Enginn Langholtsvegur

Helgi Hóseasson sat í strætóskýli um hádegisbil með nýtt og ægiflott skilti: „Brennið kyrkur Krosslafs helga“. Strætóbílstjórinn hélt eitt andartak að hann væri að bíða eftir sér og lagði upp að skýlinu. Þá glotti Helgi stríðnislega og veifaði framan í hann skiltinu. Ég sá í speglinum að bílstjórinn var eins og auli í framan þegar hann ók aftur af stað. Það væri enginn Langholtsvegur án karlsins.

No Trackbacks

5 Comments

  1. nýr bílstjóri? Pólskur kannski? Ég hélt að allir vissu af karli þarna á horninu rétt hjá KFUM/K höfuðstöðvunum.

    Posted June 8, 2006 at 14:11 | Permalink
  2. Sæll Arngrímur,
    bara að kvitta.
    Var að lesa Myndir af Laugarneshverfi, sem var skemmtilega nostalgískt.

    Posted June 8, 2006 at 17:12 | Permalink
  3. Brynjar hinn spaki

    Langholtsvegur rétt nær því að “vera”, þrátt fyrir að vera skreyttur með Helga Hós.

    Posted June 8, 2006 at 17:48 | Permalink
  4. Já, takk fyrir það! Ég ætla að skrifa alla grunnskólasöguna, í það minnsta. Endilega fylgstu með.

    Skelli einum tengli á þig.

    Posted June 8, 2006 at 18:41 | Permalink
  5. takk fyrir það ;)
    færð hlekk á móti.
    …og við sjáumst á endurfundinum

    Posted June 8, 2006 at 19:38 | Permalink