Monthly Archives: October 2008

Lýðræðið grafið 4

Ég ætla ekki að hafa sérstaklega mörg orð um þessa síðu, bara benda á hana.
Ég vil aðeins segja tvennt.
1. Aðeins forsætisráðherra hefur heimild til að rjúfa þing. Þjóðin hefur það vald raunar líka, en til þess þarf að stíga útfyrir ramma laganna. Þeir sem trúa á lýðræðið setja það raunar ekki fyrir sig.
2. Mér hefur [...]

Gæði 6

Ef þið hugsið um raunveruleg gæði, landgæði og framleiðslutæki, andspænis ímynduðum tölum á tölvuskjá sem standa fyrir peninga – sem eru ekki höfuðstóll neins nema sjálfra sín – þá er engin kreppa á Íslandi. Hér er allt óbreytt, því allt er enn á sínum stað. Vegið og metið aðstæður hverrar þjóðar fyrir sig, hvar standa [...]

Frjálshyggjan og framtíðin 0

Ég er reglulega spurður retórískt þessa dagana hvar frjálshyggjumennirnir séu, fyrir utan þennan eina sem þusaði eilíft í þenslunni en flýgur á hvolfi í kreppunni, og hingað til hef ég ekkert þorað að fullyrða. En núna segir mér svo hugur að einhversstaðar séu þeir hlæjandi með vindlareykinn standandi uppúr sér, því einhverjir þeirra fá vænti [...]

Meira um Finnland 1

Í Finnlandi er til máltækið Jos ei viina, terva tai sauna auta, tauti on kuolemaksi, sem mun þýða: Ef sjúkdóminn má ekki lækna með víni, tjöru eða sauna, þá er hann banvænn. Þeir sem ég spurði út í þetta sögðu mér að þeir hefðu aldrei skilið þetta með tjöruna, en hitt meikaði alveg sens.
Eitt sem [...]

Hvað er Grétar að hugsa? 0

Nú vill Grétar Mar flæma sendiherra Breta af landinu. Hvers vegna í ósköpunum? Hvaða þátt átti sendiherrann í hruni bankanna? Sat hann kannski á leynimakki í sendiráðinu, plottandi sín ósköp, hlæjandi einsog illmenni? Eða er þetta kannski bara stereótýpískt fyrir sjálfbirgingshátt íslenskra slettireka sem aldrei geta litið í eigin barm. Nú er sko stríð, urr, [...]

The IMF is the NME 1

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur boðað til blaðamannafundar í Karphúsinu, Borgartúni 21, klukkan 15:00 í dag. Fundurinn er haldinn í kjölfarið á blaðamannafundi sem Ríkisstjórnin hefur boðað til í Ráðherrabústaðnum klukkan 14:15. #
Á meðan það er ennþá til eitthvað sem kallast þjóð á tyllidögum í þessu landi væri nær að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort við viljum láta selja [...]

Ljótt er veðrið 0

Hvað getur maður svosem sagt?
Jú, býsna margt. Ég á sjálfsagt eftir að hafa nóg um allt þetta að segja á næstunni, en þegar orkustöðvarnar eru fullnýttar á kvöldin og það eina sem maður hefur við rúmstokkinn til að ylja sér gegn ljótviðrinu úti er Beck’s og bókin sem ég fékk í pósti í dag (og [...]

Glitnir 2

Þegar ég var í Jyväskylä núna í október rak ég augun í Glitnisskilti við stigagang að skrifstofuhúsnæði. Dyrnar voru læstar og þegar ég kannaði dyrabjöllurnar sá ég engin ummerki þess að Glitnir hefði nokkru sinni starfað í húsinu, önnur en skiltið. Mikið hafa þeir verið fljótir að pakka saman.
Þegar ég var þar síðast fyrir tæpum [...]

Hakkebuff 0

Ingibjörg Sólrún sér ekkert athugavert við skilmála IMF. Heldur ekki Seðlabankinn. Sem þýðir að annað hvort skilja þau ekki skilmálana eða þau eru að ljúga. Björgvin G. neitar að tjá sig um skilmálana. Þau neita öll að tjá sig um skilmálana. Annað hvort er þetta alltsaman svona frábært að við komum til með að skíta [...]

Hofmæði 2

Ef kenna mætti smæð landsins um hofmæðina (e. cabin fever) sem jafnan ríkir hér gæti það útskýrt hvers vegna landinn er alltaf svona hofmóðugur erlendis. Stundum trúi ég því að Íslendingar séu upp til hópa hálfvitar.

Er ég kem heim í … 7

Fyrsta lestin var allt í lagi. En hefði ég verið með belti hefði ég hengt mig með því í þeirri seinni, með fyrirheitnalandið þjótandi hjá glugganum.
Velti því fyrir mér á flugvellinum hvernig það væri að vera einn af þessum gaurum sem láta panta sig sérstaklega um borð í vélina, hvort fólk tefðist mikið ef hans [...]

