Monthly Archives: January 2008

Bikarinn 11

Einn sit ég yfir drykkju
aftaninn vetrarlangan,
ilmar af gullnu glasi
gamalla blóma angan.
Gleði, sem löngu er liðin,
lifnar í sálu minni,
sorg, sem var gleymd og grafin,
grætur í annað sinni.
Bak við mig bíður dauðinn,
ber hann í hendi styrkri
hyldjúpan næturhimin
helltan fullan af myrkri.
- Jóhann Sigurjónsson.

Seinleg athugun 2

Byssan gerir aldrei skyssan segir máltækið. Auðvitað gerði hann enga skyssu í stóra Morfísmálinu, það sem gert er að undirlögðu ráði getur varla flokkast sem mistök, þótt það sé ef til vill misráðið eftir á að hyggja. Mistök eru engin afsökun fyrir að vera hálfviti.
Hitt er svo annað að ef umræðurnar á vefsíðu téðrar Byssu [...]

Byltingin 3

byltingunni var sjónvarpað
bara tveim dögum áður hún hófst
vonum að þessi dreifi úr sér betur en sú rauða

Bækur 0

Þegar ég mætti í skólann beið mín eintak af Ást á grimmum vetri frá honum Sigtryggi. Ég er ekki frá því að mér þyki meira í hana spunnið núna en þegar ég las hana síðast fyrir rúmi ári. Hver veit nema sama verði uppi á teningnum hjá Steinunni Sigurðardóttur, sem Kistudómur dagsins er tileinkaður. Það [...]

Fataflokkurinn 0

Er það bara ég sem tek eftir breytingunni, eða felldi Einar Már aldrei rauða litinn? Ég er hreint ekki að kvarta, svo það sé á hreinu.

Garðskálinn 2

Fyrsti og síðasti Garðskálaþátturinn í lit hefur litið dagsins ljós! Eða í lit stundum. Stillið víðtækin rétt. Eða hvað? Arngrímur Vídalín úsar af kynorku og Jón Örn Loðmfjörð talar óskýrt. Eða hvað? Tækninni fleygir fram og allt það.

Góður dagur 2

Þegar ég vaknaði á slaginu sjö í morgun ætlaði ég varla að trúa því, fyrr en ég leit út um gluggann. Veðrið virtist ekkert of slæmt, og fyrir utan að ég vildi ekki spilla þessum einstaka áfangasigri þurfti ég eftir sem áður að flytja fyrirlestur í skólanum uppúr klukkan átta. Undir eins og ég komst [...]

Möguleikar lélegrar ljóðlistar 0

Það er grein eftir mig á Tregawöttunum í dag.

Grautur 11

Á meðan ég gerðist „myndarlegur“, eins og amma mín segði, og mallaði grjónagraut alveg sjálfur eftir hvatningu Baunar, sem einnig er móðir langtímaskólasystur sem er sigurskáld – sem var vel ætur í þokkabót og rúmlega það! – var nýr meirihluti myndaður í borginni. Einn fór út í kjölfar spillingarmáls, sá næsti í kjölfar jakkafatakaupanna ógurlegu. [...]

Hafragrautur 15

Annað hvort er sérstakt trix að búa til hafragraut nema innihaldið samanstandi ekki eingöngu af mjólk, salti og haframjöli. Ógott, en ætt.
Latínukennarinn minn í MR kvaðst vakna sérhvern morgun á slaginu sex til að malla sér hafragraut. Eftir fimm diska af þeirri garpafæðu þyrfti hann ekki að borða neitt meira yfir daginn.

Af engu og öllu 0

Við hlið mér býr beljaki sem kastað getur bílum langar vegalengdir, ef honum væri ekki svo umhugað um eignarréttinn. Í dag þarfnaðist ég þjónustu hans sárlega, og bað þess í hamandi brjósti mér sem ég hringdi bjöllunni að hann væri ekki í austurvegi að berja á tröllum. Svo reyndist ekki vera, en til dyra gekk [...]

Almennilegt 11

Veðrið í gær var stórmagnað. Það hefur raunar sína ókosti að sækja nám til Reykjavíkur ef maður býr í Hafnarfirði. Ekki síst ef maður hefur hangið yfir kaffibolla til lokunar kaffistofu Árnagarðs, gerir svo tilraun til að skafa af sumardekkjuðum bílnum þótt það þýði lítið í ofankomunni, og uppgötvar eigi fyrr en í miðri ösinni [...]

