Lesið greinina. Skoðið myndirnar, ef það sóðar þá ekki út fallegu húsin ykkar (æ, úps, birti óvart eina!). Skiptir það máli „hver byrjaði“? Skiptir ekki andskotans máli. Stríð er glæpur, gegn öllu mannkyni.
Skrifið undir þessa áskorun. Ég veit að þeir sem geta stöðvað stríðið munu enn síður taka mark á henni en eigin siðferðiskennd og [...]
Categories: Pólitík
- Published:
- July 31, 2006 – 22:20
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hafði aldrei farið á tónleika með SigurRós fyrr en í gærkvöldi. Nú veit ég að ég mun fara á fleiri.
Laugardagskvöldið var afar mikið ‘touch-and-go’ kvöld, var síflakkandi á milli fólks. Hitti fyrst Kára, þá Lárus, þá Baldur og Ármann, þá Silju, Tótu og Rannveigu, næst hittum við Silja þá Bjössa og Dofra.
Fyrsta lexía kvöldsins: [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- July 31, 2006 – 18:19
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Átti afar erfitt með að rífa mig framúr í dag. Það hafðist þó á endanum og ég gat fengið mér göngutúr í sólinni. Mér varð gengið fram á stórt og tígulegt hús neðar á Öldugötunni, eitt það flottasta sem ég hef séð hér í grenndinni. Svo auðvitað, ögn til hliðar við gatnamót Öldugötu og Garðastrætis, [...]
Categories: Kvikmyndir, Tónlist, Úr daglega lífinu
- Published:
- July 29, 2006 – 19:27
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í gærkvöldi lenti ég í þeirri hryllilegu aðstöðu að hafa eytt hálfum deginum í að flytja, ætla í sturtu eftir herlegheitin, en uppgötva mér til ægilegrar skelfingar að auðvitað var ekkert sjampó til. Gerði mér það að góðu (foj!), en gerði það að mínu fyrsta verkefni eftir vinnu í dag að kaupa slíkt og brúka [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- July 28, 2006 – 20:29
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Búinn að taka upp úr flestum kössum, ennþá nokkrir eftir á Laugarnesveginum. Tvær ferðatöskur fullar af fötum sem á eftir að losa. Herbergið mitt er rúmgott og notalegt, þótt ég eigi enn eftir að venjast því að sjálfsögðu. Öll húsgögn komin: Fjórir bókaskápar, skrifborð, rúm, hatta- og fatastandur. Sumsé allt sem nokkurn mann gæti nokkru [...]
Categories: Hugleiðingar
- Published:
- July 28, 2006 – 00:46
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ætti ég bláa skútu
þá
sigldi ég burt
strax í dag
Til þess að komast
sem fyrst
aftur
hingað
-úr bókinni Stokkseyri e. Ísak Harðarson.
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- July 26, 2006 – 13:18
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Á miðnætti hefst síðasti heili sólarhringurinn sem ég eyði á Laugarnesvegi 100, heimili mínu í hartnær sextán ár. Tómir kassar standa fyrir utan herbergið, hvar inni ég sit og hlusta á tónlist sem ég er löngu hættur að hlusta á nema ef til væri að vekja upp minningar. Það er ekki að virka. Greinilega er [...]
Categories: Hugleiðingar
- Published:
- July 25, 2006 – 18:25
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í dag tók ég á móti bók um vampírur á safninu. Hún angaði öll af reykelsi. Greinilegt að hún hefur verið „notuð“. Það sem kemur ekki inn á borð til mín.
Annars virðist fólk almennt eiga mjög erfitt með að gera sér grein fyrir því að ég vil ekki að hringt sé í mig þegar ég [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- July 24, 2006 – 19:51
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Myndina tók Alli, áður en faðir gestgjafa gærkvöldsins hellti í mig nægu viskíi til að drepa hross.
Categories: Óflokkað
- Published:
- July 24, 2006 – 01:33
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Verðandi helstu spekingar ins háa skóla siðmenningarmegin við Öskjuhlíð hittust á Prikinu fyrr í kvöld og drakk annar þeirra kaffi og reykti meðan hinn slafraði í sig samloku í von um að komast með því skrefi nær guðdómnum. Að þeim andlegu veigum örugglega fyrir komið í meltingarfærum snillinganna örkuðu þeir borginmannlegir niður Bankastrætið í ævintýraleit, [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- July 23, 2006 – 22:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Eftir sex daga flyt ég með pabba á Öldugötu í Vesturbænum, þar sem ég kem til með að búa í eitt ár. Þaðan er stuttur spölur í Háskólann, hvar ég mun nema íslensk fræði. Ég tek mér námslán því launin mín ein og sér duga ekki. Námslánin duga heldur ekki ein og sér svo ég [...]
Categories: Hugleiðingar
- Published:
- July 21, 2006 – 14:22
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
H: Æ, hvað það var gott að komast í svona nudd. Þeir eru svo miklir fagmenn, vita allt hvaðeina hvernig skal bera sig að.
