„Þá er þess væntanlega ekki langt að bíða að gerð verði úttekt á eldhúsinu mínu í Fréttablaðinu og fjálglega rætt um matseldarhæfileika mína. Þá geri ég kannski eins og bróðir minn gerði í DV fyrir hálfum áratug og lýg því að kókómjólk sé fastur liður í minni eldamennsku.“
Bloggið um veginn, 15. nóvember 2006.
Mér datt í [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Eigin verk, Fjölmiðlar
- Published:
- November 29, 2006 – 21:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Knippi af Fréttablöðum sá ég fyrir framan hlið kirkjugarðsins við Suðurgötu. Bersýnilega mest lesna dagblað á Íslandi.
Categories: Fjölmiðlar, Úr daglega lífinu
- Published:
- November 29, 2006 – 17:28
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þegar ég vaknaði upp af blundi um miðnætti var ég ekki viss hvort franska orðið ateur væri til í raun og veru, en ég var nokkuð viss um að íslenska sögnin aterja, sem dregin væri af téðu orði, væri það ekki. Hef nú komist að því að hvorugt er orðið til. Hins vegar fann ég [...]
Categories: Draumfarir, Tungumál / málfræði
- Published:
- November 29, 2006 – 00:34
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Snemma í kvöld var viðtali við mig útvarpað í þættinum Víðsjá í Ríkisútvarpinu. Viðtalið má heyra hér. Bókin hefur hlotið góðar viðtökur kaupenda enn sem komið er og er fyrsti ritdómur væntanlegur á næstu dögum.
Ég hef enn ekki haft færi á að kanna stöðuna í bókabúðunum, en hafi verðið á bókinni enn ekki verið leiðrétt [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Eigin verk
- Published:
- November 27, 2006 – 21:02
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Það eru ó! í þessari bók. Og þau eru ekki sett fram í hæðni hrútspungsins eða annarra súrsaðra kynfæra heldur í fúlustu alvöru; þau eru mælt fram vegna þess að ó! er vel fram mælanlegt og gjaldgengt til tjáningar. Þarna eru líka blóm, og hrafnar, og stjörnubjartur himinn, og sólstafir, og röðulgeislar – hellings aragrúi [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Eigin verk
- Published:
- November 27, 2006 – 19:30
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Bókabúðir Pennans Eymundssonar, Máls og menningar, verðlögðu Endurómun upphafsins á kr. 2.990. Rétt verð á bókinni eru kr. 1.990 og hefur það nú verið leiðrétt.
Ennfremur hef ég komið því til leiðar að haft verður samband við þá sem keypt hafa bókina fyrir ofangreindan morðfjár, og munu viðkomandi fá endurgreitt í samræmi við eðlilegt verð.
Bókin er [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Eigin verk
- Published:
- November 27, 2006 – 19:21
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
„Laust fyrir miðnætti varð piltinum ljóst hvað það var sem hann heyrði, óð tunglsins. Hann þusti út til að faðma að sér ljósdropana sem seytluðu niður úr himnunum en greip í tómt og allt missti marks.
Það var á efsta degi samkvæmt Greenwich Mean Time en hann var á Íslandi, sem enn var landfræðilegum klukkutíma á [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Eigin verk
- Published:
- November 19, 2006 – 20:17
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég veit um 12 ára strák sem heitir Alexander. Allt útlit er fyrir að hann verði mikill flagari þegar hann vex úr grasi.
Categories: Tungumál / málfræði
- Published:
- November 17, 2006 – 17:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Upplesturinn í morgun gekk afskaplega vel. Það var frábært að koma í gamla skólann minn og fá aðrar eins viðtökur. Það brutust út fagnaðarlæti þegar ég las Ódeilu (sjá neðar), greinilegt að þessum krökkum er ekki fisjað saman. Ekki var það heldur amalegt að sitja inni á kennarastofu, sulla í sig tei og ræða við [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Eigin verk, Úr daglega lífinu
- Published:
- November 16, 2006 – 22:10
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Sitjandi í tíma undir handleiðslu mikils málfræðitöffara, ekki minnugur þess hvar ég heyrði ungmálfræðinganna fyrst getið, minnugur þess að hafa dottið í það með menntskælingum á loftinu þar sem Rask uppgötvaði germönsku hljóðfærsluna. O tempora, o mores?
Hvaða þjóð fann upp ó-upphrópunina? Svarið er á blaðsíðu 269 í Grænjaxlahandbókinni.
