Mér sýnist ég ætla að velja besta árstímann til að veikjast. Það hittist alltaf allt svo vel á hjá mér.
Categories: Óflokkað
Mér sýnist ég ætla að velja besta árstímann til að veikjast. Það hittist alltaf allt svo vel á hjá mér.
Categories: Óflokkað
Það er ekki gott að vakna þegar maður er við það að fara til útlanda. Og finna að þursabitinu frá því deginum áður hefur vaxið ásmegin. Senn verð ég eitt stórt þursabit ef að líkum lætur.
Categories: Óflokkað
Mikið er gott að við beisluðum kjarnorku, fyrir utan það hvað hún er góður orkugjafi, þá er hún svo góð leið til að halda valdajafnvægi. Já, og svo er alltaf gaman þegar 270 kíló af plútoni hverfa eins og dögg fyrir sólu. Þá þurfum við ekki að hafa áhyggjur af því að losa okkur við [...]
Categories: Óflokkað
Hafið þið einhvern tíma lent í því að eyða mjög persónulegri bloggfærslu vegna þess ykkur fannst hún klisjukennd?! Hvers eigum við wannabe extróvertin að gjalda fyrir öll hin sem komu á undan?
Categories: Óflokkað
Lífið er óspennandi í meira lagi um þessar mundir. Utan það að ég hef gengið frá fyrstu drögum að nýrri ljóðabók. Hún er svona annaðhvort eða verk. Og ég er vel undirbúinn fyrir skellinn.
Categories: Eigin verk
Ég braut eina af lífsreglum mínum áðan. Það geri ég ekki aftur, en er þó ánægður með að hafa brotið hana í þetta eina sinn. Hversu afdrifaríkar afleiðingarnar verða mun koma í ljós á næstu mánuðum.
Categories: Eigin verk
Ég sé eymd í hverju horni
í hverjum kima sé ég sorg.
Á göngu sé ég svartstakk
sín vonbrigði bera á torg.
Í augum sérhvers er angist
og eilífðar nístir hvern mein.
Í vondri sem þessari veröld
vér vargbitin stöndum ein.
Í vetrarins húmi þeir hírast
við húsgafl sér orna undir feld.
Þeir hafa eigi viður né væri
né vonir né hugsjónaeld.
Hverfa mun lífið úr lúkum
ljábitnum [...]
Categories: Eigin verk
Manni hefnist fyrir að fara fyrr að sofa en ætlað var. Hefði ég farið í háttinn stundvíslega klukkan tíu væri ég álíka vakandi og lík. Þess í stað er ég vakandi í eirðarleysi, óhamingjusamur og dauðþreyttur. Já, manni hefnist.
Ég var sofnaður kortér í tíu, kortéri á undan áætlun. Fimm mínútum síðar vakna ég við háværar [...]
Categories: Óflokkað
Jesús almáttugur, hans blessaða blóð, vor heilagi hái faðir!!! Nú þegar tavaríssj Kári Páll Óskarsson hefir lært að setja voðamyndir af þessu tagi inn á síðu sína, og farinn að ræða um afturhaldsstofnanir miðalda, þá er ekki langt í að einherjar og óvættir eldi grátt silfur á götum úti. Ég er uggandi um framtíðina. Hvað [...]
Categories: Óflokkað
Andri bróðir sagði mér áðan að bekkjarbróður sinn hefði einhvern tíma dreymt að hann væri að borða loðið bjúga. Sá hefur að sögn bróður míns ekki viljað borða bjúgu síðan. Hann Freud vinur minn hefði ekki verið lengi að ráða í þetta. En sjálfur læt ég staðar numið hér.
Categories: Óflokkað
Mér finnst þetta ljóð fyndið.
Categories: Óflokkað
Ég svaf tvo tíma í nótt. Í gærnótt svaf ég fjóra tíma og annað eins nóttina þar á undan. Samt mætti ég á réttum tíma í vinnuna og í skólann klukkan átta í morgun, enda þótt ég ætti ekki að mæta fyrr en kortér í tíu. Ég hef sumsé sofið samanlagt jafnlengi yfir eina helgi [...]
Categories: Óflokkað
Vatn komið á að nýju í Harbin.
Heitt vatn komið á í Grafarvogi.
Það er sem mig hefur alltaf grunað. Grafarvogur og Harbin eru einn og sami staðurinn.
Categories: Óflokkað
Ég skal leyfa hverjum sem vill fjármagna að nota hugmynd mína um að framleiða Life ends at 40 lyklakippur. Hana, þar fór fjórðungur lesenda.
