June 30, 2006

Af sektum og ljóðum

Ekki voru það Þjóðverjar, en ein kona sem ætlar aldrei aftur að taka bækur. Skildi ekki hvernig skuldirnar safnast saman. Nú, það er hægur leikur að útskýra: 10 kr. á dag per gagn * 30 gögn * 11 dagar. Sama dæmi nema með myndböndum, skiptið út 10 kr. á dag fyrir 90 kr. Já, þetta er auðvelt. Sem betur fór fyrir hana tók hún aðeins bækur. OG sem betur fór er hámarkssekt 3000 kr (Intrum-málin eru skemmtilegar undantekningar). Fyrirgefið mér þótt ég vorkenni henni ekki.

Að loknum degi tók ég mér nýlega ljóðaplötu Ingibjargar Haralds og Tómasar R. til láns á safninu. Hún fer rakleiðis inn á tölvuna mína. En, ef ég finn hana til sölu einhversstaðar, þá að sjálfsögðu kaupi ég hana. Minna mætti það ekki vera.

Brjálað að gera

Ekki einasta náði monsúnrigningargeðveikin að skola burt æstum lánþegum frá safninu í dag. Ótrúlegt raunar að safnið standi ennþá. En það er eins og sagt er, að máttur bókarinnar hann er … já.

Og nú skín sólin. Hvurslags annarrarvíddarlánþegaskrímsl ætli við fáum þá? Líklega Þjóðverja á stuttbuxum.

Spurning í Gallup könnun

„Átt þú barn í grunnskóla?“ Einn svarmöguleiki var: Veit ekki.

Það finnst mér fyndið.

Annars tilkynnist hérmeð að lokað verður fyrir athugasemdir í ótilgreindan tíma, vegna álags sem auglýsingaþrjótar leggja á þessa síðu.

Föstudagsmorgunn - hljómar eins og þversögn

Klukkan er kortér yfir ellefu og ég á ekki að mæta til vinnu fyrr en klukkan eitt, á móti kemur að ég vinn til lokunar. Veðrið er gott fyrir þá sem ætla að vera inni, ekki nærri eins hryssingslegt eins og á mánudagskvöldið en talsvert meira rok. Gerði tilraun og lagaði tvo og hálfan bolla í kaffivél sem bíður aðeins upp á heila bolla. Aðeins fyrir fagaðila, ekki gera þetta heima hjá ykkur.

Alveg áreiðanlega, svona þegar maður veltir því fyrir sér, er til a.m.k. einn þrýstihópur fyrir því að kaffivélar framtíðarinnar hafi sérhak milli heilu bollanna til að auðvelda mönnum að laga hálfa. Það eru til þrýstihópar fyrir öllu, eins og sá í Bandaríkjunum sem berst fyrir réttindum sínum til að laðast að börnum. Það eru til vinsælli þrýstihópar.

Nú er orðið ansi langt síðan ég fór nógu snemma á fætur til að geta gert allt sem ég vildi fyrir vinnu, t.d. fá mér morgunverð. Enn hef ég ekki fengið mér morgunverð. Nei, ég fékk mér kaffi, og ég bloggaði um það. Svo þykist ég á engan hátt vera firrtur. Ég nenni ekki að fá mér morgunverð.

June 29, 2006

ALGJÖRLEGA ótengt síðustu færslu, þá vakti þessi frétt áhuga minn. Málefnið er vissulega verðugt. Spurningin er hvort hann sé í nógu góðu formi til að synda þetta. En hver veit, kannski tekur hann hafnfirðinginn á þetta.

Að loknum arðsömum degi á bókabíl

Ég lofaði myndum af slöngu að sleikja á mér hálsinn og mér strjúkandi rottu. Þetta get ég ekki staðið við nema að hluta, sjá hér. Ég hefi bætt mynd við færsluna.

Ótrúleg áhrif annars sem veðrið hefur á mann. Væri veðrið ekki svona grátt og einsleitt væri þetta mitt besta sumar í mörg ár. Einu skiptin sem sólin sýnir sig gerir hún það aðeins til að svíkja okkur, sýna okkur hver raunverulega hefur völdin. Svona eins og ríkisstjórnir.

