Furðulegt ár að líða. Ef það næsta væri ekki bara beint framhald af þessu væri ég raunverulega feginn.
Fékk áfall þegar ég vaknaði klukkan kortér í tvö. Þreif handahófskenndar spjarir úr hornum og hljóp út í ríki, aðeins til að lenda þar í biðröð og gefa upp alla von um að komast þangað inn, meira að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- December 31, 2007 – 15:29
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég verð seint talinn til þeirra sem fussa og sveia yfir ungu fólki á vinnumarkaðnum. Mér finnst ekkert eðlilegra en að krakkar fái tækifæri til að vinna fyrir sér innan ramma heilbrigðrar skynsemi, id est: mér finnst í lagi að þrettán ára beri út dagblöð og fimmtán ára afgreiði í bakaríi, en ólíkt kannski sumum [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- December 28, 2007 – 22:27
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Nei, þetta er engin ævisaga. Þetta er portrett.
Mér finnst ótrúlegt að ég hafi ekki séð þetta fyrr:
Pétur Gunnarsson er snillingur.
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- December 25, 2007 – 07:03
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég fékk ansi hugvitssamlegar gjafir frá vinum og vandamönnum í kvöld, nema ég sé bara einfaldari en ég gef mig út fyrir að vera, þó líkast til sé það hvort tveggja. Venju samkvæmt geri ég úttekt, með þökkum til allra.
ÞÞ í fátæktarlandi eftir Pétur Gunnarsson: Fyrir mann sem eitt sinn í gamni sínu miðaði tímatal [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- December 25, 2007 – 02:46
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ekki tókst mér að sofa meira en þrjá tíma í nótt. Er búinn að fá nóg af þessum svefnörðugleikum, þetta er afleitt. Ég hins vegar vaknaði við almennilega jólasnjókomu, þannig að mér varð að einhverjum óskum. Christmas Song í flutningi Nat King Cole er kannski ekki lag til að hlusta á að nóttu til, en [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- December 24, 2007 – 07:52
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er makalaust hvað Woody Allen kemur mér alltaf í gott skap, Hannah And Her Sisters fer tvímælalaust á meðmælalistann. Það er eitthvað svo dásamlegt einlægt við allt þetta snarbilaða volæði.
Á meðan ég horfði á The Departed, sem ég verð líka að mæla með, kom loks jólasnjórinn. Hann er ennþá þannig að ég er nokkuð [...]
Categories: Kvikmyndir, Úr daglega lífinu
- Published:
- December 23, 2007 – 04:27
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hef uppfært ljóðabókalistann. Hugulsamir gefi, minna hugulsamir bjóði einhverslags eignaskipti.
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- December 20, 2007 – 20:23
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Eftir fjóran og hálfan tíma þarf ég að fara á fætur. Hvað er athyglisvert við þessa setningu?
Categories: Tungumál / málfræði, Íslenska
- Published:
- December 19, 2007 – 07:36
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Það er mjög mikilvægt fyrir listamenn að fíflast – taka sig ekki of hátíðlega.“
- Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður
Categories: Bækur / Bókmenntir, Kvikmyndir, Menning og listir
- Published:
- December 15, 2007 – 21:19
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þrumuveður voru tíð í æsku minni á Ítalíu og mér fannst þau jafnan spennandi. Á Spáni fyrir rúmum tveimur árum fylgdist ég með þrumuveðri úti fyrir hafi en kunni illa við vilja meirihlutans til að fara út á efstu svalir hótelsins til þess arna. Nú þegar ég upplifi þrumuveður á Íslandi verður mér lítt um [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- December 14, 2007 – 20:34
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Halldór bloggar um dálæti sitt á breska þinginu. Í ljósi þess vil ég benda á eftirminnilega færslu Atla Freys um embættisskyldur Serjeant at Arms. Það hefði verið skondið ef Halldór Blöndal hefði hlaupið með brugðið sverð á eftir Jónsa í SigurRós á sínum tíma, þegar síðarnefndi ætlaði allt vitlaust að gera uppi á þingpöllum í [...]