Categories: Óflokkað
Í fyrstu hélt ég að hér væri verið að rugla saman tveimur mönnum, þar sem ég hef aldrei áður heyrt George Best kallaðan fimmta bítilinn. Hins vegar hét fyrsti trommari Bítlanna Pete Best, sem þeir skiptu út fyrir Ringo Starr á Hamborgartímabilinu. Svo hefur Stuart Sutcliffe oft verið nefndur fimmti bítillinn, þótt gleymdi bítillinn hefði [...]
Categories: Menning og listir
Ég var að koma heim af jólaglöggi starfsmannafélags verslunarinnar sem ég vinn í og nafngreini ekki. Þar flutti ég nokkur ljóð að eigin frumkvæði. Mest var ég hissa á að ég kæmist upp með að segja að verslunin væri ákveðið form auðvalds. Ég skal játa að rétt áður ég sagði það hugsaði ég: Jæa, nú [...]
Categories: Eigin verk
Ef jólin eru eitthvað í líkingu við lagið Svona eru jólin þá eru þau ömurleg. Þó þau ekki væru nema á par við sönginn í laginu, þá væru þau hræðileg.
Tilvitnun dagsins
Police chief Wiggum (on the phone): Uh, Mrs. Simpson, I have some bad news. Your husband was found DOA..
Marge: Oh my god! He’s dead?
Wiggum: Oh [...]
Categories: Óflokkað
Ætli þessi fái vinning fyrir að vera númer þúsund?
Categories: Óflokkað
Ég hef velt því fyrir mér hvað ofan í annað, aftur og aftur, fram og til baka, hvers vegna í ósköpunum Fréttablaðið fær að birta niðurstöður skoðanakannana sinna, ógagnrýnt fyrir vinnubrögð sín, sem eru á par við þau sem búast mætti við af límsniffandi gagnfræðanemum (ekki svo að skilja að ég álíti að gagnfræðanemar sniffi [...]
Categories: Fjölmiðlar
Þjóðverjar deila um jólasveininn. Hvernig væri að við samþykktum bara jólin fyrir það sem þau eru og hefðum kaupmenn í staðinn?
Categories: Óflokkað
Mig verkjar svo í höndina að best gæti ég trúað ég hafi kýlt af einhverjum hausinn. Það hef ég nú samt ekki gert. Orsök verkjarins er mér alveg hulin sem stendur, utan mig rámar í að hafa marist illa á höndinni fyrr í ár, jafnvel seint í fyrra, hver veit nema það hafi verið snemma [...]
Categories: Óflokkað
Um þessar mundir eru auglýsingaspjöld af Garðari Thor Cortes á hverju götuhorni. Þetta er leiðin til frægðar á Íslandi, að heita Thor að millinafni. Sérstaklega ef maður á vindbelg og alnafna, að millinafni undanskildu, að foreldri. Þá segir fólk: Hann er alveg eins frábær og Garðar Cortes, nema þessi er Thor! THOR! Því eins mikil [...]
Categories: Óflokkað
Það er kannski óþarfi að tuða neitt mikið um það, en aðeins eitt orð kom upp í huga mér er ég las þetta.
Categories: Pólitík
Enda þótt ég geti ekki skotið Sverri Jakobssyni og bókmenntamafíunni á kommentunum hans ref fyrir rass (e. to shoot them a fox for an ass) ætla ég að birta hér tilvitnun. Menn mega svo giska á höfund bókar og bókina sjálfa, hafi þeir nokkurn áhuga. Þetta er raunar það svívirðilega létt að ég skil ekki [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
Svefnnauðgari gengur laus, segir á forsíðu DV. Þannig að teóretískt séð, ef það er unnt, þá er ólöglegt að nauðga svefni. Það er gott að hafa miðil sem leggur jafn mikla alúð við nýyrðasmíð og DV, og fjallar af svo fræðilegri sérþekkingu um fílósóf sína og metafysik. Svefnnauðgari er enda fílósófískt metafór, ef það var [...]
Categories: Íslenska
Hafið þið einhvern tíma staðið sjálf ykkur að því að þýða texta, hálfvitalega texta, jafnvel úr rússnesku, þar sem fyrir koma hálfvitalegar samræður á borð við: Hvar er vegabréfsáritun yðar? Í vegabréfinu mínu. Aha, þarna er vegabréfsáritun yðar! En frábært! og hafandi dröslast gegnum framandi stafróf í óþjálli, slitinni orðabók með míkróskópletri, jafnvel útgefnu af [...]
Categories: Óflokkað
Tavaríss Skúli Jón Kristinsson á orð dagsins.
