstudagskvöldi.
Held ég hafi aldrei verið eins einmana.
Nei, þetta er ekki ljóð eftir Jón Gnarr
Categories: Úr daglega lífinu
herbergið hvítkalkað
og tómt
rakinn áttatíu prósent
þú sast á rúmbríkinni
og lést sæðið
drjúpa úr þér á nakið gólfið
og það dropaði úr krananum
inná baði:
drip drip drip…
einsog angurvær barnsgrátur
utanaf götunni
og tár þín María
tár þín
- Jón Gnarr.
Categories: Bækur / Bókmenntir
Það er ekki laust við að mér líði einsog svindlara innanum þessa menn.
Þetta er ekki síður skringilegt.
Categories: Bækur / Bókmenntir
Viljið þið breytingar? Þá er svarsins að leita hjá fjölmiðlum. Þetta er afskaplega einfalt: Næst þegar ráðamenn boða til blaðamannafundar, ekki mæta. Fólk sem hefur ekki umboð til að stjórna landinu getur boðað til allra þeirra blaðamannafunda sem þeim sýnist, en það þýðir ekki að nokkur þurfi að mæta, eða að það verði tekið alvarlega. [...]
Categories: Fjölmiðlar, Kreppan
Á ég að trúa því að þetta bréf sé ekki uppspuni? Hvaða auli sem er getur búið svona til, og þetta er nú einum of. Mér er svo mikið um að ég næ varla andanum. Ef þetta er satt, hverslags eiginlega andskotans viðrini eru þessir menn þá!
Categories: Fjölmiðlar, Kreppan
Ég held ég hafi ekki fundið eitt einasta blogg um lögreglustöðvarmótmælin sem ég get tekið undir með. Og það er hreinlega bara ekki á þetta helvítis kraðak bætandi, svo ég sleppi því bara að segja nokkuð. Nema kannski þetta: Ég er orðinn ansi þreyttur á þessu rúllandi skoðanabrjálæði sem bloggheimar eru, og það er einsog [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Fjölmiðlar, Kreppan
Sumum finnst Steinar Bragi hafa boðað til blóðugrar byltingar með grein í dagblaðinu Nei á dögunum. Öðrum finnst Viðar Þorsteinsson hafa boðað til blóðugrar byltingar á Austurvelli á laugardaginn. Lesið greinarnar og metið það sjálf.
Það er skýlaus krafa þjóðarinnar að hreinsað verði úr Stjórnarráðinu, Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu og endurstokkað á Alþingi – ef þingið er [...]
Categories: Fjölmiðlar, Kreppan, Pólitík
Hér gefur að líta tónlistarmyndband við lagið Ninja Hagen eftir hljómsveitina Músífölsk. Horfið á og dreifið svo við getum öðlast heimsfrægð á morgun og yfirgefið þessa djöflaeyju.
Categories: Kvikmyndir, Tónlist
13.11.2008: ESB/EFTA: Sögðu sig frá gerðardómi
Þetta voru óaðgengileg skilyrði, segir Árni, og því sáum við enga aðra leið en að segja okkur frá ferlinu. Hann segir að viðræðum hafi ekki verið slitið og að allir geri sér grein fyrir því hve málið sé mikilvægt. Hann segir þetta vonbrigði en útilokað hafi verið að ganga að [...]
Categories: Fjölmiðlar, Kreppan
Fáið mér dýnamít
til að sprengja í loft upp
öll þessi orð
sem eru að drepa okkur
með lygi og leiðindum.
Gröfum úr rústunum
orð einfaldleikans
um liljur vallarins
fugla himinsins
og um brauðin og fiskana.
Categories: Bækur / Bókmenntir
Í dag komst ég að því að ég tók myntkörfulán fyrir bílnum mínum.
Ég man að ég var spurður með mikilli söluræðu hvort ég vildi ekki taka slíkt lán, minnist þess þó ekki að hafa verið svo vitlaus að jánka, en hvað man maður svosem. Það eru jú heimskupörin sem stöðugt minna á sig fremur en [...]
Categories: Kreppan, Úr daglega lífinu
Það er ekki hægt að treysta einu einasta orði sem fram kemur í fjölmiðlum. Skilaboðin eru svo æði mörg og misvísandi að það stendur varla steinn yfir steini. Þetta er bara ein tilraun til að greina ástandið.