Í þriðja lagi að sinni, þá er ég að lesa nokkrar bækur, eina af hverjum ég lánaði sjálfum mér úr bókabílnum í dag. Sú er svo hræðilega hryllilega léleg að ég held það varði við lög um persónuvernd að tilgreina höfund hennar. Fyrst hann var nógu vitlaust sjálfur til að setja nafn sitt á kápuna hlýtur það engu að síður að heyra undir lög um persónuvernd, vegna þess að augljóslega er hann sjálfum sér hættulegur, og jafnvel lesendum sínum (þeir gætu dáið úr hlátri). Slíkt fólk ber ekki að úthrópa og ég er ekki Dévaff. Áhugasömum er bent á að senda mér tölvuskeyti, vilji þau komast að því hver bókin er.

Nick Cave

Nick CaveÞá er ég búinn að redda okkur Alla miða á Nick Cave. Þeir sækjast í matarhlénu. Ef Cave verður hálft eins góður og hann fyrir síðast verð ég ánægður. Það voru einfaldlega bestu tónleikar sem ég hef farið á.

Annars mætti ég of seint í vinnuna í dag. Á slíkum dögum er slæmt að fá hausverk, því þá getur maður ekki beðið um verkjalyf án þess allir haldi að maður hafi verið fullur kvöldið áður. Sem ég var ekki, svo það er betra að sýna verknum smá þolinmæði.

Upprisukvöld Nykurs II

NykurÉg er í skýjunum! Þetta var frábært, æðislegt. Húsið var troðfullt, fjölmennt jafnt sem góðmennt, Ingibjörg Haralds var vá!

Eitt finnst mér um eigin flutning, en það er að þótt ljóð séu og eigi að vera fullkomlega opin gagnvart túlkun, þá skildist það líklega þannig að öll ljóðin mín fjölluðu um ástina. Svo var ekki. En auðvitað eru þau opin gagnvart túlkun, sem áður segir.

En já, ég er í skýjunum. Gaaapandi sæla.

June 27, 2006

Upprisukvöld Nykurs

Hér má lesa fréttatilkynningu um viðburðinn í Tímariti Máls og menningar. Sömuleiðis hér á Tíuþúsund tregawöttum, Ljóð.is og hér á vefriti Torfhildar, félags bókmenntafræðinema við Háskóla Íslands.

Annað kvöld verður svo spilað viðtal við einn okkar Nykursmanna, Emil Hjörvar Petersen, í Víðsjá. Á það má hlusta á netinu eftir að heim er komið.

June 26, 2006

Nykur kunngjörir

Þið hafið fullt leyfi (lesist skylda) til að dreifa þessu sem víðast:
Nykur
Árið 1995 var Nykur stofnaður af nokkrum ungum skáldum sem bókmenntavettvangur og sjálfshjálparbókarforlag. Á vegum Nykurs komu fyrstu verk skálda og rithöfunda á borð við Andra Snæ Magnason, Davíð A. Stefánsson, Steinar Braga, Ófeig Sigurðsson og fleiri. Alls komu út 13 bækur á vegum Nykurs til ársins 2003.

Nú, þremur árum síðar, hefur stokkast upp og fjölgað í mannafla Nykurs. Yngri skáld hafa bæst í hópinn og flóran orðin meiri. Í kvöld mun Nykurinn koma aftur upp á yfirborðið, tvíefldur og með ferskan blæ. Frá og með þessum tímapunkti mun Nykur verða nýtt skálda- og bókmenntaafl á Íslandi. Með haustinu munu koma út bækur nokkurra skálda undir merkjum Nykurs.

Air

Ég er búinn að vera að smekkfylla tölvuna mína af tónlist, Dýrin í Hálsaskógi komin inn, þvílík snilld. En lög dagsins eru tvö að þessu sinni, La Femme d’Argent (silfurgellan) og De Voyage de Penelope, með Air, af plötunni Moon Safari, sem jafnframt er plata dagsins. Á þeirri plötu er lag sem ég hef alltaf haldið að heiti Toi et moi. Kemur í ljós að það heitir Remember. Skrýtið.