Leto og svanurinn 0

Les Ármann þetta ennþá? Ég velti nefnilega fyrir mér hvort hér sé komin viss höggmynd sem á var minnst í tíma í dag. Hér má svo aftur sjá aðeins, uuhh … rómantískari útgáfu.
Ég tek fram að áfanginn fjallar ekki eingöngu um kynusla og bindikynlíf heiðins menningararfs.

Gefins bækur – uppfært 30

Ég vil gefa eftirfarandi bækur, og jafnvel sitthvað fleira. Sumar þeirra eru merktar Borgarbókasafni en því má í flestum tilfellum bjarga. Pantanir í athugasemdum, afhending fer eftir samkomulagi. Yfirstrikaðar bækur eru fráteknar:

Advent Im Hochgebirge (Aðventa) – Gunnar Gunnarsson
Augu þín sáu mig – Sjón (merkt Borgarbókasafni) – Erla
Eyrbyggja saga (merkt Borgarbókasafni) – Óli Sindri
Ferðin til stjarnanna [...]

Að vera andsofa 0

Það er kannski rétt að geta heimilda við síðustu færslu, en vel ríflega þær upplýsingar sem þar er að finna fékk ég í Símenntunarstöð Háskóla Íslands, það er að segja, kaffistofunni í Árnagarði.
Auðvitað hlaut ég að vakna klukkan fjögur á laugardegi þegar ég gæti ekki innt þann gjörning til að leysa höfuð mitt að mæta [...]

Nördismi dagsins 0

Til er sterkbeygða sögnin þysja í íslensku máli sem eingöngu hefur varðveist í þátíð, þusti. Sögninni skylt er karlkyns nafnorðið þys, sem nær eingöngu þekkist með orðasambandinu ys og þys.
Nútíð sagnarinnar hefur verið endurupptekin í íslensku ásamt veikbeygðri þátíð, þysjaði, og merkir aðdrátt (zoom á ensku). Einnig eru til svonefndar þysjuvélar, til dæmis Þjóðarbókhlöðunni, sem [...]

Og verkefnastaflinn vex … 0

Til að fagna töluvert hærri launatékka þann 1. mars næstkomandi keypti ég Skáldið á daginn eftir Jóhamar. Varð að sjá um hvað þessi mærðargeðveiki snerist, og ég verð að segja að ég er sammála flestum dómum. Er hálfnaður með bókina í fyrsta holli og það sem ég hef hingað til lesið er stórgott.
Þann fyrsta febrúar [...]

Lífsgæðavændið heldur áfram 2

Góðir hlutir gerast einhvernveginn. Á dögunum samdi ég við ýmsa lánadrottna sem reyndar voru svo skilningsríkir að þeir buðust til að lána mér enn meiri peninga. Hafði nú vaðið fyrir neðan mig í þetta skiptið. Á sama tíma falaðist ég eftir meiri vinnu hjá Borgarbókasafni en var heldur vonlítill. En símtal sem ég fékk nú [...]

Í dag 0

Eftir furðulega martröð um að málstofan um ljóðlist sem ég sæki á þessari önn hefði reynst vera hræðilegt gubbs galore fór ég í bókabúð. Fékk mér til eignar Animal Farm og 1984 eftir Orwell, saman í bók á spottprís, 2004 eftir Hauk Má og Riddarann sem var ekki eftir Italo Calvino, sem kúrði ofan í [...]

Morgunfærsla 8

Hvað gerir maður sem hefur vakað af sér nóttina til að leiðrétta svefntímann? Fer í vinnutúr á Þjóðarbókhlöðuna? Mætir til vinnu á frídegi og skrifar stykki sín innanum herskara lánþega? Skrifar þau heima hjá sér með birgðir af múslírúnstykkjum með skinku og osti úr Voru daglegu brauði og drekkur nýlagað kaffi með? Í rúminu þá [...]

Aftur á byrjunarreit 3

Laugardagseftirmiðdegi í Reykjavík:
Ég: Hey, varðandi gærkvöldið. Er vinkona þín nokkuð …
Vinkona 1: Já!! Ert’ekki að grínast?
Ég: Bömmer.
Sunnudagskvöld í Hafnarfirði:
Ég: Hey, þessi vinkona þín þarna, er hún …
Vinkona 2: Nei.
Ég: Bömmer.

Jæa, 51 helgi eftir af árinu.