Categories: Námið, Úr daglega lífinu
- Published:
- November 16, 2006 – 19:34
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Aldrei hélt ég að ég yrði álitsgjafi í dagblaði fyrir þrítugt. Það fór þó svo að ég er í Blaðinu í dag meðal spaks fólks að tjá mig um „jólabækur“ sem ég er spenntur fyrir. Þá er þess væntanlega ekki langt að bíða að gerð verði úttekt á eldhúsinu mínu í Fréttablaðinu og fjálglega rætt [...]
Categories: Eigin verk, Fjölmiðlar, Úr daglega lífinu
- Published:
- November 15, 2006 – 17:40
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þetta er eiginlega of fyndið: „Dagskrá dagsins hjá Rebelo átti þó fátt skylt við kommúnistabyltingu.“ Ætli kommúnistinn Proletario sé líka til?
Categories: Fjölmiðlar
- Published:
- November 14, 2006 – 00:11
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það litla sem ég svaf í nótt dreymdi mig hræðilega martröð á meðan. Í henni hafði ég sett einhvern djöfullegan mekkanisma af stað og kallaði þannig fram einhvern hræðilegan óvætt í líki dvergs og skrímslis (ekki spyrja) sem batt Silju vinkonu í einhvers konar völundarhúsi og drekkti henni með því að fylla rýmið af vatni. [...]
Categories: Draumfarir, Úr daglega lífinu
- Published:
- November 13, 2006 – 12:14
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
8 fyrir miðannarverkefnið. Það er alls ekki nógu gott.
Categories: Námið
- Published:
- November 13, 2006 – 10:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Hvor um sig hafði skilið mikilvægan hluta af sjálfum sér eftir er þeir gengu inn í flugstöðina í Helsinki. Farangurinn í hjarta þeirra vó þyngra.
Þeir fundu reykherbergið og settust þar inn. Enn áttu þeir bróðurpartinn af viskíflösku sem þurfti að losna við.
Eftir því sem flaskan smátæmdist tóku þeir að gleyma, að lokum var allt orðið [...]
Categories: Ferðalög
- Published:
- November 12, 2006 – 19:39
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fór í klippingu áðan. Austurevrópumaðurinn sem klippti mig alltaf er hættur og farinn austur fyrir tjald (skil hann vel) svo ég fékk þessa líka skemmtilegu stelpu og gleymdi mér í samræðum við hana. Svo mjög að ég sagði henni ekki hvorum megin ég skipti hárinu mínu, og hún klippti mig öfugt. Þetta verður eins og [...]
Categories: Hugleiðingar, Pólitík, Úr daglega lífinu
- Published:
- November 10, 2006 – 16:48
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Meðan ég man, ef einhver hefur áhuga á að lesa fyrirlesturinn sem ég flutti á morgunverðarfundi Vinnueftirlitsins, þá má nálgast hann hér.
Tek að mér að semja og halda fyrirlestra um allt milli himins og jarðar. Leiðbeinandi verð kr. 5000 á blaðsíðu, annars samningsatriði.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 10, 2006 – 02:36
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er eitthvað svo einkennilega drungalegt að horfa á regnið fljóta lárétt eftir glugganum mínum meðan skuggamyndir lauflausra trjáa hver ofan í annarri sveiflast til í taktleysi framan við ljósum logandi glugga húsanna á móti. Eins og það sé ekkert annað til í heiminum, trén verða að táknmynd hins illa í huganum. Myrkrið er þvílíkt [...]
Categories: Hugleiðingar
- Published:
- November 10, 2006 – 01:11
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Leikur að tómum orðum. Minn tími er nóttin.
Stresskasti lokið yfir hlutum sem ég hafði enga stjórn á. Sjáum hvernig til tókst.
Svefn. Ef guð lofar.
Klipping á föstudag. Það verður eins og raðfullnæging. Geri ég ráð fyrir.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 9, 2006 – 01:28
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég get svarið að Hallgrímur Helgason starði glottandi á mig úr bifreið sinni þegar ég gekk í skólann. Ekki veit ég hvað það átti að fyrirstilla.
Leiðinlegt var veðrið á bakaleiðinni. Vissulega fagna ég snjókomu, en slydduél eru annar og meiri viðbjóður en orðið sjálft gefur til kynna.
Helgin fer í hljóðkerfisfræði. Tempus fugit.
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- November 8, 2006 – 15:28
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Einhversstaðar heyrði ég náunga gagnrýna Stafsetningarorðabókina nýju fyrir að vera ómögulegt fræðirit vegna fúsks og fabúleringa ritstjórnar. En gleymdi því að fúskið er kannski sök sér þar sem orðabækur teljast ekki til fræðirita.
