Monthly Archives: November 2007

Kjezlan hérna megin er þokkó hressó 2

Þessa fegurð fékk ég senda nú í morgun. Finnst ég betri maður eftir á.
Afsakið annars allt málfræðibrjálæðið síðustu daga. Merkilegt samt hvernig allir virðast hafa áhuga á málfari en færri á málfræði. Held að fólk hafi almennt meiri áhuga á að stýra hvernig fólk talar en að vita af hverju það talar eins og það [...]

Jólin sem öllu breyttu 2

Flest jól bíða unglingar milli vonar og ótta um að sjá glitta í bók eftir Þorgrím Þráinsson í innkaupapokum mæðra sinna. Þessi jól er það öðruvísi.

Þolmyndarflótti 9

Setning: Það var hringt í mig.
Svar: Ég myndi frekar segja t.d. ég fékk símtal.
Viðbót
Af hverju myndi nemandi á framhaldsskólastigi svara svona í könnun?
Fyrir sjö árum rannsakaði Sigríður Sigurjóns málnotkun gagnfræðaskólanema um allt land í leit að nokkru sem kallað hefur verið nýja þolmyndin (dæmi: það var bara hrint mér á leiðinni í skólann). Niðurstöðurnar birtust [...]

Sakn Comments Off

Ég sakna ályktandi tölfræði. Slíkt gæfi miður litlar upplýsingar í minni rannsókn. Hvernig stendur eiginlega á því að fólk virðist margt hvert hafa gagnverkandi reglur í málvitund sinni? Er verið að krukka of mikið í skólakrökkum? Er fólk hætt að tala af ótta við að vera leiðrétt?

Ó, Wurzel, hvar ertu? 4

Bók Wurzels sem vísað er í hér að neðan geta áhugasamir skoðað hér. Áhugasamur sem ég er þá vantar einmitt þær síður í sýnishorn bókarinnar sem ég þarf mest á að halda! Og bókin er hvergi til á landinu nema að því er virðist í bókaskápum málfræðinga. Ég dey.

Hvað er ég að gera spyrjiði? 2

Til að svara þessari spurningu án þess ég þurfi að útskýra það fyrir ólíku fólki oft á dag þá er ég að lesa greinar eins og þessa til að auka skilning minn á viðfangsefni daganna:
„Ef unnt er að greina eitthvert mynstur sem talist getur einkennandi fyrir eintölubeygingu íslenskra sagna í germynd ætti það samkvæmt kenningu [...]

Ruby’s Arms 5

Af því bráðum fer í hönd hátíð einhleypra og ég geri í því að vera almennt bitur og leiðinlegur milli þess sem ég er fáránlega töff og stýri vinsælasta bókmenntaþætti landsins ætla ég að tilnefna Ruby’s Arms sem jólalagið í ár (eins og þið sjáið hef ég líka útrýmt kommunni, [úps] megi hún brenna í [...]

Hættulegasti maður Íslands? Comments Off

Ef stuttbuxnaklæddur Guðni Ágústsson getur ekki hitt Kastró yfir mojito til að ræða íslensku sauðkindina án þess að ógna heimsfriðinum óar mér við því hvað hann gæti gert af sér í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Því er líklega best að bíða með öll slík áform uns heimurinn er fyllilega búinn undir pólitískan slagkraft Íslendinga.

Andlega feitlaginn 7

Án þess ég sé tiltakanlega feitur er ég orðinn meistari í að rífa fötin mín í strimla við ekki merkilegri íþróttaiðkun en að hagræða lestrarstellingunni.
Síðasta vor klæddi ég mig í peysu utan yfir skyrtu og reif saum upp eftir henni endilangri. Þegar ég fór aftur úr peysunni reif ég svo aðra ermi skyrtunnar. Er svo [...]

Fyrstur 1

Aldrei fór það ekki svo að mér tækist að vakna klukkan sjö eftir fjögurra tíma svefn, vera á undan umferðinni í skólann og ná að mæta fyrstur allra í fyrsta tíma eftir viðkomu á kaffistofunni í Odda. Þetta gat ég.
Minnir á gömlu góðu dagana þegar ég reykti einn og hálfan pakka af sígarettum á dag [...]