Ég finn ekki Virgin Suicides plötuna mína. Arg!

Annars eru nokkur æðisleg lög á nýju Air plötunni. Ef einhver getur lánað mér hana þá verð ég afar þakklátur.

June 24, 2006

Konungur dýranna

Der König den TierenÍ gærkvöldi sleikti slanga á mér hálsinn eftir að hafa ferðast vítt og breitt um kropp mér og ég tók mér rottu í hönd, aðeins til að leggja hana frá mér aftur eftir að ég hafði strokið henni lítið eitt. Menn mega búa sér til allar mögulegar og ómögulegar merkingar úr þessu ef þeir vilja, ef þeir fá eitthvað út úr því. En svona var það nú samt. Bókstaflega. Haldið ykkur fast, myndirnar koma seinna.

Mér skilst að ég hafi misst af partíi aldarinnar heima hjá Bjössa fyrir vikið. Það verður víst ekki á allt kosið.

June 23, 2006

Ótemjan

Senn skríður nykurinn upp úr Kumburtjörn. Ég finn það í hófunum. Miðvikudagskvöldið nálgast.

Vilt þig endurnýjaði bókum?

Sv0 það sé alveg á hreinu, þá er það ekki hluti af starfi bókavarðarins að endurnýja bókum þegar fólk fer erlendis. Það virðast fáir gera sér grein fyrir því að bókavörðurinn vinnur eftir ákveðnum föllum og kommon sensi.

June 21, 2006

Við Reynisvatn

Í morgun, á þessum fallega en mishlýja degi, fór ég með Bókabílnum upp í nýrri hluta Grafarvogs og Grafarholt. Útsýni að norðan yfir Reynisvatn er afar fallegt, en úr hinni áttinni blasa við ljótir bráðabirgðaskúrar Ingunnarskóla auk heldur ókræsilegra fjölbýlishúsa. Þá gildir, á góðum morgni sem þeim, að horfa aðeins í aðra áttina. Og láta sig dreyma.

June 20, 2006

Nægur tími

Breska ríkisútvarpið (BBC) hefur ákveðið að hætta framleiðslu á tónlistarþættinum Top of the Pops eftir 42 ár.
-Mbl.is

Nú jæa, þá hef ég altént 42 ár til að horfa á það eðla prógram.

Siðfræði - sjálfshjálp

Íslandsbók MikaelsMér fannst alltaf mjög táknrænt fyrsta daginn minn hér á safninu þegar ég var látinn fjarlægja bækur um siðfræði til að rúma fyrir sjálfshjálparbókum - og það í sjálfri Kringlunni. Ótvírætt tákn tímanna, því þá var raðað eftir vinsældum. Ég var minntur á þetta áðan við uppröðun þegar ég rak augun í rekkann „Siðfræði - sjálfshjálparbækur“. Það virðist engum nema mér detta í hug að þetta tvennt séu andstæður. Í það minnsta er Íslandsbók Mikaels síst siðlegasta leiðin til að ginna af fólki peninga ((„Mikael er kennari frá orsakasviðinu. Fræðsla þessa afls er boðin óskilyrt [merking? innsk. mitt] með það að markmiði að hjálpa mönnum til að skilja betur sjálfa sig og meðbræður sína. Mikael segir þetta fræðsluefni afar gamalt, en framsetning þess sé öðru hverju [hve oft og hver gerir það?] færð í þann búning sem hentar því tímaskeiði sem í hlut á; breytingum í málfari og menningu [þetta á sumsé eingöngu við um hugmyndakerfi hins fróma kennara frá orsakasviðinu, eða hvað? innsk. mitt]“ (bls. 11, leturbreyting mín) )). Eða hvað, áreiðanlega er fullt af fólki sem treystir því að hægt sé að hafa samband við kennara af hinum og þessum sviðum tilverunnar, meira að segja „orsakasviðinu“.

Í hillu 2

Hvernig stendur á því að karlar hlusta aldrei og konur geta ekki bakkað í stæði: Munurinn á kynjunum og hvað er til ráða eftir Allan og Barböru Pease.

