Áðan keyrði ég stjúpbróður minn, hver er meðlimur í einni af þessum absúru klíkum sem tröllríða bloggheimum um þessar mundir, í Kópavoginn. Á leið minni til baka kveikti ég á Útvarpinu og brá í brún við að heyra óperu á ensku. Tónlistin var flott, draugaleg og kraftmikil, en mér finnst sem það ætli aldrei að [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- December 3, 2005 – 21:37
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Þeir sem henda eggjum í hús vegna þess að einhver býr eða bjó þar eru fífl. Þeir sem ekki sætta sig við að hér á landi gegna dómstólar hlutverki réttvísinnar, en ekki þeir, þeir eru sömuleiðis fífl.
Annars vil ég taka fram að ástæðulausu að ég er ekki faðir Envers Hoxha.
Categories: Óflokkað
- Published:
- December 3, 2005 – 20:26
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
1. Finna mér konu.
2. Gefa út bók.
3. Ljúka doktorsprófi í a.m.k. einu fagi.
4. Ljúka BA-gráðu í a.m.k. þremur fögum.
5. Flytjast búferlum til Ítalíu.
6. Ferðast um víðan og breiðan heiminn.
7. Bæta sjálfan mig.
Sjö hlutir sem ég get:
1. Ort ljóð undir ýmsum háttum.
2. Spilað á gítar.
3. Sýnst [...]
Categories: Óflokkað
- Published:
- December 3, 2005 – 19:20
- Author:
- By Arngrímur Vídalín
Margt hef ég vitað gáfulegra en að reisa háhýsi á misgengi, enda þótt það sé sérstaklega hannað til að standast jarðskjálfta. Hljómar eins og öfgakennd leið til að storka örlögunum.
Categories: Óflokkað
- Published:
- December 3, 2005 – 14:10
- Author:
- By Arngrímur Vídalín