Categories: Geðveiki
- Published:
- December 14, 2007 – 10:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fregnir af óveðrinu eru farnar að minna á storminn sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið í apríl 1991. Þá braut rokið grindverk með föður mínum og reif upp stærsta tré Laugarneshverfisins með rótum og lagði snyrtilega yfir Kirkjuteiginn, eins og til að varna djörfum foreldrum frá að keyra börnin sín í skólann. Gott ef það voru ekki [...]
Categories: Minningarbrot, Úr daglega lífinu
- Published:
- December 14, 2007 – 08:33
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Sjitt.
Eltast við konsept eltast við konsept eltast við konsept.
Ég lýsi hérmeð konseptið dautt
já, og þemu einnig.
Komið nóg af þessu kjaftæði.
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- December 13, 2007 – 05:31
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í fyrra þegar stormurinn gekk yfir sat ég inni á Öldugötu við kertaloga, drakk bjór og horfði á sjónvarp, milli þess að ég blaðaði í einhverjum skræðum. Kertin þurfti ég vegna rafmagnsleysis í íbúðinni en sjónvarpið virkaði nú samt. Svaka rómantískt alltsaman.
Það þótti ansi hvasst þetta kvöld, en það aftraði okkur Jóni Erni ekki frá [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- December 13, 2007 – 03:21
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá er að snúa sólarhringnum við. Hvað er betra að hafa fyrir stafni þegar þannig er ástatt hjá manni en endurraða í ljóðabókahillunni? Var með hillumetrana mína tvo alla í stafrófsröð en hef nú komið öllum nýrri bókum fyrir í ógeðslegu lerberghillunni minni, sem er hryllilegur geymslustaður fyrir allt nema kassa en verður að duga.
Á [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- December 12, 2007 – 03:22
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Blogginu um veginn hefur borist afsökunarbeiðni fyrir neðanvitnaðri grein. Hún er að sjálfsögðu tekin til greina, enda engin ástæða til að standa í illdeilum við fólk fyrir litlar sakir.
Þá má alltaf minnast þess að síðast er ég fékk bréf var þessu öfugt farið (sjá hér). Sú athugasemd beindist raunar ekki gegn því versta sem stóð [...]
Categories: Kvikmyndir
- Published:
- December 11, 2007 – 03:09
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þetta fann ég á netinu:
Mengella virtist hafa unun af því að skrifa um Arngrími Vídalín . Ungan og vonlausan ljóðahöfund sem heldur að það sé flott að sitja á kaffihúsi með Café Latte og trefil , horfa á mannlífið , yrkja ljóð og búa til þætti eins Garðskálann sem hægt er að sjá á youtube.com [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Kvikmyndir, Menning og listir
- Published:
- December 5, 2007 – 04:09
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Stundum vaknar maður upp og finnur til forréttinda sinna. En það er aldrei á slíkum stundum að tilefni sé til að gleðjast yfir.
Categories: Óflokkað
- Published:
- December 5, 2007 – 01:26
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
1. Vinsamlegast farið hingað.
2. Kaupið bókina, hún er um margt dásamleg.
3. Kópí-peistið þriggja spora kerfið yfir á ykkar síðu.
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- December 4, 2007 – 05:28
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fyrirlestur á morgun, ég ekki búinn að kanna alla kanta á niðurstöðum ennþá
engin bylting strax semsé
en það sem ég hef hlýtur að duga
ég vill það sem kennarinn vil og það er vel unnin rannsókn
það kemur
guði væri hann til sé lof fyrir bókasafnið mitt
þar getur maður unnið fram á nótt
í svona líka kosmísku umhverfi
stjörnurnar sjást hvergi [...]
Categories: Námið
- Published:
- December 3, 2007 – 02:09
- Author:
- By Arngrímur Vídalín