Bresk og hollensk stjórnvöld eru sögð kúga Íslendinga með því að standa í vegi fyrir skrímslalegri skuldsetningu þjóðarbúsins gegnum [...]
Categories: Kreppan
Frá: Einar Ólafsson
Fyrirsögn: Staðan í efnahagsmálum
Kjarasamningur St.Rv. við Reykjavíkurborg rann út um síðustu mánaðamót.
Samningaviðræður hófust 30. september. Um miðjan október óskaði samninganefnd Reykjavíkurborgar eftir hléi á viðræðum vegna óvissu í fjármálum borgarinnar, en Reykjavíkurborg hefur m.a. fundað með öðrum sveitarfélögum um fjárhagsstöðuna og útlitið í efnahags- og atvinnumálum.
Síðan hafa viðræður að mestu legið niðri en [...]
Categories: Kreppan
Ætli Egill hitti ekki naglann á höfuðið hér. Þið afsakið þótt ég taki ekki handahlaup strax.
Categories: Fjölmiðlar
Harpa Jónsdóttir, sem skrifaði svo fallega um bókina mína í hittífyrra, á enn inni þakklæti mitt. Núna hefur hún búið til skólaverkefni um Póstkort í vesturbæinn úr sömu bók – aðgengilegt á vef Námsgagnastofnunar tileinkuðum Degi íslenskrar tungu. Verð að játa að það er skrýtið að sjá sjálfan sig á svona verkefnablaði. Hafi hún enn [...]
Categories: Hugleiðingar, Úr daglega lífinu
Þegar of mikið leitar á hugann þá er hreinlega ágætt bara að hunsa það. Fá sér kaffi, opna bók og hlusta á Emilíönu Torrini. Oftast er bara of grunnt á öllu því sem ég vildi síður hugsa um, og oftar en ekki endar það á þessu bloggi, nógu illa framsett til að það skiljist ekki.
Mig [...]
Categories: Úr daglega lífinu
Ætli ég sé einn um að finnast það hálftilgangslaust að skrifa eitt aukatekið orð á þessa síðu?
Eins og ég heyrði af mótmælunum í gær varð ég afar ánægður með að Íslendingar væru hættir að láta valta yfir sig. Svo varð mér ljóst að þegar fjölmiðlar segja að mótmælendur hafi grýtt þinghúsið þýðir það að einhverjir [...]
Categories: Fjölmiðlar, Hugleiðingar, Pólitík
Þrátt fyrir hallærislega dramatískan áróður fyrir einni tiltekinni heimssýn þá er myndin vel þess virði að horfa á. Það er margt þarna sem þarf að takast á við, með voninni um að hægt sé að breyta því hvernig heimurinn virkar, og hvernig við hugsum.
Þið getið séð myndina hér.
Categories: Fjölmiðlar, Kvikmyndir, Pólitík, Trú
Ætli þeir á DV viti það?
Categories: Fjölmiðlar
Aldrei hélt ég að ég ætti eftir að upplifa þetta. En fyrst Kaninn höndlar að kjósa svartan forseta ættu Íslendingar kannski að lifa af ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokks svona einu sinni. Það er einsog það birti til einhversstaðar framundan við tilhugsunina eina.
Categories: Pólitík
Þegar ég var lítill skiptumst við félagarnir á körfuboltamyndum, og einhugur ríkti um ímyndað verðmætamat einstakra spjalda. Sum voru „sjaldgæf“ og þar af leiðandi meira virði en önnur, og hver sá sem býttaði á 10 Karl Malone, einum Scotty Pippen og tveim Larry Bird fyrir einn Michael Jordan að kyssa gullbikar NBA deildarinnar lét Jordaninn [...]
Categories: Fjölmiðlar, Geðveiki
Það er stemning að róta um eftir nauðsynjum í kompunni í vinnunni með vitin full af rottunni sem fannst dauð þar fyrr um daginn eftir vikudvöl í 40 stiga hita á celsíuskvarða. Kvöldvaktin tók þá einróma ákvörðun í kjölfarið að láta hreingerningarstúlkuna vita af atburðum dagsins svo hana grunaði nú ekki að brögð væru í [...]
Categories: Úr daglega lífinu