Bless bless 0

Já, lífið er undarlegt. Ég hef hannað gólem í eigin mynd sem að sama tíma á morgun verður í flugvél, fótalúinn eftir brölt með ferðatösku og þriggja tíma lestarferð, með fyrirheitna landið að baki í bili. Mér finnst liðinn mánuður síðan ég stóð meðal túrista í Leifsstöð einn dimman mánudagsmorgun. Og samt finnst mér ég [...]

Eðli mannsins 4

Maðurinn er í eðli sínu nákomnastur sjálfum sér þegar hann situr reykjandi inni á Sohwi með pintu af karjala og bloggar um eðli mannsins.
Nákomnastur er hann náttúrunni þegar hann stendur nakinn á palli saunaklefans í skóginum að nóttu til, með bjór í hönd, og horfir reykjandi yfir ríkidæmi sitt: stöðuvatnið og lendurnar í kring – [...]

Farinn, Ísland brenni á meðan 5

Plís byltið á meðan ég er í burtu að ríða og drekka bjór í saunaklefa, ókei?
Lesið svo grein Hauks Más og rifjið upp eilífu gildin.
Ef Ísland verður ekki yfirtekið þegar ég kem tilbaka verð ég hissa. Þaðan af síður er neitt einasta víst að ég komi tilbaka ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn verður kominn til að rústa því [...]

FME 1

Kaupþing rúllaði í nótt, ef búið var að ganga frá sameiningunni valt Spron vænti ég líka. Er minn banki þá einn eftir? Ég hef hvergi séð neinn velta vöngum um stöðu Byrs í öllu þessu – sem var reyndar rekinn af sveitarfélögum síðast ég vissi. Á sama tíma halda Bretar dauðahaldi í innistæður IceSave með [...]

Helsinki – Tampere – Jyväskylä 2

Ég sé bara pappír þegar ég blaða í evrunum mínum, tel þær, kasta yfir höfuð mér og hlæ kapítalistalega með sjálfum mér. En mér er sagt að á þeim megi lifa í mánuð á Spáni, að húsaleigu undanskilinni. Þær kostuðu 56 þúsund krónur. Fyrir mann sem reykir hvorki né drekkur ætti að vera einfalt mál [...]

Já, kreppan 2

Það sem ég er andvaka yfir núna er þetta:
Ég get með góðu móti komist af með 30 þúsund krónur fyrir mat og bensíni í þrjár vikur á Íslandi. Samsvarandi upphæð nemur 200 evrum. Það kemur til með að fleyta mér eitthvað áleiðis þá 10 daga sem ég verð í Finnlandi, en að lokum neyðist ég [...]

Fast gengi 2

Hver ætlar að útskýra þetta fyrir mér?
Seðlabankinn beitir sérstakri heimild til að festa gengi krónunnar við 131 per evru, gerandi evru að óopinberum gjaldmiðli landsins. Þar sem svona hókus pókus virkar ekki á opnum markaði geri ég ráð fyrir að Seðlabankinn einfaldlega kaupi þennan gjaldeyri og selji okkur ódýrar en hann var keyptur. En hvað [...]

Jahá 2

„Það gat enginn séð þetta fyrir.“
Jú, allir nema þið.
„Það kom bara fyrst í ljós í gærkvöldi að skuldastaða bankanna nemur margfaldri landsframleiðslu og það breytti öllum forsendum!“
Þvættingur, það hefur verið vitað lengi.
„Blablabla.“
Mér er alveg sama hvað þið segið núorðið.
Hvernig væri svo að fjölmiðlar færu að sinna hlutverki sínu?

Ljóðvinir fagrir: ungskáld og bókmenntasaga – ádrepa um Tíminn er eins og vatnið – íslensk bókmenntasaga 20. aldar 0

Ég vil gera alvarlegar athugasemdir við nýja bókmenntasögu tuttugustu aldar sem kennd er í framhaldsskólum í fyrsta sinn nú í vetur, bókina Tíminn er eins og vatnið eftir Brynju Baldursdóttur og Hallfríði Ingimundardóttur, eða í það minnsta þann stutta kafla hennar sem helgaður er ungskáldum samtímans og nefnist „Ljóðvinir fagrir“.
Ung [...]

Vísdómsorð dagsins 1

Kurteisi er höfuðdyggð við munnlega samningagerð, meira svo en ella. Með kreditkorti má kaupa friðþægingu, en ekki ást.

Haust 0

Október hófst við frostmark, Vort daglegt brauð og enn eina svefnlausa nótt. Haustlitirnir bögga.