Categories: Pólitík
Líklega hef ég verið sjö ára þegar ég vann mínar fyrstu deilur. Þá var ég á skóladagheimili og deilurnar snerust um hvort Ísland væri eyja eða ekki. Rök hans voru þau að Ísland héti Ísland en ekki Íseyja, auk þess að hann væri eldri en ég. Mín rök voru þau, að bróðir minn segði að [...]
Categories: Minningarbrot
Vondi náunginn í Harry Potter ku valda ómældri skelfingu í hjarta sérhvers mannsbarns, við það eitt að hann sé nefndur á nafn. Sjálfur gæti ég aldrei óttast einhvern sem heitir Valdimar. Sér í lagi þegar hann virðist eingöngu herja á börn og gamalmenni, en ég er hvorugt. Hljómar eiginlega eins og hálfgerður wanker, er það [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
Í Piacenza átti bróðir minn vin sem hét Ricardo Anselmi, og fjölskylda hans var vinafólk okkar. Einn daginn var okkur boðið í fermingu Ricardos, vegna þess að sá siður er tilhafður innan rómversk-katólsku kirkjunnar, að börn fermist 8 til 9 ára. Ég var þvísemnæst ótilfáanlegur að fara, þartil faðir minn sagði mér að Ricardo yrði [...]
Categories: Minningarbrot
Komið er á markaðinn Latabæjarvítamín. Er það til marks um markaðssetningarsnilldina eða siðblindu stórfyrirtækisins? Jafnvel hvort tveggja. Bráðum verða þeir farnir að segja börnunum hvernig þau eiga að klæðast, hvernig þau eiga að tala og hvaða stjórnmálaflokk þau eiga að kjósa. Börn sem eiga foreldra sem ekki eru styðjandi Latabæjarheimsveldið verða beðin að tilkynna um [...]
Categories: Óflokkað
Það er Babalú, Skólavörðustíg 22.
Categories: Óflokkað
Helsta verkefni eftir BA-gráðu: Flytjast búferlum til Ítalíu, vera þar eins lengi og bankinn leyfir.
Helsta verkefni eftir að ég kemst á eftirlaun: Flytjast búferlum til Ítalíu, varanlega.
Helstu verkefni þarna á milli: Klára mastersgráðu, klára doktorsgráðu, skrifa margar bækur, dveljast eins mikið á Ítalíu og unnt er.
Categories: Óflokkað
Kannski rétt að taka fram að síðasta færsla var ekki ein margra birtingarmynda ógeðslegs húmors bloggara heldur sarkastísk sjálfsgagnrýni.
Categories: Óflokkað
Hrach! Þetta er eitt þessara kvölda sem ég varla veit hvað ég á að gera af sjálfum mér. Ég vil ekki sofa, vil lesa en nenni því ekki, myndi ekki bæra hendi á móti mat en nenni ekki að útbúa hann, langar í te – kannski ég láti það eftir mér, kannski ekki. Já, það [...]
Categories: Óflokkað
Ég fann þetta próf hjá Vésteini. Ég ætla að brjóta regluna einu sinni og birta niðurstöðurnar, vegna þess hversu viðeigandi einhverjum gæti fundist þetta.
Fræðatröll
Þú ert vanafastur, tilfinningaríkur innipúki.
Fræðatröllið er forvitið að eðlisfari og er köllun þess í lífinu að komast að sannleikanum. Fræðatröll má gjarnan finna í dimmum skúmaskotum bókasafna þar sem þau rykfalla og [...]
Categories: Óflokkað
Þessa hugmynd að myndasögu fékk ég fyrir fimm árum. Fimm árum! Og ég teiknaði hana líka, en ég henti henni. Henti henni! Vegna þess að hún er léleg!! Og þessi, þrátt fyrir stílíseraðri teikningar, er margfalt verri en sagan mín! Ego potentissimus!!! Mouahhmouahh!!!!!
Þessi saga er samt frábær. Og þessi. Og þessi. Og þessi. Og þessi. [...]
Categories: Óflokkað
Kommusetningar eru merkingarlega mikilvægar. Það er til dæmis talsverður merkingarmunur á setningunum ek vil engi hornkerling vera og ek vil engi, hornkerling vera. Önnur vill ekki vera hornkerling en hin vill ekki aðeins það heldur vill hún einnig eiga engi. Því þarf að gæta vandlega að hvort eða hvar þarf að setja niður kommur. Ómerkilegri [...]
Categories: Íslenska
Ég var að byrja á smásögu eftir tæplega tvö ár af engu. Á hálftíma tókst mér að koma frá mér tæpri blaðsíðu óhreinskrifaðri. Þá vissi ég ekki meir. Ég veit aðeins það, að það sem prýðir þessa blaðsíðu, því þarf að dreifa jafnt og þétt yfir fleiri blaðsíður. Þá er ekki gott að skrifa línulega, [...]