Er vandamálið kannski ekki síst fólgið í því að misvitrir einstaklingar halda fram þessum mun og skrifa um hann bækur? Nema kannski séu þeir bestir í að leysa vandamálin sem skapa þau.

Fokkíng veðrið

Ef þetta gráa veður helst mikið lengur verð ég vitlaus. Snælduhoppandigargandi vitlaus. Það hefur ekki sést annað í meira en tvær vikur!

June 18, 2006

Í Árbæjarsafni

ÁrbæjarsafnFór með Alla á Árbæjarsafnið í gær, í fyrsta skipti í tæp sextán ár. Hittum Hjördísi og Kristínu Láru í miðasölunni. Hjördís var langflottust í upphlutnum, finnst hún ætti að fá sér sinn eigin til að vera í á tyllidögum.

Það fyrsta sem bar fyrir augu þegar inn var komið var hópur fólks að stíga þjóðdansa. Þar hittum við Steinþórsson útvarpsmann, en við Alli flúðum fljótlega þegar áhorfendur voru beðnir að taka þátt í Vikivaka. Pönk- og diskósýningin í Kornhúsinu var ágæt, fannst þó fulllítil áhersla lögð á pönkið miðað við diskóið. Samkvæmt Steinþórssyni mun gömul kona í þjóðbúningi hafa dansað þar á ljósfleti við diskótónlist. Synd að hafa misst af því. Þegar kom að torfhúsunum varð ég fyrir örlitlum vonbrigðum, því mig minnir að það hafi verið kýr á básunum í Árbæ þegar ég var lítill. Minnist þess altént að hafa sprautað á bróður minn úr spenum einnar þeirra. Það er samt alltaf jafn gaman að koma í torfbæi. Það vekur upp svo sérstakar stemningar.

Eftir dágóðan rúnt um safnið enduðum við Alli í Dillonshúsi að fá okkur vöfflur og kaffi, en þá voru aðeins um tuttugu mínútur í lokun. Við Alli gerðum okkur að góðu þær kræsingar sem við gátum notið á þeim skamma tíma (ég át mig a.m.k. saddan), en ekki voru allir eins ánægðir. Það var allt vitlaust inni í eldhúsi, stelpurnar að hamast við að hrúga kökum og vöfflum á borðin, sem hurfu jafnóðum svo lengstum voru þau tóm. Einn kúnninn ákvað því að standa inni í eldhúsi og skammast í stelpunum fyrir lélega þjónustu. Annar kúnni kvaðst ekki hafa fengið kakóið sem hann pantaði hálftíma áður. Honum var boðið hvað sem hann vildi í staðinn, eða að bíða í fimm mínútur í viðbót eftir kakóinu, en hann vildi ekkert. Á endanum slapp hann við að borga. Við hin fengum afslátt án þess að biðja um hann (án þess að vilja hann). Ég þoli ekki svona. Þær voru allar af vilja gerðar en fengu ekkert nema vanþakklæti. Svo fremi sem ég sé stóðu þær sig eins og hetjur.

En allajafna var ferðin hin ánægjulegasta og greinilegt að ég hef misst af miklu á öllum þessum árum sem hafa liðið milli heimsókna á Árbæjarsafnið.

Þetta er Bloggið um veginn, stafrænt bókfell fyrir hugðarefni Arngríms Vídalín, ljóðskálds og bókavarðar, skrásett af honum sjálfum, öðrum til sárs gagns og nauðsynjar.

» Um höfundinn
» Um bækurnar

Síður

Hér kemur efni

Bloggið um veginn is proudly powered by WordPress.
WP-Vicksburg layout by Illudium Phosdex.
Valid XHTML / Valid CSS
13 queries in 2.142 seconds.

©Arngrímur Vídalín Stefánsson 2005.
Allt efni á þessari vefsíðu er verndað af ákvæðum höfundalaga. Það er sett hér til þess að unnt sé að lesa það af skjá. Sérhver eintakagerð eða dreifing efnisins þess utan er óheimil nema til komi samkomulag við höfund, sérstök lagaheimild eða samningur við samtök rétthafa höfundaréttar.
Notkun, sem brýtur í bága við lög eða samninga, getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.