Monthly Archives: September 2008

Nýr Garðskáli 1

Fagni allir góðir menn nýjum Garðskálaþætti í fyrsta tölublaði hinna nýju Tregawatta. Lesið hið stórglæsilega tímarit! Horfið á hinn kynngimagnaða Garðskála! Njótið!
Í öðrum fréttum fékk ég lánaða The Soft Bulletin með The Flaming Lips hjá stóra bróður mínum, sem kann að meta allt sem er fallegt, gott og krúttlegt, enda þótt hann sé vígalegur á [...]

Sigfús Daðason fagnar kreppunni 1

Mátti til með að plögga þessu ljóði í tilefni dagsins:

Glitnir 1

Ég legg til að hann taki nýtt nafn: Íslandsbanki.

Skilaboð til lesenda 5

Skylduverk dagsins er að hlusta á etýðu opus 10 nr. 3 í E-dúr eftir Chopin. Lesendur mega ímynda sér að þeir séu staddir einhversstaðar í Evrópu að sötra rauðvín á svölum í volgum vorandvaranum með hálfnakinn elskhuga dormandi á sólstól með tequila sunrise og Blóm hins illa eftir Baudelaire meðan sólin strýkur ykkur um vangana [...]

Íslenskar kvikmyndir 11

Þær eru margar hverjar alveg afskaplega leiðinlegar, kjánalegar, illa skrifaðar, illa leiknar og óraunsæar. Skemmtilegar undantekningar frá því eru Sódóma Reykjavík og 101 Reykjavík. Aðrar myndir sem því miður falla að einu eða öllum ofangreindum atriðum eru Englar alheimsins, Dís og nærri því allar myndir gerðar fyrir aldamót.
Ég er að horfa á A Little Trip [...]

Tómas Guðmundsson 17

Ég sé ekki þörfina á að reisa minnisvarða um Tómas Guðmundsson til að stilla upp á áberandi stað í Reykjavík. Ástæðan er fjarska einföld.
1. Það er þegar til lagleg brjóstmynd af Tómasi Guðmundssyni. Lengi vel var hún höfð í Austurstræti eins og viðeigandi þótti, eða þar til borgaryfirvöldum þótti nóg um eftir að ítrekuð skemmdarverk [...]

Sunnudagur á bókasafni 0

Upplýsingaborð, 14:30. Undirritaður tekur símann.
„Bókasafnið, góðan dag.“
„Já, sælir. Ég er að leita að Wohltemperiertes Klavier, fúgur og prelúdíur eftir Bach í flutningi Xurs Xurssonar gefnar út af Weihnachtsschweinliches Musikverlag í Berlín 1963. Áttu það? Já og svo vantar mig Noktúrnur Chopins númer 13, 45-7 og 53. Náðirðu þessu?“
„É …“
„Svo vantar mig eftirfarandi sónötur Haydns fyrir [...]

Mig langar líka í 8

Fann þetta hjá Möggu Maack.

Tindersticks 3

Tindersticks voru fáránlega töff í gær. Fáránlega töff segi ég. Fáránlega. Stuart Staples var merkilega prúður milli átakanna sem hann lagði í hvert lag. Krúttlegt bros. Sá hann alltaf fyrir mér sem meira hörkutól. Þarf að fara að kíkja á nýju plötuna. Fannst ég skynja svipuð þemu þarna í gær en Curtains verður þó alltaf [...]

Svyturys Ekstra 0

Þau eru farin að selja hann aftur í ríkinu. Kaupið hann. Þetta er besti bjór í heimi.

Fílabeinsturn fræðanna 2

„Sigurjón er harðduglegur hugsjónamaður, einn af stofnendum flokksins, með góðan skilning á vanda sjávarbyggðanna. Sigurjón hefur aflað sér þekkingar á líffræði án þess að loka sig inni í fílabeinsturni fræðanna, til þess er hann of alþýðlegur og fróðleiksfús.” #
Þetta er svo skelfilega heimskulegt á svo marga vegu að ég veit ekki hvar ég á að [...]

Í súld inni á safni 0

Ég er farinn að taka vaktir í Ársafni annað slagið og líkar orðið mjög vel að koma hingað, þótt ekki þyki mér rauðu járnhillurnar neitt til að hrópa húrra fyrir.
Foldasafn er á hinn bóginn afskaplega fallegt en ég kann ekki við mig þar. Allavega ekki ennþá.
Svo er verið að biðja mig um að vinna niðri [...]

1

sofna ekki
mæta klukkan átta í skólann
þar sem þrír kaffibollar gerðu ekkert fyrir mig
fara beint í vinnu eftir skóla að bera tækjabúnað
þar sem fimm kaffibollar til viðbótar gerðu ekkert fyrir mig
fara heim illa uppfokkaður og leggjast í kör á rúmið nakinn, skjálfandi
öskrandi nöfn fræðimanna ofan í tóma illa lyktandi bjórdós
þyljandi upp strauma og stefnur missandi
sig yfir [...]

