February 24, 2007

Það er nú það

Ætli umræðan hafi verið málefnalegri áður en fasisminn varð skilgreint hugtak?

February 17, 2007

Stemning

Einhvers konar lausn, já hugarró.

Þið sem heima sitjið,
þið syngið auðvitað með.

February 9, 2007

Kominn aftur eða farinn

Svefnleysi og höfuðverkir.

Glampandi sól, heiðskýrt og blankalogn. Snjór. Fólk skautandi á tjörninni. Þetta er ekki Reykjavík, þetta er Jyväskylä.

Ég held ég dveljist þar um sinn. Hér verður ekkert.

February 6, 2007

Ógnarjafnvægið

Endurvinnslan reddaði mér um lækniskostnaðinn frá í gær, og einum bjór betur. Hann sötra ég núna.

Ég er dauðþreyttur og reglulega andvaka, lítið eitt veikur í ofanálag. Það tekur á í erli dagsins, ekki sýndist mér Anton neitt betur haldinn heldur er ég hitti hann í dag. Þá bíður okkar ósaminn fyrirlestur í kvöld. Ég sem var alveg viss um að hann væri á föstudaginn …

Ef til vill eru málfræðiuppgötvanir dagsins sönnun þess að ég lagði mig aldrei fram í stærðfræði: [XL [[(YL) X] [X (ZL)]]]. Það skal þó játað að framsetningin gæti verið einfaldari. Ég bara kann ekki að html-a kvíslgreiningu.

Þetta er Bloggið um veginn, stafrænt bókfell fyrir hugðarefni Arngríms Vídalín, ljóðskálds og bókavarðar, skrásett af honum sjálfum, öðrum til sárs gagns og nauðsynjar.

» Um höfundinn
» Um bækurnar

Síður

Hér kemur efni

Bloggið um veginn is proudly powered by WordPress.
WP-Vicksburg layout by Illudium Phosdex.
Valid XHTML / Valid CSS
12 queries in 0.416 seconds.

©Arngrímur Vídalín Stefánsson 2005.
Allt efni á þessari vefsíðu er verndað af ákvæðum höfundalaga. Það er sett hér til þess að unnt sé að lesa það af skjá. Sérhver eintakagerð eða dreifing efnisins þess utan er óheimil nema til komi samkomulag við höfund, sérstök lagaheimild eða samningur við samtök rétthafa höfundaréttar.
Notkun, sem brýtur í bága við lög eða samninga, getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.