Categories: Eigin verk
Ég skrapp í Borgarleikhúsið að sjá Sölku Völku í gærkvöldi. Ég var nokkuð ánægður með sýninguna, þótt ýmislegt vantaði kannski upp á, en um það er ég líklegast síðasta alræðisvaldið þar sem ég hef ekki lesið bókina. Hinsvegar verður þess líklegast ekki langt að bíða að ég geri það, nú þegar áhugi minn á sögunni [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir, Menning og listir
Hér má finna alla söguna Собачье сердце eftir meistara Михаил Булгаков á frummálinu. Fyrir áhugasama.
Categories: Bækur / Bókmenntir
A star is born: Ástir og ævi Silvíu Nóttar. Þannig hélt blaðið Blaðið upp á dag íslenskrar tungu.
Kastljós hafði sinn eigin hátt á, þar sem fengnir voru tveir helstu málsnillingar þjóðarinnar – annar af hverjum eini yfirlýsti mólótovkokteilkastari landsins, hinn alþingismaður – til að ræða framtíð íslenskrar tungu og rapptónlist.
Sjálfur hafði ég minn eigin hátt [...]
Categories: Óflokkað
Fari þessi þjóðkirkja andskotans til vilji hún ekki starfa innan ramma íslenskra laga. Það að Halldór Ásgrímsson vilji veita kirkjunni sjálfsákvörðunarrétt umfram önnur félagasamtök og fyrirtæki um að framfylgja grundvallarmannréttindum ómerkir allt mannréttindahjal hans og alls hans flokks, ef hann og hans djöfulsins skítaflokkur höfðu þá ekki fyrir löngu dæmt sjálfa sig sem skíthæla og [...]
Categories: Pólitík
Ég minnist þess einn daginn, þegar ég var fjögurra til fimm ára og bjó á Ítalíu, að ég lenti í rifrildi við vin minn jafngamlan. Sá hét Simone Bulla og hafði áreiðanlega búið lengur en ég á Ítalíu. Heiður minn, að því er ég hef sjálfsagt talið, leyfði mér samt ekki að lúta í lægra [...]
Categories: Minningarbrot
Hafið hugfast að velja bókmenntir til gjafa en ekki aðeins bækur.
Já, hafið það hugfast að Dan Brown og Alexander McCall Smith eru ekki bókmenntir.
Categories: Bækur / Bókmenntir
Fór og keypti mér nýja húfu áðan. Hún er töff.
Hér er svo mynd af mér að spila á gítar á hæfileikakeppninni. Það er líka töff.
Það sem meira er, ég var að fá töff hugmynd að tilraun. Ég fagna öllum sjálfboðaliðum. Tilraunin kemur til með að taka þrjár mínútur á haus.
Categories: Óflokkað
Annað dæmi er safnvörðurinn Stefán Pálsson sem sagðist í Sunnudagsþættinum að hægrimenn ætti nánast að bannfæra vegna stuðnings við Bandaríkin og að uppi sé stjórnmálasamband við það land. Ástæðan er sögð vera meintar pyntingar CIA á föngum. Pyntingar eru auðvitað slæmar slæmar. En bíðum við.
Getur það hugsast að vinstrimenn og þá sérstaklega kommúnískir vinstrimenn hafi [...]
Categories: Pólitík
Ég keypti í dag bókina Völuspá fornritanna og ýmiskonar athuganir eftir E. nokkurn Kjerulf, frá árinu 1945. Mér segir svo hugur um að ég hafi dottið óafvitandi í lukkupottinn og muni geta haft hina mestu skemmtan af þessari bók. Einnig segir mér svo hugur um að íslenskufræðingum enn þann dag í dag sé í nöp [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
Bókin Veröld okkar vandalausra (Once We Were Orphans) eftir Kazuo Ishiguro reyndist mér nokkur vonbrigði, varla verð þeim mikla meistara sem skrifaði Óhuggandi (The Unconsoled), einhverja þá mögnuðustu bók sem ég hef lesið. Það eru að vísu ljósir punktar í bókinni, og það gladdi mig að uppgötva að aðalpersónan, Banks, er sama tilfinningalega og samskiptalega [...]
Categories: Bækur / Bókmenntir
Áðan sem endranær á morgnana langaði mig í kaffi og fór því í kaffiteríu skólans. Þar sem stelpurnar þennan daginn kunnu ekki að laga kaffi tók ég það að mér, enda þótt ég kynni það ekki sjálfur. Mig langaði semsagt svo mikið í kaffi að ég vippaði mér yfir afgreiðsluborðið og tók til við að [...]
Categories: Óflokkað