S: Já, ég fór í ægilega fínt nudd í Tyrklandi, vissi varla hvurt ég var að koma eða fara!
M: Tyrkneskt nudd, hvernig er það, er þá kannski gengið á manni?
AVS: Bróðir minn [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- July 19, 2006 – 13:16
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ágæt mynd, Bogart líklega aðeins ári frá því að verða stórstjarna, er þess vegna í aukahlutverki. Myndin versnar dálítið eftir miðju, og af hreinni tilviljun virðist það haldast í hendur við mikla fjarveru Bogart í þeim hluta myndarinnar. George Raft er ágætur í aðalhlutverki, en líklega hefði Bogie verið betri. Niðurstaða, þrír og hálfur bógart:
Categories: Kvikmyndir
- Published:
- July 18, 2006 – 02:53
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Dauðinn er afar stór hluti af lífi hvers og eins, eins og sæist þó ekki nema væri litið til þess vægis sem hinstu orð hafa jafnan þótt hafa, og enda hefur sérhver maður afar ríka tilhneigingu til að deyja einhvern tíma á lífsleiðinni. Þannig má rökstyðja að nábjargir og niðurholun heyri í raun til samfélagslegrar [...]
Categories: Hugleiðingar
- Published:
- July 17, 2006 – 19:39
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Er lag dagsins, af því ég fékk svoleiðis um daginn. Lagið er eftir Tom Waits.
Kaninkan hefur legið niðri nú í nokkra daga, en ég hef hvort eð ekki haft mikið að segja. Kannski það helst að ég klára þetta tímabil í pólitíkinni en hætti svo í báðum stjórnum. Þarmeð gef ég ekki kost á mér [...]
Categories: Pólitík, Tónlist, Úr daglega lífinu
- Published:
- July 17, 2006 – 17:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í gærkvöldi réði ævintýraþráin för er við Alli stungum af úr bænum og keyrðum um landsbyggðina, frá klukkan sex til miðnættis. Það hefði ekki skipt neinu máli hvaða stefnu hann hefði ákveðið að taka, hvert á land sem duttlungar bílstjórans hefðu borið hann, ég hefði farið með honum án þess að mótmæla, hvort heldur sem [...]
Categories: Hugleiðingar, Tónlist
- Published:
- July 14, 2006 – 19:21
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Í morgun sást til bókavarðar hjálpa lánþega á besta aldri að opna dyrnar að salernisaðstöðu Borgarbókasafnsins í Kringlunni. Lánþegi var eins og kúkur í framan að fenginni aðstoð, og meðan hann gekk örna sinna beið bókavörður átekta nærri átakasvæði, ef ske kynni að lánþegi kynni ekki heldur að skeina sér. Þá list hafði lánþegi þegar [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- July 13, 2006 – 13:15
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Dark Passage: Plús einn bógart fyrir óvenju frumlega en samt einfaldari nálgun á viðfangsefnið fyrri part myndar. Mínus einn bógart fyrir undarlegan flótta frá plottinu undir lokin. Plús einn bógart fyrir að hafa Lauren Bacall og Bruce Bennett. Niðurstaða, uppbygging frábær en myndin eyðilögð um og eftir hana miðja:
To Have and Have Not: Plús einn [...]
Categories: Kvikmyndir
- Published:
- July 12, 2006 – 01:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Aldeilis fór Kisa illa með mig í nótt, hélt mér vakandi til tæplega sjö í morgun. Alltaf í þann mund að ég var að fara að sofna, þá hafði hún skyndilega margs konar aðkallandi þarfir. Loks hafði ég leyst úr þeim öllum og gafst færi á að sofna. Svo gerist það klukkan hálfníu að ég [...]
Categories: Kvikmyndir, Úr daglega lífinu
- Published:
- July 11, 2006 – 18:50
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Aux armes, citoyens,
Formez vos bataillons,
Marchons, marchons!
Qu’un sang impur
Abreuve nos sillons!
Mikið rétt, ég er að sækja mér þjóðsöngva af internetinu í massavís. La Marseillaise, Gimn Sovetskovo Soyuza, Fratelli d’Italia, Deutschland über alles, já og Lofsönginn. Í kvöld sit ég því heima með sverð mitt og fána, lofandi allra þjóða mikilfengleik á sama tíma. Raunar hljómar þýski [...]
Categories: Tónlist
- Published:
- July 10, 2006 – 23:47
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Börn á fjórhjóli. Þá er þess ekki langt að bíða að þau fljúgi þyrlum.
Categories: Óflokkað
- Published:
- July 10, 2006 – 14:12
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það var draumur sem breytti veröldinni eitt andartak, skóp liðna atburði úr engu og skildi mig eftir með tilbúnar minningar er ég vaknaði. Það tók mig dágóða stund að átta mig á því að líklega hefði tvílyfta kaffihúsið við Klapparstíginn aldrei verið til, og að þær kvöldstundir tvær sem ég eyddi þar, fyrst í sælu, [...]
