Aríar drekka líka kaffi

Myndu kærir lesendur þessarar síðu trúa mér ef ég skrifaði hér að ég hafi eytt klukkutíma á Kofa Tómasar frænda með sófa fullan af nasistum mér á hægri hönd? Klukkutíma eyddi ég þar, ekki lengri tíma, vegna þess að ég var í þann mund að snappa. Ég get spurt sjálfan mig að því næstu árin hvernig í ósköpunum ég entist svo lengi.

Nasistar þessir óðu uppi með alla þá frasa sem einkennt hafa nasista hingað til (dæmi: Lengi lifi hinn aríski kynstofn!; Jón Þórir Arnórsson var góður maður (muni ég rétt var hann djöfuls nasisti); þeir, líkt og ég mun gera, dóu síg-hælandi með nafn foringjans á vörum; djöfulsins júðarnir munu yfirtaka okkur (fyrst þið eruð af hinum sterka aríska kynstofni, mestum allra kynþátta, hvernig geta þá hinir óæðri „júðar“ undirokað ykkur?); helvítis negrarnir hafa ekkert til að vera stoltir af, hver vill svosem hafa ógeðslega stórt typpi? (athyglisverð nálgun …); Pólverjar er aumasti armur hins hvíta kynstofns; Himmler hafði ekkert leyfi til að reyna að semja við Kanann, o.s.frv. o.s.frv.). Og þeir ræddu þetta ekki á rólegu nótunum, onei, þeir beinlínis öskruðu skoðanir sínar hver að öðrum.

Mér leið eins og ég væri í einhverjum öðrum heimi, í það minnsta á einhverju öðru tilverustigi. Nákvæmlega hvar steig ég fæti niður þegar ég vaknaði í dag? Nákvæmlega hvað veldur því að fólk getur kokgleypt annarri eins þvælu og skorið svo algjörlega á tengsl heilastarfsemi og tungutaks? Hvernig í andskotanum er hægt að vera svona djöfull firrtur?

Ég er ekki einu sinni viss um að ég vilji vita svarið, í það minnsta ákvað ég að blanda mér ekki í umræðurnar, heldur yfirgaf ég svæðið. Það er ekki mitt hlutverk að heyja krossferð gegn fáfræði mannskepnunnar og enda sundurskorinn í einhverju skoti bakvið aðalskrifstofu FÍÞ. En þetta eru án efa þær súrrealískustu kringumstæður sem ég hef fundið mig í.

No Trackbacks

3 Comments

  1. ojbarasta!!!

    Posted February 2, 2006 at 23:14 | Permalink
  2. Brynjar hinn spaki

    Hversu gamlir voru þessir kappar?

    Posted February 3, 2006 at 01:50 | Permalink
  3. Flestir eldri en ég, sumir álíka gamlir. Aukinheldur sátu á borði miðaldra kona að sumbli og tveir unglingspiltar, báðir með hakakrossa tússaða á handarbökin, öll þrjú reykjandi eins og strompar.

    Posted February 3, 2006 at 12:18 | Permalink