Súrrealismi 2

Ég hef súrrealisma eins og hann birtist í verkum Sjóns grunaðan um að vera meira í ætt við Noam Chomsky en eiginlegt manifestó sinna meintu sporgöngumanna. Þetta gætu allt eins verið dæmasetningar úr ritgerð um setningafræði andspænis merkingarfræði. Setningin Litlausar grænar hugmyndir sofa brjálæðislega var þó aldrei álitin neitt sérlega súrrealísk.

Tenglar 0

Þeir voru allir komnir í rugl svo ég setti þá saman í eina undirsíðu sem sjá má á spássíu.

Já, fagurfræðin 0

Ég sé að Kári Páll hefur tekið að sér að segja hér um bil það sama og ég vildi sagt hafa um fagurfræði Teits Atlasonar. Í sem grófustum aðalatriðum þetta: það er hans vandamál en ekki verksins ef hann skilur það ekki. Það er ekki hægt að gera kröfur til listaverka að það taki x [...]

0

Jahérna.

Lágkúra 5

Ég trúi varla að ég sé að eyða tíma í þetta.
Það kom nokkuð flatt upp á mig í dag að vera spurður út í gamla gróusögu síðan í MR sem ég var búinn að gleyma. Stelpan sem kom sögunni af stað þoldi mig ekki og samkvæmt minni bestu vitneskju hefur það ekkert breyst. Það vildi [...]

Bíll og bók 0

Nei nei, það var auðvitað ekki eins einfalt og það leit út fyrir að vera að borga upp bílinn. Það verða 30 króna núðlur í matinn næsta árið.
Ef einhver er ekki fastheldinn á eintak sitt af Málsvörn og minningum Matthíasar Johannesen myndi ég glaður þiggja það til eignar. Ég verð fulllengi með það til að [...]

Peningar 1

Tímabilið frá hérumbil sama tíma í fyrra til dagsins í dag einkenndist af miklum fjárhagserfiðleikum hjá mér. Ég keypti bíl, glutraði lánamálunum og dröslaðist svo til Ítalíu á kreditkortinu. Núna kemur í ljós að ég eyddi hérumbil þeirri upphæð sem ég hafði leyft mér í þennan munað en ekki þeirri upphæð sem ég hef hingað [...]

Tilgerð 0

Mér finnst eins og fólki hætti í auknum mæli til að rugla saman tilgerð og ranghugmyndum um eigið ágæti. Niðurstaðan er sú að það verður einhvern veginn afskaplega tilgerðarlegt og tilgangslaust að ásaka aðra um tilgerð.

Raflost 0

Mér finnst ég alltaf heyra í fórnarlömbum Milgrams þegar ég kem inn í Odda. En nú veit ég ekki betur en sálfræðiskor sé flutt upp í Læknagarð.
Núna er hérna náungi sem hvorutveggja hljómar og lítur út fyrir að vera leikinn af Jóni Gnarr. Hann segir setningar af handahófi, eins og „það eru til pokarólur fyrir [...]

Gamlir skólafélagar 0

Ég heilsa aldrei gömlum skólafélögum sem ég hitti á förnum vegi, að minnsta kosti ekki að fyrra bragði. Ef þau finna ekki hjá sjálfum sér að heilsa mér lít ég svo á að öll tækifæri til að kynnast þeim séu að öðru óreyndu þegar glötuð, fyrst viðleitnin til þess arna var ekki meiri en svo [...]

Gesundheit macht frei! 2

Reykingar þurfa enga óvini þegar þær eiga hálfvita eins og Kim Larsen að vini.

Aftur á bekkinn 0

Að forníslenskunni undanskilinni sé ég ekki fyrir mér að ég muni eiga í miklum vandræðum með námið það sem eftir er. Að öðru leyti finnst mér ég aftur kominn í menntaskóla. Bekkjarsystir mín ein deilir ekki þeirri tilfinningu. Ég veit ekki hvort ég ætti heldur að öfunda hana af að fá að læra þetta allt [...]

Skuldarinn 0

Þá er ég búinn að ganga frá skuldum mínum við guð og menn í bili. Það var afar ánægjulegt að gera upp við Mastercard að venju, eina fjármálafyrirtækið fyrir utan Byr sem veitir viðskiptavinum sínum svigrúm til að hafa rétt fyrir sér endrum og sinnum. Það getur sparað bæði peninga og streituraskanir að stunda viðskipti [...]

Opnað í bili 0

Fólk er farið að röfla í mér að opna síðuna aftur. Engu að síður hef ég ekkert að segja frekar en fyrri daginn. Þori ekki að geta mér þess til hvaða ánægju er að hafa af sífrinu hérna.
Skólinn byrjaði á mánudaginn og ég hef enn ekki gerst svo frægur að mæta á einn einasta fyrirlestur. [...]