Categories: Draumfarir, Hugleiðingar
- Published:
- July 9, 2006 – 23:43
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Ég hef ekkert að segja núorðið. Sjáum hvort og þá hvenær ég reportera næst.
Categories: Óflokkað
- Published:
- July 6, 2006 – 15:49
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þessa heyrði ég og fannst hún of góð til að sleppa henni. En svo birti ég ekki fleiri:
Hjón á áttræðisaldri komu að Bústaðasafni. Maðurinn beið í bílnum, en þar sem Bókabíllinn stóð á hlaðinu ákvað konan að kíkja fyrst þangað að gá að ákveðinni bók. Henni var vísað í safnið, en það sá eiginmaðurinn ekki.
Stuttu [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- July 6, 2006 – 11:33
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þetta ætlar nú að verða meira sumarið. Eitt ljóð hefur mér tekist að yrkja það sem af er sumri (þyrfti helst að semja tuttugu til viðbótar). Ljóðið lýsir kannski frekar veðrinu en raunverulegum atburðum, auk þess er umfjöllunarefni ljóðsins aukaatriði og víkur fyrir veðurfarslýsingu fremur en öfugt. Það er svosum nógu viðeigandi fyrir þetta sumar [...]
Categories: Eigin verk, Úr daglega lífinu
- Published:
- July 6, 2006 – 01:38
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það er oftar eins og að tilheyra stórri fjölskyldu en opinberu battaríi að vinna á Borgarbókasafni. Núna áðan hringdi í mig Einar Ól. skáld neðan af Aðalsafni í leit að bók sem týnst hafði í kerfinu. Þá hafði bókin ratað inn í geymslu hjá mér án þess nokkur vissi af því.
Um daginn sá ég svo [...]
Categories: Kvikmyndir, Úr daglega lífinu
- Published:
- July 5, 2006 – 11:05
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þá skildi milli drengja og manna. Vona að þeir mæti Frökkum á sunnudaginn.
Categories: Óflokkað
- Published:
- July 4, 2006 – 21:31
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Kommon, framlenging! Það er líka óþolandi þrátt fyrir aðra vanhæfni íslenskra íþróttaþula hversu augljóslega þeir eru hallir á „herraþjóðina“ þýsku. En vitanlega er það þeirra mál ef þeir vilja sænga hjá mönnum sem heita Schweinsteiger.
Annars vantaði bara dánaryfirlýsingu þegar einn Ítalinn lá í valnum: Paolo de la Frutti, tuttugu og átta ára gamall, búinn að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- July 4, 2006 – 20:59
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Einmitt þegar ég hélt að við hefðum fengið óveruleikafirrtan iðnaðarráðherra.
Categories: Pólitík
- Published:
- July 4, 2006 – 14:20
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér datt í hug að blogga um hversu mikil fyrirhyggja það hefði verið að nefna barnið sitt Tan fyrir fimmtíu árum. Ennfremur hugðist ég og leiða að því líkur að ónefndur rithöfundur ætti vinsældir sínar allar undir jafn hentugu nafni miðað við tíðaranda. En ég er hættur við það núna.
Í gær tók ég framúrstefnulega ákvörðun [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- July 4, 2006 – 14:00
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Getur einhver frætt mig um sumarlán LÍN, svosum hversu há þau eru? Í fljótu bragði virðist fátt um svör á heimasíðunni þeirra, auk þess hún er leiðinlegri en lagasafnið. Ég hef nefnilega þegar nokkra hugmynd um hvernig ég ver næsta sumri.
Categories: Óflokkað
- Published:
- July 4, 2006 – 10:45
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Verkefnalistinn minn þessa dagana innifelur eina ljóðaþýðingu, grunnvinnu að smásögu og svo auðvitað að klára bókina mína. Spurning hvursu vel það sækist þessa vikuna. Áreiðanlega klára ég ekki neitt af þessu.
Categories: Eigin verk
- Published:
- July 3, 2006 – 17:34
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Það litla sem ég svaf í nótt svaf ég illa. Líklega það næsta sem ég hef komist kæfisvefni, sem aftur er líklega það næsta við að kafna í svefni. Mæli ekki með því. Tilfinningin er á borð við að vera timbraður tífalt á við það sem eðlilegt gæti talist. Og manni liggur við uppköstum.
Aðeins mánuður [...]
Categories: Úr daglega lífinu
- Published:
- July 3, 2006 – 11:26
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Mér verður hugsað til Þórbergs Þórðarsonar um nokkuð. Í raun er það allt saman alveg afskaplega fyndið.
Talandi um Þórberg, og skiptandi í raun algerlega um umfjöllunarefni, þá kom til mín maður á safninu í gær, vopnaður sjálfri Þórbergs Eddu og Marsinum til Kreml. Augljóslega var hann byrjandi. Glöggir lesendur geta sagt mér hvers vegna (enda [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
- Published:
- July 1, 2006 – 16:21
- Author:
- By Arngrímur Vídalín