Að gera [sic] rannsókn 9

Fátt mun ungum manni hollara en láta letina lönd og leið og drífa sig út í hinn stærri heim að gera rannsókn. Hef troðið fætinum inn hjá einum skóla og vantar annan, en það er í vinnslu. Rannsóknir eru skemmtilegar.
Því miður hef ég ekki staðið mig sem skyldi á þessari önn. Eins og staðan er [...]

Afsakið hlé búið 0

Ég er með afskaplega fínan teljara á þessari síðu, á stundum mætti segja hann vandræðalega góðan (hann nær öllum tenglum nema af MSN, já líka úr pósthólfum). Og þar sem ég annars veit ekki hvernig ég á að koma orðum að því þá segi ég bara sem er, að ég vona að Þórunn Hrefna hafi [...]

Afsakið hlé 2

Þriðji þáttur Garðskálans!! 1

Þriðji þáttur Garðskálans er kominn! Húrra! Í þessum þætti tókum við Jón fyrir póstmódernisma. Nokkur bið varð á vinnslu þáttar vegna slagsmála sem fylgdu í kjölfar upptaka (og á meðan). En hann hefur nú loks verið sendur út.
Bókmenntafræðingurinn knái (og ekkisens blaðasnápurinn sem aldrei sér Rassopúlos í friði), Ásgeir H Ingólfsson, var meðal tilraunaáhorfenda. Hann [...]

Heimasíða Garðskálans 3

Ég vek athygli á að Bókmenntaþátturinn Garðskálinn (smellið á tengilinn) hefur eignast sína eigin heimasíðu sem finna má í tenglasafni hér efst hægra megin. Þar má nálgast alla þætti Garðskálans hingað til sem hér eftir. Þar eru einnig tilvitnanir í fólk sem kunni að meta framtakið, allt frá framúrstefnunni í Finnlandi til lífskúnstnera á Spáni.
Næsti [...]

Lífið er yndislegt 8

Þessir ljóðarúnkarar hafa drullað rækilega yfir bifhjólafólk í gegnum tíðina, og alveg spurning hvort við gerum nú ekki það sama við þau í vetur?
„Ritstjórn” Mengellu þarf eflaust að passa sig á að taka stóra sveiga framhjá mótorhjólaumboðum, hjólhýsum og Bar 11 hér eftir.
Ég elska staðalmyndir. Og ljóðarúnkarar er klárlega orð dagsins.

Ég er blogg Comments Off

Ég fékk æðislega yndislega hugmynd svona milli þess sem ég vildi ekki vaka og gat ekki sofnað sem í framkvæmd kemur til með að útvega mér tíma í staðinn fyrir peninga og gera mig fátækari en ella – sem er alltaf gott svo það sé til nokkurs að kvarta, ekki síst á bloggsíðu sem þessari. [...]

Ergi 4

Mér finnst ekki skemmtileg þessi örfáu skipti sem ég rýf siðferðismúrinn í vinnunni.
Alstaðar kringum mig hlutir sem ég vil ekki sjá þessa dagana.

Höfundar 8

Ég velti því stundum fyrir mér þegar ég heyri rithöfunda ræða bækur sínar hvort þeir hafi nokkra hugmynd um hvað þeir voru að skrifa.

Inn aldni bóhemus 2

Ef hún amma mín hefði séð mig svona líka huggulegan og heimilislegan að prófa nýja vöfflujárnið frá vinnufélögunum, mælandi út deigið með bjórglasi. Mér fannst það liggja beint við, ef mæla þarf fimm desilítra af vatni þá er bjórglas langhentugast, og í raun alveg sjálfstæð mælieining. Á meðan þessi orð eru rituð mallar kaffið á [...]

Afmælishelgi afstaðin 5

Helgin var alveg frábær, ef ekki downright furðuleg … Þakka öllum hlutaðeigandi, ekki síst elsku vinkonum mínum í Sólheimasafni sem gáfu mér vöfflujárn í afmælisgjöf og spurðu strax áhyggjufullar hvort ég ætti nokkuð svoleiðis.
Jú, nokkrir glöggir lesendur urðu þess áskynja að ég aldraðist í vikunni. Jón Örn bendir á, réttilega að eigin mati, að ég [...]