Síðastliðinn föstudag var ég svo staddur á hugvísindaþingi uppi í Háskóla og hlustaði á málfræðing fara mikinn í síterun á rannsóknarskýrslu sinni. Eftirá [...]
Categories: Tungumál / málfræði, Íslenska
- Published:
- November 7, 2006 – 23:05
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þegar ég mætti í vinnuna áðan beið mín dágóð hrúga af ljóðabókum merktar mér, sendar ofan af Aðalsafni. Ekki amalegt.
Í kvöld hef ég svo verið fenginn til að lesa upp á einhverri lokaðri (að ég held) samkomu sem ég kann engin alminleg skil á. Utan ég veit nokkurn veginn hverjir það eru sem að henni [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Eigin verk
- Published:
- November 7, 2006 – 14:51
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er ótrúlegt hvað orðið arfleifð er orðið algengt í daglegu tali eftir að fólk uppgötvaði hvernig á ekki að skrifa það og hélt sig við það, eiginlega mun algengara en tilefni gefur til. Hin algenga orðmynd arfleið er bara því miður ekki til nema sem stýfður boðháttur sagnarinnar arfleiða (arfleið þú).
Hér má aftur á [...]
Categories: Íslenska
- Published:
- November 6, 2006 – 22:57
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Kærkomin tilbreyting. Hefði mátt snjóa lengur þó.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 6, 2006 – 12:29
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Lögreglan hefur ákveðið að innkalla gallaðan skammt af E-töflum. Ef þú hefur keypt E-töflu nýlega af ókunnum aðila, vinsamlegast skilaðu henni til lögreglunnar. Líklegt er að um fölsun sé að ræða. Sérstaklega verður tilkynnt þegar betri skammtur berst til landsins, og verða þær þá fáanlegar hjá helstu þekktu aðilum höfuðborgarsvæðisins.
Categories: Fjölmiðlar
- Published:
- November 6, 2006 – 12:27
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég fór í þann leiðinlega leiðangur áðan að taka kettlinginn Linsu frá eiganda sínum, uns henni hefur verið fundið varanlegt heimili. Vona að hún verði ekki alger olnbogakisa. Kisurnar tvær eru nú í óða önn að kynnast og sýnist mér hvorug ætla að leyfa hinni að valta yfir sig, svo þær eru heldur skeptískar hvor [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Eigin verk, Úr daglega lífinu
- Published:
- November 5, 2006 – 21:10
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er hálfrafmagnslaust hér á Öldugötunni, hálfmyrkvað, útistandandi kertaljós. Stormviðvörun, fimmtíu metrar á sekúndu þegar verst mun láta. Sírenur úti í sortanum. Borðið fokið af svölunum.
Ég að gíra mig fyrir nótt í bænum.
Categories: Óflokkað
- Published:
- November 4, 2006 – 19:19
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Valdemar, ungur og bláeygur íslenskufræðingur, heldur til náms í Danmörku og finnur þar fyrir landa sinn, gamlan prófessor, sem er heillum horfinn enda býr hann yfir skelfilegu leyndarmáli sem tengist ævafornri höfuðgersemi íslensku þjóðarinnar – Konungsbók Eddukvæða. Leyndarmálið leiðir prófessorinn og lærisvein hans í mikla háskaför um þvera Evrópu – inn í skjalasöfn og grafhýsi, [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- November 3, 2006 – 00:07
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Einar Ólafsson, skáld og bókavörður, bað í dag fyrir boð til mín um að ég skyldi hringja í sig. Þegar ég hringdi spurði hann hvort ég væri í þeim bransa að hirða ljóðabækur, það lægi nefnilega dágóð hrúga inni á Aðalsafni sem losna þyrfti við. Minna hefur greinilega ekki mátt muna að ég sendi út [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Úr daglega lífinu
- Published:
- November 2, 2006 – 21:20
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Fyrr í dag horfði ég á heimildarmynd um úlfabarnið Genie. Ég held að aldrei fyrr hafi svo margar tilfinningar tekist á innra með mér samtímis. Einhverjir í bekknum grétu yfir myndbandinu. Ég furða mig ekki á því, ég átti ansi erfitt með mig sjálfur. Enda er saga hennar öll afskaplega sorgleg og á köflum hryllileg. [...]
Categories: Námið, Tungumál / málfræði
- Published:
- November 2, 2006 – 17:01
- Author:
- By Arngrímur Vídalín